Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.03.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984 45 ans í sjálfu sér, en ég er hins vegar ósáttur viö það að hann gefur ekki upp forsendur pessa spádóms. Þetta er eins og einhver gerði veöurspá án þess að gera grein fyrir þeim forsendum sem hann byggði spá sína á. Auk þess er alltaf hæpiö aö setja fram spár um einstaka atburöi og ættu menn frekar aö halda sig viö aö spá í aöstæður. Þaö er ágætt aö líkja stjörnuspekinni viö veöurfræöina. Veöurfræöingur getur spáö því meö talsveröu öryggi aö þaö veröi ísing og hálka á morgun en ef hann bætti þvi viö að þú fótbrotnaöir væri þaö hans eigin ágiskun sem tengdist veöurfræöinni ekki minnstu vitund. í þá gryfju hafa stjörnu- spekingar oft dottið og stjörnuspekin falliö í áliti sem fræöigrein fyrir bragðið. Hvaö varö til þess aö þú fékkst áhuga á stjörnuspeki? Það er margt sem spilar þar inní. For- vitni mín vaknaöi fyrst þegar ég las grein um stjörnuspeki í Hjemmet. Mér fannst hún heillandi og forvitnileg. Síöan leiddi eitt af ööru. Ég hef alltaf haft áhuga á sögu, vís- indum almennt, sálarfræöi, trúmálum og fólki. Stjörnuspekin er þaö víötæk aö hún spannar þetta allt. Fyrir utan aö geta veriö mjög skemmtilega fræöileg er hún félags- leg, mjög gefandi í almennri sjálfsþekkingu og þekkingu á fólki, því sem er aö Paki gerða okkar. Hún getur leitt til aukins skiln- ings manna á meðal á heimilum, vinnu- stöðum og víöar. Hún er mikill skilnings- auki og góöur sálarspegill. Getur þú sýnt okkur dæmi um túlkun á stjörnukorti? Já, ég er reiöubúinn aö koma meö dæmi sem ættu aö gefa hugmynd. Áöur vil ég kynna grundvallarhugtökin sem eru notuö við túlkun. Þau eru stjörnumerkin tólf, sem ég mun ekki telja upp hér þar sem flestir ættu að þekkja nöfn þeirra. Pláneturnar tíu eru notaðar og síðan er himninum skipt í svæði sem kölluð eru hús. Ég vil taka það fram að þeir sem fást við stjörnuspeki taka alls ekki allt sem hefðin hefur skilað okkur sem nýju neti. Margt er að breytast í faginu og töluverð gagnrýni ríkir á einstaka þætti. Hins vegar þykir mér sjálfsagt að kanna gildi allra þátta áður en ég legg nokkurn dóm þar á. Stjörnumerkjunum er skipt í fjóra flokka, eld, jörð, loft og vatn. Eldur samsvarar lífsorku, jörð efnisorku, loft félags- og hugmyndaorku og vatn sálar- og tilfinn- ingaorku. Merkin eru síðan ýmist frum- kvæð, stöðug og breytileg, úthverf og inn- hverf. Pláneturnar samsvara orkustöðvum og afstaða þeirra innbyrðis og staða í merkj- unum gefa til kynna mismunandi persónu- leika + einkenni hvers og eins. Sem dæmi eru hér nokkrir punktar úr kortum Bryndísar Schram og Þorsteins Pálssonar. Það eð enginn fæðingartími er fyrir hendi vantar mikið inná kortin, s.s. húsin og ása, og er teikning kortanna því mun einfaldari en á korti Ómars. Bryndís Schram fædd 7. september 1938 Hún er Meyja með Sól í samstöðu við Neptúnus og því dugleg, hagsýn og list- ræn. Tungl í Vatnsbera táknar að hún er félags- lynd og sjálfstæð. Merk- úríus-Mars í Ljóni gerir að hún er mjög ákveðin og skapandi í hugsun og orkubeitingu. Venus í Sporðdreka táknar að hún er skapheit og djúp tilfinningalega. Þorsteinn Pálsson fæddur 29. október 1947 Hann er Sporð- dreki og auk þess sterkt Ljón. Hann er því ákveðinn, fastur fyrir, stoltur og ein- beittur. Sterkur Satúrn- us í Ljóni í afstöðu við Merkúríus, Venus og Mars táknar að hann keppir stöðugt að auk- inni ögun orkubeitingar, tilfinninga, hugsunar og máltjáningar. Sérverzlun Góö sérverzlun í verzlunarmiöstöö til sölu — hentugt fjölskyldufyrirtæki — góö kjör. Söluturn Sölutum á góöum staö til sölu — mjög góöur rekstur. Fyirtaskjaþjónustan Austurstræti 17, 3. hæd. Sími 26278. leikaeinkenni hvers og eins u Ómar Ragnarsson Fæddur 16. september 1940, kl. 12.30 Hér fyrir ofan má sjá stjörnukort ómars Ragnarssonar. Ytri hringurinn táknar stjörnu- merkin. Táknin inní kortinu eru plán- eturnar. Línurnar sem eru dregnar milli plánetanna samsvara afstöðu, því hvaða orkustöðvar tengjast saman. Ómar er með Sól í Meyjarmerkinu og er því samviskusamur, nákvæmur, mjög iðinn og duglegur. Hann er eirð- arlaus og verður að hafa mörg járn í eldinum. Ómar er jarðbundinn og hag- sýnn, hefur gott auga fyrir smáatriðum og er húmor hans því oft beittur og háðskur. Það síðasttalda tengist einnig inná Sporðdreka rísandi. Sem Meyja og Fiskur er Ómar hóg- vær og lítillátur. Hann leggur mikið uppúr því að leysa verk sín vel af hendi án þess að stæra sig af því. Hann er einnig hjálpsamur, þáttur sem er ríkur í öllum Meyjum. Athafnaorkupláneturnar tvær, lífs- orka Sólarinnar og orkubeiting Mars, eru í samstöðu í Meyjarmerkinu. Það táknar að vilji Ómars og orkubeiting starfa sem eitt og á hann því mjög auðvelt með að þeita sér. Um litla togstreitu er að ræða í athafnaorkunni. Ómar getur því nýtt orku sína vel og afkastað miklu, er hörkuduglegur. Sól-Mars saman táknar einnig að Ómar er mjög kappsfullur og baráttu- glaður. Mars í hágöngu, á Miðhimni, er mjög algengur í kortum íþróttamanna. Kappaksturs- og íþróttaáhugi er birt- ing á þessari Sól-Mars orku og afstöðu þeirra við Júpíter og Úranus. Flug- áhuginn er einnig tengdur þessum þáttum. Sjálf Ómars (Sólin) er ekki einungis tengt Mars, heldur er það í samstöðu við Neptúnus sem samsvarar ímyndun- arafli, draumum og listrænum hæfi- leikum. Það gerir að sjálf Ómars er mjög víðfeðmt og hann víðsýnn og for- dómalítill. Hann á það til að vera smá- munasamur og nöldurgjarn en fram- angreind afstaða mýkir hann upp og gerir að hann fær útrás í listasprelli. Hæfileiki ómars til að bregða sér í ólík gervi hangir á sömu spýtu og ímyndun- araflið. Skuggahliðin getur verð sú að hann getur átt erfitt með að svara þeirri spurningu hver sé hinn raun- verulegi Ómar Ragnarsson. Þetta hjálpar honum hins vegar mik- ið í fréttamennskunni. Hann getur nálgast alla og rætt við hvern sem er án þess að blanda sjálfum sér inní þá umræðu. Tunglið er í Fiskamerkinu hjá Ómari og táknar að hann var mjög draum- lyndur sem barn, lifði mikið innávið í heimi ímyndunarafls og byggði mikla loftkastala og ævintýraheima. Hann átti það til að flýja inní draumaheim ef eitthvað var honum ekki að skapi. Þessi orka býr í honum enn þann dag i dag en honum hefur tekist að virkja hana á hagnýtan hátt í listir. Tunglið samsvarar persónulegum til- finningum og tilfinningalegum þörfum. Staða þess við IC, Undirhimin, í kort- inu táknar að ómar er mikill heimilis- maður og hefur sterka þörf fyrir gott fjölskyldulíf. Afstaðan milli Tunglsins og orkustöðvanna sem eru við MC tákn- ar að um togstreitu og stöðuga mála- miðlun er að ræða hjá Omari milli fjöl- skyldu og heimilis annars vegar og starfs útávið hins vegar. Þessi Tunglstaða táknar að Ómar er að mörgu leyti mjög viðkvæmur og mislyndur persónuleiki. Hann er ákaf- lega næmur fyrir andrúmslofti og tek- ur auðveldlega inní sig smávægilegustu veðrabrigði í tilfinningum fólks. Hann getur verið mjög nærgætinn og undir- strikar þetta samstöðu Sólar og Nept- únusar hvað varðar víðsýni og víð- feðmi. Þessi viðkvæmni er einungis einn þáttur í tilfinningalífi ómars. Venus í Ljóni táknar að hann er stoltur og tölu- vert fyrir að láta bera á sér og vill að aðrir þeri virðingu fyrir sér. Hann hef- ur töluverða þörf fyrir að vera miðja í umhverfi sínu. Venus í Ljóni táknar að Ómar er ihaldssamur og traustur í vináttu og ást. Venus hefur ákveðna sérstöðu í kort- inu þar sem hún myndar miðju og tengir allar aðrar orkustöðvar saman. Það gerir hana sterka og Ljónsþáttinn mjög ríkan í Ómari. Það að skapa og vera miðja, að standa á sviði: Sól í Meyju og Merkúríus í Vog gerir að Ómar er diplómatískur í hugsun og máltjáningu en getur átt það til að ganga full langt í gagnrýni og háði. Það sem vekur athygli þegar kortið er skoðað í heild er það hversu miklar samtengingar eru milli allra orku- stöðvanna. Það gerir að fáir lausir end- ar eru í persónuleika Ómars. Hann er því sjálfum sér samkvæmur og orka hans nýtist honum vel. Það sem einnig vekur athygli er það að Ómar er í grundvallaratriðum frek- ar lokaður og innhverfur jærsónuleiki þrátt fyrir það hversu áberandi hann er í íslensku þjóðlífi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.