Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 '■7 Nei ég fer ekki en ég er búin aö setja niður í töskurnar fyrir þig. HÖGNI HREKKVÍSI * Ast er... ... að virða hann en ekki stöðu hans. TM Reo U S Pat. Oft -all ríghts reserved » 1980 Los Angeles Times Syndicate „Mér finnst að þetta fribcra listafólk eigi skilið að fi betri starfsaðstöðu en það hefur nú í gamla Iðnó.“ Sjálfsagt að Suður- landsvegur hafi for- gang á Bæjarhálsinum Leiðrétting í pistli Einars I. Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Heilbrigðis- eftirlits Kópavogs, „Bærinn sjald- an verið eins hreinn og nú — að því er varðar númerslausa bíla“, sem birtist í Velvakanda á sunnu- dag, féll niður hluti málsgreinar, svo að merkingin brenglaðist. Rétt er málsgreinin svona: „En þótt við látum fjarlægja bíla þetta eða þetta skiptið þá koma sífellt ný tilfelli, þótt þeim hafi reyndar farið fækkandi að undanförnu, sem sennilega má þakka starfi okkar að þessum mál- um. En þetta er sífelld vinna, og stoðugt er aðgerðum haldið áfrarn." Er höfundur vinsamlegast beð- inn velvirðingar á mistökunum. Hvernig heföi farið? Bílaáhugamaður skrifar: „Öðru hverju les maður í blöðum fréttir af umferðar- slysum. í þessum fréttum er oft tekið fram hvort viðkom- andi hafi verið með öryggis- belti og tíundað hvernig farið hefði ef viðkomandi hefði ekki notað öryggisbelti. Nú langar mig til að vita hvernig farið hefði, ef ungi maðurinn, sem var fastur inni í bifreið sinni í 2V4 klst. á Breiðholtsbraut, hefði verið með öryggisbelti. Einnig finnst mér forkast- anlegt að blöðin skuli birta myndir af fólki sem hefur klemmst inni í bifreiðum sín- um af völdum umferðarslysa. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna." Ásta Bjarnadóttir, skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að kvarta yf- ir vandræðum okkar Árbæ- inga í samgöngumálum. Við komu Höfðabakkabrú- arinnar hefur umferð aukist mikið og erum við Árbæingar hreinlega lokaðir inni í hverf- inu langtímum saman vegna umferðarþungans. Á mótum Hraunbæjar, Bæjarháls og Bitruháls getur biðin orðið löng eftir að kom- ast leiðar sinnar. Þarna þyrftu að koma umferðarljós hið bráðasta. Þegar menn loksins komast út úr hverfinu og aka leiðina að Vesturlandsvegi til að komast niður í borgina, eiga þeir hreinlega á hættu að lenda í árekstri við þá bíla sem koma Breiðholtsmegin og ætla einnig niður á Vesturlandsveg, þeir aka svo hratt. Og svo er beygjan ekki nógu vel hönnuð. Umferðin úr Breiðholtinu sést ekki nógu vel í speglum fyrr en leiðir skerast. Þar finnst mér að þyrfti að setja upp bið- skyldumerki, því að mér finnst sjálfsagt að Suður- landsvegur hafi forgang á þessum stað. Úr því að ég er farin að skrifa þér, langar mig til að þakka sjónvarpinu og hinu ágæta listafólki, sem flutti þáttinn „Við byggjum leik- hús“ laugardagskvöldið 22. þ.m. Ég vinn á stórum vinnu- stað og voru allir, bæði ungir og gamlir, sammála um, að þetta hefði verið einn sá skemmtilegasti þáttur, sem lengi hefði verið sýndur í sjónvarpinu, og vildu gjarnan fá að sjá hann aftur. Mér finnst að þetta frábæra lista- fólk eigi skilið að fá betri starfsaðstöðu en það hefur nú í gamla Iðnó.“ Málhefð og málvöndun geta ekki vikið fyrir jafnréttismálum - heldur verður hvort að styðja annað Kagnar Halldórsson skrifar: „Gaman var að lesa orðaskipti þeirra Gísla J. Ástþórssonar og Elínar Pálsdóttur um jafnreítis- mál. Velhugsandi fólk er sammála um, að jafnrétti sé af hinu góða. Menn greinir á, hvernig orða skuli auglýsingar í fjölmiðlum, þegar boðin er atvinna. Ég er sammála Gísla, að orðið starfskraftur er af- leitur hortittur. Elínu fellur held- ur ekki orðið og telur, að þar eigi jafnréttiskonur enga sök á. Þetta þarf því að færa til betra máls. Mér virðist sem greinarhöfund- ar báðir gangi á snið við rótgróna málhefð, sem hvorki má eða mun verða raskað. Allir vita, að konur eru líka menn, þegar rætt er í þá veru. Frá uppruna mannsins hefur ávallt verið talað um mann og konu, svo sem sköpunarsagan vottar. Hvort sem við aðhyllumst sannleiksgildi þeirrar sögu eða ekki, mun málhefðin standa stöð- ug. Dæmi: Fólk á gangi á stræti sér athyglisverða konu, og hver spyr annan: Hver er þessi kona? Engum mundi detta í hug að spyrja: Hver er þessi maður? Þvf síður: Hver er þessi starfskraftur? Enginn segir: Hér kom maður, ef kona hefur komið í heimsókn. Og enginn segir: Ég sá tvo menn, sinn af hvoru kyni. Málfhefð og mál- vöndun geta ekki vikið fyrir jafn- réttismálum, heldur verður hvort að styðja annað. Ég leyfi mér því að leggja til, að atvinnuauglýsingar í fjölmiðlum hljóði svo: Karl eða kona óskast til starfa. Það getur engan sakað. Þegar vinnuveitandinn fer að skoða tilboðin, verður það að vera á hans vaidi, hvort hann velur. Og svo eilítið í aðra sálma. Svanlaug Löve spyr um Guðs orð og samþykktir presta. Mér skilst, að í samþykkt frá presta- stefnu sé því slegið föstu, að mað- urinn sé eina lífveran, sem eigi framlíf fyrir höndum. Mér þykir furðulegt, ef prestar landsins, hafa gert slíka samþykkt, þvf að vissulega hafa þeir enga vitneskju þar um umfram aðra menn. Líf- færabygging mannsins og að minnsta kosti hinna svokölluðu æðri dýra er svo nauðalík, að af því verður ekki ráðið neitt um lík- ur til væntanlegs framlífs þessa eða hins. Vísindamaður, sem rannsakaði atferli dýra, lokaði apa inni f auðu herbergi. Hann vildi kynna sér viðbrögð apans, þar sem hann væri einn með sjálfum sér. Vfs- indamaðurinn lagði augað við skráargatið. Hann mætti auga ap- ans einnig við skrárgatið." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Foringinn neitaði að hermenn undir hans stjórn hefðu verið að verki. Rétt væri: ... að hermenn undir sinni stjórn ... (Hið fyrra væri rétt, ef foringinn ætti við hermenn undir stjórn einhvers annars foringja.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.