Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Mel Wagner
Koschcl. lislakona
Einstaklega fallegur jólaplatti, skemmtileg gjöf,
t.d. vegna barnsfæðingar á árinu, skírnar eða
annars tilefnis. Þetta eru fimmtu jólin sem hin
þekkta postulínsverksmiðja TIRSCHENREUTH
í Vestur Þýskalandi bjóða BARNAJÓLA-
PLATTANN sem teiknaður er af listakonunni
Mel Wagner - Koschel.
Myndin á plattanum er unnin með 24 karata
gulli á kóbalt (blátt). Plattinn er 20 cm hár, er
með hengju, og í fallegum gjafakassa.
GERMANY
VÖRUR FYRIR ALLA
VERÐ FYRIR ALLA
Verð kr. 775.-Póstsendum
TÉKK*
KKISTATL
Laugaveg 15 sími 14320
SSfiS
VIRGINIA
frónsK cUAidsagas
u Óvenin
,u ^vðing eítit H*
Lækkuð gjöld
fyrir póstfax-
þjónustu til
Norðurlanda
GJÖLD fyrir póstfaxþjónustu
við Norðurlönd lækkuðu 10.
desember sl. Gjaldskránni til
Norðurlanda er skipt í
tvennt, annars vegar eru
Danmörk, Finnland, Færeyj-
ar, Noregur og Svíþjóð og
hinsvegar Grænland.
Gjöld fyrir fyrri flokkinn eru
213 krónur fyrir fyrstu síðu frá
póststöð til póststöðvar og 158 kr.
fyrir hverja viðbótarsíðu. Fyrir
sendingu frá einkatæki til póst-
stöðvar er gjaldið 55 kr. á fyrstu
síðu og 35 kr. fyrir hverja viðbót-
arsíðu. Frá póststöð til tækis í
einkaeign kostar fyrsta síða 198
krónur og hver viðbótarsíða 148
krónur.
Fyrir fyrstu síðu frá póststöð á
íslandi til póststöðvar í Græn-
landi kostar fyrsta síðan 590
krónur og hver viðbótarsíða 460
krónur. Frá einkatæki hér til
póststöðvar í Grænlandi kostar
fyrsta síðan 55 krónur og viðbót-
arsíðan 35 krónur. Frá póststöð á
íslandi til einkatækis í Græn-
landi kostar fyrsta síðan 575
krónur og hver viðbótarsíða 450
krónur, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Pósti og síma.
„Fyrir póstfaxsendingar til
annarra landa greiðist símatals-
kostnaður í samræmi við notaðan
tíma hverju sinni til viðbótar við
grunngjöldin, eins og þau eru í
gjaldskrá fyrir póstþjónustu á
hverjum tíma,“ segir einnig í
fréttatilkynningunni.
Handbók fyrir
starfsfólk í
frystihúsum
Sjávarafurðadeild Sambandsins
hefur gefið út litprentaðan bækl-
ing, 16 bls. að stærð, sem ber
nafnið: Handbók fyrir starfsfólk f
frystihúsum.
Skiptist ritið í eftirtalda kafla:
Inngangur, Gæði, Nokkur heil-
ræði, Hreinlæti, Umgengni og
þrif og Bónus.
Á þessu ári hefur Fiskeftirlit
Sjávarafurðadeildar gengist fyrir
fjölmörgum fræðslufundum með
starfsfólki frystihúsa víðsvegar
um landið, þar sem rætt hefur
verið um vöruvöndun og vöru-
gæði; hafa þessir fundir m.a. leitt
í ljós nauðsyn þess, að til séu í
einu aðgengilegu riti ýmis grund-
vallaratriði, er varða hreinlæti og
góða umgengnishætti. Er nú ver-
ið að dreifa riti þessu í öll frysti-
hús er selja afurðir sínar gegnum
Sjávarafurðadeild.
Þetta er þriðja upplýsingaritið
sem Sjávarafurðadeild gefur út á
þessu ári; hin tvö eru á ensku og
fjalla um þær afurðir sem fram-
leiddar eru af framleiðendum
deildarinnar.
(Fréttatilkynning)
Fréttirfiúf\rstu hendi!