Morgunblaðið - 14.05.1983, Qupperneq 30
HVAD ER AD GERAST UHIHELGINA?
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
Fjölbreytt fjölskylduhátíð
SUNNUDAGINN 15. maí kl. 14.30
hefst fjölskylduskemmtun á Hótel
Sögu. Það er skólahljómsveit
Mosfellssveitar sem heldur hátíð-
ina til fjáröflunar tónleikaferðalagi
til Ítalíu sem fyrirhugað er í
Fjölbreytt dagskrá verður á
hátíðinni. Félagar úr Leikfélagi
Mosfellssveitar verða með
skemmtiatriði fyrir börn. Karl
Úlfsson, leikari, les upp, nem-
endur Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar sýna dans, Karlakór-
inn Stefnir slær á létta strengi,
skólahljómsveitin mun spila og
loks mun hljómsveitin Galdra-
karlar leika fyrir dansi. Að-
gangseyrir er 100 krónur og er
létt máltíð innifalin ásamt gosi
og kaffi.
SKEMMTANIR
Norræna húsiö:
Færeyingavaka
í tilefni 40 ára
afmælis Færey-
ingafélagsins
í TILEFNI af 40 ára afmœli Færey-
ingafélagsíns svo og opnun Norð-
urlandahússins í Þórshöfn um
síðustu helgi efna Færeyingafé-
lagið, Norræna húsið og Norræna
félagið til kynningar á Færeyjum
með Færeyingavöku sunnudag-
inn 15. maí kl. 20.30 og sýningu í
anddyri og bókasafni Norræna
hússins.
Dagskrá vökunnar veröur sem
hér segir:
Stefán Karlsson handritafræö-
ingur flytur erindi sem hann
nefnir Frændur viö sundið —
Samskipti Færeyinga og ís-
lendinga í Kaupmannahöfn.
Karl Johan Jensen frá Færeyj-
um les kvæöi og kynnir fær-
eysk skáld.
Færeyska hljómsveitin BLUE
BIRDS leikur.
Félagar úr Færeyingafélaginu
sýna færeyskan dans.
Gestum veröur boöið aö taka
þátt í dansinum.
Aögangur að vökunni er ókeypis
og allir eru hjartanlega velkomnir.
Byggðakynning
Austfirðinga
Austfiröingafélagið í Reykjavík
efnir á sunnudaginn kemur til
svonefndrar byggðakynningar
öðru sinni. Samkoman veröur
haldin í Sigtúni við Suður-
landsbraut, sunnudaginn 15. maí,
og hefst klukkan 3 síödegis.
Þau byggöarlög sem kynnt
veröa á byggöakynningu Austfirö-
ingafélagsins nú, eru tvö nyrztu
sveitarfélögin í Noröur-Múlasýslu,
Skeggjastaðahreppur og Vopna-
fjaröarhreppur. Dagskráin veröur í
aöalatriöum þannig: Rætt veröur
um byggöarlögin og sýndar lit-
skyggnur þaöan. Gagnkunnugir
menn á þessum slóöum, Valgeir
Sigurösson, fyrrverandi blaöa-
maöur, frá Fremri-Hlíö og Gunnar
Sigurösson, áöur bóndi á Ljóts-
stööum, annast þennan þátt. Þá
mun Grímur M. Helgason, hand-
ritavöröur, glugga í gamlar sókn-
arlýsingar frá Hofi og Skeggja-
stööum.
Lesiö veröur upp úr verkum
nokkurra skálda og rithöfunda,
sem öll eru fædd á þessu svæöi
eöa hafa starfaö þar og búiö.
Þessir rithöfundar eru: Benedikt
Gíslason frá Hofteigi, Guöfinna
Þorsteinsdóttir (Erla), Gunnar
Gunnarsson, Kristján frá Djúpa-
læk, Þorsteinn Valdimarsson og
Örn Arnarson. Lesarar eru: Árnl
Benediktsson, Birgir Stefánsson,
Guörún Jörgensen, Gunnar Valdi-
marsson og Sonja Berg.
Árni Björnsson, þjóöháttafræö-
ingur, syngur viö undirleik Péturs
Jónassonar Ijóö eftir Sigurö Þórar-
insson við ýmis þekkt lög. Kynnir á
dagskránni er Birgir Stefánsson
kennari.
Broadway:
íslands-
meistaramót
í hárgreiöslu
Sunnudaginnn 15. maí fer fram
íslandsmeiataramót í hárgreiðslu
og hárskuröi í veitingahúsinu
Broadway.
Keppnin er haldin annaö hvert
ár og veitir rétt til þátttöku á Norö-
urlandamóti, sem haldiö veröur aö
þessu sinni 6. nóvember 1983 í
Danmörku.
Keppnisgreinar eru þrjár í
hverju fagi:
I hárgreiöslu: galagreiösla,
daggreiösla, klipping og blástur.
í hárskuröi: Blástur og greiösla
á eigin módeli, klipping og blástur
á útdregnu módeli, skultúrklipping.
Jafnframt veröur keppni nema í
báöum fögum. Dómarar veröa er-
lendir, tveir frá Danmörku og tveir
frá Englandi.
Keppnin hefst kl. 10 og lýkur kl.
17. Verölaunaafhending fer svo
fram á Galadinner um kvöldið.
Rokkhátíöin
í síöasta sinn
í kvöld
Upphaflega átti þessi Rokkhá-
tíð bara að vera í eitt skipti upp á
grín,“ sagði Björgvin Halldórsson
hljómlistarmaður í viðtali við Mbl.
í gær. „Nú, undirtektir og aðsókn
varð slík að í köld verður sú
fimmtánda og enn fyrir fullu húsi.
Þetta veröur þó líkast til í síö-
asta skipti, þó löngu sé oröið upp-
selt og þyrfti skóhorn til aö koma
fleirum inn. Viö ætlum aö brydda
upp á nokkrum nýjungum í kvðld,
en allt um þaö er leyndarmál enn-
þá.
En þetta hefur gengiö meö ólík-
indum, þaö er búiö aö vera
ánægjulegt aö vinna meö þessu
fólki sem kemur og syngur eftir
langt hlé og er jafnvel enn betra en
fyrr, og vil ég flytja þeim og öllum
aöstandendum kærar þakkir frá
hljómsveitinni, þetta er búiö aö
vera alveg klassi."
Tvennir tónleikar
norsks karlakórs
DAGANA 13.—16. maí verður
staddur í Reykjavík karlakór frá
Osló, Handelstandens Sangfor-
ening. Kórinn heldur tónleika í
dag, laugardaginn 14. maí, kl. 19
í Norræna húsinu og sunnudag-
inn 15. maí kl. 19 í Háteigs-
kirkju. Aðgangur að tónleikun-
um er ókeypis.
Handelstandens Sangforen-
ing sem stofnaður var 1847
hefur heimsótt ísland einu
sinni áður, 1924 hélt kórinn í
tónleikaför til Færeyja og ís-
lands og var hann fyrsti norski
kórinn sem heimsótti þessi
lönd.
Á síðustu árum hefur kórinn
haldið tónleika víðsvegar um
Evrópu. í Handelstandens
Sangforening eru 44 kórfélag-
ar með í ferðinni til íslands.
Stjórnandi kórsins er Olaf
Skaffloth og aðstoðarstjórn-
andi og undirleikari Gjermund
Hulaas.
Á efnisskránni í Norræna
húsinu verða auk norskra
verka sönglög eftir Schubert,
Schuman, Þórarin Jónsson o.fl.
Á tónleikunum í Háteigskirkju
á sunnudag eru negrasálmar,
Kirkjutónlist, og „Missa Laud-
ate Dominum" eftir Ernst
Tittel. Karlakór Reykjavíkur
mun greiða götur kórsins með-
an á dvöl hans stendur hér.
KVIKMYNDIR
MÍR-salurinn:
Kvikmyndin
„Þegar haustar“
Kvikmyndasýning verður í
MÍR-salnum, Lindargötu 48, nk.
sunnudag, 15. maí kl. 16. Sýnd
veröur kvikmyndin „Þegar haust-
ar“, gerð 1976 undir stjórn Ed-
mond Keosajans.
Meö helstu hlutverk fara Armen
Djigarkhanjan, Vladimir Ivasjov,
Lára Gevorkjan og Nikolaj Krjúts-
kov. Myndin er meö ensku tali.
Aögangur aö MÍR-salnum er
ókeypis og öllum heimill.
Gallerí Langbrók:
Jóhanna Þórðar-
dóttir sýnir
myndir úr tré
7. maí opnaöi Jóhanna Þórö-
ardóttir sýningu á lágmyndum úr
tré. Sýnir hún 15 verk en í þau
notar hún einnig blý, fjaörir og
ýmsan efnivið úr náttúrunni.
Jóhanna stundaöi nám í Mynd-
lista- og handíöaskóla íslands, og
hefur veriö viö framhaldsnám í
Amsterdam og Stokkhólmi. Þess
má geta aö hún hefur unniö
skúlptúr fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem veröur sett upp í
sumar viö nýbyggingu Rafmagns-
veitunnar aö Suöurlandsbraut.
Sýningin stendur til 22. maí og er
opin daglega frá 12—18 og um
helgar 14—18.
Myndlistaskólinn
á Akureyri:
Vorsýning
um helgina
Akureyri, 12. maí.
Nú um helgina, laugardaginn
14. maí og sunnudaginn 15. maí,
heldur Myndlistaskólinn á Akur-
eyri sýningu á verkum nemenda
skólans í vetur. Nefna þeir sýn-
inguna „Vorsýningu" og verður
hún haldin í húsnæði skólans,
Glerárgötu 34, á 3. og 4. hæö.
Verður sýningin opin báða dag-
ana kl. 14—22.
Nemendur skólans í vetur hafa
verið um 23, þar af eru 14 í
svonefndri dagdeild. Elsti nem-
andinn er 79 ára og sá yngsti 4
ára. Kennarar viö skólann eru alls
14. Skólinn er rekinn í nánum
tengslum viö Handíða- og mynd-
listarskólann, og má geta þess, aö
allir þeir nemendur skólans, sem
nú í vor sóttu um inngöngu í þann
skóla, stóöust inntökupróf hans.
Skráning nýrra nemenda fyrir
næsta ár fer fram nú síöast í maí
og þess má geta, aö þá um leiö
veröa haldin inntökupróf vegna
þeirra sem sækja vilja dagskóla-
deildina.
G.Berg