Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson VÍGAMENN Nafn á frummáli: Raw Force. Handrit: Adward Murphy. Tónlist: Walter Murphy. Myndatökustjóri: Frank John- son. Leikstjóri: Edward Murphy. Tvær ungar og sætar bíða þess að vera „grillaóar" af hinum helgu mönnum. Vígamenn Stundum er nauðsynlegt að skreppa í bíó og sjá dellumynd. í það minnsta kann þetta að vera sáluhjálparatriði fyrir þann sem hefir það að atvinnu að skrifa um bíó. Það er nefnilega svo að menn geta orðið þreyttir á að setja sig í gáfulegar stell- ingar. Mannskepnan er ekki fullkomin og því skyldum við krefjast þess að öll hennar verk nálgist fullkomnun? Ég held að telja megi þá kvikmynd sem nú er sýnd í Regnboganum og gegn- ir nafninu „Vígamenn", dæmi- gerða dellumynd er gefur góða innsýn í hugarheim hluta þess fólks sem byggir Suður-Kali- forníu. Maður hefir nefnilega séð gegnum tíðina slatta af svip- uðum myndum framleiddum í Suður-Kaliforníu. En ekki er öll vitleysan eins og þrátt fyrir að þessi dellu- mynd líkist um margt öðrum á- líka kvikmyndum þá er hún um margt frábrugðin. Fyrst ber að nefna að kvikmyndatakan er greinilega í höndum manns sem lítur á kvikmyndatökuvél ejns og skammbyssu. í öðru lagi er myndin klippt af handahófi — þannig eru greinilega misheppn- uð myndskeið numin brott án þess að þau séu endurtekin. Hvað varðar efnisþráðinn þá er um að ræða hóp „vígaíþrótta- garpa" sem leggja af stað ásamt fríðu föruneyti í hriplekum dalli frá Suður-Kaliforníu til Aust- ur-Asíu. Eins og vera ber dafnar ástin í slíkri ferð. En þegar hæst stendur kelerí er ráðist um borð og kveikt í skipinu. Hrekst hóp- ur farþega í gúmbát að eyju nokkurri. Þar er fólkinu boðið til veislu hjá hópi munka sem eru gæddir ofurkrafti. En eins og segir 1 prógrammi „ ... v e r ð a þeir að gæta sér- staks mataræðis" til að öðlast þennan ofurkraft sem nægir til að vekja til lífs afdankaða „vígaíþróttagarpa" sem hafa verið greftraðir á eyjunni. Um hið sérstaka mataræði munk- anna segir nánar í prógrammi: „Þeir (munkarnir) leggja sér nefnilega mannakjöt til munns, en vilja þó ekki kjötið af hverj- um sem er, því að kjöt ungra kvenna er það eina rétta fyrir hina helgu menn.“ Ég held að ég hafi ekki fyrr tekið tilvitnun beint upp úr prógrammi en einu sinni er allt fyrst og ástæðan fyrir því að ég vitna hér í pró- grammið er á hve fyndinn hátt er orðaður hinn snarsnúni efnis- þráður — sem gerir þær kröfur einar til áhorfandans að hann nenni að brosa út í annað. Mikið er annars gott að sjá einstaka sinnum verk sem gera ekki meiri kröfur til manns en popp- kornið sem selt er í anddyri bíósins. Hitt er svo aftur annað mál að stundum er poppkornið óætt — hér var það öfugt, popp- ið frábært en myndin bragðlaus. Leikhús brauðsins Leíklist Jóhann Hjálmarsson Þjóðleikhúsió, gestaleikur: Bread and Puppet Theater: ÞRUMUVEÐUR YNGSTA BARNSINS Flytjendur: Ralph Denzer, Trudi Cohen, Michael Romanyshyn, Linda Below, John Beil, Cate Peck, Peter Hamburger, Howard Cantor, Andrea Mugnai, Barney Carlson, Mark Dannenhaver, Amy Trompeter og Susie Dennyson. Áður en sýning Þrumuveðurs yngsta barnsins hófst sýndi Brauð- og brúðuleikhúsið banda- ríska smáþætti í dæmisagna- formi og með myndskýringum, en þeim var öllum sameiginlegt að vara við hverskyns ógnum sem steðja að mannkyninu. Fólk var hvatt til að mótmæla til þess að halda lífi. Brauð- og brúðuleikhúsið er þekkt fyrir leiklist sem felur í sér mótmæli, er virk og tekur afstöðu, en gætir hófs í boðun sinni, vill ekki eingöngu vera predikun. Þó má skilja það á stjórnandanum, Peter Schu- mann, að hann sé ekkert á móti því að predika: „Við viljum að þið skiljið að leikhúsið er ekki ennþá komið I neitt endanlegt form, það er ekki sú verslun sem þið álítið það vera, þar sem þið fáið eitthvað gegn gjaldi. Leikhús er ekki þannig. Það er skyldara brauði. Skyldara nauðsyn. Leiklistin er e.k. trúarbrögð. Hún er skemmtileg. Hún predikar og framkvæmir helgiathöfn þar sem leikararnir reyna að upp- hefja líf sitt í átt til hreinleika og alsælu leiksins sem þeir taka þátt í.“ Því verður ekki neitað að leik- arar Brauðs- og brúðuleikhúss- ins eru snjallir áróðursmenn, slyngir í þeirri íþrótt að koma skoðunum sínum til skila f list- rænu formi. Stuttu þættirnir voru að vísu í einfaldara lagi, að því er virtist gerðir fyrir börn. En kannski er þetta leiðin til að ná til fólks, oft á götum úti eins og leikflokkurinn stundar. Máli skiptir að vera ekki of torskilinn, segja hlutina þannig að allir skilji. En þrátt fyrir hugmynda- ríka uppsetningu, blöndu manna og brúða, voru þetta mótmæla- aðgerðir af venjulegasta tagi. Því var mótmælt sem allir geta verið sammála um að mótmæla: stríði, glæpum. Þrumuveður yngsta barnsins er líka mótmælaleikur sem felur í sér von um að yngsta barn sið- menningarinnar sem elst upp meðal dæmdra líkama endalok- anna rísi upp og neiti að halda áfram á sömu braut, þ.e.a.s leið nútímamannsins til heljar. Það verður stormur og síðan blása allir menn í sameiningu svo að úr verður þrumuveður sem hreinsar andrúmsloftið og skap- ar friðaröld. Þetta frelsandi veð- ur er þrUmuveður yngsta barns- ins. Eins og vænta mátti af rómuð- um leikflokki voru tæknileg at- riði vel unnin, brúður í senn óhugnanlegar og gæddar mikl- um þokka. Sum atriði voru hryssingsleg, önnur fögur. Það var óvenjuleg reynsla að kynnast Þrumuveðri yngsta barnsins og einkennilegt hve mikið er hægt að segja á einfaldan hátt. Brauð- og brúðuleikhúsið er ekkert venjulegt brúðuleikhús, flokkur- inn styðst að vísu við brúður, en ekki síður við önnur form listar eins og til dæmis tónlist. Talað mál er sömuleiðis ríkur þáttur, áberandi er skýr framsögn. Gaman var að tilraunum leik- flokksins til að tjá sig á íslensku, en tilvalið hefði verið að hafa öll spjöld með íslenskum áletrun- um, en ekki sum. Því miður urðu sýningar Brauð- og brúðuleikhússins ekki nema tvær. Slíkar heimsóknir geta auðgað íslenska leikstarf- semi og eru oftast af hinu góða. Bread and Puppet-leikhópurinn. Við erum öll manneskjur Kvíkmyndir Ólafur M. Jóhannesson Regnboginn: EINFALDI MORÐINGINN („Den enfaldige mördaren") Leikstjórn og handrit: Hans Alfredson, byggt á eigin skáldsögu. Kvikmyndataka: Jörgen Persson. Aöalhlutverk: Stellan Skarsgárd, Hans Alfredson, Maria Johanson, Per Myrberg, Lena Pia Anderson. Sænsk, gerð 1982. Sýningartími 109 mín. Einfaldi morðinginn kemur á óvart. Hreinmálaðar persónurn- ar, hvítar og svartar, eru orðnar næsta fátíðar í kvikmyndagerð síðustu ára og það rómantíska, einfaldaða raunsæi sem ein- kennir myndina og uppreisn lít- ilmagnans rifjar upp fyrir manni smásögur Einars H. Kvaran og fleiri skáldverk hans samtíðarmanna. En yfir öllu drottnar afburðaleikur Stellan Skarsgárd. Söguþráðurinn er ekki marg- brotinn. Ungur maður (Stellan) er hornreka í sinni heimasveit, fátækur, munaðarlaus en hans höfuðglæpur er að fæðast hol- góma. Af þeim sökum er hann álitinn og kallaður bjáni. Er hann missir móður sína er Stell- an settur niður hjá ríkasta manni sveitarinnar, stórbóndan- um og verksmiðjueigandanum (Hans Alfredson). Mannfjandi þessi gerir öllum illt og á Stellan auma vist í stíu í útihúsi með búpeningi bónda, þrælandi myrkranna á milli, kauplaus. Það verður Stellan til happs að hann kynnist vænum ná- grönnum sem ofbýður meðferðin á hinum bæklaða niðursetningi. Þau taka hann upp á arma sína og hjálpa að komast til manns. Þessi manneskjulega framkoma verður til þess að kynda hat- ursbál hjá Alfredson sem hefnir sín, en Stellan á síðasta orðið. Hér eru persónurnar skýrt dregnar. Anderson er djöfull i mannsmynd sem lætur eingöngu illt af sér leiða, enda minna höf- uðstöðvar hans, verksmiðja með sínum hvæsandi, rauðglóandi múrsteinsbrennsluofnum óneit- anlega á helvíti. Stellan hefur hins vegar hreina og fagra sál. Má ekkert aumt sjá, blíður og góður. Uppreisn hans gegn kúg- ara sínum er hin eilífa barátta góðs og ills. Því er ekki að neita að atburðarásin er full-einfölduð á köflum og á einstaka stað er gengið heldur langt, t.d. þegar Alfredson brennir peningana sem hann hefur innheimt af fá- tæklingum. Nirflar kasta ekki verðmætum á glæ. Þá eru engl- arnir og hlutverk þeirra nokkuð þokukenndur þáttur. Leikstjórinn, Hans Alfredson, er kunnastur fyrir gamanleik í sínu heimalandi enda bólar oft, blessunarlega, á góðu skopskyni í þessari annars átakanlegu mynd. Og þrátt fyrir að Alfred- son hafi litla reynslu á bak við myndavélina er leikstjórn hans röggsöm og ákveðin og einkan- lega er stjórn hans á leikurunum góð. Stellan Skarsgárd skarar framúr einvala leikhóp, túlkun hans á vandmeðförnu hlutverki hins holgóma lítilmagna á eftir að sitja lengi í minningunni. Allt látæði og tal er trúverðugt. Hræddur er ég um að einhver hafi minna haft fyrir Silf- urbirninum en Stellan Skarsgárd. Hans Alfredson leikstýrði og skrif- aði handritið eftir eigin skáldsögu að Einfalda morðingjanum, auk þess sem hann fer með annað að- alhlutverk myndarinnar. Annars er vel skipað í öll hlut- verk og týpurnar góðar. Leik- stjórinn, Álfredson, fer með hlutverk hins miskunnarlausa harðstjóra og ferst það vel. Þá er einnig ástæða að minnast sér- staklega á aðlaðandi leik Mariu Johanson í hlutverki lömuðu stúlkunnar. Einfaldi morðinginn er vand- virknislega gerð og eftirminnileg Stellan Skarsgird er minnisstæður í hlutverki hins holgóma niður- setnings í Einfalda morðingjanum. mynd um ýmsa bresti mann- skepnunnar og eilífa baráttu þeirra sem minna mega sín. Á vissan hátt minnir hún okkur — sem sögð erum fullfrísk — líka á það skilningsleysi, sem enn í dag er alltof útbreytt, á kjörum þeirra sem hafa ekki af fullri heilsu að státa og kunna ekki að bera hönd fyrir höfuð sér. Því á hún þarft erindi til allra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.