Morgunblaðið - 14.05.1983, Blaðsíða 31
HVAB ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983 31
Stokkseyri:
Þrjár sýningar í einni
Laugardaginn 14. maí opna þeir
Elfar Þórðarson og Vignir Jónsson
sýningu í barnaskólanum, Stokks-
eyri. Hér er um að ræða tvær
einkasýningar og eina samsýn-
ingu.
Elfar verður í suðurálmu og
sýnir þar olíu-, vatnslita- og acr-
ilmyndir sem eru flestar frá
Stokkseyri, Eyrarbakka og
naesta nágrenni. Þetta er 8.
einkasýning Elfars en að auki
hefur hann tekið þátt í mörgum
samsýningum.
Vignir verður í norðurálmu og
sýnir þar hnýtingaverk sem eru
með nokkuð öðru sniði en fólk á
að venjast. Þetta er önnur einka-
sýning Vignis og hefur hann
einnig tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum.
Á göngum sýna þeir saman
myndverk unnin með blandaðri
tækni. Á samsýningunni bregða
þeir félagar út af þeim stíl sem
þeir hafa oftast unnið í og sleppa
að nokkru leyti fram af sér beisl-
inu.
Þess má einnig geta að sýn-
ingarskráin verður dúkrista,
þrykkt með gamalli taurullu.
Verður hvert eintak áritað og
tölusett. Sýningin verður opin
alla daga kl. 14—22 og lýkur
sunnudaginn 29. maí.
Listmunahúsið:
Alfreð Flóki
sýnir 40 verk
Sýning Alfreðs Flóka stendur
nú yfir. Sýnir hann 40 myndir
unnar með tússi, rauðkrít og
svartkrít.
Sýningin er opin daglega frá
10—18, laugardaga og sunnudaga
14—18, en lokaö á mánudögum.
Síðasti sýningardagur er 23.
maí.
Jón Baldvinsson
sýnir í Eden
Jón Baldvinsson listmálari
opnar málverkasýningu í Eden í
Hveragerði laugardaginn 14. maí.
Sýningin veröur opin fram yfir
hvítasunnu. Aö þessu sinni sýnir
Jón 45 olíumálverk, fantasíur og
landslagsmyndir, flestar nýjar.
„Ég er hrifinn af fuglum um
þessar rnundir," sagöi Jón. HÉg
nota þá sem þungamiöju í fantasí-
um mínum. Flestar myndirnar eru
frekar smáar, 30 sinnum 45,
sjálfstæö ævintýri um fugla. Mjög
litskrúöugar myndir.“
Jón hefur stundaö málaralist
síöan 1957 og haldiö fjölda sýn-
inga. Síðast sýndi hann í Gallerí
Heiöarási í haust, en þaö er gallerí
sem hann hefur innréttaö í eigin
húsi.
Gallerý Lækjartorg:
Gunnar Dúi sýnir
olíumálverk
Laugardaginn 14. maí nk.
opnar Gunnar Dúi myndlistarsýn-
ingu í Gallerý Lækjartorgi í
Reykjavík.
Gunnar er fæddur 22. október á
Akureyri 1930. Hann hefur stund-
aö nám í myndlist bæöi heima og
erlendis, meöal annars í Listahá-
skólanum í Malaga á Spáni,
Escuela De Artes Aplicadas.
Gunnar hefur haldiö 6 sýningar
á islandi og nokkrar erlendis m.a. í
Hollandi og Belgíu. Verk hans finn-
ast nú hjá einstaklingum og einka-
söfnum víöa um heim.
Á sýningunni í Gallerý Lækjar-
torgi veröa eingöngu ný olíumál-
verk. Öll verkin eru til sölu. Sýning-
in mun standa til 23. maí.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14—18, nema sunnudaga og
fimmtudaga, en þá er opiö frá
14—22.
Hallgrímskirkja:
Sýningu Sigrúnar
Jónsdóttur lýkur
á sunnudaginn
Sýningu Sigrúnar Jónsdóttur í
anddyri Hallgrímskirkju lýkur á
sunnudaginn. Sigrún sýnir
skúlptúr, kirkjuvefnaö, batik,
glugga o.fl.
Þaö er Listvinafélag Hallgríms-
kirkju sem stendur fyrir sýning-
unni. Sýningin er opin í dag á milli
kl. 14 og 19, en á morgun frá 14 til
22.
Blindrafélagið:
Tómstunda-
nefndin heldur
sýningu
Tómstundanefnd Blindarfé-
lagsins heldur sýningu á munum,
sem blindir og sjónskertir hafa
unníð.
Um er aö ræöa alls konar
handavinnu svo sem fatasaum,
hnýtingar og leirmuni.
Sýningin er aö Hamrahlíö 17 og
er opin 2—6 laugardaginn 14. maí
og sunnudaginn 15. maí. Aögang-
ur er ókeypis.
Vatnslitamynd-
ir einkenna
þessa sýningu
— segir Guðmundur
Karl Ásbjörnsson um
sýningu sína
„Aösóknin hefur verið góð og
hafa þegar selst margar myndir,“
sagði Guömundur Asbjörnsson
listmálari aöspurður um sýningu
sína á Kjarvalsstöðum.
„Ég sýni níutíu og fimm myndir
og er meirihlutinn vatnslitamyndir,
þaö gerir þessa sýningu ólíka öör-
um sýningum mínum því áöur var
ég bara meö olíumyndir. Þessar
myndir eru flestar málaöar frá
1981 og þar til núna en innan um
er ein og ein ejdri mynd.
Þetta mun vera mín sjöunda
einkasýning hér á landi, en ég hef
haldiö eina út í Þýskalandi auk
þess sem ég sýndi nokkuö margar
myndir á listahátiö í Múnchen
1972, þar sem óg var heiöursgest-
ur Deutsches Kulturverk."
Kjarvalsstaðir:
Þrjár sýningar
í gangi
Þrjár sýningar opnuöu seinustu
helgi á Kjarvalsstöðum og halda
áfram þessa helgi og næstu viku.
Sveinn Björnsson sýnir málverk
í austursal og forsal, Guömundur
Karl Ásbjörnsson sýnir vatnslita-
myndir og málverk og Páll Reyn-
isson er meö Ijósmyndasýningu í
vesturforsal.
LEIKHUS
Þjóðleikhúsið:
Nýr söngvari
ráöinn til að
syngja í óperunni
Lína langsokkur veröur á dagskrá
á uppstigningardag kl. 15.00, síöan
á laugardaginn 14. maí kl. 15.00 og
gilda á þá sýningu miðar sem dag-
settir eru 7. maí, en þá varö aö fella
niöur sýningu vegna veikinda; þá
verður sýning á Línu sunnudaginn
15. mai kl. 15.00 og gilda þá miöar
dagsettir 8. maí. — Sýningin á
sunnudaginn er 50. sýningin á þessu
vinsæla barnaleikriti, en nú fer sýn-
ingum aö fækka úr þessu.
Þjóöleikhúsiö er búiö aö ráöa nýj-
an tenórsöngvara í hlutverk Túridd-
ús og heitir sá Maurice Stern, ungur
bandaríkjamaöur sem er fastráöinn
við óperuna í Dússeldorf.
3. sýningin á Cavalleria Rusticana
og Fröken Júlíu veröur aö kvöldi
fimmtudagsins 12. mai. 4. sýningin
veröur föstudaginn 13. maí. 5. sýn-
ingin veröur síöan sunnudaginn 15.
maí.
Laugardagskvöldiö 14. mai er
sýning á nýjasta leikriti Birgis Sig-
urössonar, Grasmaðki, sem Brynja
Benediktsdóttir leikstýrir.
LR:
Guðrún, Skilnaö-
ur og Hassið
Hiö nýja leikrit Þórunnar Sigurö-
ardóttur, Guórún, veröur sýnt bæöi
á föstudagskvöld og sunnudags-
kvöld. Þegar er uppselt á sunnu-
dagssýninguna. Leikritiö byggir á
Laxdæla-sögu og einkum ástar- og
örlagasambandi þeirra Guörúnar
Ósvífursdóttur og fóstbræöranna
Kjartans og Bolla. Tónlist er veruleg
í sýningunni, og er hún öll eftir Jón
Ásgeirsson. Leikmynd og búningar
eru eftir Messíönu Tómasdóttur, en
höfundur er sjálfur leikstjóri.
Á laugardagskvöldiö er sýning á
Skilnaöi eftir Kjartan Ragnarsson,
en sýningum fer nú aö fækka.
Vegna mikillar aösóknar veröur
enn ein aukasýning á Hassinu henn-
ar mömmu i Austurbæjarbíói á laug-
ardagskvöldiö.
TONLIST
Árnesingakórinn
með tónleika
í dag
Árnesingakórinn í Reykjavík
fýkur vetrarstarfi sínu með tvenn-
um tónleikum í dag.
Veröa þeir fyrri í Varmárskóla í
Mosfellssvelt kl. 14.30 og þeir síö-
ari í Hverageröiskirkju kl. 17.30.
Stjórnandi kórsins er Guðmund-
ur Ómar Óskarsson, undirleikari er
Jónína Gísladóttir.
Gamla Bíó:
Samkór Tré-
smiðafélags
Reykjavíkur
heldur tónleika
Laugardaginn 14. maí heldur
Samkór Trésmiðafélags Reykja-
víkur tónleika í Gamla Bíói kl. 16.
Á efnisskránni veröa lög af
ýmsu tagi, svo sem þjóölög frá
ýmsum löndum, keöjusöngvar frá
ýmsum tímum og íslensk alþýöu-
lög.
Kórfélagar eru milli 40 og 50.
Formaöur er örn Erlendsson.
Stjórnandi kórsins er Guöjón
Böðvar Jónsson.
Úlla Carolusson
Píanótónleikar á
Kjarvalsstöðum
Síðustu tónleikar Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar á þessu
starfsári eru í kvðld, laugardags-
kvöld klukkan 20.30. Það eru loka-
prófstónleikar Úllu Carolusson pí-
anóleikara að Kjarvalsstöðum.
Úlla fæddist í Uddevalla í Svíþjóö
áriö 1960 og hóf Tónlistarnám þar 8
ára gömul. Aö loknu einu undirbún-
ingsári kaus hún píanó sem aðal-
hljóöfæri og stundaöi nám viö Tón-
listarskólann í Uddevalla til ársins
1979 aö hún kom til islands. Fyrsta
áriö var hún viö ýmis störf, m.a. tón-
listarkennari i Grímsey. Haustiö
1980 innritaöist Ulla svo í Tónskól-
ann, þar sem kennari hennar hefur
veriö Brynja Guttormsdóttir. Á tón-
leikum sínum mun Ulla flytja verk
eftir Bach, Chopin, Schubert og
Rautavaara.
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar veröur svo slitiö í sal Haga-
skólans, þriöjudagínn 17. maí kl.
18.00.
íslenska Óperan:
Síðasta sýning
á Mikadó
Fyrirhuguð er nú síöasta sýn-
ing á óperunni Mikadó á laugar-
dagskvöld 14. maí kl. 20.00.
Garðar Cortez hefur nú aftur
tekið stjórn hljómsveitarinnar í
sínar hendur, en eins og kunnugt
er var Jón Stefánsson stjórnandi
um tíma.
Undanfarnar helgar hefur óper-
an veriö sýnd fyrir fullu húsi viö
mikinn fögnuö áheyrenda. Sjón er
sögu ríkari segir máltækiö og því
ættu allir aö bregöa undir sig betri
fætinum og heimsækja ísiensku
óperuna á laugardagskvöldiö kem-
ur.