Morgunblaðið - 09.12.1983, Síða 12
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
gQ MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
Kvöldlokkur á
jólaföstu f
Fríkirkjunni
í Fríkirkjunni í Reykjavík, veröa haldnir tónleikar í kvöld, föstu-
dagskvöld, og hefjast þeir kl. 22.00.
Þar koma fram Bernard Wilkinson, flauta, Oaði Kolbeinsson og
Janet Wareing, óbó, Einar Jóhannesson og Gunnar Egilson, klarin-
et, Hafsteinn Guðmundsson og Björn Árnason, fagott, og Joseph
Ognibene og Jean P. Hamilton, horn.
Þetta er í fjóröa sinn sem tónleikar af þessu tagi, Kvöldlokkur ó
jólaföstu, eru haldnir, og nú verða eingöngu flutt verk eftir W.A.
Mozart. A efnisskránni eru m.a. þœttir úr óperunni „Cosi fan tutte“,
útsettir fyrir blásaraoktett, af óbóleikaranum Johann Nepomuk
Wendt og Fantasía í f-moll, annað tveggja verka sem Mozart samdi
fyrir orgelspilverk tengt klukkum (sjálfspilandi orgel).
TÓNLIST
Jass-kvöld í
Stúdenta-
leikhúsinu
Jass-kvöld verður á sunnudag á
vegum Stúdentaleikhússins í Fé-
lagsstofnun stúdenta viö Hring-
braut.
Hljómsveitin Flat five kemur
fram og hana skipa: Þorleifur
Gíslason, tenorsax, Vilhjálmur
Guöjónsson, gítar, Kristján
Magnússon, píanó, Árni Scheving,
bassi, Árni Áskelsson, trommur.
Flat five spilar bebob, en vill þó
ekkí einskoröa sig viö eina
ákveöna stefnu í jass.
Flat five var stofnuö í fyrra en nú
eru aöeins tveir af stofnendunum
með í hljómsveitinni, þeir Árni Ás-
kelsson og Vilhjálmur Guöjónsson.
Hinir meölimir hljómsveitarinnar
koma úr kvartett Kristjáns Magn-
ússonar.
Norræna húsiö:
Tónleikar
Antony de Bedts
í Norræna húsinu veröa á
sunnudag kl. 17.00 tónleikar
bandaríska píanóleikarans Antony
de Bedts. Eru þaö einleikstónleik-
ar og þeir einu sem hann heldur
hér á landi. Á efnisskránni er m.a.
nokkur verk eftir L.v. Beethoven
og R. Schumann, auk Fantasíu í
B-moll op. 28 eftir A. Scriabin.
Antony de Bedts er fæddur í
Bandarikjunum og hóf þar ungur
að leika á píanó, en hefur á undan-
förnum árum lagt stund á nám í
píanóleik viö tónlistarháskólann í
Vínarborg. Hann hefur haldið
fjölda tónleika i Evrópu og Banda-
ríkjunum og unniö til ýmissa verö-
launa fyrir leik sinn.
Norskur vísna-
söngvari í
Norræna húsinu
Norski vísnasöngvarinn Finn
Kalvik veröur staddur hér á landi
um helgina, en hann er hingaö
kominn í tilefni þess, að Nord-
mannslaget heldur upp á 50 ára
afmæli sitt um þær mundir.
Finn Kalvik heldur tónleika í
boöi Norræna hússins sunnudag-
inn 11. desember kl. 14.30, en auk
þess syngur hann á hátíöarsam-
komu hjá Nordmannslaget, á Hótel
Loftleiðum.
Frakkarnir í
Félagsstofnun
stúdenta
Hljómsveitin Frakkarnir kemur
fram í Félagsstofnun stúdenta viö
Hringbraut í kvöld kl. 21.00. Þar
veröa kynnt lög af plötunni Þöra
1984, en hún er tileinkuö rithöf-
undinum og baráttumanninum um
mannréttindi George Orwell.
Vestfirðir:
Píanótónleikar
Halldórs
Haraldssonar
Halldór Haraldsson, píanóleik-
ari, fer í dag, 9. desember, til Flat-
eyrar og mun halda þar tónleika
og fyrirlestur síödegis fyrir nem-
endur tónlistarskólans á staönum.
Um kvöldiö heldur hann síöan
opinbera tónleika í mötuneyti
Hjálms hf. Laugardaginn 10. des-
ember, heldur hann síöan tónleika
á vegum Tónlistarfélagsins á ísa-
firöi og veröa þeir í Alþýöuhúsinu
og hefjast kl. 17.00.
Á efnisskránni eru verk eftir
Brahms, Beethoven, Chopin, De
Falla, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Bartók og Ravel.
SAMKOMUR
Germanía:
Aðventu-
fagnaður
Germanía efnir til aöventufagn-
aöar í hliðarsal Hótel Sögu á
sunnudag kl. 15.00—18.00. Á
boöstólum veröur púns og pipar-
kökur aö þýskum aöventusiö og
blásarahljómsveit leikur undir
stjórn Hans Ploder.
Skemmtanir á
vegum Æskunnar
Á vegum Æskunnar hefur veriö
efnt til nokkurra skemmtana aö
undanförnu.
Laugardaginn 10. desember
verða tvær Æskuskemmtanir. i fé-
lagsmiöstöðinni Fellahelli í Breiö-
holti hefst skemmtunin kl. 15. Þar
les Guöni Kolbeinsson úr þýöing-
um sínum á Margs konar dagar,
Frú Pigalopp og jólapósturinn;
hljómsveitin Þrek leikur og höf-
undur Poppbókar, Jens Kr. Guö-
mundsson, les brot úr viötölum viö
Bubba og Ragnhildi Gísladóttur,
auk þess sem Siguröur Helgason
les kafla úr unglingasögunni Lassi
í baráttu.
Á Akranesi er skemmtunin hald-
in í samvinnu viö Unglingareglurn-
ar og barnast. Stjörnuna. Valbjörg
Kristmundsdóttir les jólasögu;
Skagakvartettinn syngur og leiðir
söng; Þórir Sigurbjörnsson leikur á
nokkur óvenjuleg hljóöfæri, m.a.
hjólhestapumpu og sög og að lok-
um veröur spilaö bingó. Vinningar
eru reiöhjól og útgáfubækur Æsk-
unnar, Árni Noröfjörö stjórnar
skemmtuninni.
Norræna húsið;
Sænsk hrollvekja
í Norðurljósum
Kvikmyndaklúbburinn Noröur-
Ijós sýnir laugardaginn 10. des. kl.
17.15 myndina „Uppdraget" —
Verkefniö — eftir sögu Per
Wahlöö. I aðalhlutverkum eru
Tomas Hellberg, Christopher
Plummer, Carolyn Seymour, Fer-
nando Rey og Per Oscarsson.
Hér er á feröinni hrollvekja.
Sænskum stjórnarerindreka er fal-
iö aö miöla málum í deilu milli sósí-
alískrar frelsishreyfingar og ein-
ræöisstjórnar í ríki í Suöur-Amer-
íku.
Leikstjóri myndarinnar er Mats
Arehn, en handritiö er eftir Mats
Arehn, Ingemar Ejve og Lars
Magnús Jansson.
„Taras Shevtsenko"
í MÍR-salnum
í MÍR-salnum veröur á sunnu-
dag kl. 16.00 sýnd kvikmyndin
„Taras Shevtsenko".
Kvikmyndin fjallar um ævi og
störf hins fræga brautryöjanda í
úkraínskum bókmenntum skálds-
ins og myndlistarmannsins Taras
Shevtsenko, sem uppi var
1814—1861. Taras Shevtsenko
var sonur ánauöugs bónda, dvald-
ist á unglingsárum sínum í Vilnjus í
Litháen og síöar í St. Pétursborg.
Fyrsta Ijóðabók hans kom út 1840.
Stjórnvöldum í Rússlandi keisar-
ans þótti skáldskapur hans bylt-
ingarkenndur og hættulegur og
var hann dæmur í útlegð af þeim
sökum. Lýsir kvikmyndin þessum
sögulegu árum í ævi skáldsins.
Myndin er með enskum skýr-
ingartextum.
LISTSÝNINGAR
Gerðuberg:
Ljósmyndir,
batik og vatns-
litamyndir —
síðustu
sýningardagar
Um helgina lýkur í Geröubergi
sýningu Katrínar H. Ágústsdóttur á
batikklæöum og vatnslitamyndum
sem opnuö var 1. desember.
Einnig lýkur sýningu Kristjáns
Inga á Ijósmyndum úr bókinni
„Kátt í koti“ sunnudaginn 11.
desember.
Sýningarnar eru opnar mánu-
dag — fimmtudag frá kl. 16—22
og föstudag — sunnudag frá kl.
14—18.
Gallerí Heiöarás:
Málverkasýning
Jóns
Baldurssonar
í Galleri Heiöarási, aö Heiöarási
8 í Árbæ, stendur nú yfir mál-
verkasýning Jóns Baldurssonar. Á
sýningunni eru 64 verk, 22 lands-
lagsmyndir og 42 fuglafantasiur.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13.00—22.00 fram til jóla.
Björg Hauks:
Glerlist í
Bláskógum
Nú stendur yfir í húsgagnaversl-
uninni Bláskógum viö Ármúla sölu-
sýning á verkum eftir Björgu
Hauks úr steindu gleri. Hér er um
Sýning í tilefni
3ja ára afmælis
Gallerí Lækjartorg
Haukur Halldórsson og Jóhann G. Jóhannsaon opna á morgun,
10. desember, sammálverkasýningu „Des’er ’83“ í Gallery Lækjar-
torgi kl. 3. e.h.
Tilefni sýningarinnar er 3ja ára starfsafmæli Gallery Lækjartorgs.
Haukur og Jóhann sýna um 40 verk sem þeir hata unnið saman á
þessu ári, þ.e.a.s. hver mynd er unnin í sameiníngu. Viðfangsefniö
er konan og er sýningin tileinkuð henni. Gerö myndanna byggist á
blandaöri tækni í olíu ásamt kol og trélitum.
Sýningin er sölusýning og stendur til 24. desamber nk. Opið er
alla daga frá kl. 2—6 e.h., nema laugardaga og sunnudaga frá kl.
2—10 e.h.