Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 9 Umsjónarmaður Gísli Jónsson Svo hefur kennt mér sann- orður maður, að óskar Hall- dórsson og Bjarni Vil- hjálmsson kvæðu vísu þá sem hér fer á eftir og er alltorskil- in: Víst mun þerrna brúkið breiða barna og kerrna smiða fró, er í sperrna gota greiða gránstóð verna úr höfuðskóg. Vísa þessi mun til komin vegna þess að höfundum hafa þótt reglur um eignarfall fleirtölu vissra kvenkynsorða nokkuð einstrengingslegar, svo sem þær eru settar fram í sumum kennslubókum í ís- lenskri málfræði. Meginatriði vísunnar er greinilega að sýna fram á að eignarfall fleirtölu veikra kvenkynsorða, þeirra sem enda á a, eða svokallaðra on-stofna, fái ekki -na- endingu, ef stofninn endar á r-i. Tilefni þessara inngangs- orða er svofellt bréf frá Eggert Ásgeirssyni í Reykjavík. „Um þessar mundir er varmadælan að ryðja sér til rúms og hefur göngu sína í orkubúskap Akureyrar. Eins og flest framfaramál er gengi varmadælunnar háð reglum, hún þarf raforku og er háð því að létt sé af sköttum. í opin- berum bréfaskiptum er eignar- fall fleirtölu notað oft, þ.á m. þegar rætt er um raforku til varmadæla. Nú bregður svo við að flestir sem nota orðið skjóta inn enni í ef. flt. og segja til varma- dælna. Ekki kann ég þessu enni rétt vel í orðinu og hef verið að reyna menn í beygingu veikra kvenkynsorða í sama flokki. Kemur þá í ljós að sumir rugl- ast í beygingunni og bæta inn enni í orðum eins og fiðla, hrífa, hryssa, mella, skækja, næla, sessa, hnapphelda og dæla í ef. flt. Hinsvegar gera menn það sjaldnar í orðunum karfa, kerra, hryssa, vera, kæra, kría og lóa. Þó er jafnvel þar lát á og heyrðist í útvarps- fréttum rætt um fjölda kærna. Ekki eru allir sammála mér um að flokka þessi orð saman. Því rita ég þessar línur að í ljós kemur í könnun minni að enn halda menn sínum smekk og málskyni ákaft fram í gam- algróinni trú á rétt mál og rangt og láta sig hvergi, ekki fremur en ég.“ Þetta bréf þykir mér gott, en vandamálið er svo erfitt úr- lausnar, að ég gáði í nokkrar kennslubækur í íslenskri málfræði til þess að sjá, hversu um það væri fjallað. Veik kvenkynsorð, sem enda á -a í nefnifalli eintölu, enda mörg hver á -na í eignarfalli fleirtölu. Þetta er ævagömul arfleifð, og kemur einnig fram í beygingu veikra karlkyns- og hvorugkynsorða (an-stofna), samanber þegar sagt er til hjartna og gömlu eignarföllin gumna, gotna og flotna. í málfræði Finns Jónssonar er gert ráð fyrir að eignarfall fleirtölu endi á -na. Hann segir aðeins: „„Vera“ er n-laust í ef. flt.“ Sjá nú vísuna. Halldór Briem segir: „í sum- um kvenkyns orðum fellur burt n, svo að eignarf. fleirt. verður eins og nefnif. eint., t.d. gyðja, lilja, lína, kerra, skemma. Sum slík orð verða varla höfð í eignarf. fleirt., t.d. alda, bára.“ Um orðið kerra hér, sjá aftur vísuna. Jón Ólafsson fjallar ræki- lega um þetta: „I orðum, sem enda á -ja, en meginhluti þeirra á g eða k (-gja-kja) fellur j-ið burt í ef. flt., t.d. bylgja, bylgna; kirkja, kirkna. Endi meginhluti slíkra orða (orða með -ja-endingu) á annan málstaf en g eða k, þá fellur n-ið burt í ef. flt., svo sem: lilja, smiðja; ef. flt. lilja, smiðja; hetja ef.flt. hetja. Ef nefnifalls-ending í et. er -a og meginhluti orðsins endar á mm, n eða r, þá bætist ekkert n við í ef. flt.: Skemma, stjarna, hæna, vara, vera, (sjá enn vís- una) hóra — verða eins í ef. flt. eins og í nf. et. Mörg hafa ekk- ert ef. í flt., t.d. alda og völva.“ Jakob Jóhannesson Smári: „Eins og saga beygjast t.d. gata, fluga, dúfa, klukka, mfla, skeifa, súla, stelpa, telpa, vika, þúfa, mæðgur (aðeins til í flt.). Þar, sem stofninn endar á -gj 215. þáttur eða -kj, er j sleppt á undan -na í ef. flt., t.d. bylgja-bylgna, slægja-slægna, ekkja-ekkna, fíkja-fíkna, kirkja-kirkna, rekkja-rekkna, tekja-tekna ... Eins og lilja beygjast t.d. álfa, auðna, bára, deila, fíðla, fjara, gyðja, kanna, karfa, svala, vagga, þvara, börur (sjá enn vís- una) aðeins til í flt., vögur (flt.), völtrur (flt.).“ Björn Guðfinnsson var reglufastur. Hann segir: „Veik kvenkynsorð sem enda á -a í nf. et., enda á -na í ef. flt., nema þau sem enda á -ja í nf. et. og hafa hvorki g né k í stofni.“ Gegn þessari einstrengings- legu reglu hygg ég að vísunni sé einkum beint. Halldór Halldórsson er var- færnari: „Mörg orð beygjast sem stúlka. Flest þeirra enda á -na í eignarfalli fleirtölu. Þó enda allmörg orð af þessu tæi á -a í þessu falli, t.d. fiðla, fjara, karfa, svala ... Eins og smiðja beygjast nokkur orð, t.d. lilja og gyðja. Ef g eða k fer næst á undan j í þessum orðum, endar ef. flt. venjulega á -na, t.d. bylgna (af bylgja), kirkna (af kirkja), rekkna (af rekkja)." Af öllu þessu sjáum við hversu erfitt er að búa hér til einhlíta reglu, ekki síst þar sem mörg þessi orð eru sjald- höfð í eignarfalli fleirtölu. Athygli mína vekur að Jakob Smári skuli hafa orðið deila n-laust í margnefndu falli. Nú fer sem fyrr, þegar málið lætur ekki setja sér einfaldar reglur, að hefð og smekkur verða að ráða. Ég felli mig vel við smekk Eggerts Ásgeirsson- ar, eins og mér birtist hann í bréfinu. Góðkunningi minn, Þjóðrekur þaðan, var hins veg- ar á öðru máli og er mjög feng- inn fyrir að hafa n sem víðast í eignarfalli fleirtölu þeirra orða sem beygjast eins og dæla. Hann kvað: Gegnum sogæðar drykkþyrstra dælna rennur dreggjabland skolvatns og ælna. Yfír nælnanna brot inn í skælnanna skot leggur glóðaþef svíðandi svælna. ÞlMHl FaaUtgnatal • — BankaatrMti 29455—29680 Opiö í dag 1—4 Stærri eignir Grenimelur Ca. 110 fm góö ibúö é 2. hæö í þrfbýll. Tvær samllggjandl stofur, horb. Innaf, 2 svefnherb. Nýendurnýjuö eldhúslnnrétf- Ing. Verö 2 mlllj. Æsklleg sklptl á 4ra herb. íbúö á 1. hæö. Breiövangur Hf. Ca. 120 fm íbúö á 2. hæð meö góöum bílskúr. 3 herb . stofa og skáll, þvotta- hús Innaf eldhúsl. Verö 1900—1950 þús. Möguleg sklpti á góöri 3ja herb. ib. á 1. hasö í Hafnarfiröi. Laxakvísl Ca. 210 fm raöhús á tveimur hœöum, ásamt innb. bílskúr. Skilast fokhelt 15.01. Niöri er gert ráö fyrlr eldhúsi meö búri, stofum og snyrtingu. Uppi 4 herb., þvottahús og baö. Oplnn lauf- skáli, góö staösetníng viö Árbæ. Verö 2 millj. Þingholt Skemmtilegt einbýlishús úr steini ca. 140 fm á tveimur hæöum. Niöri eru 3 stofur, (má breyta einni í herb.) og eld- hús. Uppi 3 frekar stór herb. og baö. Góö eign á góöum staö. Verö 2,2—2,3 millj. 'i Garöabær Ca. 90 fm nýlegt raöhús á 2 haaöum. Niöri er stofa, eldhús og baö. Uppi: stórt herb. og geymsla. Bílskúrsréttur. Verö 1800 þús. Mýrargata Gamalt einbýli úr timbri ca. 130 fm. Kjallari, hæö og ris. Sér íbúö í kjallara. Hús í gamla stílnum. Eignarlóö. Mögu- leiki á bflskúr. Ekkert áhvílandi. Bein sala. Verö 1700 þús. Tjarnarbraut Hf. Ca. 70 fm einbýli á tveim hæöum á fal- legum staö. Bílskúr fylgir. Traust og gott steinhús. Miklir möguleikar. Akv. sala. Blómvangur Hf. Efri sórhaBÖ í sér flokki ca. 150 fm og 25 fm bílskúr. Möguleg skipti á raöhúsi eöa einbýlishúsi i Hafnarfiröi. Miövangur — Hf. Endaraöhús á tveim hæöum 166 fm ásamt bílskúr. Niöri eru stofur, eldhús og þvottahús. Uppi 4 svefnherb. og gott baöherb. Teppi á stofum. Parket á hlnu. Innangengt í bílskúr. Verö 3—3,1 mlllj. 3ja herb. íbúðir Flyörugrandi Ca. 70 fm falleg ibúö á 3. hæö. Góöar innréttingar Þvottahús á haaöinni. Verö 1650—1700 þús. Njálsgata Ca. 90 fm íb. á 3. hæö i steinhúsi. 2 svefnherb., 2 stofur, nýtt gler. Verö 1300 þús. Furugrund Mjög góö ca. 80 fm íb. á 2. hæö. Eldhús meö góöri innréttingu, stórt og gott baöherb. Stórar svalir. Verö 1400—1450 þús. Hverfisgata Ca. 85 fm góö íb. á 3. hæö í steinhúsi. Ekkert áhvílandi. Laus fljótlega. Akv. sala. Verö 1100 þús. Þangbakki Mjög góö ca. 85 fm nýleg íbúö á 6. hæö í lyftublokk. Björt og góö stofa. Eldhús meö góöum innréttingum. Stórt baö- herb. Mjög stórar suö-vestur svalir. Þvottahús á hæöinni. Verö 1500 þús. Hörpugata Ca. 90 fm miöhæð i þríbýti. Sér inng., tvær stofur og stórt svefnherb. Akv. sala. Verö 1300—1350 þús. 2ja herb. íbúðir Blikahólar Ca. 60—65 fm íb. á 3. hæö í lyftublokk. Gott eldhús, stórt baóherbergi, góöar svalir. Ákv. sala. Verö 1200 þús. Gaukshólar Ca. 85 fm góö ibúö á 1. hæö í lyftu- blokk. Góöar innrétllngar. Parket á gólfi. Góö sameign verö 1150—1200 þús. Möguleg skiptl á 3ja herb. i Bökk- unum. Háaleitl eöa nálægt Landspítal- anum. Miðbær Ca. 70 fm ibúö á 1 haaö í tlmburhúsi. Sérlnng. Selst meö nýjum innréttingum og nýjum lögnum. Afh. í Jan,—feb. Verö 1150—1200 þús. Friörik Stefánsson Ægir Breiöfjörö sölustj. viöskiptafræöingur. '■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ I Umbúðapappír 20, 40 og 57 sm. Kraftpappír 100 sm. Brauöpappír og smjörpappír. Nýkomiö. H. Benediktsson, Suöurlandsbraut 4, sími 38300. SIMAR 21150-21370 SOLUSTJ LARUS Þ VA10IMARS L0GM JOH Þ0RÐARS0N HOL Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Rúmgóð endaíb. við Feilsmúla Um 130 fm á 3. hæð. tvöföld stota, 4 svefnherb. meö Innbyggöum skápum, stór geymsla í kjallara, ágæt samelgn. Skuldlaus eign. Við Austurberg með góöum bílskúr 5 herb. endaíbúö um 117 fm. Stofa og 4 svefnherb., sér þvottahús og búr, mikil og góö Innréttlng. Bflskúr meö mlkllll lofthæö fylgir, ágæt sameign. góö lán áhvflandi. 3ja herb. íbúðir viö: Hamraborg Kóp. A 1. hæö 92 fm stór og góð íbúö. Haröviöur, nýtt teppi, vaktaö bilhýsi, sér þvottaaöstaöa. fullgerö sameign. Verö kr. 1.350 þús. Dalbrekkur Kóp. Jaröhæö um 80 fm i tvíbýli. Sérhlti, sérinng. Ný. teppi, göö fullgerö sameign, næstum skuldlaus. Engihjalla Kóp. Á 3. hæö um 85 tm í háhýsi. Lyfta, engar tröppur, harövlöur, teppi, tvennar svalir, mikil sameign. Skammt frá Landspítalanum 6 herb. íbúð á 3. hæö og rishæö, samtals um 130 fm. Sér hltaveita, þarfnast endurbóta, bílskúr um 24 fm fylgir. Gott verö. 2ja herb. íbúðir við: Þangbakka. 6. hæö í háhýsi, um 65 fm. Nýleg úrvalsíbúö, útsýnl. Garðaratrati I kj./ jaröh. um 65 fm. Nokkuö góö samskípt. Nýlegt gler, nýleg teppi, nýleg eidhúsinnr. Danfosskeifi. Seltjarnarnes — Kópavogur 5 herb. sérhæöir viö Miöbraut og Skólageröl, góóar eignir á góóu veröi. 4ra herb. íbúðir við: Stelkshólar. Á 2. hæö um 100 fm, ný og góö íbúö. 20 fm bílskúr. Fullgeró sameign. Kjarrhólma Kóp. Á 4. hæö um 100 fm nýleg og góö íbúö, sér þvottahús. Mikió útsýni. í Hvömmunum í Kóp. Nýlegt steinhús um 130 fm, meö 4 svefnh. og stofu. Kjallarl um 30 fm fylgir. Lítiö sérhús fylglr meö 2ja—3ja herb. íbúö. Stór ræktuö lóð. Útsýnisstaöur. Teikningar og nánari uppl. á akritatofunni. Nýtt einbýlishús laust strax A vinsælum staö i Mosfellssveif ein hæö meö tvöföldum bílskúr, alls um 190 fm. Nánari uppl. og myndir á skrifatofunni. Lítil einbýlishús á góðu verði Steinhús viö Framnesveg og endurnýjaö timburhús á stórrl lóö í Blesu- gróf. í nýrri viðbyggingu í Þingholtunum Kjallarahúsnæöi tæpir 40 fm í nýrrl vlöbygglngu úr steinsteypu, fullbúiö undir tréverk. Snyrtitæki komin á baö, akuldlaua aign. Laus strax. Helst í Hlíðum eða nágrenni óskast til kaups 4ra herb. eöa hæö, hátt verö, góö útb. fyrlr rétta elgn. 4ra herb. íbúö óskast til kaups i borginni. Má vera i Hólahverfl í Breióholti, ennfremur óakaat góð 2ja herb. íbúð í Hólahverfi. 4ra herb. íbúö á 1. hæö óskast til kaups í borginni t.d. f Fossvogi eöa nágrennl. Eingnaakipti möguleg á 130 fm sérhæö viö Safamýri. Opið i dag laugardag frá kl. 1—5 Lokaó á morgun aunnudag. ALMENNA FASTEIGHASAIAW LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 26933 26933 Opiö frá kl. 1—3 í dag. Pósthússtræti 13, Reykjavík Nú eru aðeins 2 íbúðir eftir i þessu glæsilega húsi. íbuðlrnar verða afhentar tilbunar undir tréverk, sameign fullfrágengin, bilgeymsla í kjallara. Hér er um að ræða eina 2ja herbergja íbúð á 3. hæð, 81 fm að stærð og eina 3ja herbergja íbúö á 3. hæð, 115 fm aö stærð. Glæsileg eign í hjarta borgarinnar. Vantar 2ja herbergja íbúöir í Austurbæ og Breiöholti. Vantar 3ja herbergja íbúöir i Bökkunum, Seljahverfi og á Flyörugranda með suðursvölum. Fjársterkur kaupandi. Vantar 4ra herbergja ibúðir í Hraunbæ og Bökkunum. Vantar allar gerðir fasteigna á skrá. Einkaumboð fyrir Aneby-hús ó íslandi. Eigna markaðurinn <? <? <? i 3 ■? 3 3 3 3 4 1 1 9 ?. ? ?. ? ?. Hafnarstræh 20, simi 26933 (Nýja husinu vió Lækjartorg) P»t5«3«5«St$t^tg^tSrjj<Stj;«3t3tj;!tSt$tj;tjS J6n Magnú.son hdl. «5tJ«ít5«5 «2«5«í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.