Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Hamar og sög
er ekki nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ**
TÍSKULJÓS
*L
T. | »|
'
Rafkaup Suðurlandsbraut 4 - Sími 81518
Stórkostleg bylting í gólfefnum!
Perstorp, 7mm þy kk gólf boró,
semhægteraó
leggja beint á gamla gólfió!
Nýju Perstorp gólfborðin
eru satt að segja ótrúleg.
Þau eru aðeins 7 mm á
þykkt og þau má leggja ofan
á gamla gólfið - dúk, teppi,
parket eða steinsteypu.
Það er mjög einfalt að
leggja Perstorp gólfborðin
og 7 mm þykktin gerir
vandamál þröskulda og
hurða að engu. Perstorp
gólfborðin eru líka vel varin
gegn smáslysum heimilis-
lífsins eins og skóáburði,
naglalakki, kaffi, te, kóki og
logandi vindlingum.
Þú færð Perstorp aðeins
hjá okkur.
Kalmar
SKEIFUNNI 8.SIMI 82011
Garðabær:
Jólasöngur
á aðventu
Á jólafostunni, sem nú fer í hönd,
hefur Skólakór Garðabæjar tekið
upp þá nýlundu að gefa verzlunum,
fyrirtækjum og öðrum stofnunum
kost á að njóta sönglistar kórsins.
Af þessu framtaki hyggst kór-
inn hafa nokkrar tekjur og verður
þeim varið til að kljúfa kostnað af
væntanlegri söngför til Þýska-
lands á vori komanda.
Þeir aðilar sem sýna vilja þess-
ari viðleitni áhuga og um leið
styrkja málefnið hafi vinsamleg-
ast samband við Guðfinnu Dóru
Ólafsdóttur í síma 42212.
Þjóðleikhúsið:
Miðasala
hafin á jóla-
frumsýningu
MIÐASALA á jólafrumsýningu
Þjóðleikhússins hófst í gær, en jóla-
frumsýningin verður á leikriti
Jakobs frá Hrauni, Tyrkja-Guddu.
Leikstjóri Tyrkja-Guddu er
Benedikt Árnason, tónlist er eftir
Leif Þórarinsson og leikmynd og
búningar eftir Sigurjón Jóhanns-
son. Aðalhlutverkin eru í höndum
Steinunnar Jóhannesdóttur, sem
leikur Guddu, og Sigurðar Karls-
sonar sem leikur séra Hallgrím.
Fjöldi annarra leikara kemur
fram á sýningunni.
Njósnari
Lincolns
HJÁ Prentveri er komin út sagan
Njósnari Lincolns, eftir Louis A.
Newcome. Þetta er önnur útgáfa, en
bókin kom út fyrir allmörgum árum
og seldist þá upp á skömmum tíma.
Efni bókarinnar er endurminn-
ingar úr borgarastyrjöldinni í
Bandaríkjunum.
Louis Newcome höfuðsmaður
var 15 ára þegar styrjöldin hófst,
og það kom í hans hlut að inna af
hendi þýðingarmikið starf í þágu
upplýsingaþjónustunnar — hann
var bara berfættur og rauðhærður
strákur — hver hefði trúað því, að
hann væri njósnari? Hann rataði í
margan og mikinn háska, en hann
slapp heill á húfi úr hverri hættu
og missti aldrei móðinn.
Laugavegi lok-
að á morgun
í FYRIRSÖGN í Morgunblaðinu í
gær segir á bls. 30: „Laugavegi
lokað fyrir almennri umferð á
morgun". Þessi fyrirsögn var röng
eins og raunar strax kemur í ljós
við lestur fréttarinnar. Laugavegi
er lokað fyrir almennri umferð á
laugardag.
Föðurnafn
misritaðist
FÖÐURNAFN misritaðist í frétt ’
um útkomu bókarinnar „Látum
oss hlæja", sem bókaútgáfan Salt
gefur út. Sá, sem myndskreytti
bókina heitir Þorsteinn Eggerts-
son, en ekki Bjarnason eins og
stendur í fréttinni. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir velvirðingar á þessu.