Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARS 1984 33 Ljósm. Einar Sigurðsson Reykjancsmeistarar í sveitakeppni 1984, sveit Hauks Hannessonar. Talið frá vinstri: Ármann J. Lárusson, Ragnar Björnsson, Stevin Bjarnason, Haukur Hannesson og Lárus Hermannsson. Reykjanesmót í bridge Um helgina fór fram í íþrótta- húsinu í Hafnarfirði Reykjanes- mót í sveitakeppni, en keppnin var jafnframt undankeppni islands- mótsins. Sveit Hauks Hannesson- ar sigraði örugglega i keppninni, hlaut 83 stig. Með Hauk eru í sveitinni: Ármann J. Lárusson, Lárus Hermannsson, Ragnar Björnsson og Sævin Bjarnason. Þátttaka var mjög dræm eða að- eins 6 sveitir. Sveit Sigurðar Vilhjálmssonar varð í öðru sæti og fylgir því sveit Hauks i úrslitakeppnina. Sveit Sigurðar hlaut 57 stig. Næstu sveitir: Ólafur Valgeirsson 50 Erla Sigurjónsdóttir 44 Þórarinn Sófusson 44 U-2 22 I lok mótsins voru afhent verðlaun fyrir Reykjavíkurmótið í tvímenningi, sem varð nokkuð sögulegur vegna veðurs. Þar hófu 27 pör keppni fyrri daginn en aðeins 22 síðari daginn. Sig- urvegarar urðu Magnús og Gísli Torfasynir með 126 stig yfir meðalskor en röð efstu para varð annars þessi: Sigurður Vilhjálmsson — Sturla Geirsson 106 Sævin Bjarnason — Ragnar Björnsson 94 Gísli Davíðsson — Sigurður Davíðsson 85 Hreinn Magnússon — Stígur Herlufsen 83 Logi Þormóðsson — Helgi Jóhannesson 83 Dröfn Guðmundsdóttir — Erla Sigurjónsdóttir 65 Bjarni Jóhannsson — Magnús Jóhannsson 47 Margir keppenda komust ekki til síns heima fyrr en undir morgun en mótið fór fram í Safnaðarheimilinu í Njarðvík- um. Frá verðlaunaafhendingu fyrir Reykjanesmót í tvímenningi en þar báru bræðurnir Gísli og Magnús Torfason sigur úr býtum. Það er Gísli sem veitir veglegum farandbikar viðtöku. Sturla Geirsson og Sigurður Vil- hjálmsson urðu í öðru sæti en Ragnar Björnsson og Sævin Bjarnason urðu þriðju. Bridgefélag Akureyrar Nú er lokið firmakeppni Bridgefélags Akureyrar sem spiluð var jafnhliða tvímenn- inskeppni félagsins, Akureyr- armóti. Spiluð voru alls 24 spil fyrir hvert fyrirtæki, eftir Baro- metersfyrirkomulagi, þ.e. allir spiluðu sömu spilin. Að þessu sinni sigruðu með yfirburðum matsölustaðirnir Bautinn- Smiðjan, sem eru bæjarbúum svo og ferðafólki að góðu kunnir. Hlaut Bautinn-Smiðjan 184 stig, en þeir sem spiluðu voru Stefán Gunnlaugsson, einn af eigendum Bautans-Smiðjunnar, og spilafélagi hans Arnar Daní- elsson. Röð fyrirtækjanna varð þessi: Bautinn-Smiðjan Arnar Daníelsson — Stefán Gunnlaugsson 184 Almenna tollvörugeymslan Magnús Aðalbjörnsson — Gunnlaugur Guðmundsson 135 Verktækni sf. Gissur Jónasson — Ragnhildur Gunnarsdóttir 133 Höldur sf. Ármann Helgason — Jóhann Helgason 128 Iðnaðardeild Sambandsins — fataiðnaður Soffía Guðmundsdóttir — Þormóður Einarsson 127 Lögfræðiskrifstofa Gunnars Sólnes Tryggvi Gunnarsson — Reynir Helgason 125 Brunabótafélagið Alfreð Pálsson — Júlíus Thorarensen 120 Hafskip — umboð Akureyri Kári Gíslason — Sigfús Hreiðarsson 111 Ljósgjafinn Grettir Frímannsson — Ólafur Ágústsson 108 Fasteigna- og skipasala Norðurlands Kristján Guðjónsson — Jón Sverrisson 107 Næst að stigum voru íspan með 106 stig, Sjallinn 104, Flug- leiðir 99, Mjólkursamlag KEA 96, Pan 93, Kjötiðnaðarstöð KEA 88, Almennar tryggingar 83, Nudd- og gufubaðstofan 81, Teiknistofa Hauks Haraldssonar 78 og Sjómannafélag Eyjafjarð- ar með 77 stig. Bridgefélag Akureyrar þakkar öllum er þátt tóku í firmakeppni félagsins fyrir velvild og stuðn- ing. CCfftt CLCEN-GuM Sjálfvirkar kaffikönnur fyrir veitingahús og fyrirtæki • Sænsk gæðafram- leiðsla úr ryðfríu stáli. • Lagar 1,8 lítra af kaffi á 5 mínútum. • Sjálfvirk vatns- áfylling. • Enginn forhitunar- tími. • Nýtir kaffið til fullnustu í uppá- hellingu. • Fullkomin raf- eindastýring. • Raka- og hitavarin. • Fáanleg 2ja og 4ra hellna. • Til afgreiðslu strax. Frá aðeins kr. 7.780. V Otrúlega hagstætt verð A IV 1 | r llmbods- og heildverslun, A. KoirlSSOn h. I. Grórinni 1, Reykjavík. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ GERPLA Námskeið í fimleikum Byrjer.dur 5 ára og eldri miövikudaga og föstu- daga kl. 11.00—12.00. Aerobic — Work out Konur — karlar, mánudaga, þriöjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga. Jassleikfimi stúlkna 13 ára og eldri þriöjudaga og fimmtudaga. Badminton Eigum nokkra lausa tíma í badminton. Mánu- dagar og miðvikudagar. Gufa & Ijós Innritun og upplýsingar í Gerpluhúsi sími 74925 og 74907.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.