Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
Rændi flugvél
og stakk af
Miami, 13. maí. AP.
KONA vopnuð cldhys.su rændi seint
í gær þotu frá Capitol-flugfélaginu
með 248 farþega innanborðs.
Neyddi hún flugmanninn til að
lenda á Kúbu. Farþegunum var ekki
gert mein og flugu þeir allir aftur til
Miami í morgun eftir stuttan stans á
Kúbu.
Flugránið átt sér stað rétt fyrir
áætlaða millilendingu í Miami.
Vélin var á leið frá San Juan á
Puerto Rico á leið til Chicago í
áætlunarflugi. Flugræninginn yf-
irgaf vélina í Havana, en að sögn
eins starfsmanns Capitol-flugfé-
lagsins veit enginn hvað kúbönsk
yfirvöld hyggjast fyrir með hana.
Að sögn talsmanns bandarísku
alríkislögreglunnar verður rætt
við farþegana til þess að reyna að
fá sem greinarbesta lýsingu á kon-
unni.
Þetta er í annað sinn á tæpum
mánuði, að flugvél frá Capitol-fé-
laginu er rænt. í bæði skiptin hef-
ur verið um að ræða vélar á sömu
flugleið.
Fjórir sovéskir menntamenn:
Segja yfirstétt
lifa hátt á kostn-
að almennings
Moskva, 13. mȒ. AP.
FJÓRIR sovéskir menntamenn voru látnir lausir úr haldi í gær, en þeir hafa setið
á bak við lás og slá ásamt tveimur félögum sínum í nokkra mánuði. Stóð til að
draga þá fyrir rétt í Sovétríkjunum fyrir andsovéska starfsemi, en réttarhöldun-
um, sem áttu að vera í febrúar, var frestað af ókunnum orsökum.
Sovétmennirnir sex, eru allir virkir flokksmenn, en þeir voru sakaðir um að
hafa stofnað leynifélag sem vann að því að gera veg Evrópukommúnismans sem
mestan. Gaf félagsskapurinn út neðanjarðarblað þar sem sovésk stjórnvöld voru
hvött til ýmissra endurbóta, sem talið er að sé langt frá því að vera á dagskrá.
Þeir félagar létu í það skína í riti
sínu að sögn fréttaskýrenda, að ný
stétt væri sest að völdum í Sovét-
ríkjunum, yfirstétt sem lifði eins og
blóm í eggi á kostnað almúgans. Sem
fyrr segir er lítið vitað um ástæðuna
fyrir því að réttarhöldunum var
frestað. Þó er talið að ráðamenn í
Sovétríkjunum hafi ekki haft áhuga
á þeirri athygli sem slík réttarhöld
hefðu vakið. Þá er talið víst, að for-
eldrar sumra mannanna hafi beitt
áhrifum sínum til að losa synina úr
prísundinni. Mennirnir sex eru allir
ungir að árum, en foreldrar þeirra
sumra mikilsmetnir borgarar.
Hinn 26 ára gamli Sergei Batrov-
in, formaður óháðrar friðarhreyf-
ingar sem sovésk yfirvöld hafa reynt
að halda niðri með ýmsum leiðum,
fékk í gær landvistarleyfi í Banda-
ríkjunum fyrir sig, konu sína og 13
mánaða gamlan son. Yfirvöld í Sov-
étríkjunum hafa látið að því liggja
að Batrovin fái að fara úr landi þann
20. þessa mánaðar. Friðarhreyfingu
Batrovins skipa aðeins 25 Rússar eða
svo. Tveir þeirra fengu að flytjast til
Bandaríkjanna í júlí á síðasta ári og
búa nú í New York.
Ekki hugsað um megrun
• Þetta er brúðkaupstertan hans Simon Spies, ferðaskrifstofukóngsins
danska. Engin venjuleg rjómaterta þarna á ferðinni. Terta þessi var 11
metrar og 40 sentimetrar á hæð og þurfti krana til að koma henni fyrir á
réttum stað í veisluhöllinni. A myndinni má sjá bakara leggja síðustu hönd
á kökuflykkið, hann er efst á myndinni. Sá sem er að bogra neðst á
myndinni er útsendari heimsmetabókar Guinness. Er hann að ganga úr
skugga um hæð tertunnar til þess að geta skráð hana á síður bókarinnar
sem stærstu brúðkaupstertu heims. Á því er enginn vafi. Sínumynd AP.
Var ekki
einn um
að njósna
London, 13. maí. AP.
BREZKI túlkurinn, Geoffrey Prime,
sem með 14 ára ferli sínum sem
njósnari, skýrði frá fleiri mikilvæg-
um hernaðarleyndarmálum Vestur-
landa en nokkur annar, hefur senni-
lega ekki verið eini njósnari Rússa í
fjarskiptastöð Breta í Cheltenham,
sem er sú mikilvægasta í landinu.
í skýrslu frá öryggismálanefnd
ríkisins, sem fengið hafði fyrir-
mæli frá frú Thatcher forsætis-
ráðherra að rannsaka mál Primes,
kemur fram, að ekki sé „unnt að
útiloka þann möguleika, að fleiri
starfsmenn Cheltenham-stöðvar-
innar hafi látið Rússum í té upp-
lýsingar um mikilvægustu
leyndarmál."
Prime, sem er 44 ára, játaði í
réttarhöldunum yfir honum, að
hafa njósnað fyrir Rússa allt frá
árinu 1964, er hann var merkja-
sérfræðingur fyrir brezka flugher-
inn í Berlín, til ársins 1977, er
hann lét af starfi sínu við fjar-
skiptastöðina í Cheltenham.
Ný stjórn í
Austurríki
Vínarborg, 13. maí. AP.
Sósíalistaflokkurinn og Frelsis-
flokkurinn hafa náð samkomulagi
um myndun samsteypustjórnar í
Austurríki í kjölfar þingkosninganna
í landinu, þar sem sósíalistar misstu
11 ára gamlan hreinan meirihluta
sinn á þingi.
Heinz Fischer, formaður þing-
flokks sósíalista, sagði í dag, að
samkomulag þetta myndi leiða af
sér styrka og stöðuga stjórn í
Austurríki. Enn hefur ekki verið
tilkynnt hvernig ráðherraembætti
koma til með að skiptast.
MX-flaugarnar:
Reagan sneri fjár-
veitinganefndinni
slíkt kappsmál, að hann ritaði
fyrst níu af tólf aðilum undir-
fjárveitinganefndarinnar bréf er
hún fjallaði um málið. Undirstrik-
aði Reagan að hann myndi beita
sér fyrir minnkandi umsvifum í
vopnaframleiðslu, ef fjárveitingin
væri samþykkt, auk þess sem
hann útlistaði nauðsyn þess að
Bandaríkin létu ekki þau vopn,
sem þjóðin byggði öryggi sitt á,
verða úrelt og ónothæf ef til kast-
anna kæmi. Bréf Reagans varð til
þess að undirnefndin samþykkti
fjárveitinguna og einn nefndar-
rnanna, Warren Rudman, sagði að
ef bréfið hefði ekki borist, hefði
MX-málið verið dæmt til að falla
um sjálft sig.
Síðan fjallaði yfirnefndin um
málið og sendi Reagan þeim nýtt
bréf með sams konar innihaldi.
Varð bréfið til þess að aðalnefndin
samþykkti fjárveitinguna með 17
atkvæðum gegn 11 og nú á þingið
sjálft eftir að leggja blessun sína
yfir hana. Inntakið í bréfum Reag-
ans er, að hann lýsir yfir stuðningi
við þá hugmynd að eyðileggja tvo
kjarnaodda fyrir hvern einn nýjan
sem framleiddur er. Litið er á þá
hugmynd sem möguleika fyrir
Bandaríkjamenn er til afvopnun-
arviðræðna kemur við Sovétmenn
í næsta mánuði.
Leiðtogar brezku stjórnmálaflokkanna, Michel Foot, leiötogi Verkamannaflokksins, Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra og leiðtogi íhaldsflokksins, og Roy Jenkins, leiðtogi Bandalags frjálslyndra og sósíaldemókrata.
Thatcher varar flokksmenn sfna við bjartsýni:
Wa.shington, 13. maí. AP.
Aðalfjárveitinganefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings sam-
þykkti að í gær að láta eftir 560
milljón dollara fjárveitingu til
rannsókna og framleiðslu á
MX-flauginni, en Ronald Reagan
hefur sótt það fast að undanförnu
og kallað „friðartrygginguna“.
Reagan var afgreiðsla málsins
„Enginn vinnur kosninga-
skoðanakönnunum“
sigur á
Lundúnum, 13. maí. AP.
mÞAÐ SEM þingkosningarnar snúast
fyrst og fremst um er hvort Thatcher
situr áfram eða ekki,“ segir f forsíðu-
grein í vikublaðinu Economist f dag.
Blaðið heldur áfram: „Það er vart til
sá erlendur valdhafi, lýðræðislega
kjörinn eða einvaldur, sem ekki hefur
á einhvern hátt tjáð sig um Thatcher-
undrið."
Economist, sem er viðskiptarit og
hefur gagnrýnt Thatcher mjög á
fjögurra ára valdaferli hennar, seg-
ir í grein sinni, að harkalegar að-
gerðir hennar hafi leitt til mesta
atvinnuleysis í Bretlandi, sem sögur
fara af. „Málið snýst því einvörð-
ungu um það hvort fólk kýs Thatch-
er áfram í þeirri von að efnahags-
batinn komi hægt og bítandi með
aðgerðum hennar."
Þrátt fyrir spár um mikla vei-
gengni í komandi kosningum hefur
Thatcher varað flokksmenn sína í
íhaldsflokknum við of mikilli
bjartsýni. Enn ein skoðanakönnunin
var birt í Bretlandi í gær og gaf hún,
sem hinar fyrri, til kynna stórsigur
íhaldsflokksins.
„Dewey var of viss um sig, en
Truman vann hörðum höndum að
kjöri,“ sagði Thatcher og vitnaði til
bandarísku forsetakosninganna
1948. „Ekki svo að skilja að það sé
neitt líkt með Truman og Foot. Eng-
inn vinnur hins vegar kosningar á
skoðanakönnunum," bætti hún við.