Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 46
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 22. MAl 1984
Stuttgart komið með aðra höndina á titilinn:
Glæsimark Asgeirs lagði
grunninn að sigri Stuttgart
Bremen, 19. maí. Frá Jóhanni Inga Gunnaraeyni, Iróttamanni Morgunblaðsina.
EFTIR LEIK STUTT6ART gegn Frankfurt um sídustu helgi þar sem Stuttgart tapaöi dýrmætu stigi voru
margir þeirrar skoöunar aö Hamburger SV myndi þola þaö mikla álag sem fylgir því aö leika um meistara-
titilinn. Aö minnsta kosti einn var annarrar skoöunar, Benthaus, þjálfari Stuttgart, hann sagði við mig rétt
fyrir leikinn gegn Werder Bremen: „Viö komum ekki til Bremen til þess aö leika varnarleik, þaö er
staðreynd Bremen hefur skoraö mark í öllum sínum heimaleikjum síöastliöin tvö ár og dagskipun mín er
sú aö viö veröum að skora. Að öðrum kosti eigum viö enga möguleika Þarna hafði Benthaus á réttu aö
standa og á upphafsmínútum í leík Bremen og Stuttgart í dag mátti sjá að hann haföi eflt sjálfstraust
leikmanna sinna. Það var engu líkara í upphafi leiksins en aö Stuttgart léki á heimavelli. Hver sóknarlotan
af annarri skall á Bremen og þaö er sjaldgœf sjón á heimavelli Bremen því að liöið hefur ekki tapað leik á
heimavellí sínum í tvö ár. Til marks um yfirburöi Stuttgart fyrstu 10 mínútur leiksins þá fékk Stuttgart fjórar
hornspyrnur en leikmenn Bremen komust varla fram fyrir miöju. Roleder markvöröur hafði það náðugt.
Enda kom þaö á daginn aö hinir mjög svo ákveönu leikmenn Stuttgart stóðu uppi sem sigurvegarar aö leik
loknum. Stuttgart sigraöi 2—1, í hörkugóöum leik. En þaö er í annað sinn á tveimur árum sem Bremen
tapar á heimavelli í deildinni.
Strax á þriðju mínútu leiksins
var Ásgeir næstum búinn að skora
úr hornspyrnu. Hann spyrnti meö
miklum snúning háum bolta sem
sveif inn að markinu og stefndi í
markið en einn varnarmanna
Bremen tókst aö spyrna frá á síð-
ustu stundu. Næstu mínútur leiks-
ins sótti Stuttgart stíft en vörn
Bremen var föst fyrir, og Burd-
enski markvörður Bremen varði
vel. Hinir 40 þúsund áhangendur
Bremen voru ekki ánægðir meö
þessa þróun mála og hófu aö
hvetja sína menn og árangurinn lét
ekki á sér standa. Bremen snéri
leiknum sér í hag. Á 11. mínútu á
landsliösmaöurinn Mayer skot af
30 metra færi. Boltinn stefndi efst í
markhorniö en á síðustu stundu
varöi Roleder á ævintýralegan
hátt. Tveimur mínútum síöar
komst landsliðsmaðurinn Rudi
Wöller inn fyrir vörn Stuttgart. og
Staðan
STADAN í „ Bundesligunni" er þessi
þegar ein umferö er eftir:
Stuttgart 33 19 10 4 79:32 48
Hamburger 33 20 6 7 74:36 46
Mönchengladb.33 20 6 7 78:48 46
Bayern 33 19 7 7 81:39 45
Bremen 33 18 7 8 77:45 43
1. FC. Köln 33 15 6 12 68:57 36
Leverkusen 33 13 8 12 50:48 34
Bieleteld 33 12 9 12 40:46 33
Braunschweig 33 13 6 14 53*7 32
Uerdingen 33 12 7 14 64:76 31
Kaiserslauiern 33 12 6 15 68:66 30
DUsseldorf 33 11 7 15 62.-69 29
Mannheim 33 9 11 13 39:57 29
Dortmund 33 10 8 15 52*5 28
VFL Bochum 33 9 8 16 52*9 26
Frankfurt 33 6 13 14 42*1 25
Offenbach 33 7 5 21 47:100 19
FC NUrnberg 33 6 2 25 38:83 14
lyfti knettinum yfir markvöröinn en
skot hans fór í þverslánna, Wöller
náði að skalla en Roleder sem
kominn var á marklínuna varði
ofsalega. Bremen hafði frumkvæö-
iö út allan fyrri hálfleik ef frá eru
skildar skyndisóknir Stuttgart,
sem voru þó alltaf hættulegar. Á
28. mínútu lagði Corneliusson
boltann vel fyrir Ásgeir sem var
kominn í gott færi inni í vítateign-
um en Burdenski varöi vel skot
Ásgeirs. Mikill hraði var í fyrri hálf-
leiknum og þega flautaö var til
leikhlés klöppuöu áhorfendur báö-
um liöum lof í lófa fyrir góða
knattspyrnu.
Yfirburðir Stuttgart í
síðari hálfleik
Ekki var eins mikill hraöi í byrjun
síðari hálfleiksins eins og í upphafi
leiksins. En greinilegt var að leik-
menn Stuttgart voru búnir aö jafna
sig á stórsókn Bremen í fyrri hálf-
leik, og tókst að ná svo góðum
tökum á leiknum aö þeir réöu lög-
um og lofum á vellinum allan síðari
hálfleikinn.
Þáttaskil urðu líka við þaö að
Bremen missti landsliösmanninn
Meyer út á 48. mínútu leiksins
vegna meiösla. Hann hafði leikiö
vel á miöjunni og Bremen mátti
ekki við því að hann færi útaf.
Sókn Stuttgart þyngdist sífellt en
skapaði sér ekki marktækifæri
sem eru umtalsverð. Þaö voru því
margir sem voru farnir aö búa sig
undir markalaust jafntefli.
Á 62. mínútu fær Ásgeir boltann
óvænt fyrir utan vítateig eftir varn-
armistök hjá Bremen. Hann var
ekkert að tvínóna viö hlutina lék
áfram meö boltann þrjá metra og
skaut síöan firnaföstu skot af 20
metra færi upp í bláhorn marksins
gjörsamlega óverjandi fyrir Burd-
enski markvörö Bremen. Sannkall-
aö glæsimark og víst er aö Zico
veröur aö gera sig ánægöan meö
aö vera kallaður „Brasiliu-Ásgeir“
ef svo heldur sem horfir. Á 65.
mínútu átti Corneliusson aö gera
út um leikinn. Hann komst einn
innfyrir vörn Bremen, skaut góöu
skoti aö markinu og boltinn stefndi
i bláhorniö en á síðustu stundu
snérist boltinn og fór á innanverða
markstöngina og á einhvern óskilj-
anlegan hátt út á völlinn aftur.
Þrátt fyrir aö Stuttgart heföi náö
forystu geröi liöiö þaö eina rétta,
þaö hélt áfram að sækja og berj-
ast af krafti. Fátt benti til aö Brem-
en rétti úr kútnum. En Rudi Wöller,
hinn stórhættulegi sóknarmaöur
Bremen var á ööru máli. Á 72. mín-
útu geröi hann sér lítið fyrir og lék
á fimm varnarmenn Stuttgart og
féll viö þegar hann fór framhjá
þeim síöasta rétt utan vítateigs.
Dómari leiksins dæmdi auka-
• Asgeir Sigurvinsson hefur skorað 12
mörk í deildinni í vetur. En fallegasta
mark hans var án efa markiö sem hann
skoraöi á móti Bremen um síöustu
helgi. Hvílíkt mark. Þrumuskot meö
vinstra fæti af 20 metra færi beint í
vinkilinn. Draumamark hvers einasta
knattspyrnumanns.
Úrslit leikja í
„Bundesligunni"
spyrnu á Stuttgart. Upp úr auka-
spyrnunni náði Bremen aö jafna
leikinn. Eftir góöa fyrirgjöf náöi
Möllmann aö skalla boltann t netiö.
Staöan því jöfn, 1 — 1, á 72. mínútu
og allt virtist geta gerst.
Þá sýndi Stuttgart hvaö í því bjó
og lét markiö ekkert á sig fá en
hélt frumkvæði í leiknum og þaö
var aöeins spurning hvenær
Stuttgart skoraöi sitt annaö mark.
Slíkur var sóknarþungi liðsins. Á
78. mínútu var Buchwald, einum
besta leikmanni Stuttgart, brugöiö
innan vítateigs en annars góöur
dómari þessa leiks var sá eini sem
áleit aö ekki væri um vítaspyrnu aö
ræöa.
Á 83. mínútu er dæmd auka-
Úrslit leikja um síöustu helgi uröu þessi. Hálfleikstölur innan
sviga.
Bayer Uerdingen — 1. FC Köln
Bayer Leverkusen— Bor. Mönchengladbach
Borussia Dortmund — Bayern MUnchen
Arminia Bielefeld — VFL Bochum
Hamburger SV — Eintracht Frankfurt
Fortuna DUsseldorf — SV W. Mannheim
Kickers Offenbach — Eintracht Braunschweig
Werder Bremen — VFB Stuttgart
1. FC Kaiserslautern — 1. FC NUrnberg
4—6(0—3)
1—2(0—1)
1—1(0—0)
2—1(0—0)
0—2(0—1)
1— 2(1—0)
1—2(0—1)
1—2(0—0)
4—2(2—1)
spyrna á Bremen rétt utan viö víta
teigshornið hægra megin. Ásgeii
og Bernd Förster stóöu báöir fyrir
framan boltann. Flestir i varnar-
vegg Bremen áttu von á skoti frá
Ásgeir en Bernd skaut lúmsku
skoti framhjá varnarveggnum.
Burdenski náöi aö verja stórkost-
lega fast skotiö en hélt ekki bolt-
anum. Og hinn sókndjarfi Ohlicher
fylgdi vel á eftir og skoraöi af
stuttu færi og tryggöi Stuttgart
sigurinn meö þessu marki og
hugsanlega titilinn i ár.
Bestu menn Stuttgart í leiknum
voru Buchwald, Roleder mark-
vöröur og síöast en ekki síst Ásg-
eir Sigurvinsson. í liöi Bremen var
Burdenski sterkur i markinu og
sóknarmaöurinn Rudi Wöller best-
ir. En Wöller er álitinn besti sókn-
armaöurinn í v-þýsku knattspyrn-
unni í dag.
— ÞR.
Hvað segja
þjálfararnir?
ÞEIR hafa veriö mikiö í sviðsljósinu aö
undanförnu, þessir fjórir þjélfarar. Liðin
þeirra hafa öll haft mikla möguleika á
meistaratitlinum í ár. Nú er nokkuö Ijóst
að lið Stuttgart hefur sigrað í deildinni.
En hvað segja þjálfararnir.
Happel, HSV: Við höfum heiöur að verja
og munum því sigra Stuttgart á laugar-
daginn. En hvort sigurinn veröur nógu
stór þaö skal ég ekki segja um.
Heynckes, Gladbach: Stuttgart er verö-
ugur meístari. Við vinnum ekki síðasta
leik okkar með 10 mörkum, svo meistara-
titillinn verður ekki okkar.
Lattek, Bayern: Viö vinnum bikarinn.
Við gátum gert betur í deíldarkeppninni.
Benthaus, Stuttgart: Það er stórkost-
legt ef viö vinnum deildarkeppnina eins
og allt útlit er fyrir. Hvílíkur heiður.
Happel, HSV
\ '% \
Heynckes, Gladbach
Udo Lattek, Bayern