Morgunblaðið - 11.05.1984, Page 19
MORCONBLA'ÐIÐ, PÖSTUDAGUR ll.'MAÍ 1984 ’
Þessar mvndir voru teknar nú fyrir skömmu af æfingu á leikritunum sem
verda sýnd á laugardaginn. Ljósmynd/SiRurbjðrn.
Neskaupstaður:
Skugga-Sveinn og
Dýrin í Hálsaskógi
Næstkomandi laugardag mun
Lions-klúbbur Norðfjarðar
halda barna- og fjölskyldu-
skemmtun í Egilsbúð kl. 14 og
20.30. Sýndir verða þættir úr
Skugga-Sveini og Dýrunum í
Hálsaskógi undir leikstjórn
Magnúsar Guðmundssonar.
Er þetta ein af fjáröflunarleið-
um klúbbsins og vonast félagar til
að fjölmennt verði á sýningarnar.
Æft hefur verið mikið að undan-
förnu og eru meðf. myndir teknar
á æfingu. Formaður Lions-klúbbs
Norðfjarðar er Viggó Sigfinnsson.
Um kvöldið munu Lions-menn
gangast fyrir almennum dansleik
fram á nótt.
Sigurbjörg.
Humarveiðar hefjast 18. maí:
Aflamark á báta
í fyrsta sinn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
lokið við úthlutun humarleyfa með
aflamarki fyrir einstaka báta, og
munu eigendur þeirra báta sem veitt
hefur verið leyfið fá þau á næstu
dögum. Alls var sótt um leyfi til
humarveiða fyrir 109 báta en 102
hafa heimild til veiða í samræmi við
þær reglur, sem settar hafa verið.
Uthlutað er 2.600 tonnum af humri í
ár, en gert er ráð fyrir að nokkur
skip fari ekki á humarveiðar og er
vonast eftir að veiðin verði ekki
meiri en 2.500 tonn. Ef skip afsala
sér rétti til humarveiða og stunda
aðrar veiðar verður tekið tillit til
þess.
Veiðarnar hefjast 18. maí nk. og
þeim lýkur 15. ágúst.
Við ákvörðun humarkvóta fyrir
einstaka báta var farið eftir
humarveiðum þeirra á árunum
1981, 1982 og 1983. Reglurnar, sem
farið var eftir við skiptingu afl-
ans, eru þær að þeir bátar sem
voru öll árin á humarveiðum
fengu viðmiðun af meðaltali
tveggja aflahæstu áranna. Þeir
bátar, sem vQru tvö ár af þessum
þremum á humarveiðum, fengu
viðmiðun af því aflahærra og þeir
sem voru aðeins eitt ár á humar-
veiðum fengu viðmiðun sína af
því. Þar sem þessi þrjú áður-
nefndu ár voru misgóð aflaár er
vægi þeirra hvers á móti öðru
jafnað þar sem viðmiðun við út-
reikning á kvóta bátanna er ekki
af sama árinu hjá þeim öllum.
Færslur humarkvóta milli báta
verða ekki heimilar nema í sér-
stökum undantekningartilvikum
og að fengnu samþykki ráðuneyt-
isins.
(FrétUtilkynning)
Nýja útyarpslagafrumvarpið:
Afgreiðsla fyrir
þingslit óviss
Ólafur Jóakims-
son sextugur
Ólafur Jóakimsson, skipstjóri á
Ólafsfirói, er sextugur í dag, 11. maí,
en hann mun vera einn elzti starfandi
togaraskipstjórinn.
Ólafur fæddist í Siglufirði 11. maí
1924 og hóf sjómennsku 1942 og var
þá háseti, bæði á bátum og togurum.
Hann lauk prófi frá Stýrimanna-
skólanum f Reykjavík 1951 og byrj-
aði þá sem stýrimaður á Einari
Þveræingi. Frá 1955 til 1959 var
hann skipstjóri á því skipi, sem var í
eigu Magnúsar Gamalíelssonar, og
síðan hefur hann verið með þrjú skip
í eigu sömu útgerðar. Nú er hann
skipstjóri á skuttogaranum Sigur-
björgu ÓFl og er á sjó um þessar
mundir.
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráö-
herra, sagði í sameinuðu þingi í gær að
vegna breytinga á gengi verði tekjur
okkar vegna raforkuverðshækkunar til
álversins hærri en reiknað hafi veriö
með, þ.e. a.m.k. 136 m.kr. á ári í stað
117 m.kr. Þetta kom fram í svari ráð-
herra við fyrirspurn Hjörleifs Gutt-
ormssonar (Abl.), utan dagskrár, um
stöðu samningamála við Alusuisse
(ISAL), bæði um raforkuverð og gömul
deilumál, svo og um störf dómnefnda
um endurákvörðun framleiðslugjalds á
fyrirtækið og fleiri samskiptamál.
Iðnaðarráðherra sagði m.a. að
störf dómnefndanna hefðu reynzt
Leiklistar-
verðlaun til
Akureyrar
Akureyri, 8. maf.
AÐ LOKINNI sýningu hjá Leikfé-
lagi Akureyrar nú á föstudagskvöld
mun fara fram á fjölum leikhússins
veiting úr Minningarsjóði frú Stef-
áníu Guðmundsdóttur, og er þetta í
fyrsta sinn sem leikari frá Leikfélagi
Akureyrar hlýtur slfka viðurkenn-
ingu. Varaformaður sjóðsstjórnar-
innar, Þorsteinn Gunnarsson, mun
afhenda verðlaunin.
G.Berg.
Lýst eftir vitni
Aðfaranótt miðvikudagsins 9. mai
voru skemmdir unnar á vörubifreið þar
sem henni var lagt á Hofstaðabraut í
Garðabæ. Stuðari, húdd bifreiðarinnar
og toppur voru rispuð og dælduð og
virðist sem einhver hafi gengið upp á
bifreiðina.
Lögreglan í Hafnarfirði biður þá,
sem kunna að hafa orðið vitni að
þessu, vinsamlegast að gefa sig
fram.
tímafrekari en menn hugðu fyrir, en
þær myndu skila áliti síðari hluta
sumars. Hann sagði að ekki yrði fall-
ið frá kröfu um að endurákvarðað
framleiðslugj ald yrði staðfest.
Hækkun orkuverðs í tíu mill væri
hinsvegar háð hækkun markaðs-
verðs á áli, en það hefði lækkað und-
anfarið.
Raðherra sagði að næsti samn-
ingafundur við Alusuisse um orku-
verð yrði haldinn eftir u.þ.b. mánuð.
Hann sagði ennfremur að í raun
hefði þegar náðst stórfelldur árang-
ur. f fyrsta lagi hefði tekizt að brjót-
„ÞAÐ ER oft snemmt að segja ákveð-
ið til um það nú, hvort útvarpslaga-
frumvarpið verður afgreitt á þessu
þingi,“ sagði Halldór Blöndal, for-
maður menntamálanefndar Alþingis, í
samtali við blm. Mbl. Menntamála-
nefnd hefur til umsagnar stjórnar-
frumvarp um breytingar á útvarpslög-
um, sem m.a. fela í sér afnám einok-
unar Ríkisútvarpsins á sjónvarps- og
útvarpssendingum að því marki að
einkaaðilum sé gert kleift að stunda
svæðisbundinn útvarps- eða sjón-
Neytendasamtökin hafa ákveðið aö
efna til undirskriftasöfnunar vegna
óánægju með ástand í kartöflu- og
grænmetismálum. Fer undirskrifta-
söfnunin a.m.k. fram á höfuðborgar-
svæðinu, en hugsanlega einnig úti á
landi.
Listar munu liggja frammi í versl-
unum í dag og á morgun, þar sem
fólki gefst kostur á að setja nafn sitt
undir áskorun, sem hljóðar svo:
„Undirrituð skora á stjórnvöld að
gefa innflutning á kartöflum og nýju
grænmeti frjálsan á þeim tíma, sem
innlend gæðaframleiðsla annar ekki
eftirspurn."
Undirskriftasöfnunin nýtur stuðn-
ast úr þeirri samskiptasjálfheldu,
sem fyrrverandi orkuráðherra hefði
tekizt að koma málum í. Samizt
hefði um 50% hækkun orkuverðs og
samningar um frekari hækkun væru
framundan. Dómnefndir hefðu verið
settar í gömul deilumál, sem flýttu
málalyktum meira en málsókn fyrir
fjölþjóðlegum dómstóli hefði gert, en
niðurstöður þeirra hefðu þó dóms-
ígildi. Tvær af þremur dómnefndum
lykju störfum síðsumars, sú fyrri
væntanlega í júní-júlí, hin síðari í
ágúst-september. Þriðja dómnefnd-
in, sem tæki til starfa er niðurstöður
hinna tveggja liggja fyrir, gæti lokið
störfum á fáum vikum.
varpsrekstur.
Halldór sagði útvarpslagafrum-
varpið mjög nýstárlegt og umsagnir
fjölmargra aðila, hagsmunaaðila og
sérfróðra manna, um það hefðu
borist nefndinni. En eins og staðan
væri í dag væri afgreiðsla þess fyrir
þingslit óráðin, hún kynni að koma
til og allt eins gæti henni verið
frestað til næsta þings. Hann kvað
málin kunna að skýrast á fundi
menntamálanefndarinnar nk. laug-
ardag.
ings Félags matvörukaupmanna,
Húsmæðrafélags Reykjavíkur,
Kaupmannasamtaka íslands, Mann-
eldisfélags Islands og Verslunaráðs
íslands.
Leiðrétting
MISTÖK urðu við frásögn af sam-
þykkt borgarstjórnar um laun í
Vinnuskóla Reykjavíkurborgar í
sumar. Þar voru birt laun, sem
voru tveimur krónum of há á
klukkustund. Hið rétta er að 14
ára unglingar fá 35,71 krónu á
tímann og 15 ára 40,18 krónur á
klukkustund. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
þar sem skýrt var frá formanns-
skiptum í Félagi íslenskra síma-
manna, var félagið ranglega kall-
að Félag íslenskra símvirkja. Fé-
lag með slíku nafni er ekki til.
Hins vegar er til Símvirkjafélag
íslands, en það kom þessari frétt
ekkert við. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum. Nafn nýja formannsins í
Félagi íslenskra símamanna er
Ragnhildur Guðmundsóttir.
Dómnefndir í deilumálum við ISAL:
Ljúka störfum síðsumars
Efnt til undir-
skriftasöfnunar
L9
ÍW
m
MfBK3
EREENDUM
[ÉU
AMERIKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Perth 29. maí
Bakkafoss 8. júni
City of Perth 19. júní
Bakkafoss 29. júní
NEWYORK
City of Perth 28. mai
Bakkafoss 7. júní
City of Perth 18. júni
Bakkafoss 28. júní
HALIFAX
Bakkafoss 11. júní
Bakkafoss 2. júií
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM ^
Álafoss 13. mai
Eyrarfoss 20. maí
Alafoss 27. maí
Eyrarfoss 3. júní
FELIXSTOWE
Álafoss 14. maí
Eyrarfoss 21. maí
Álafoss 28. maí
Eyrarfoss 4. júni
ANTWERPEN
Álafoss 15. maí
Eyrarfoss 22. mai
Álafoss 29. mai
Eyrarfoss 5. júni
ROTTERDAM
Álafoss 16. maí
Eyrarfoss 23r«iaí
Álafoss 30. mai
Eyrarfoss 6. júní
HAMBORG
Álafoss 17. maí
Eyrarfoss 24. maí
Alafoss 31. maí
Eyrarfoss 7. júní
WESTON POINT
Helgey 15. maí
Helgey 29. mai
LISSABON
Vessel 21. maí
LEIXOES
Vessel 22. mai
BILBAO
Vessel 24. maí
NORDURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 11. maí
Mánafoss 18. maí
Dettifoss 25. maí
Mánafoss 1. júní
KRISTIANSAND
Dettifoss 14. maí
Mánafoss 21. mai
Detfifoss 28. maí
Mánafoss 4. júni
MOSS
Dettifoss 11. maí
Mánafoss 22. maí
Dettifoss 25. maí
Mánafoss 5. júní
HORSENS
Dettifoss 16. mai
Dettifoss 30. mai
GAUTABORG
Dettifoss 16. mai
Mánafoss 23. mai
Deftifoss 30. maí
Mánafoss 6. júní
KAUPMANNAHOFN
Dettifoss 17. maí
Mánafoss 24. maí
Dettifoss 31. maí
Mánafoss 7. júní
HELSINGJABORG
Dettifoss 18. mai
Mánafoss 25. maí
Dettifoss 1. júní
Mánafoss 8. júní
HELSINKI
Elbeström 30. maí
GDYNIA
Elbeström 4. júní
ÞÓRSHÖFN
Mánafoss 19 maí
Mánafoss 16. júni
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram og til baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP