Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 Móðir min, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Víðivangi 20, Hafnarliröi, andaöist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 15. mars. Lílly Jónsson. Móöir okkar, JÓNA E. JÓHANNESDÓTTIR fró Horni, Hliðarvegi 32, fsafiröi, andaðist í sjúkrahúsi ísafjaröar 15. mars. Börnin. t Elskulegur sonur, unnusti, bróöir og mágur, PÉTUR SIGURÐUR SIGURÐSSON, vólstjóri, Sæviðarsundi 9, Reykjavík, lést af slysförum sunnudaginn 11. þ.m. Þýðrún Pólsdóttir, Siguröur V. Gunnarsson, Ester Agnarsdóttir, Sveinn Sigurösson, Gunnar H. Sigurösson, Rúnar Sigurösson, Arnbjörg Guömundsdóttir, Ólafía G. Kristmundsdóttir. t Faöir okkar, ATLI ÞORBERGSSON, skipstjórt, lést á Hrafnistu, Reykjavík, fimmtudaginn 15. mars. Fyrir hönd vandamanna, Jóhannes Atlason, Þorbergur Atlason, Kristinn Atlason. t Móðir okkar og tengdamóöir, GUÐMUNDA ÓLAFSDÓTTIR fró Brimnesi, Grindavík, veröur jarösungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 17. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á byggingu dvalarheimilis aldraöra í Grindavík. Sigurbergur Sverrisson, Sigríður Guömundsdóttir, Erna Sverrisdóttir, Sigurður Halldórsson, Ólafur Sverrisson, Gunnlaug Reynis, Magnús Sverrisson, Hrefna Petersen, Þorbergur Sverrisson. t Útför eiginmanns míns, fööur okkar og bróður, VÉMUNDARJÓNSSONAR, Eskihlíð 14, fer fram frá Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19, þriöjudaginn 20. mars kl. 13.30. Sigurleif Stefónsdóttir, Edith Vómundsdóttir, Jón Vómundsson, Sveinn Jónsson, Þórunn Jónsdóttir. t Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar, SIGUROAR SIGUROSSONAR, vélstjóra. Lilja Siguróardóttir, Marteinn Sigurösson, Guófinna Jónsdóttir, Guðrún Siguröardóttir, Jón A. Valdimarsson, Hafsteinn Sigurösson, Kristín Ásta Friöriksdóttir, Kjartan Sigurósson, Erla Sigurjónsdóttir, Siguróur Agústsson og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og samúð viö andlát og útför .... HJARTAR FJELDSTED, Kringlumýri 6, Akureyri. Guðrún Sigurðardóttír, Ingveldur Fjeldsted, Ingveldur F. Hjartardóttir, Guörún F. Hjartardóttir, Hjörtur F. Hjartarson, Lúðvík Vilhjálmsson, Bjarni Jónasson, Auður Skúladóttir og barnabörn. Minning: Sigurborg Ólafs- dóttir frá Skálegjum Fædd 26. júlí 1904 Dáin 7. mars 1984 „Enginn veit sína ævina fyrr en öll er.“ Ekki kom mér í hug að svo skammt liði milli stórra viðburða, sem raun ber vitni. Hinn 27. jan. sl. lést tengdafaðir minn Gísli E. Jóhannesson og núna 7. mars, rúmum mánuði síðar, tengdamóð- ir mín Sigurborg Ólafsdóttir frá Skáleyjum, á Landspítalanum, eftir skamma sjúkrahúsdvöl þar og í Stykkishólmi. Við andlát og útför manns síns stóð hún í senn sterk og hlý og enginn, sem til þekkti gat búist við að svo skammt væri til ieiðarloka. Börn og vandamenn dvöldu á heimili hennar þá daga og kunni hún því vel að hafa ættingjana í návist sinni. En grunur minn er sá, að viljastyrkur og skapfesta hafi um þær mundir e.t.v. haft yfirhönd yfir smávægilegum óþægindum að hennar dómi. Hún var ekki kvartsöm og það var ekki hennar háttur að vorkenna eða ræða um sjálfa sig, miklu frekar naut hún þess að hlynna og hlúa að öðrum vandabundnum, sem vandalausum. En hvað kom á dag- inn? Það sem hún kallaði „leti“ var skæður sjúkdómur, sem hafði heltekið hana. Kom ekki hennar eðli einmitt best fram þessar síð- ustu vikur. Hún bognaði aldrei, en brotnaði á fáum dögum. Hetja til hinstu stundar. Við vissum að það var bæn hennar og von, að henni entist heilsa til að hlynna að manni sínum, sem hafði verið sjúklingur um árabil. Hún var bænheyrð, þó það stæði tæpt. Sigurborg Olafsdóttir var fædd í Hvallátrum á Breiðafirði 26. júlí 1904, næstyngst níu barna hjón- anna Ólínu Jónsdóttur og ólafs Bergsveinssonar búenda þar. Ólína var dóttir Jóns Þórðarsonar bónda í Skógum og síðar við Þorskafjörð og Kristínar Daní- elsdóttur konu hans, en Kristín var ættuð norðan úr Steingríms- firði. Foreldrar ólafs voru hjónin Bergsveinn Ólafsson og Ingveldur Skúladóttir. Bergsveinn var sonur hjónanna Bjargar Eyjólfsdóttur Einarssonar Eyjajarls og Ólafs Teitssonar bónda og bátasmiðs í Sviðnum. Ólafur var vel hagur og smíðaði fjölda báta og hafa af- komendur hans haft orð á sér, að vera góðir smiðir og hagir til handanna. Þau Ólafur og Ólína voru góðir búhöldar og var heimili þeirra mannflesta heimili í Flat- eyjarhreppi á þeim tíma. ólafur var sæmdur riddarakrossi hinnar ísl. fálkaorðu árið 1927. Á þessu heimili ólst Sigurborg upp og mót- aðist. Þar ríkti mikil vinnusemi og voru hvorki bústörf né innanhús- verk vanrækt. Þeim, sem erfiðara áttu var gjarnan rétt hjálparhönd. For- eldrar Sigurborgar tóku fjögur börn mágs Ólafs, Daníels Jónsson- ar og konu hans Maríu Guð- mundsdóttur frá Skáleyjum, í fóstur eftir foreldramissi og urðu þau fóstursystkini Sigurborgar. Sigurborg var greind og fróð- leiksfús, en þrátt fyrir það naut hún ekki mikillar skólagöngu, utan þess sem hún nam hjá góðum barnakennurum. Líklega hefur ástæðan verið sú eins og einn gamall vinur sagði, að það hefði verið svo erfitt að missa hana að heiman, því það skarð hafi verið vandfyllt. Vilji hennar og vinnu- semi komu snemma að góðum not- um. Vorið 1925 fór hún þó í þann skóla, sem varð henni notadrjúgur á lífsleiðinni. Það var nokkurra vikna garðyrkjunámskeið hjá Ragnari Ásgeirssyni í Gróðrastöð- inni í Reykjavík. Ef nútímafólk notaðist jafnvel af allri sinni skólagöngu eins og henni af þess- ari, þá mætti það vel við una. Oft varð það að gamanmáli innan fjöl- skyldunnar, þegar hún til elliára vitnaði til þessa námskeiðs. En gamanlaust varð þetta henni góð- ur skóli, því alla tíð stóð hugur hennar til garðyrkjustarfa og á fyrri árum sínum ræktaði hún fal- legan blómagarð í Skáleyjum við erfið skilyrði, auk þess sem hún ræktaði grænmeti og garðávexti til heimilisins allan sinn búskap. Hinn 23. júní 1928 á Jónsmessu bundust heitum um ævarandi trúnað Sigurborg Ólafsdóttir frá Hvallátrum og Gísli E. Jóhannes- son frá Skáleyjum. Þetta varð mikill heilladagur fyrir þau og aðra. Mæður ungu hjónanna voru nánar vinkonur og góð vinátta ríkti milli heimila þeirra. Gísli hafði þá verið stoð og stytta móð- ur sinnar Maríu Gísladóttur, sem þá var ekkja, en hafði búsforráð á hálfum Skáleyjum. Ungu hjónin stofnuðu heimili og hófu búskap í Skáleyjum og áttu eftir að una þar lengstan hluta ævi sinnar. Þar bjuggu þau með sæmd snyrtilegu búi, komu upp sjö börnum og margir áttu þar sumardvöl í lengri eða skemmri tíma. Oft var mannmargt á heim- ili þeirra og húsmóðurstarfið ær- ið. Sigurborg, eða Borga í Skáleyj- um eins og hún var kölluð af kunnugum, var húsmóðir af bestu gerð, með afbrigðum umhyggju- söm, stjórnsöm, en þurfti lítið fyrir því að hafa, því allir virtu hana og kom það eiginlega af sjálfu sér að vinnugleði ríkti í kringum hana. Húsmóðurstarfið var hennar mikla lífsfylling og að sinna því sem best var henni hug- leikið. Að vera með og njóta sam- vistar með vinum og vandamönn- um veitti henni gleði. Á mann- mörgu heimili og það í eyjum átti húsmóðirin ekki auðveldlega heimangengt, störfin heima og að hafa alla hluti í lagi sátu í fyrir- rúmi. Þetta sá ég og reyndi við náin kynni á Skáleyjaheimilinu. t Þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúö og hlýhug vegna fráfalls fööur okkar, tengdafööur, afa, bróöur og mágs, ÞÓRARINS ÞORSTEINSSONAR, Litlabæ, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Vestmanna- eyja, Borgarspítalans, deild E4, fyrir ómetanlega umönn, félagi kaupsýslumanna Vestmannaeyjum, Kiwanisklúbbinum Helgafelli, Vestmannaeyjum, svo og þeim er sýndu hinum látna hlýhug í gegnum árin. Guö blessi ykkur öll. Steina Kristín Þórarinsdóttir, Snjólfur Gíslason og dætur, Ágústa Þórarinsdóttir, Jóhann Jónsson og dóttir, Haraldur Þór Þórarinsson, Unnur Baldursdóttir og dætur, Guöbjörg Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Laufey Eiríksdóttir Slík störf verða ekki metin til fjár, þau eru að verða gulls ígildi. Tengdamóðir Sigurborgar María Gísladóttir dvaldi til ævi- loka á heimili þeirra hjóna og síð- ustu sjö árin lá hún rúmföst og andaðist 91 árs. Sigurborg annað- ist hana allan þann tíma af þeirri einstöku umhyggjusemi, sem henni var lagin og sá til þess að hún þurfti aldrei að fara á sjúkra- hús. Fleiri nutu slíkrar aðhlynn- ingar hennar. Hún hjúkraði eig- inmanni sínum síðustu æviár hans. Hjá henni naut hann þeirrar bestu aðhlynningar, sem hann gat kosið sér, hjá Borgu sinni. Ég held að Sigurborg hafi haft þá bestu hæfileika, sem þarf til að hjúkra og veita þeim hjálp, sem bágt áttu. Hún veitti mörgum vel af þeim nægtabrunni sínum. Hafi hún heiður og þökk fyrir það. Börn fengu hjá henni góða og vandaða tilsögn, sem entist þeim vel, enda var hún vel verki farin, hafði skýra hugsun og átti gott með að gera hluti ljósa svo engin vafi var á. Hún var kennari góður. Þess nutu auk barnanna fjölda mörg ungmenni, sem dvöldu oft í Skáleyjum einkum að sumarlagi. Börn okkar hjónanna áttu þess oft kost að dvelja í Skáleyjum á sumr- in hjá afa og ömmu og fannst mér þau alltaf koma þaðan betra fólk. Þau urðu fyrir svo hollum og góð- um áhrifum í umgengni við fólkið og eyjuna góðu. Eftir að heilsu Gísla fór að hraka fluttu þau hjón til Stykk- ishólms og dvöldu þar síðustu ár- in. Þar höfðu þau búið sér notalegt heimili. Gestkvæmt var þar, því margir þekktu þau og margir áttu leið út í eyjar og úr eyjum. Heimili þeirra stóð opið öllum, enda bæði gestrisin og þjóðleg. Sigurborg og Gísli frá Skáleyj- um hafa kvatt. Sutt var þar á milli hjóna. Hvers vegna? Það er ekki á valdi neins að svara því. Sambúð þeirra var innileg, jafnræði með þeim og þau báru virðingu hvort fyrir öðru — sambúð, sem aldrei bar skugga á. f tilhugalífinu skrifaði Gísli í minningabók Sigurborgar vísu úr „Ferðalokum" eftir Jónas Hall- grímsson, sem hann kvað vera feg- urstu ástarvísu, sem ort hefði ver- ið. Mér finnst hún táknræn fyrir sambúð þeirra og kemur í hugann þegar spurt er, hvers vegna varð svona stutt á milli hjóna. Var sambúð þeirra órjúfanleg. Það er eins og kallað hafi verið: Háa skiiur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast, fær aldregi eilífð aö skilið. Hvað er á bak við móðuna miklu. Ég trúi því að Sigurborg hafi gengið á vit síns lífsförunauts og að þeim muni líða vel. Þau skildu vel við, sátt við alla og þakklát fyrir tilveru í þessum heimi. Það er gott að geta kvatt á þann hátt. Farsælu ævistarfi er lokið. Útför Sigurborgar verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag. Blessuð sé minning mætrar konu, móður, ömmu og langömmu. Að leiðarlokum ber ég fram þakkir fyrir alla vinsemd og vel- gjörðir. Það veit ég ejnnig að margir fleiri gera. Leifur Kr. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.