Morgunblaðið - 07.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
69
Leo A. Kaprio, framkvæmdastjóri
Evrópusvæðis WHO.
Framkvæmda-
stjóri WHO
í heimsókn
Dr. Leo A. Kaprio fram-
kvæmdastjóri Evrópusvæðis
WHO og kona hans koma í opin-
bera heimsókn til íslands í dag og
dveljast hér 5 daga. Leo Kaprio
mun hitta forseta íslands og eiga
viðræður við utanríkisráðherra,
heilbrigðisráðherra og aðra full-
trúa heilbrigðisyfirvalda um sam-
vinnu íslands og WHO.
Leo Kaprio mun flytja ávarp við
opnun norrænnar ráðstefnu um
umferðarslys en að ósk hans mun
mestum tíma heimsóknarinnar
varið til að kynnast skipulagi heil-
brigðismála utan höfuðborgarsv-
æðisins. Heilsugæslustöðin á Eg-
ilsstöðum verður heimsótt. Þá
verður farið til Neskaupstaðar,
Húsavíkur og Akureyrar, heil-
brigðisstofnanir skoðaðar og rætt
við forráðamenn heilbrigðismála á
hverjum stað.
(Kréttatilkynning.)
Orkustofnun:
íslenskir bridgespilarar hafa aldrei
fengið tækifæri sem þetta:
^ o
T—Í--
Fyrirlestrar
um jarðfræði
Við efnum til viku skemmtisiglingar með M.S. Eddu og skipuleggjum tvö
stórmót um borð, þarsem spilaðer um ein hæstu verðlaun sem sögurfaraaf
í íslenskri bridgesögu 160.000 kr.
Gestafyrirlesari Jarðhitaskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna 1983 er
dr. Patric R.L. Browne frá Auck-
land-háskóla á Nýja Sjálandi. Hann
mun flytja fyrirlestra í sal Orku-
stofnunar, Grensásvegi 9, Reykja-
vík, dagana 8. til 11. ágúst og 16.
ágúst. Fyrirlestrarnir hefjast kl.
9.00. Efni fyrirlestranna er sem hér
segir.
Mánudag 8. ágúst: Stratigraphy,
structure and hydrology of some
geothermal systems in New Zea-
land. Þriðjudag 9. ágúst: Hydroth-
ermal minerals and temperature.
Miðvikudag 10. ágúst: Hydroth-
ermal alteration — recognition of
peremability. Fimmtudag 11. ág-
úst: Geothermal systems and ore
deposits. Þriðjudag 16. ágúst: The
evolution of geothermal systems.
■ Tvímenningskeppni
■ Sveitakeppni
■ Bridgenámskeið
■ 2ja nátta hótelgisting í
Newcastle í boði fyrir
sama verð.
■ Viðkoma í Bremerhaven og Newcastle
■ Lúxus aðbúnaður
■ Verð aðeins kr. 7.800 pr farþega
í tveggja manna klefa.
Upplýsingar og pantanir hjá Samvinnuferðum-Landsýn í Reykjavík og hjá
umboðsmönnum um land allt.
Spilið rétt úr draumahöndinni,
- tryggið ykkur þátttöku í tíma.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899