Morgunblaðið - 16.12.1983, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
og steinullar verði rannsökuð
Skaðsemi gler-
EFTIRFARANDI tillaga var sam-
þykkt á félagsfundi Trésmiðafélags
Reykjavíkur, 24. nóvember sl.:
„Félagsfundur Trésmiðafélags
Reykjavíkur, haldinn 24. nóvem-
ber 1983 að Suðurlandsbraut 30,
lýsir áhyggjum sínum vegna þess
hve hægt miðar til framfara í að-
búnaðarmálum verkafólks. Ekki
er hægt að marka verulegar úr-
bætur, þrátt fyrir nýjar stofnanir
og lög.
Fyrir skömmu voru birtar (
Danmörku niðurstöður rannsókna
á heilsufari verkafólks, sem vinn-
ur við málningu og lökk. I ljós kom
að nær helmingur þeirra sem ran-
nsakaðir voru, höfðu hlotið var-
anlegt heilsutjón vegna áhrifa eit-
urefna. Þá hefur danskt verkafólk
krafist þess að fram fari rannsókn
á hugsanlegri skaðsemi stein- og
glerullar, því sterkur grunur leik-
ur á að þessi efni geti valdið
krabbameini.
Þar sem íslenskir iðnaðarmenn
hafa unnið við framangreind efni
mörg ár, og allar líkur benda til að
þau verði notuð í auknum mæli á
komandi árum, krefst fundurinn
þess að fram fari rannsókn á skað-
semi framangreindra efna, auk
annarra efna sem hugsanlega geta
valdið varanlegu heilsutjóni. Leiði
slík rannsókn f ljós að hér séu í
umferð einhver þau efni sem vald-
ið geta varanlegu heilsutjóni, er
það skýlaus krafa fundarins að
komið verði í veg fyrir notkun
þeirra, nema ef óhjákvæmilegt
reynist í undantekningartilfellum,
og ber þá að setja strangar reglur
um meðferð þeirra.
Innan skamms verður sett á
stofn steinullarverksmiðja hér á
landi. Grundvöllur slíkrar verk-
smiðju er að notkun steinullar
aukist stórlega.
Fundurinn leggur áherslu á að
verksmiðjan fái ekki starfsleyfi
fyrr en fyrir liggur að steinull
valdi ekki varanlegu heilsutjóni."
KENWOOD chef
Kalflkvörn
Malar kaffið eins gróft
eóa flnt og óskað er og
ótrúlega fljótt.
Hraðgengt rifjárn
Sker niður og afhýðir
grænmeti á miklum
hraóa og er með fjórum
mismunandi járnum.
Þrýstisigti
Aðskilur steina og
annan úrgang frá ávöxt-
um. Auóveldar gerð
sultu og ávaxtahiaups.
Rjómavól
Býr til Ijúffengan, fersk-
an rjóma á nokkrum
sekúndum, aðeins úr
miólk og smjöri.
Stálskál
Endingargóð og varan-
leg skál, tilvalin I alla
köku- og brauógerð.
Ávaxtapressa
Skilar ávaxta- og græn-
metissafa með öllum
vltamlnum.
Dósahnífur
Opnar allar tegundir
dósa án þess að skilja
eftir skörðóttar brúnir.
00
Grænmetisrifjárn
Sker og raspar niður I
salat. — Búið til yóar
eigin frönsku kartöflur
með til þess gerðu járni.
AUkNIR MOGUtEIKAR
KENWOOD chef
Kr. 8.430.-
(Gengi 26.11.83)
Til í tveimur litum.
Kartöfluhýðari Hetta
Eyðió ekki mörgum Yfirbreiðsla yfir Ken-
stundum I að afhýóa wood Chef vélina.
kartöflur sem Kenwood
afkastar á svipstundu.
mji <£?
HJÁLPARKOKKUHINN
KENWOOD chef
IhIReklahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Sitrónupressa
Býr til Ijúffengan fersk-
an sltrussafa á litlu
lengri tlma en tekur að
skera sundur appelslnu.
Grænmetisrifjárn
Sker niður rauðrófur,
agúrkur, epli, kartöflur.
Raspar gulrætur, ost,
hnetur og súkkulaði.
Er engin venjuleg
hrærivél.
Verð með þeytara,
hnoðara,
grænmetis- og
ávaxtakvörn,
ásamt plasthlíf
yfir skál:
Hakkavél
Hakkar kjöt og f isk jafn-
óðum og sett er I hana.
Einnig fljótvirk við gerð
ávaxtamauks.
Grænmetiskvörn
Blandar súpur, ávexti,
kjötdeig og barnamat.
Saxar hnetur, o.fl.,
malar rasp úr brauði.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgeklúbbur
Akraness
Starfsemin hófst með aðal-
fundi um miðjan september
1983. í stjórn til næsta árs voru
kjörnir: Formaður Guðmundur
Sigurjónsson, ritari Kjartan
Guðmundsson, gjaldkeri Bent
Jónsson.
1. keppni klúbbsins var firma-
keppni, sem jafnframt var ein-
menningskeppni. Sigurvegari I
þeirri keppni og Akranesmeist-
ari í einmenningi varð Kjartan
Guðmundsson. í firmakeppninni
sigraði Samvinnubankinn, spil- !
ari Bent Jónsson.
15. nóvember var haldið opna
Akranesmótið, sem kennt er við
Hótel Akranes. Hótel Akraness
gefur 1. og 2. verðlaun á þessu
móti og voru þau vegleg að
venju.
1. verðlaun, kr. 15.000, hlutu:
Þórarinn Sigþórsson og Guðm.
P. Arnarson. 2. verðlaun, kr.
10.000, hlutu: Sigurður Vil-
hjálmsson og Sturla Geirsson. 3.
verðlaun, kr. 5.000, hlutu: Aðal-
steinn Jörgensen og Runólfur
Pálsson.
Þá var spilaður hausttvímenn-
ingur með barometer-fyrir-
komulagi. Sigurvegarar urðu:
Þórir Leifsson og Oliver Kristó- i
fersson. Nr. 2 Guðjón Guð-
mundsson og Ólafur Gr. ólafs-
son. Nr. 3 Árni Bragason og Sig-
urður Halldórsson. Þátttakend-
ur í hausttvímenningnum voru
22 pör.
í október heimsóttu okkur
konur úr Bridgefélagi kvenna í
Reykjavík. Spiluð var sveita-
keppni á 7 borðum og unnu Ak-
urnesingar á 5 en konurnar úr
BK á tveimur.
Nú stendur yfir sveitakeppni
með 16 spila leikjum. Efst er
sveit Alfreðs Viktorssonar með
92 stig. Nr. 2 sveit Vigfúsar Sig-
urðssonar með 71 stig og nr. 3
sveit Þóris Leifssonar með 64
stig.
Um áramótin er fyrirhugað
boðsmót til minningar um
Donna (Halldór) Sigurbjörns.
Spilað verður um bikar, sem vin-
ur Donna gaf til þessarar keppni
til minningar um hann.
Síðar í vetur verða síðan spil-
aðar aðalkeppnir klúbbsins,
þ.e.a.s. sveitakeppni og tvímenn-
ingur, auk þess er bæjarkeppni
við Hafnarfjörð einhvern tíma
vetrar.
Frá Hjónaklúbbnum
Nú er hraðsveitakeppninni
lokið og sigraði sveit Erlu Sigur-
jónsdóttur, en sveitina skipa
ásamt fyrirliðanum Kristmund-
ur Þorsteinsson, Ester Jakobs-
dóttir og Sigurður Sigurjónsson.
Bestu skor síðasta kvöldið fengu
eftirtaldar sveitir:
Sveit Stig
Eddu Thorlacius 605
Erlu Sigurjónsd. 582
Rúnars Haukssonar 579
Ragnars Þorsteinss. 561
Lokastaðan varð þá þessi:
Sveit Stig
Erlu Sigurjónsd. 1767
Dóru Friðleifsd. 1753
Gróu Eiðsdóttur 1705
Eddu Thorlacius 1698
Ólafar Jónsdóttur 1696
Erlu Eyjólfsd. 1681
Valgerðar Kristjónsd. 1668
Húseigendafélag Reykjavíkur:
Alþingi lækki nú
þegar eignaskatta
Fasteignamat hækkar um 57%, en laun um 29%
STJÓRN Húseigendafélags Reykja-
víkur hefur sent frá sér ályktun þar
sem skorað er á Alþingi að lækka nú
þegar eignaskatta og aðrar álögur á
eigendur húsnæðis. í ályktuninni
segir að aukin skattbyrði megi ekki
valda því, að fólk missi eigið hús-
næði. Alyktun Húseigendafélagsins
fer hér á eftir:
„Stjórn Húseigendafélags
Reykjavíkur skorar á Alþingi að
lækka nú þegar eignaskatta og
aðrar álögur á eigendur húsnæðis.
Vegna mikillar kjaraskerðingar
og hækkunar fasteignamats um-
fram hækkun launa er fyrir-
sjáanlegt að skattbyrði húseig-
enda muni enn þyngjast og getur
hún stefnt í voða þeirri stefnu að
sem flestir búi í eigin húsnæði.
Til þess að auka ekki skattbyrði
húseigenda frá því sem verið hef-
„K-álma ... “
í SAMBANDI við svör sérfræð-
inga og forsvarsmanna í heil-
brigðismálum í blaðinu í gær und-
ir greinarheitinu „K-álma —
geislalækningar — línuhraðall"
skal tekið fram að læknarnir
Kjartan Magnússon og Þórarinn
Sveinsson eru sérfræðingar í
krabbameinslækningum. — Höf-
undur formála og umsjónarmaður
efnisins var Áslaug Ragnars.
^^kriftar-
síminn er 830 33
ur, verður að lækka þær álagn-
ingarprósentur, sem eignaskattur
og fasteignagjöld miðast við,
þannig að skattbyrði af venjulegri
fasteign í einkaeign verði EKKI
aukin frá því sem verið hefur sem
hlutfall af tekjum. Fasteignamat
mun t.d. hækka í Reykjavík um
57% en laun munu fyrirsjáanlega
einungis hækka um 29% frá
febrúar 1983 til febrúar 1984.
Þá verður að lækka álagn-
ingaprósentur eignaskatts (sem og
annarra eftirágreiddra skatta)
vegna þess að fyrirsjáanleg er um-
talsverð lækkun á verðbólgu, enda
hafa þessar prósentur verið hækk-
aðar á undangengnum árum til
þess að ríki og sveitarfélög fengju
sinn hlut þrátt fyrir síaukna verð-
bólgu. Nú þegar að verðbólgan fer
lækkandi, verða þessar prósentur
að lækka, þar sem verðbólgan
hjálpar ekki lengur skattgreiðand-
anum til þess að ráða við eftirá-
greidda skatta. Ef spár stjórn-
valda um lækkun verðbólgu í 10%
á næsta ári rætast, þá ber að
margfalda allar prósentur í eftirá-
greiddum sköttum með 0,7 til þess
að skattbyrðin breytist ekki. Þetta
þýðir að eignaskattur ætti að
lækka úr 1,2% í 0,84% eingöngu
vegna hjöðnunar verðbólgu.
Staða ríkissjóðs og sveitarfé-
laga er eflaust slæm um þessar
mundir, en staða hins almenna
íbúðareiganda er ekki betri. Ríki
og sveitarfélög verða að taka tillit
til þess að aðstæður hafa breyst
vegna minnkandi verðbólgu og
skertra launatekna. Aukin skatt-
byrði vegna þessa má ekki valda
því, að borgararnir missi eigið
húsnæði."