Morgunblaðið - 08.12.1983, Blaðsíða 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983
17
LJtgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. j lausasölu 20 kr. eintakiö.
Ný leið í launamálum
Vinnuveitendasamband ís-
lands vill að farin sé ný
leið í launamálum, tekið sé
mið af því að þjóðarkakan
stækki ekki á næsta ári og
þess vegna verði hugað að því
hvort ekki megi skipta sneið-
inni sem ætluð er launþegum
með öðrum hætti en nú er
gert. Vinnuveitendasamband-
ið telur í stuttu máli að laun
megi hækka um 4,25% með því
að stytta orlof, fækka frídög-
um, breyta greiðslum fyrir
veikindadaga og gjöld í
sjúkra- og orlofsheimilasjóði
verði greidd beint með laun-
um. Með því að benda á þessa
leið vekur Vinnuveitenda-
sambandið máls á atriðum
sem nauðsynlegt er fyrir alla
launþega að íhuga.
Ásmundur Stefánsson, for-
seti Alþýðusambands íslands,
talar alls ekki fyrir munn
launþega þegar hann segir í
tilefni af þessari hugmynd
Vinnuveitendasambandsins:
„Ljóst er af okkar hálfu að fé-
lagsleg réttindi verða ekki seld
fyrir slíkt, enda er það degin-
um ljósara að það eru einmitt
Úttekt á
Frá því var skýrt í Morgun-
blaðinu á sínum tíma án
þess að það virtist vekja sér-
staka athygli, að Sverrir Her-
mannsson, iðnaðarráðherra,
hefði ákveðið að láta gera út-
tekt á ýmsum opinberum
fyrirtækjum sem undir hans
ráðuneyti heyra, þeirra á með-
al Rafmagnsveitum ríkisins
(RARIK). I ræðu sem iðnað-
arráðherra flutti hjá Félagi ís-
lenskra iðnrekenda á þriðju-
daginn sagði hann, að komið
hefði í ljós að þessi úttekt
hefði verið nauðsynleg og í
Morgunblaðinu í gær er sagt
frá ýmsum atriðum sem fram
hafa komið varðandi rekstur
RARIK.
Stjórnarformaður RARIK
og rafmagnsveitustjóri sendu
frá sér yfirlýsingu í gær, þar
sem þeir sögðu, að frétt Morg-
unblaðsins væri úr lausu lofti
gripin. Annað á eftir að koma
í ljós, og Morgunblaðið vísar
þessum staðhæfingum á bug.
Eftir allar þær umræður
hinir lægst launuðu, sem mest
þörf hafa fyrir hin félagslegu
réttindi." Asmundur Stefáns-
son sýnist með þessum orðum
ætla að koma í veg fyrir að
hugmynd Vinnuveitendasam-
bandsins verði rædd þar sem
hana á að ræða: meðal laun-
þega sjálfra.
Verkalýðshreyfingin á við
margvíslegan vanda að etja
vegna togstreitu milli launa-
hópa. Kröfugerð Alþýðusam-
bandsins endurspeglar þessi
átök. Vinnuveitendasamband-
ið vill fara nýjar leiðir, sem
miða að því að auka ráðstöf-
unartekjur launþega án þess
að reisa atvinnufyrirtækj-
unum hurðarás um öxl. Þjóð-
arkakan verður aðeins stækk-
uð með því að auka fram-
leiðslu og framleiðni. Þegar
við blasir að það er ekki hægt
og einnig hitt að leita verður
allra leiða til að bæta hag
fólksins í landinu getur forseti
Alþýðusambandsins ekki af-
greitt skynsamlegar tillögur
um leiðir í því efni með göml-
um áróðursbrögðum.
RARIK
sem orðið hafa um opinberan
rekstur og með hliðsjón af gíf-
urlegu upplýsingamagni hvað-
anæva úr veröldinni um
hvernig slíkur rekstur getur
þróast, ætti það ekki að koma
neinum á óvart að margt megi
betur fara í opinberum rekstri
á íslandi. Síðan í maí hefur
ríkisstjórnin víða tekið til
hendi og upp á mörgu nýju
hefur verið brotið eins og til
dæmis þessari úttekt á vegum
iðnaðarráðherra. Allt hefur
þetta vakið mikla athygli og
fjölmiðlar hafa jafnan sagt
fréttir af framgangi mála þeg-
ar upplýsingar hafa fengist
eins og Morgunblaðið gerði af
úttektinni á RARIK.
Enn hefur ekki reynt á
hvernig ráðherrar ætla að
hrinda nýmælum í fram-
kvæmd eða vinna úr upplýs-
ingum sem aflað er með úttekt
eins og þeirri sem hér hefur
verið lýst. Það er þó fram-
kvæmdin sem skiptir mestu,
hvorki úttektin sjálf né fréttir
af því hvað hún leiðir í ljós.
Skotið yfir markið
Töluverðar umræður hafa
orðið í blöðum um lögregl-
una í Reykjavík. Um hana var
meðal annars fjallað í forystu-
grein Dagblaðsins-Vísis á
þriðjudag og þess meðal ann-
ars krafist að lögreglustjórinn
í Reykjavík segði af sér „fyrir
aldurs sakir“ eins og það var
orðað. Þessi krafa er glöggt
dæmi um hve fjölmiðlamenn
geta fljótt orðið gjörsamlega
ráðvilltir. Lögreglan þarf að-
hald ekki síður en aðrir og Sig-
urjón Sigurðsson, lögreglu-
stjóri í Reykjavík, hefur oft
sýnt það á löngum og farsæl-
um ferli hve honum er annt
um að störf lögreglunnar séu
óaðfinnanleg. Krafa Dagblaðs-
ins-Vísis beinir umræðum um
þessi mál inn á villigötur og er
til þess eins fallin að grafa
undan agavaldi lögreglustjóra,
sem lögreglumenn verða auð-
vitað að virða. Það væri ekki
árennilegt fyrir ritstjóra
Dagblaðsins-Vísis að þurfa að
segja af sér í hvert sinn sem
blaðamenn hjá honum hlaupa
út undan sér.
Forráðamenn RARIK á blaðamannafundi í gær:
Uppsagnir 90—
100 manna fjar-
stæðukenndar
— Nemur rúmlega öllum mannskap
RARIK í Reykjavík, og ætlunin er að
styrkja starfsemina á landsbyggðinni
„VIÐ TELJUM aö það hafi verið heppilegt að þessi athugun skyldi gerð á þessum
tíma. Um það að þeir sem hér standa fyrir málum hafi ekki náð tökum á
verkefninu finnst mér að sé ástæðulaust af ráðherra að láta í Ijós. Hér kemur
fram að starfsmönnum hefur verið fækkað. Við gerum okkur grein fyrir því að
með breytingum á verkefnum Rafmagnsveitnanna hlaut að verða samdráttur í
mannafla og eðlilegt að skoða skipulag fyrirtækisins í því Ijósi. Þetta hefðum við
gert sjálfír ef ekki hefði komið til utanaðkomandi aðili, sem er að vinna þetta
verk. Til sönnunar á þessu segir í greinargerðinni, að þegar hafí orðið veruleg
fækkun á starfsliði hjá okkur,“ sagði Pálmi Jónsson, alþingismaður og formaður
stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins, m.a.
Tilefni fundarins var að afhenda
fréttamönnum athugasemd<r vegna
fréttar í Mbl. í gær um niðurstöður
úttektar á rekstri RARIK, en at-
hugasemdin er birt sérstaklega hér
í blaðinu. Fundinn sátu, auk Pálma
Jónssonar, þeir Kristján Jónsson
rafmagnsveitustjóri og Kjartan
Steinbach, formaður starfsmanna-
ráðs RARIK. Ummæli Pálma hér að
framan eru svör við spurningu um
hvað þeir vildu segja um þau um-
mæli iðnaðarráðherra, Sverris Her-
mannssonar, á fundi Félags ísl.
iðnrekenda á þriðjudag, sem Mbl.
skýrir einnig frá í frétt sinni í gær.
Þar segir iðnaðarráðherra m.a. í til-
efni af niðurstöðum könnunar á
rekstri RARIK, að „þeir sem að
hlutunum komu hafi ekki náð þeim
tökum sem þurfti. Því mun þetta að
þeirra dómi líka hjálpa þeim um
sinn í þröngri stöðu til þess að leysa
úr feiknalega erfiðum vandamálum
blaðamannafundi í gær.
sem legið hafa á borðum þeirra, en
þeir ekki náð tökum á“. Pálmi sagði
fyrst að iðnaðarráðherra hefði upp-
lýst að þarna væri ekki nákvæmlega
rétt eftir honum haft í Mbl., en
meginatriði þess sem fram kæmi
hjá ráðherranum væri að hans mati
það, að athugun þessi stæði yfir og
að því loknu yrði tekin ákvörðun um
það, hvort þeim tillögum sem lagðar
yrðu fram, yrði fylgt eftir.
Kristján og Pálmi sögðu tölurnar
sem Mbl. birti í gær um uppsagnir
90—100 manna út í hött og fjar-
stæðukenndar. Þeir voru þá beðnir
að upplýsa hverjar hinar réttu tölur
væru. Pálmi Jónsson svaraði og
sagði að það væri kannski ekki hægt
að svara því nákvæmlega, tillögurn-
ar væru enn í vinnslu og athugun.
Kristján var þá spurður hvort þeir
gætu á sama tíma sagt að tölurnar
væru rangar. Hann sagði að það
hefði komið fram í viðræðum þeirra
Ljósm. Mbl.: Kristján Einarsson.
Frá blaðamannafundinum í gær. Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri lengst til vinstri, þá Pálmi Jónsson stjórnarformaður
og Kjartan Steinbach formaður starfsmannaráðs.
við Hagvang og eins næmi þessi tala
rúmlega öllum mannskap RARIK í
Reykjavík og ætlunin væri að
styrkja starfsemina úti á lands-
byggðinni samkvæmt tillögunum.
Forráðamenn RARIK voru spurð-
ir álits á tölunni 70 millj. kr., sem
getið er í frétt Mbl. að sé nefnd sem
sú tala sem spara megi í rekstri
RARIK. „Það er ekki tala frá
okkur," svaraði Kristján. Hann var
þá spurður hvort hann vissi hvort
hún væri rétt eða röng. „Ég hef ekki
tekið neina afstöðu til þessarar tölu,
enda er hún ekki frá okkur komin og
við vitum ekki á hvaða forsendum
hún er byggð,“ svaraði hann.
Kristján var ennfremur spurður
um fjölda bifreiða í eign RARIK,
hvort talan 125 bifreiðir væri hin
rétta, en því hefur verið haldið
fram, eins og kom fram í frétt Mbl.,
að RARIK eigi á milli 160—170 bif-
reiðir. Hann svaraði því til að 125
væri mjög nálægt því að vera rétt
tala í dag, en tók fram að alltaf væri
nokkur hreyfing á bílaeigninni. Það
kom og fram í málflutningi
RARIK-manna, að þeir teldu fjar-
stæðukennt að selja hluta bílaflot-
ans, enda væri ódýrara fyrir fyrir-
tækið að eiga sína eigin bíla. Þeir
voru þá spurðir, hvort Hagvangs-
menn hefðu nefnt í tillögum sínum
að til sölu á hluta af bílaflotanum
þyrfti að koma. Kristján sagði að
þeir hefðu ekki nefnt það ennþá.
Spurningunni um hvernig staðið
yrði að uppsögnum starfsmanna
eftir áramótin svaraði Pálmi Jóns-
son á þá leið að ekki lægi nú fyrir
hversu mörgum þyrfti að segja upp
til viðbótar þeim 46 sem þegar hefði
verið sagt upp, en reynt yrði að fara
að því með sæmilega mannlegum
hætti eftir því sem unnt væri.
Kjartan Steinbach var spurður
um afstöðu starfsmanna RARIK til
fyrirhugaðra uppsagna. Hann sagði
starfsmenn fyrirtækisins fullkom-
lega sammála um réttmæti athug-
ana Hagvangs. Menn gerðu sér
fyllilega grein fyrir að von væri á
einhverjum breytingum. Að sjálf-
sögðu væru þeir sem ættu von á
uppsögnum ekkert hressir með að
missa vinnuna, en starfsmannaráð
myndi fjalla um þessi mál þegar
þau kæmu á borðið, en enga endan-
lega afstöðu væri hægt að taka fyrr
en málið lægi fyrir.
Aths. ritstj.:
Vegna staðhæfínga Pálma Jóns-
sonar á blaðamannafundi RARIK í
gær þess efnis, að Morgunblaðið hafí
ekki farið rétt með ummæli Sverris
Hermannssonar iðnaðarráðherra á
fundi Félags íslenskra iðnrekenda í
fyrradag, skal tekið fram, að ummæli
ráðherrans eru nákvæmlega rétt eftir
höfð að því undanskildu að í stað orðs-
ins „meint“ átti að standa orðið
„mennt“.
Athugasemd frá Rafmagnsveitum ríkisins vegna frétt-
ar Morgunblaðsins í gær um úttekt á rekstri RARIK
Pálmi Jónsson, alþm., stjórnarfor-
maður Kafmagnsveitna ríkisins, og
Kristján Jónsson, rafmagnsveitustjóri,
efndu til blaðamannafundar í gær
vegna fréttar Morgunblaðsins um
fyrirhugaðar uppsagnir hjá fyrirtæk-
inu, sölu á bflura o.fl. Á blaða-
mannafundinum lögðu þeir fram eftir-
farandi athugasemd:
Frétt Morgunblaðsins í morgun
um fyrirætlanir um uppsagnir 90—
100 starfsmanna hjá Rafmagns-
veitum ríkisins eru algjörlega úr
lausu lofti gripnar. Ennfremur eru
fréttir um að ætlunin sé að selja
bíla fyrirtækisins gjörsamlega út í
bláinn, enda myndi það eitt hafa í
för með sér stórkostiega aukin út-
gjöld í rekstri. Þá er það einnig
rangt, að fólksbílar séu 150—160.
Heildarbílaeign Rafmagnsveitn-
anna er 125 bílar, þ.m.t. vörubílar
og bílar vinnuflokka.
Síðastliðið sumar fól iðnaðar-
ráðherra Hagvangi hf. að gera út-
tekt á rekstri og skipulagi Raf-
magnsveitnanna og hefur verið
unnið að því síðan. Forráðamenn og
starfsmenn Rafmagnsveitnanna
hafa fúslega veitt allar upplýsingar
og aðstoð í þessu máli og samstarf
við Hagvang hf. hefur verið gott.
Rafmagnsveitur ríkisins telja, að
þetta starf sé unnið á heppilegum
tíma, þar sem þegar var ljóst, að
breytinga var þörf á starfsháttum
og mannafla fyrirtækisins í fram-
haldi af yfirtöku Landsvirkjunar á
virkjunum og byggðalínum. Vegna
þessara skipulagsbreytinga og sam-
dráttar í verkefnum hafa Raf-
magnsveiturnar sagt upp á þessu
ári 46 manns.
Á síðustu árum hafa orðið nokkr-
ar skipulagsbreytingar hjá Raf-
magnsveitunum þannig að fjölgað
hefur verið svæðisskrifstofum og
starfsemi rekstrarsvæðanna úti á
landi verið aukin. Það má telja meg-
ininntak í tillögum Hagvangs hf. að
ganga lengra í þessa átt en þegar
hefur verið gert og efla verkefni og
sjálfstæði svæðisskrifstofanna.
Þessu þyrfti að mæta með sam-
drætti hjá aðalskrifstofu í Reykja-
vík að sama skapi.
Nú starfa svæðisskrifstofur
Rafmagnsveitnanna á eftirtöldum
stöðum: Stykkishólmi fyrir Vestur-
land, Blönduósi fyrir Norðurland
vestra, Akureyri fyrir Norðurland
eystra, Egilsstöðum fyrir Austur-
land og Hvolsvelli fyrir Suðurland.
Það er fjarri lagi, að í tillögum
Hagvangs hf. felist það, að stefnt
verði að fækkun starfsliðs um
90—100 manns á næsta ári, þótt
ljóst sé að um nokkra fækkun verði
að ræða vegna breytinga á verk-
sviði.
Rétt er að taka fram, að nú starfa
hjá fyrirtækinu 96 manns á skrif-
stofu í Reykjavík, 49 manns á verk-
stæðum og í vinnuflokkum í Reykja-
vík og 210 manns á vegum svæð-
isskrifstofanna úti á landi.
Tillögur Hagvangs hf. eru enn til
umfjöllunar hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, þær hafa verið kynntar
lauslega fyrir starfsmannaráði
Rafmagnsveitnanna og þær eru til
athugunar hjá iðnaðarráðherra.
Engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar.
Rafmagnsveitur ríkisins stefna
að sjálfsögðu að sem mestri hag-
kvæmni í rekstri og vilja leita allra
leiða til þess að skipulag og starf-
semi fyrirtækisins sé sem virkast.
Þó ber að hafa í huga, að allar
skipulagsbreytingar og tilfærslur á
mannafla og verkefnum þurfa að
skoðast vandlega og geta ekki gerzt
í einni svipan, heldur er óhjákvæmi-
legt að um nokkurn aðlögunartíma
sé að ræða.
Meðan athuganir af þessu tagi
standa yfir eru rangar eða villandi
fréttir í fjölmiðlum síður en svo lag-
aðar til þess að greiða fyrir farsælli
niðurstöðu.
Reykjavík, 7. desember 1983,
Kristján Jónsson,
rafmagnsveitustjóri,
Pálmi Jónsson,
stjórnarformaðu r.
Vegagerðin fylgist með hugsanlegu jakahlaupi
Skeiðará gæti haldið áfram að vaxa í hálfan mánuð:
— sem gæti valdið tjóni á brúm og vegum á sandinum
STARFSMENN Vegagerðar ríkisins
eru við öllu búnir á Skeiðarársandi ef
svo færi að verulegur vöxtur kæmi í
Skeiðarárhlaupió, sem hófst í gær-
morgun. Er fylgst vel með brúnum á
sandinum því ef hlaupið vex skyndi-
lega gætu jakar brotnað úr jöklinum,
borist niður á sandinn og valdið
skeramdum á brúnum, að því er Sigur-
jón Rist, vatnamælingamaður, sagði í
samtali við blaðamann Mbl. í gær.
„Enn sem komið er er hlaupið lít-
ið og það fer hægt vaxandi eins og
venja er. Það er þó orðið nokkuð
drjúgt eða vel eins og sumarvatn,"
sagði Sigurjón. „Það er stutt, eða
ekki nema 23 mánuðir, síðan síðast
kom hlaup úr Grímsvötnum. En þá
hljóp ekki fullkomlega úr vötnun-
um; þegar hlaupinu var lokið í
febrúar 1982 stóð vatnsborðið 50
metrum hærra en venjulega eftir
hlaup. Það má því búast við breyt-
ingum á hlaupinu á næstu dögum
þótt rétt sé að minna á, að á undan-
förnum árum og áratugum hefur
það tekið ána allt upp undir hálfan
mánuð að ná fullum vexti."
Sigurjón Rist sagði að Skeiðar-
árhlaupið núna kæmi alls ekki á
óvart, aðdragandi þess hefði verið
langur. „Það mátti búast við þessu
— það er ekki lengra síðan en í vor
að það var eldvirkni í Grímsvötnum.
En þá var svo lágt í þeim, að vatnið
hefur ekki brotist út fyrr en núna,“
sagði Sigurjón. Hann bætti því við,
að jökulfýla af hlaupinu væri ívið
minni nú en undanfarnar vikur, hún
hefði fundist af og til síðan í októ-
ber. Það væri einnig til vitnis um
það hlaup, sem nú er hafið.
Fréttatilkynning RLR
vegna rannsóknar á
kæru Skafta Jónssonar
Rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
sendi í gær eftirfarandi fréttatil-
kynningu:
Hinn 28. f.m. sendi lögreglustjór-
inn í Reykjavík rannsóknarlögreglu
ríkisins til meðferðar kærugögn af
hálfu Skafta Jónssonar, blaða-
manns, Víðimel 19, Reykjavík, fyrir
meint harðræði af hálfu lögreglunn-
ar í Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dagsins 27. f.m. Var af hálfu Skafta
gerð sú krafa, að rannsakað yrði
hvort lögreglumenn hefðu gerzt
brotlegir með refsiverðum hætti við
handtöku aðfaranótt 27. f.m.
Lokið er nú frumrannsókn þessa
máls af hálfu rannsóknarlögreglu
ríkisins, og verða rannsóknargögn
send ríkissaksóknara til ákvörð-
unar.
Vegna þess, sem fram hefir
komið á vettvangi fjölmiðla um
málið, þykir rétt að taka eftirfar-
andi fram:
Starfsfólk Leikhúskjallara hefir
lýst ástæðum þess, að lögreglan
var kvödd þangað til aðstoðar að-
faranótt 27. f.m. Voru ástæðurnar
viðbrögð og hegðan Skafta er yfir-
höfn hans fannst ekki þegar við
fatahengið. Var hann með illyrði
og hótanir í garð þess auk þess,
sem hann réðst að einum dyra-
varðanna, reif föt hans og veitti
honum áverka. Hafi hegðan
Skafta verið slík, að óhjákvæmi-
legt hafi verið að kalla á lögreglu
til aðstoðar. Lðgreglumenn þeir er
fóru á vettvang bera og, að fram-
koma Skafta hafi verið þess eðlis,
að ekki hafi verið hægt að fá skýr-
ingar hjá honum á málavöxtum.
Hann hafi sýnt tilburði til þess að
ráðast á dyravörðinn aftur, og
hafi þeir orðið að handjárna hann
og færa í lögreglubíl. Mótþrói
mannsins við það hafi leitt til þess
að hann féll á gólf bílsins og sé
ekki útilokað að hann hafi þá hlot-
ið áverka. Lögreglumennirnir
segja að maðurinn hafi legið á
maganum á gólfinu handjárnaður
fyrir aftan bak, og vegna stöðugs
mótþróa hans hafi einn lögreglu-
maður orðið að halda honum.
Lögreglumennirnir neita þvf al-
farið allir að þeir hafi viljandi
meitt manninn og í bílnum hafi
aldrei verið tekið um eða þrifið í
höfuð hans og það keyrt í gólf bíis-
ins.
Vinkona eiginkonu mannsins
sem sat við hlið eiginkonunnar í
bílnum hefur borið að hún hafi
ekki séð neitt slíkt gerast.
Eftir komu á lögreglustöð var
maðurinn um klukkustund í haldi
en ekki er ástæða til að rekja hér
það sem þar gerðist.
f læknisvottorði kemur fram að
maðurinn hafi komið á slysadeild í
hádeginu á sunnudag 27. nóvem-
ber. I vottorðinu segir um áverka
á landliti mannsins: „Nef er mikið
bólgið og glóðarauga á vinstra
auga. Ekki greinist skekkja á nefi,
nasir virðast báðar opnar. Á enni
er — miðju enninu — 3 cm löng
grönn rispa, einnig er önnur rispa
lítil vinstra megin á enni.“ Síðar í
vottorðinu segir: „Roði og smá-
mar eru í hársverði á hnakka-
svæði. Rtg.mynd var tekin af nef-
beinum, þessi rtg.mynd sýndi brot
á nefbeininu án teljandi tilfærslu
á brotflöskum."
Af hálfu Skafta er því haldið
fram, að upphafið megi rekja til
samskipta hans við starfsfólk
Leikhúskjallara sem hafi verið
byggt á misskilningi fyrst og
fremst. Ágreiningur og átök hafi
síðan fylgt og enda þótt upphaf
þess mætti að hans sögn rekja til
framkomu starfsfólksins, hafi
komið að því að hann var færður
burt af staðnum af lögreglu, hand-
járnaður og með valdi. Hann held-
ur því fram að í lögreglubílnum
hafi sér verið misþyrmt af einum
lögreglumanni með því, að sá hafi
ítrekað þrifið í hár hans og keyrt
höfuð niður í gólf bílsins. Vegna
þessa hafi hann meðal annars
nefbrotnað og hlotið aðra áverka á
höfði. Því er og haldið fram af
honum og eiginkonu hans sem
jafnframt var í bílnum, að þetta
hafi maðurinn margsinnis gert,
enda þótt þau hafi beðið hann að
láta af því.
Við rannsókn þessa máls hafa
— auk lögreglumanna og Skafta
Jónssonar —, sex starfsmenn
Leikhúskjallara verið yfirheyrðir
og fleiri vitni, alls 20 manns.
RLR dregur upp einhliða
mynd af atburðarásinni
— Segir Skafti Jónsson, blaðamaður
„Þessi fréttatilkynning Rann-
sóknarlögreglu ríkisins er mér
gersamlega óskiljanleg. Sá vitnis-
burður sem er lögreglumönnunum
og dyravörðum í Þjóðleikhúskjallar-
anum í hag, er dreginn fram í dags-
Ijósið í tilkynningu RLR og kemur
fram í fullyrðingu, en minn vitnis-
burður er gerður léttvægur og orð-
aður „hann heldur því fram ... “ og
„að hans sögn ... “ . Þá er hvergi
getið um vitnisburð annarra vitna í
þessu máli, sem ég fullyrði að gefur
aðra og réttari mynd af málinu,"
sagði Skafti Jónsson, blaðamaður,
sem fyrir nokkru krafðist rannsókn-
ar á meintu harðræði lögreglunnar
þann 27. nóvember síðastliðinn þeg-
ar hann var handtekinn, svo sem
skýrt var frá í Mbl.
Mbl. leitaði eftir því við viðkom-
andi lögreglumenn, að þeir tjáðu
sig um málið, en því var hafnað að
svo stöddu.
„í tilkynningunni er vitnað til
þeirra fjögurra vitna, sem voru
mér mjög í óhag, en sleppt vitnis-
burði annarrar stúlkunnar sem
var inni í fatahenginu og bar mér
að vísu ekki góða sögu en sagði að
ég hefði fengið heimild til þess að
fara inn í fatahengið.
Ég hef það á tilfinningunni að
lögreglan sé að hefna sín á mér
fyrir að hafa farið með þetta mál í
blöðin — fréttatilkynning Rann-
sóknarlögreglu rikisins dregur
upp ákaflega einhliða mynd af at-
burðarásinni. Það er umhugsunar-
efni hvort RLR hefur heimild til
þess að skella fram fullyrðingum í
fréttatilkynningu eftir frum-
rannsókn máls, þar sem svo mikið
ber í milli,“ sagði Skafti Jónsson.
Hann vildi ekki tjá sig frekar að
svo stöddu — sagðist gera það síð-
ar.
„Framganga lögreglu
hin harkalegasta“
— segir í yfirlýsingu frá Ástu Svavarsdóttur
MBL. barst í gærkvöldi yfirlýsing
frá Ástu Svavarsdóttur, sem var í
lögreglubifreiðinni þegar Skafta
Jónssyni var sýnt meint harðræði í
bifreiðinni, en í tilkynningu RLR er
vitnað í Ástu:
„Það er illt til þess að vita, að
Rannsóknarlögregla ríkisins sem
á að heita hlutlaus rannsóknarað-
ili í kærumáli Skafta Jónssonar,
sendi frá sér fréttatilkynningu
sem svo augljóslega er skekkt öðr-
um málsaðila í hag, meðal annars
með því að tilgreina alls ekki
framburð sjónarvotta að hand-
töku. Minn framburður er til að
mynda slitinn úr samhengi —
augljóst dæmi um það hvernig
nota má tilvitnanir þannig að
merking nánast snúist í andhverfu
sína. Það er að vísu rétt, að ég sá
ekki nema lítinn hluta þess sem
fram fór í lögreglubílnum en mað-
urinn hefur fleiri skilningarvit en
sjónina, þar á meðal heyrn. Og
þótt þess hafi ekki verið getið í
umræddri fréttatilkynningu, bar
ég í yfirheyrslu hjá Rannsóknar-
lögreglunni, að utan við lögreglu-
bílinn heyrði ég dynki eða högg
innan úr honum en þar var þá að
minnsta kosti einn lögreglumaður
auk Skafta. Þegar inn í bílinn kom
sá ég Skafta liggjandi á maganum
og handjárnaðan fyrir aftan bak
og yfir honum lögreglumann, sem
hélt honum niðri. Á leiðinni var
hins vegar skuggsýnt í bílnum og
auk þess skyggði sætisbakið á höf-
uð Skafta og efri hluta líkamans.
Ég sá því ekki það sem fram fór.
Aftur á móti heyrði ég að í hvert
sinn sem Skafti reyndi að reisa
upp höfuðið í átt til konu sinnar.
sem einnig reyndi að teygja sig í
átt til hans og sá því betur en ég
það sem fram fór, keyrði lögreglu-
maðurinn hann niður aftur. Þessa
vitnisburðar er að engu getið í
fréttatilkynningu Rannsóknar-
lögreglunnar. Oll framganga lög-
reglunnar í þessu máli var hin
harkalegasta og bar þess vott að
hún mat ekki aðstæður sjálfstætt
í upphafi og missti bæði stjórn á
þeim og sjálfum sér — með því er
ekkert sagt um meðvitaðar lík-
amsmeiðingar. En er það eðlilegt
að maður sem er fullkomlega
rólegur þegar hann gengur frá
manni, sé handtekinn formálalítið
og komi tveim tímum seinna stór-
lega meiddur eftir viðskipti sín við
lögregluna?"
Ásta Svavarsdóttir,
7. desember 1983.