Morgunblaðið - 14.05.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
33
Hagnaður hjá
Honda jókst
um 29% sl. ár
Guðjón Emil
Aanes — Minning
HAGNAÐUR japanska stórfyrirtæk-
isins Honda Motor Co. jókst um lið-
lega 29% á uppgjörsárinu 1983, sem
endaði 1. apríl sl., samkvæmt upplýs-
ingum sem kynntar voru á fundi
með blaðamönnum fyrir skömmu.
Um methagnað var að ræða á
síðasta ári, þegar hann var sam-
tals um 131,8 milljónir Banda-
ríkjadollara, eða um 31,32 millj-
arðar japanskra yena. Til saman-
burðar var hagnaður fyrirtækis-
ins árið á undan um 24,25 millj-
arðar japanskra yena.
Heildarsala Honda jókst á árinu
um 13% og var um metsölu að
ræða. Hún var að fjárhæð samtals
um 1.747,0 milljarðar japanskra
yena, borið saman við 1.544,0
milljarða japanskra yena sölu árið
á undan.
Það kom fram á blaðamanna-
fundinum, að fyrirtækið gerir ráð
fyrir að hagnaður þess verði um 30
milljarðar japanskra yena á yfir-
standandi ári, eða dragist saman
um 4,2% og gert er ráð fyrir, að
sala fyrirtækisins muni aukast
um 5,9% og verða 1.850 milljarðar
japanskra yena.
Talsmaður Honda sagði að-
spurður, að ýmiss konar innflutn-
ingshöft í viðskiptalöndum fyrir-
tækisins og spá um gengisþróun-
ina væru aðalástæðurnar fyrir
spáðum minnkandi hagnaði fyrir-
tækisins.
Fæddur 24. júlí 1930
Dáinn 8. maí 1983
Kallió er komiö,
komin er nú stundin,
vina.skilnaöar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
(Vald. Briem)
í dag verður til moldar borinn
frá Landakirkju í Vestmannaeyj-
um, bróðir minn Guðjón Emil
Aanes. Hann fæddist 24. júlí 1930
í Vestmannaeyjum og var hann
því aðeins tæplega 53 ára gamall
er hann lést.
Guðjón og ég vorum hálfsystk-
ini og áttum við sömu móður, sem
er Ragnheiður Jónsdóttir frá
Brautarholti.
Lífið var ekki allt dans á rósum.
Það skiptust á skin og skúrir í lífi
Guðjóns en árið 1952 steig Guðjón
gæfuspor í lífinu. Hann gekk að
eiga eftirlifandi eiginkonu sína
Unu Þórðardóttur frá Norðfirði.
Þau eignuðust saman 6 mannvæn-
leg börn, en þau eru: Ragnar, vél-
stjóri, giftur Gunnhildi Ólafs-
dóttur, Þóra húsmóðir, gift Sveini
R. Valgeirssyni, Sigurður Víg-
lundur læknir, giftur Ásdísi Har-
aldsdóttur, Helga húsmóðir, gift
Tryggva Sveinssyni, Krístin nemi
í lyfjatækni og Sverrir nemi í
netaiðn.
Mér þótti ávallt vænt um kæran
bróður minn, og að leiðarlokum er
margt að þakka.
I hjarta mínu varðveiti ég góðar
minningar.
Frá fjölskyldu minni og mér
fylgja þessum fáu orðum hugheil-
ar samúðarkveðjur til Unu og
barnanna.
Gerður Sigurðardóttir
Vinnumiðlun í Kópavogi
Nú þegar skólum er að ljúka að halda geta haft samband við
mun Vinnumiðlun Kópavogs hafa Vinnumiðlunina sem er til húsa að
milligöngu um ráðningar skóla- Digranesvegi 12 og sími hennar er
fólks til starfa. Þeir atvinnu- 46863.
rekendur sem þurfa á starfsfólki
*
Ibúðaverð hækk-
aði um 143%, kaup-
taxtar um 89%
ÆTLA MÁ að í september 1982 hafi
launþegi þurft að vinna tæpiega
þriðjungi lengri vinnudag til að
greiða fyrir venjulega íbúð, en í
janúarmánuði 1981, samkvæmt upp-
lýsingum 1 bæklingi Fasteignamats
ríkisins um „Framreikniathuganir
1982“, sem nýlega kom út.
íbúðaverð hækkaði á þessú
tímabili um 143%, en kauptaxtar
um 89%. fbúðin hækkaði því um
28,6% meira en kaupið á þessu
tímabili. Lánskjaravísitala fylgdi
kaupinu hins vegar nokkurn veg-
inn á þessum tíma. Hún hækkaði
um 95% eða 3,1% umfram kaup-
taxtana.
Ef verðlag er mælt í unnum
klukkustundum hefur greiðslu-
byrði af verðtryggðum lánum
hækkað á umræddu tímabili um
1,9% á ári. Fasteignaverð mælt á
sama hátt hefur hins vegar hækk-
að um 16% á ári.
Aframhaldandi góður gangur
hjá Chrysler á L ársfjórðungi:
Rekstrarhagnað-
urinn um 89,3
milljónir dollara
Kekstrarhagnaður Chrysler-bfla-
verksmiðjanna á 1. ársfjórðungi
þessa árs var um 89,2 milljónir
Kandaríkjadollara, en til saman-
burðar var um 89,1 milljón Banda-
ríkjadollara rekstrartap hjá fyrir-
tækinu á sama tíma í fyrra.
Chrysler, sem hefur sl. fimm ár
átt í gríðarlegum rekstrarerfið-
leikum, virðist óneitanlega vera að
ná sér á strik. Rekstrarhagnaður
varð hjá fyrirtækinu á öllum
ársfjórðungum sl. árs, nema þeim
fyrsta og markaðshlutdeild þess
fer stöðugt vaxandi í Bandaríkj-
unum. Reyndar varð umtalsverður
rekstrarhagnaður hjá Chrysler,
þegar litið var á allt árið í fyrra.
Robert S. Miller forstjóri fjár-
mála hjá Chrysler, sagði á blaða-
mannafundi fyrir skömmu, að
augljóst væri, að stefna fyrirtæk-
isins væri rétt. Hjólin væru farin
að snúast mjög á réttan veg. „Þá
getum við ekki verið annað en
ánægðir að lausafé og varabirgðir
jukustu um liðlega 450 milljónir
Bandaríkjadollara á 1. ársfjórð-
ungi þessa árs og voru í lok hans
um 1,35 milljarðar Bandaríkja-
dollara."
Hagstætt
verð
góðir
greiðslu-
skilmálar
í dag kl. 10 til
4 og á morg-
un sunnudag
kl. 2-5.
Við sýnum
sumarhús-
gögnin okkar
ILJI
Bláskógar
ARMULI 8 SIMi: 86080
t