Morgunblaðið - 18.05.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MAl 1984
7
FLEX-O-LET
Tréklossar
Vinsælu tréklossarnir meö beygjanlegu sól-
unum komnir aftur. Margar nýjar geröir.
GEíSIB
nýitónlistarskcjinn ármúla44 Sími-.392K)
Vortónleikar —
Inntökupróf
Vortónleikar nemenda veröa sem hér segir.
Söngtónleikar, sunnudaginn 20. maí kl. 17.
Nemendur úr framhaldsstigum.
Einleikstónleikar, miövikudaginn 23. maí kl. 18,
aöallega nemendur úr fram-
haldsstigum.
Hljómsveitar- og
einleikstónleikar, fimmtudaginn 24. maí kl. 18.
Allir tónleikarnir fara fram í sal skólans.
Inntökupróf í
söngdeild, veröa þriöjudaginn 22. maí kl. 17.
Upplýsingar í skólanum frá kl. 5—7.
Skólanum veröur slitiö aö loknum tónleikunum 24. maí.
Skólastjóri.
Réttur neytenda til ætra kartaflna
Hér aö ofan má sjá nokkuð á annan tug manna funda um, hvort
heimilin í iandinu eigi aö fá ætar kartöflur eöa ekki. Svo einfalt og
sjálfsagt sem það mál virðist, frá sjónarhóli almennings, varö þaö
þó ekki leyst á tólf klukkutíma maraþonfundi Framleiösluráös land-
búnaðarins. „Samkvæmt upplýsingum Mbl.,“ segir í frétt í gær,
„voru mjög skiptar skoðanir um máliö í ráöinu en að lokum var
samþykkt einróma ályktun þar sem ekki er tekin bein afstaða
heldur sett fram greinargerö um ýmis atriöi varöandi málið.“!!!
Út og inn
umSÍS-
gluggann
Xamband islenzkra sam-
vinnufélaga hefur umboð
fyrir og fékk söluþóknun
erlendis frá vegna inn-
fluttra kartaflna á vegum
einokunaraöilans, Græn-
metisverzlunarinnar.
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga haföi milli-
göngu um útflutning
kindakjöts til Finnlands,
að því er virðist í tengslum
við kartöfluinnflutninginn.
Það tekur og söluþóknun
fyrir kjötútflutninginn.
Hún er ekki reiknuð af
raunverði á erlendum
markaði (það sem fyrir vör-
una fæst), heldur jafnframt
af útflutningsbótum, sem
sóttar eru vasa skattgreið-
enda. Þessir sömu skatt-
greiðendur hafa síðan ekki
í annað hús að venda um
kartöflukaup en í „hring-
rots“-fyrirtækið.
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga fleytir rjóm-
ann ofan af herlegheitun-
um. Heimilin í landinu
borga útflutningsbætur
kjötsins í sköttum. Og þeg-
ar almenningur neitaði að
kaupa áfram skemmdar
kartöflur (og snéri sér að
hrísgrjónum f staðinn)
efndi einokunaraðilinn til
jarðarfarar á hringrots- og
jarðeplamergö.
Grettíssund
Framleiðslu-
ráðsins
Sem betur fer ríkir sam-
keppni á flestum sviðum
vcrzlunarþjónustu við fólk-
ið í landinu, a.m.k. í þétt-
býli. Vöruúrval og verð-
samkcppni eru ávextir
samkeppninnar. Forneskja
opinbcrar einokunar setur
þó enn svip sinn, illu heilli,
á stöku þætti verzlunar-
þjónustunnar. Því miður
verður sú einokun ekki
jarðsett nú með þeim
skeramdu kartöflum, sem
vóru ávextir hennar og
vörumerki, og SÍS hirti
umboðsþóknun fyrir.
Svo langt komust mál þó
að Framleiðsluráð land-
búnaðarins, sem eftir
myndinni aö dæma er ekki
samansett út frá jafnrétti
kynjanna, settist á tólf
tíma rökstóla um, hvort
verzlunaraðilar, sem geta
boðið upp á heibrigðar
kartöflur og góða vöru, eigi
að fá að sitja við sama
söluborð og „hringrots-
verzlunin“. Málið snýst
einfaldlega um það, hvor
þeir, sem vilja og geta boð-
ið upp á innflutning fyrsta
flokks kartaflna, meðan
innlend framleiðsla getur
ekki mettað markaðinn,
eigi aö hafa verzlunarjafn-
rétti á við Græntmetis-
verzlunina.
En eitt er að funda um
alvörumál og annaö að
komast að niðurstöðu. Eftir
heils dægurs fund gafst
Framleiðsluráðið upp við
að komast að niðurstöðu
en samþykkti, „einróma"
að sjálfsögðu, að viðra
ýmsa þætti málsins í grein-
argerð til landbúnaðar-
ráðherra. Þessi fundur var
mikið Grettissund úr
Drangey hringrotsins yfir á
ströndu kjarkieysisins. En
hinn tvíeini umboðsglámur
kjöts og kartaflna tekur
sitt á þurru.
Beðið boð-
skaps erki-
biskups
Ýmsir verzlunaraðilar
hafa flutt kartöflur til
landsins í trausti yfirlýs-
inga tveggja flokksfor-
manna í herbúðum ríkis-
stjórnar, hverrar stjórnar-
sáttmáli horfir til frjálsræð-
isáttar. Þorri fólks bíður
þess að fá að kaupa
óskemmda vöru, eftir
langa bið.
Jón Helgason, landbún-
aðarráðherra, beið þess og
í gærmorgun að annar
framsóknarmaður, Ingi
Tryggvason, formaður
stjórnar Framleiðsluráðs,
kæmi á hans fund, en það
þótt viö hæfi áður en sá
fyrrnefndi kvæði upp
dómsorð um heilbrigöar
eða skemmdar kartöflur.
Þær fyrr töldu hafa það eitt
sér til óhelgunar að ekki er
pottþétt að umboöslaun
falli til SÍS.
Þegar þetta er ritað ligg-
ur ekki Ijóst fyrir, hver úr-
skurður landbúnaðarráð-
herra verðun hvort þyngra
vega hagsmunir SÍS eða al-
raannavilji.
Ef SÍS-hjartað í land-
búnaðarráðherra vegur
þyngra í afstöðu hans en
eindreginn almannavilji,
sem vonandi verður ekki,
er það alvarlegt mál. Það
væru „hrein svik við þær
yfirlýsingar sem búið er að
gefa“, eins og Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur
komizt að orði. Þá fengju
grjónagrautsorð annars
flokksformanns nýja
merkingu í hugum fólks.
Ökonomi
Ökonomi barnableiunum hefur nú
veriö gefiö nafniö:
KVIK
Sömu gæöi, lækkaö verö.
í LAGT VERÐ?
Já, sjáöu bara ..._310 L
RAFIÐJAN Vf
Ármúla 8, sími 19294