Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983
35
Matthías Bjarnason um áætlunarleyfisveitingu Helga Jónssonar:
Til að tryggja betur flug-
samgöngur við Grænland
Semundur GuAvinsson
— Aðfinnslur Flugleiða vegna franska
leiguflugsins eiga fyllilega rétt á sér
„EINGÖNGU til að tryggja betur flugsamgöngur við Kulusuk og
Grænland," sagði Matthías Bjarnason samgönguráðherra, er
hann var spurður ástæðu þess að hann hefur ákveðið að veita
Helga Jónssyni áætlunarleyfi til Grænlandsflugs. Aðspurður um
hvort hann teldi þá að Flugleiðir hefðu ekki staðið sig í stykkinu
sagði hann: „Ég er ekkert að segja neitt um það. Ég held að þeir
segi það mest sjálfir, að þeir hafa ekki alltof mikinn áhuga á
því.“
Þar með væri útilokað að Flug-
leiðir gætu síðar haft upp í þann
kostnað sem félagið hefur lagt í
vegna áætlunarflugsins til Narss-
arssuaq og miðaður var við fram-
tíðaruppbyggingu þessa flugs.
Að lokum skal ítrekað, að Flug-
leiðum hafa ekki borist neinar
skaðabótakröfur vegna þessarar
ákvörðunar, enda stendur félagið
við allar skuldbindingar gagnvart
farþegum sínum. Þeim sem eiga
staðfestar pantanir til Narss-
arssuaq verður séð fyrir fari þang-
að eða boðið upp á ferðir til
Angmaksalik í staðinn.
Matthías sagðist ákveðinn í
því að veita Helga áætlunarleyf-
ið, þrátt fyrir öll mótmæli og
um ástæðu þeirrar ákvörðunar
sagði hann ennfremur: „Borgar-
stjórinn í Kulusuk og fleiri hafa
mælt mjög ákveðið með því.
Helgi hefur stundað þarna
leiguflug með mikilli prýði og
það er mikill þrýstingur frá
þessum aðilum. Eg tel að við ís-
lendingar eigum góða samvinnu
við Grænlandsstjórnina og eig-
um því að taka tilit til óska og
þarfa grænlenskra aðila. Þetta
hefur ekki verið talinn það
ábatasamur flugrekstur og hann
ekki verið eftirsóttur, því tel ég
einnig feng í því að Helgi vill
sinna því. Þá var hann og fyrst-
ur til að svara ráðuneytinu."
Matthías var í framhaldi af
þessu spurður hver ástæða þess
væri að frönsku flugfélagi var
veitt heimild til leiguflugs milli
Keflavíkur og Parísar, en það er
í sambandi við sölu ferða til
Parísar á vegum Hagkaupa.
„Það er mál sem ég hafði ekki
hugmynd um, en veitt var heim-
ild fyrir einhvern tíma í vor, og
það var fyrir mína ráðherratíð.
Mér finnast aðfinnslur Flug-
leiða út af því máli eiga fullan
rétt á sér. Það er of seint að
stöðva þetta núna, en það verður
Matthías Bjarnason
að gera allt sem hugsanlegt er
með reglugerðarbreytingu til að
koma í veg fyrir að slíkt endur-
taki sig,“ svaraði Matthías
Bjarnason samgönguráðherra.
SÖFN,
SAGA
OG SÝNINGAR
Samstarfsnefnd um .
ferðamál í Reykjavík:
Gefur út
bækling um söfn
og merka staði
Á FUNDI borgarráðs í desember á
síðasta ári var kosin sarastarfsnefnd
sem gerir tillögur til borgarráðs og
hagsmunaaðila í feröamálastarfsemi
um sameiginlegar aðgerðir á sviði
ferðamála. Nefndin hefur á sl. vik-
um unnið að útgáfu bæklings sem
geymir upplýsingar um söfn, sýn-
ingar o.fl. í Reykjavík, og er hann
þegar kominn út á íslensku.
I samstarfsnefndinni eiga sæti 3
fulltrúar tilnefndir af borgarráði
og átta fulltrúar tilnefndir af
nokkrum samtökum og hags-
munaaðilum. Bæklingi samstarfs-
nefndarinnar um söfn og sýningar
í Reykjavík verður dreift til þeirra
sem annast þjónustu við ferða-
menn í Reykjavík og innan
skamms verður hann gefinn út á
ensku.