Morgunblaðið - 29.12.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1983
5
Fiskstuldurinn úr ísbirninum:
Ókunnugt um að fisk-
urinn var illa fenginn
— segja forráðamenn fyrirtækisins
í MORGUNBLAÐINU í gær sagði að „yfirrerkstjóri ísbjarnarins hefur
viðurkcnnt að hafa selt fyrirtæki í Hafnarfirði að minnsta kosti tvö tonn af
fiski úr geymslum ísbjarnarins og hefur kaupandinn viðurkennt að hafa
keypt fiskinn vitandi vits, að hann var tekinn ófrjálsri hendi“.
Rannsóknarlögreglunni, að þeim
hafi ekki verið kunnugt um annað,
en að um eðlileg viðskipti hafi ver-
ið að ræða. Þeir hafa einnig skýrt
frá því, að þeir viti ekki um önnur
fiskkaup en eitt tonn af stórlúðu
sem hafi síðan verið tekin til
vinnslu í fyrirtæki þeirra.
Af þessu tilefni skal tekið fram,
að skv. upplýsingum Morgun-
blaðsins mun það hafa verið
starfsmaður fyrirtækisins í Hafn-
arfirði, sem hefur viðurkennt að
hafa vitað um, hvernig fiskurinn
var fenginn. Forráðamenn fyrir-
tækisins hafa hins vegar tjáð
Færð á vegum:
Mikil hálka
víða á landinu
SÆMILEG færð var í gær á vegum í nágrenni Reykjavíkur með suðurströnd-
inni og austur á firði. Þokkaleg færð var fyrir Hvalfjörð og í Borgarfjörð, en
Mosfellsheiði var aðeins fær jeppum og stærri bflum. Færð vestan- og
norðanlands var nokkuð misjöfn, en víða á landinu var mikil hálka.
Þessar upplýsingar fengust í
gær hjá Sigurði Haukssyni hjá
vegaeftirlitinu, en nánar um færð
og mokstur sagði Sigurður:
„Fjallvegir á Austfjörðum eru
ófærir, Oddsskarð, Fjarðarheiði
og Vatnsskarð eystra, en að öðru
leyti er færð á vegum austanlands
þokkaleg.
Það er þungfært á vegum á
Snæfellsnesi, til dæmis ekki fært
nema jeppum og stórum bílum
vestur um Mýrar. Fjallvegir eru
ófærir. Sömu sögu er að segja af
Dalasýslu, þar er ekki fært fólks-
bílum, en jeppum og stærri bíium
er talið' fært vestur í Reykhóla-
sveit.
Það er nokkuð góð færð á sunn-
anverðum Vestfjörðum, fært yfir
á Barðaströnd um Kleifarheiði og
verið að moka snjó af Mikladal og
Hálfdáni, þannig að fært verður á
milli Patreksfjarðar og Bíldudals.
Það er verið að moka snjó af veg- j
um á milli Þingeyrar og ísafjarð-
ar, þar með talin Breiðdalsheiðin.
Hins vegar er Botnsheiði ófær en 1
verður trúlega mokuð á morgun, ,
fimmtudag. Það var mikað úr;
Óshlíð á morgun, þannig að fært
er frá ísafirði til Bolungarvíkur og
Súðavíkur. Holtavörðuheiði er ill-
fær, þó var talið í dag að vel út-
búnir jeppar og vörubílar kæmust
þar yfir.
Jeppar og stórir bílar komast
um vegi í Húnavatnssýslu og til
Akureyrar, um Vatnsskarð og
Öxnadalsheiði. Þokkaleg færð er á
vegum í Skagafirði, en aðeins fært
vel útbúnum bílum til Siglufjarð-
ar. Fært er frá Akureyri til Dal-
víkur og Ólafsfjarðarmúli er
jeppafær.
Öllum bílum er fært um Vík-
urskarð til Húsavíkur og frá
Húsavík er greiðfært upp í Mý-
vatnssveit og austur um Tjörnes
til Raufarhafnar. Stórir bílar og
jeppar komast um Hálsa og þaðan
er síðan öllum bílum fært austur á
Vopnafjörð."
A morgun, föstudag, verður
mokað á öllum aðalleiðum, en síð-
an verður snjómokstur aftur auk-
inn mánudaginn 2. janúar.
Gjafafé talið upp úr kössum á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar:
Um 14 milljónir hafa safnast
— skreiðarsending á leið til Eþfópíu
„SÖFNUNIN HEFUR gengið ágætlega, það eru komnar inn liðlega tíu
milljónir króna í peningum, auk þess sem okkur hafa borist framlög frá
skreiðarframleiðendum að verðmæti á milli þriggja og fjögurra milljóna
króna. Og er þá ótalinn stuðningur ýmissa fyrirtækja, sem tekið hafa að
sér að greiða auglýsingakostnað og annan kostnað samfara söfnuninni,“
sagði Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, í samtali við Mbl. síðdegis í gær, þegar hann var inntur eftir
hvernig söfnunin „Brauð handa hungruðum heimi“ gengi.
Guðmundur sagði, að þegar
hefðu verið send 4 tonn af fisk-
töflum til Eþíópíu, sem samsvar-
ar um 240 þúsund dagskömmt-
um. Munu tveir starfsmenn HK
fara til Eþíópíu fljótlega eftir
áramótin og fylgjast með dreif-
ingunni, en töflunum verður
dreift í norður- og norðaustur-
hluta landsins.
„Okkur hafa ennfremur borist
ítrekaðar hjálparbeiðnir frá öðr-
um stöðum í Afríku, svo sem
Ghana og Mozambique, þar sem
ástandið er vægast sagt skelfi-
legt, og við vonumst til að geta
sent umtalsvert magn hjálpar-
gagna þangað líka,“ sagði Guð-
mundur.
Söfnuninni verður haldið
áfram eftir áramótin, en Guð-
mundur sagði að reynsla síðustu
ára hefði sýnt það að framlög
eru að berast út janúarmánuð.
Guðmundur taldi að það væri ör-
ugglega meirihluti þjóðarinnar
sem hefði tekið þátt í þessari
söfnun og vildi fyrir hönd HK
koma á framfæri þakklæti til
allra þeirra sem hafa lagt þessu
málefni lið.
Stakk mann
sinn með
hnífi
KONA stakk eiginmann sinn
meö stórum búrhnífi í kálfann
upp úr miðnætti aðfaranótt mið-
vikudagsins. Atvikið átti sér stað
f íbúð við Hverfisgötu þar sem
hjónin voru ásamt öðrum hjón-
um í veislu.
Maðurinn var fluttur í slysa-
deild þar sem gert var að sár-
um hans, sem ekki reyndust al-
varleg, en konan fékk að gista
fangageymslur lögreglunnar.
Lögreglan lagði hald á hnífinn,
svo og fleiri hnífa í eigu kon-
unnar.
Kveðjutónleikar
Mezzoforte
CIPCAÐWaVT
í kvöld veröa haldnlr kveöjutónleikar í Broadway meö Mezzoforte þar
sem þeir félagar eru nú á förum út í hinn stóra heim og munu halda
tónleika vítt og breitt fyrir aödáendur sína.
Þaö er því fyrirsjáanlegt aö þaö veröur langt í aö þeir félagar gleöji
landa sína meö frábærri spilamennsku.
Notið þetta síðasta tækifæri og hlustiö á þá félaga í
Broadway í kvöld.
Miðasala í Broadway frá kl. 9—5 og við innganginn. Sími 77500.