Morgunblaðið - 09.10.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 09.10.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 MICH E L PLATINI Öllum leikmönnum Juventus kemur vel saman Knattspyrnufélagiö Juventus hefur án efa þrjá af bestu knattspyrnu- mönnum heimsins innan raða sinna, og jafnframt þá er vekja hvað mesta athygli: Fransmanninn Michel Paltini, Pólverjann Zbigniw Boniek og ítal- ann Paolo Rossi. Ef einhver hefði spurt Paltini í apríl 1982 hvaða liði hann langði mest til að spila með er samningur hans rynni út hjá franska liðinu AS Saint Etienne hefði hann án efa sagt Juventus. Hefði hann hins vegar verið spurður hvaða liði hann byggist við að leika með hefði svarið verið allt annað. Allavega hafði hann ekkert heyrt frá „gömlu konunni" (gælunafn Juventus) þá og „hún“ ekkert hugsað um að hafa samband við hann. meðan Platini stóð í samninga- viðræðum við Paris St. Ger- man ásamt Ars- enal fór ritstjóri franska íþrótta- blaðsins L’Equ- ipe í sína árlegu ferð til Torino, þar sem hann heimsótti Fiat-verksmiðjurnar til að kynna sér og reynsluaka nokkr- um nýjum bílum til að geta skrifað grein um það og birt í blaði sínu. Það var óumflýj anlegt að rit- stjórinn snæddi hádegisverð með forstjórum verksmiðjanna: Gianni og Umberto Agnelli. Þeir félagar hafa allt frá barnæsku haft fótboitann sem aðaláhugamál og nú á seinni árum hafa þeir passað upp á að Juventus, þeirra stolt, skorti ekki peninga, burtséð frá því hvort greiðsluhalli hefur verið hjá liðinu eða ekki. Hádegisverður þessi fór fram rétt eins og aðrir hádegisverðir, menn snæddu, skröfuðu og rit- stjórinn punktaði hjá sér helstu atriði varðandi Fiat-bílana nýju, lagði bók sína frá sér og gleymdi öllu bílatali í bili. Það var svo ekki fyrr en hann var sestur við ritvél sína á skrifstofu blaðsins í Frakk- landi og ætlaði að skrifa um bíl- ana að hann sá að glósurnar voru af skornum skammti. Hann varð því að hringja í vin sinn og for- stjóra Fiat, Gianni Agnelli, til að fá frekari upplýsingar. Þær voru auðfengnar og er samtali þeirra var um það bil að ljúka spurði Agnelli, meira af forvitni: „Segðu mér, hvar ætlar Platini að spila næsta keppnistímabil?" „Já, ég held að það sé ekki fast- ákveðið ennþá,“ svaraði ritstjór- inn. „Hann er sem sagt enn laus og liðugur," sagði Agnelli. „Heldurðu að þú gefir mér ekki símanúmer hans.“ Þetta samtal átti sér stað í byrj- un apríl, en hvenær Juventus tal- aði við Platini er ekki vitað með vissu, en allavega var það innan fárra daga. Fyrst er Platini og liðið ræddust við bar mikið á milli. Hinn 29. apr- íl voru forráðamenn Arsenal komnir til Saint Etienne, þar sem þingað var um kaupin á Platini — deginum áður en frestur Juventus rann út til að tilkynna hann sem löglegan leikmann í fyrsta leik næsta tímabils. Platini passaði vel upp á það að láta Juventus vita að hann stæði í samningaviðræðum við Arsenal og einmitt það er talið hafa orsakað að Juventus gekk að kröfum hans. Deginum eftir við- ræðurnar við Arsenal flaug Plat- ini til Torino og skrifaði undir samning hjá ítalska liðinu. Samn- ingurinn gildir í tvö ár, en liðið hefur rétt til að framlengja hann í eitt ár til viðbótar ef það hefur áhuga. Michel Platini þénaði vel á þess- um félagaskiptum. Þegar hann gerði þriggja ára samning við Sa- int Etienne árið 1979 krafðist hann þess að hann yrði laus allra mála frá og með 1. júlí 1982 gegn því að borga liðinu fjórar og hálfa milijón krónur. Platini lét sitt nýja félag greiða þessa peninga og fyrir Juventus var það ekkert vandamál — og þó. Þegar Platini gekk til samninga við Juventus krafðist hann þrjátíu og níu millj- óna króna auk þess sem hann væri alveg laus þegar samningi hans lyki. Juventus gekk að þessu nema hvað það neitaði að greiða Saint Etienne til að fá leikmanninn lausan. Ef Platini ætlaði sér að spila með Juventus varð hann því að borga þessa peninga úr eigin vasa. Hann var hins vegar ekki alls kostar ánægður með það og með miklum klókindum tókst hon- um að lokum að koma því til leiðar að Juventus borgaði þessa pen- inga. Það hafði sitt að segja að er Platini kom til Juventus til að ganga frá samningum voru aðeins örfáir tímar þangað til fresturinn rynni út til að tilkynna hann sem leikmann. Allar greiðslur til Platini fara fram í dollurum og hefur það mik- ið að segja fyrir hann eins og gef- ur að skilja þar sem líran er allt annað en stöðugur gjaldmiðill. Það hefur líklega gengið á ýmsu í þessum samningum og jafngott að Platini hafi haft gott vit á pening- um, því eitt er víst að forráða- menn stórliða eins og Juventus hafa það. En hvað segir Platini sjálfur: — Voru það einungis pen- ingarnir sem réðu því að þú valdir Juventus fram yfir Arsenal og önnur stórlið? Michel Platini: „Nei, öll félögin sem sýndu mér áhuga gerðu mér keppnistilboð. Burtséð frá því hvaða liði ég hefði spilað með, hefði ég þénað jafn mikla peninga og hjá Juventus. Ég hafði úr nægu að velja og Juventus bauð upp á mestu möguleikana hvort heldur var innan vallar eða utan, þar sýndist mér ég geta lifað einna flestar ánægjustundirnar." — Af hverju endilega Juvent- us? Michel Platini: „Juventus er íþróttalega séð gífurlegt stórveldi sem eins og ég áður sagði býður upp á mikla möguleika. Það hafði líka sitt að segja að ég er af ít- ölsku bergi brotinn og mér hefur alltaf líkað vel við Ítalíu og á marga vini og ættingja í Mílanó." — Sagt var að Pierre Garonn- aire, framkvæmdastjóri Saint Eti- enne, hafi verið tilbúinn að borga þér sömu upphæð og þú hefðir fengið hjá öðrum liðum. Varst þú kannski óánægður með veru þína hjá liðinu eða þá möguleika sem liðið hafði upp á að bjóða? Michel Platini: „Það er af og frá að ég hafi yfirgefið Saint Etienne með gleði. Ég taldi mig bara ekki geta sýnt meira hjá liðinu. í þau þrjú ár sem ég spilaði með liðinu unnum við meistarakeppnina einu sinni, urðum einu sinni í öðru sæti, lentum tvisvar í úrslitum í bikarkeppninni án þess að vinna og lentum síðan tvisvar sinnum ofarlega í Evrópu-keppninni." — Nú hefur þú lýst sjálfum þér sem manni er ávallt sé tilbúinn til að takast á við ný og erfið verk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.