Morgunblaðið - 28.08.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGUST 1983 23
Baldur Eiríksson í „kompu“ sinni. Hægra megin við hann trónar Káinn upp
á vegg, en myndina hefur Baldur sjálfur málað.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
EfNIS-
SKF 280
oOO°oo° ^ °OOo
Fiölmargir sverleikar
ogpykktir.
SINDRA AmSTALHF
Borgartúni 31 sími 27222
MYNDIR
OG TEXTI HG
mannafélags Kaupfélagsins og var
mikið kveðist á. Hér er til dæmis
ein um gamlan samstarfsmann:
Nú hefir hann lifað um sðimörg ár
án þess neitt honum bagi,
í óvígðri sambúð við unnustur þrjár,
með ágætu samkomulagi.
Hver og ein þeirra er þjónustufús
og þáttur í önn hans og lukku:
Hann sinnir um pípuna, situr með
krús
og sefur hjá vekjaraklukku.
Erlingur Davíðsson
kom upp um mig
Ég orti mest ljóð um daginn og
veginn, atburði líðandi stundar og
hef alltaf verið lítið fyrir það að
flíka þessu og notaði því dulnefni,
þó flestir hafi líklega vitað hver
maðurinn var. Það var Haukur
Snorrason, sem fékk mig til að
setja eitthvað af þessu í blöðin, en
hann var þá ritstjóri Dags og síð-
an Tímans. Að vísu sendi ég Páli
Skúlasyni af og til vísur, sem hann
birti í Speglinum. Ég notaði nafn-
ið Dvergur í Degi, Andvari í Tím-
anum og Balli í Speglinum. Það
var svo Erlingur Davíðsson, rit-
stjóri Dags, sem kom endanlega
upp um mig. Hann var þá að
skrifa eitthvað um mig í blaðið og
gat þess þá hver valdur væri að
þessum spéskap. Börnin mín fengu
mig síðan til þess að gefa út ljóða-
bókina Dvergmál árið 1981 og er
það mesta i henni úr blöðum og
tímaritum. Án hvatningar frá
börnunum hefði bókin líklega
aldrei komið út.
„Skáldaði“ út leyfl
til jeppakaupa
Ég hafði nú aldrei neitt út úr
kveðskapnum af veraldlegum
gæðum utan einu sinni. Á þeim
tíma þurfti leyfi til bílakaupa og
voru margir um hituna. Ég var
ætíð á eilífum þveitingi um bæinn
og fram í sveitir til að aðstoða fólk
og var því mikil þörf á jeppa. Þá
var það að svokallaðir bændajepp-
ar voru auglýstir og mönnum gert
að senda inn umsókn vildu þeir fá
leyfi til kaupanna. Ég sendi hinum
háu ráðuneytisherrum í Reykjavík
umsókn í ljóðum og beið lengi
svars án árangurs. Þá heyrði ég í
útvarpinu lesna upp tilkynningu
þess efnis, að búið væri að úthluta
öllum bændajeppunum og ekkert
þýddi að sækja um í svipinn. Mér
þótti hart að fá svar í gegn um
útvarpið og sendi þá viðbót við
umsóknina, einnig í ljóðum. Það
hreif, ég fékk jeppann.
Mála mínar
myndir sjálfur
Fyrir utan ættfræðigrúskið og
kirkjubókalesturinn hef ég mjög
gaman af bókum og á þó nokkur
eintök. Ljóðum hef ég ákaflega
gaman af og gömlum sögnum. Þá
hef ég dundað við að mála, eigin-
lega alveg frá því ég byrjaði hjá
Kaupfélaginu. Ég sýndi einu sinni
nokkrar myndir á samsýningu frí-
stundamálara fyrir óralöngu og
hef selt nokkuð af myndum, aðal-
lega til vina og kunningja og allar
þær myndir, sem hér eru inni hef
ég málað sjálfur, það er ódýrara,"
sagði skáldið og málarinn Baldur
Eiríksson, er skrafinu lauk í góðu
yfirlæti yfir kaffibolla hjá Lauf-
eyju konu hans.
HG
Umsókn um
bifreiðarkaup
Ég reit yður bréf eftir réttir í haust,
og rétt hygg ég með það fari.
En á ég að bíða endalaust
eftir yðar heiðraða svari?
Merki hins gjörhugla gáfnafars,
í gamla daga þeir sögðu
ef menn voru nokkuð seinir til svars
og um sinn við spurningum þögðu.
En mér finnst sú aðgætni óþarfleg
hjá arftökum Njáls og Snorra,
að vera að draga svarið við sig
frá sumri og fram á þorra.
Er ég sendi umsóknir
auðmjúkar og prúðar,
og hafði aldrei yðar dyr
áður látið knúðar,
hló í brjósti hugurinn
og hugði að ég í þetta sinn
skyldi ei ganga bónleiður til búðar.
Enginn láir yður það
þótt úr sé vöndu að ráða,
ef þér fáið eitthvert blað
frá ókunnugum snáða,
sem virðist alveg ófeiminn
og ákaflega hraðlyginn,
og leirburðinn eys á bóga báða.
Ekki gengst ég fyrir fé
þótt finnist slíkt hjá hinum,
og ég geng einn á yðar vé
án aðstoðar frá vinum.
Þér ætlið kannski að ég sé
okurkarl og prakkare,
en selji strax á svartamarkaðinum.
Ég finn kannske enga náð
hjá æðstu landsins ráðum,
en eftir því sem út er sáð
mun uppskeran hjá báðum.
En — verði orð mín alveg smáð,
eftir Nýbyggingarráð
erfiljóðin yrkja mun ég bráðum.
B.
Aukinn vettuhmÖi
með ömggu
vörustreymi
Reglubundið áætlunarflug Arnarflugs tryggir
lágmarksflutningstíma á vörum til landsins.
Þannig stuðlum við að minna birgðahaldi, lægri
fjármagnskostnaði og auknum veltuhraða stórra
sem smárra fyrirtækja.
Tryggðu betri nýtingu á fjármagni þínu og sparaðu
að auki dýrt geymsluhúsnæði með aðstoð Arnarflugs.
Láttij okkur finna
hagkvæmustu leiðina N)^ARNARFLUG
fyrir þína vöru. ^ Lá9múli 7’s,mi 295"
* A