Morgunblaðið - 26.07.1983, Side 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1983
Hér þarf að vera
símiðlandi aflstöð
Gengið úr Skálholtskirkju eftir biskupsvígslu. Fremst ganga tveir ungir prestar, þá herra Pétur Sigurgeirsson bisknp og Sigurbjtfrn Einarsson biskup,
nývígður vígslubiskup í Skálholti, Ólfur Skúlason, Sigurður Guðmundsson vígslubiskup í Hólastifti og Sigurður Pálsson fyrrv. vígslubiskup, þá vígsluvottarnir
sr. Sigmar Torfason og sr. Þórarinn Þór, sr. Jón Einarsson og sr. Jón Bjarman, sr. Guðmundur Óli Ólafsson og sr. Björn Jónsson og síðan prestar og
leikmenn. Ljósm. ÓI.K.Mag.
Frá biskups-
vígslu
í Skálholti
á sunnudag
„ÞAÐ ER í nafni Jésú að við erum
hér saman komin, vegna þeirrar
undirstöðu lífs og mótunar stefnu,
sem hann veitir okkur. Við köllum
þá guðsþjónustu, sem nú fer fram
í sjálfri Skálholtskirkju hátíð með
öðrum þeim dagskrárliðum er í
hönd fara. Og hátíðir eru hollar,
þær vekja af vanasvefni, þær
brýna til dáða og þær þrýsta á um
það að leiðin, sem lögð hefur verið
að baki verði skoðuð með tilliti til
þess, sem hátíðarefnið veitir. Og
þó dómkirkjan, sem er ágætust
bygginga, telji tvo áratugi frá
vígslu, þá er miklu lengra litið til
baka, þegar áð er í Skálholtsstað.
Já, svo mikil saga er hér fólgin í
framrás kynslóða og reynslu
þeirra, að hver steinn virðist geta
fengið mál og hver hóll flytja tölu,
en þó enginn staður eða auðkenni í
líkingu við það, sem grunnur einn-
ar kirkju eftir aðra gæti miðlað.
Því hvað væri Skálholt án kirkj-
unnar? Heimskulega spurt, af því
að það er kirkjan og þeir sem
Kristi unnu, sem gert hafa sögu
þessa staðar ágætari en víða þekk-
ist. í þeirri staðreynd liggur einn-
ig sú brýning sem árleg Skálholts-
hátíð veitir og hvatning til þess,
að enn megi í Skálholti styrkja
undirstöðu eigin lífs og hvers þess
safnaðar, sem hingað sendir full-
trúa Hér koma margir, af því að
þar lifir sagan bezt, sem snerti-
fletir fortíðar opinberast gestum.
En hingað eiga ekki aðeins for-
vitnir ferðamenn að leggja leið
sína, þótt slíkir séu sjálfsagðir.
Svo mikið fjölmenni var í Skálholtakirkju á sunnudaginn að margir urðu að standa.
Biskup vígir sr. Ólaf Skúlason f kirkjunni. Vígnluvottar standa hjá og í baksýn fyrrv. vígslubisk-
up sr. Sigurður Pálsson.
Kammerkór frá Nikolaikirkjunni í Hamborg stfng á Skálholtshátíð undir stjórn Ekkehard
Richter.
Skálholtskórinn undir stjórn Glúms Gylfasonar stfng við biskupsvígsluna.