Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 33 Kikká samning hjá Steinum hf? Hljómsveitin Kikk hefur ekki verið starfandi lengi, en engu að síður vakiö efirtekt, þar sem hún hefur leikið. Kemur þar tvennt til; góð frammistaöa söngkonunnar og svo rokkaöur hljóöfæra- leikur sveitarinnar aö baki henni. Járnsíöan hefur nú fregnaö, aö útsendarar hljómplötuútgáf- unnar Steina hf. hafi runniö á hljóðiö eitt kvöldiö og sýnt hljómsveitinni mikinn áhuga. Hefur Járnsíöan þaö fyrir satt, aö einn starfsmanna fyrirtæk- isins hafi rætt viö hljómsveitina í vikunni til aö kanna jaröveg- inn meö hugsanlegan samning fyrir augum. Egó í mánaó- arferð um Noróurlöndin Nú liggur Ijóst fyrir, aö hljómsveitin Egó heldur í helj- arins mikið tónleikaferð um Noröurlöndin innan nokkurra vikna. Fremur hefur veriö hljótt um þessa tónleikaferð, en Ijóst er aó hún hefst um miðjan maí. Heldur Egó þá til Noregs og treöur þar upp í Kúbbi 7 í Osló áöur en menn svissa sér yfir til Danmerkur og skemmta Baun- unum, frændum vorum, í ein 10 skipti áöur en þeir halda aftur til Noregs til frekara hljóm- leikahalds. Alls mun hljómsveitin koma fram á einum 20 tónleikum og stefnt er aö því aö hún veröi í a.m.k. mánuö á feröalaginu. Hugsanlega gæti þaö orðið enn lengra, en kunnugir sögöu Járnsíöunni, aö hljómsveitin hygöist helst vera komin heim fyrir 17. júní til þess aö geta efnt til tónleika á þjóöhátíöar- daginn. Tónleikar Fall í byrjun maí Hljómsveitin Fall, sem er ís- lendíngum að góðu kunn frá því hún lék hér snemma vetr- ar 1981, hefur ákveöiö að sækja landann heim öðru sinni, þrátt fyrir aö áhorfendur hafi ekki beint flykkst á tón- leika hennar fyrir hálfu öðru ári. Tónleikar hennar veröa í Aust- urbæjarbíói þann 6. mái nk. og er aöeins um þessa einu tón- leika aö ræöa. Hljómsveitin kemur hingaö til lands á vegum Gramms eins og siöast, og vonandi er nú aö fólk mæti betur en síöast. Þá komu um 800 manns á þrenna tónleika. Aö sögn Ásmundar Jóns- sonar hjá Gramminu, þarf um 550 manns til þess aö tónleik- arnir standi á siéttu og er þá miöaö viö að miöaverð veröi krónur 250. Lægra getur þaö ekki veriö nú á dögum, þegar erlendar hljómsveitir sækja okkur heim. Glæsileg verðlaunagetraun Járnsíðunnar og Steina hf.: Neal Schon, gítarleikari hljómsveitarinnar Journey. Hversu mikið veistu um hljómsveitina Journey? — fimm armbandsúr í verðlaun fyrir rétt svör Bandaríska hljómsveitin Journ- ey er líkast til kunnari en svo, að hana þurfi að kynna sérstaklega. Hún hefur um árabil verið í hópi vinsælustu rokkhljómsveita vest- anhafs og átt hverja metsöluplöt- una á fætur annarri. Ekki er langt síöan nýjasta plata hljómsveitarinnar, Frontiers, kom út. Þótt hér væri á feröinni nokkuö ööruvísi tónlist en Journey hefur * hingaö til veriö platan upp bandaríska vinsælda- listann og seldist þar grimmt. Hver svo sem ástasöan hefur veriö, hefur hljómsveitin aldrei náð aö koma fótunum almennilega undir sig í Evrópu, en af og til hafa lög hennar oröiö vinsæl hjá Bret- um og þá einkum á sérhæföum rokklistum. Þá hafa ýmsar af bestu ballöðum flokksins átt fylgi aö fagna, enda sveitin þekkt fyrir þær. Engu aö síöur hefur þetta ekki dugaö til þess aö skapa al- mennar vinsældir í líkingu viö þær, sem ríkja vestanhafs. í samvinnu viö Steina hf., um- boösmenn CBS og þá um leið plötufyrirtækis Journey hér á landi, hefur Járnsíöan ákveöiö aö efna til getraunar i sambandi viö hljóm- sveitina. Verðlaunin eru ekkert slor, heldur 5 vönduö og sérstök Journey-armbandsúr. Öllum er frjálst að taka þátt í„ getrauninni, sem fer hér á eftir. Spurningarnar, sem lagöar eru fram, eru fimm talsins. Svörin viö spurningunum skuluö þiö skrifa niöur á blaö og senda Járnsíöunni fyrir 18. maí. Dregiö veröur úr rétt- um lausnum og þeir hinir heppnu veröa úrvals armbandsúri ríkari. Hreint ekki á hverjum degi sem svona tækifæri býöst, og þá eru það spurningarnar. 1. Jonathan Cain heitir núverandi hljómborösleikari Journey. Hvaö hét forveri hans í hljóm- sveitinni? 2. Steve Smith er trommuleikari Journey, en hvaöa tegund trommusetts notar hann? 3. Hvaö hétu „hit-lögin“ þrjú af plötu Journey, Escape, sem út kom 1981? 4. Neal Schon, höfuöpaur Journ- ey, lék aöeins 16 ára gamall meö einum þekktasta gítarleik- aranum vestanhafs. Sá ráölagöi honum aö stofna eigin hljóm- sveit fremur en aö standa í skugganum af honum sjálfum. Framan af bar tónlist Journey keim af tónlist þessa fræga gít- arleikara, sem enn gerir þaö gott. Hvaö heitir hann? 5. Hvað heitir söngvari Journey? Grýlurnar gefa Mávastellið út á glænýrri hljómplötu „Ég er hérna með bækling um Mávastellíð, og þar kemur fram, aö það er framleitt í Danmörku af Bing og Gröndahl og þar vinna fleiri hundruð manns við þaö eitt að handamála postulín," sagði Ragnhildur Gísladóttir, yfir-Grýla, er hún hélt smá ræðu í tilefni út- komu fyrstu breiðskífu Grýlanna, sem kynnt var á fundi með blaöa- mönnum og öðrum velunnurum í Klúbbnum á fimmtudagskvöld. Þá var um leið haldiö upp á tveggja ára afmæli hljómsveitar- innar, en það var í raun þann 1. apríl, en þá var ekki rétt aö vera með nein hátíðahöld, enda föstu- dagurinn langi. En hvaö er þetta meö Máva- stelliö? Jú, plata Grýlanna ber ein- faldlega nafniö Mávastellið, og af þeim sökum fannst Ragnhildi rótt aö geta aöeins um tilurö þess og uppruna. Hún lét þess einnig getiö í leiöinni, aö ef fólk vildi ekki safna Mávastellinu, gæti þaö safnaö Fallandi laufi eöa einhverju ööru. Þaö er óhætt aö segja aö Grýl- urnar hafi tekiö kvöldið meö trompi í Klúbbnum. Ekki aöeins kom plata þeirra öllum í gott skap, heldur var frammistaöa þeirra sjálfra, er þær lóku nokkur lög, slík, aö undirritaöur minnist aldrei aö hafa heyrt í þeim jafn sterkum. Ofan á ágæta spilamennsku, sem tekiö hefur stórstígum framförum, var sviösframkoma þeirra meö miklum ágætum og ættu margar aðrar íslenskar sveltir aö taka sór þær til fyrirmyndar í þeim efnum. Þessi fyrsta breiöskífa Grýlanna var tekin upp fyrri hluta janúar- mánaöar í Hljóörita af Louis Aust- in, en hann tók einnig upp plötu Egós, i mynd. Reyndar geisaöl versta veöur á landinu á meöan á upptökunum stóö, þannig aö sæta varö lagi til þess aö komast í Fjöröinn. Lögin á nýju plötunni eru ellefu talsins og öll eftir Grýlurnar og þær eiga einnig allar útsetningar. Hljóöblöndun fór fram í Starling Studios (eign Ringo Starr) í Ascot. Dóra Einarsdóttir hannaöi umslag- iö, sem og hiö fyrra, og þaö er hljómplötuútgáfan Spor, sem gefur plötuna út. Ragga Gísla var hrsint frábær f Klúbbnum á fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.