Morgunblaðið - 24.05.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
Richard von Weizsácker
forseti Vestur-Þýskalands
Bonn, 23. maí. AP.
RICHARD von Weizsacker, fyrrum borgarstjóri í Vestur-Berlín, var í dag
kjörinn forseti Sambandslýðveldisins Þýskalands og var um kjörið mikil
eining. Hlaut hann 80%atkvæða á sérstöku þingi, sem saman kemur fimmta
hvert ár til að kjósa forseta. Aðeins græningjar buðu fram gegn Weizsacker.
Richard von Weizácker er
kristilegur demókrati og tekur við
af flokksbróður sínum, Karl
Carstens, sem ákvað fyrr á árinu
að leita ekki eftir kjöri í annað
sinn. Aðrir flokkar en græningja-
flokkurinn ákváðu strax að styðja
Weizsácker og stafar það af þeim
góða orðstír, sem Weizsácker gat
sér í Vestur-Berlín, því orði, sem
af honum fer fyrir íhygli og
sanngirni, og því mikla starfi, sem
hann hefur unnið fyrir mótmæl-
endakirkjuna og á þingi.
Eftir kjörið sendi Weizsácker
kveðjur „öllu fólki, sem býr á
okkar þýska landi, og öllum ná-
grönnum okkar", og kvaðst sem
forseti myndu reyna að bera klæði
á vopnin f átökum flokka og
manna. Hann sagðist þó ekki
myndu hika við að láta í ljós skoð-
un sína á málefnum, sem miklu
skiptu fyrir þjóðina.
Richard von Weizsácker er 64
ára gamall og gat sér sem fyrr
segir mjög gott orð sem borgar-
stjóri í Vestur-Berlín þar sem
hann var stundum kallaður „silf-
urhærði konungurinn". Vegna
samstöðunnar um hann var ekki
um eiginlega kosningabaráttu að
ræða, heldur var Weizsácker
lofaður og prísaður i blöðum og
öðrum fjölmiðlum svo að sumum
fannst minna meira á væntanlega
krýningu konungs en kjör forseta.
I vikuritinu Der Spiegel veltu
vöngum yfir vinsældum Weizsáck-
ers og komust að þeirri niður-
stöðu, að þær stöfuðu af skemmti-
legri blöndu af „prússneskum arfi,
mótmælendatrú og góðum gáf-
um“.
AP
Richard von Weizsacker þegar hann lýsti því yfír, að hann tæki við kjöri sem
forseti Vestur-Þýskalands.
Sovétmenn nota Afganistan
sem tilraunastöð fyrir ný vopn
Eldsprengjur og höggbylgja, sem drepur allt í hálfs km fjarlægð
London, 23. maí. AP.
SOVÉTMENN hafa nú um
nokkurt skeið beitt sérstökum
eldsprengjum gegn skæruliðum
í Afganistan og einnig öðrum
sprengjum, sem drepa allt kvikt
í nærri Vi km radíus frá sprengi-
staðnum. Sagði frá þessu í dag í
breska vikuritinu Jane’s De-
fense, sem er mjög áreiðanlegt
tímarit um hermál.
Jane’s Defense segir, að Sov-
étmenn hafi reynt þessi nýju vopn
í tæpt ár í Austur-Afganistan.
Önnur spengjan springur nokkuð
yfir jörðu og myndast þá mikið
efnaský, sem síðan er sprengt með
annarri sprengihleðslu og veldur
gífurlegri höggbylgju i loftinu,
sem drepur allt i nærri hálfs km
fjarlægð allt um kring. Breskir
hernaðarsérfræðingar, sem AP-
fréttastofan ræddi við, sögðu, að
þessi vopn, sem Sovétmenn nota
gegn léttvopnuðum skæruliðum,
gætu gert mikinn usla ef þeim
væri beitt gegn herjum Vestur-
landa, flugvöllum og jafnvel borg-
um.
í eldsprengjunni, sem einnig
springur í loftinu, er svart efni
líkt tjöru og dreifist það yfir stórt
svæði við sprenginguna og liggur
47 lítrar
á hundraðið!
Já hinn nýi framdriíni MAZDA 626 DIESEL eyðir aðeins 4.7 lítrum á
hundraðið, ef ekið er á jöfnum 60 - 90 km hraða.
Nýja dieselvélin er afar hljóðlát, þýðgeng og aflmikil, þannig að vart finnst
að bíllinn er með dieselvél, þegar setið er undir stýri.
Sökum þess hve MAZDA 626 DIESEL er sparneytinn, þá þarf aðeins að aka
13000 til 15000 kílómetra á ári til þess að hann borgi sig umfram bíl með
bensínvél. Eftir það sparast 160 til 190 krónur á hverja 100 ekna kílómetra.
MAZDA 626 DIESEL GLX með ríkulegum búnaði kostar: Kr. 428.400
Til atvinnubílstjóra: Kr. 329.900
gengisskr. 26.4 84
Sendingin er loksins komin!
Komið, skoðið og reynsluakið þessum frábæra bíl.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23. sími 812 99
síðan á jörðunni mánuðum saman.
Ef á „tjörusletturnar" er stigið
gýs upp eldur í þeim, sem ekki
verður slökktur fyrr en slettan er
brunnin upp.
„Flutningabílar, sem hafa ekið
yfir sletturnar, hafa brunnið ger-
samlega án þess að nokkuð hafi
verið hægt að gera,“ segir Yossef
Bodansky, ráðgjafi bandaríska
varnar- og utanríkisráðuneytisins.
„Tjörusletturnar" má viða sjá á
malarvegunum í Afganistan en í
iðnríkjunum, t.d. Vestur-Evrópu,
væru sletturnar ósýnilegar á
malbikuðum vegum og flugbraut-
um,“ segir í Jane’s Defense.
„Áhrifin, sem sletturnar gætu
haft á fullhlaðna flugvél þegar
hún lenti, eru því augljós."
Þessum sprengjum er vanalega
varpað úr Sukhoi SU-17-sprengju-
flugvélum sem vega um 500 kíló.
Fólk sem látið hefur lífið af völd-
um höggbylgjunnar hefur enga
„ytri áverka“ að sögn vitna, sem
segja einnig, að allur gróður drep-
ist í nokkurri fjarlægð frá
sprengistaðnum.
Bill Gunston, einn af helstu
eldflaugasérfræðingum Breta,
segir í viðtali við AP, að högg-
bylgjan geti drepið fólk jafnvel
þótt það íeiti skjóls í hellum eða
bak við háa kletta.
„Þúsund punda sprengja gæti
gereyðilagt háhýsi og blokkir og
ein eða tvær nokkuð stærri gætu
eyðilagt flugvallarmannvirki og
drepið hvert einasta mannsbarn
þar en hlíft sjálfum flugbrautun-
um,“ sagði Gunston.
ERLENT
Kvikmyndahátídin
í Cannes:
Wenders fékk
Gullpálmann
('annes, 23. maí, frá Maríu
Kllingsen, blaðamanni Mbl.
KVIKMYNDIN París-Texas,
sem Þjóðverjinn Wim Wend-
ers er höfundur að, fékk í
dag Gullpálmann, hin eftir-
sóttu verðlaun kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes í
Frakklandi.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara þau Nastassia Kinski, Bean
Stockwell og Harry Dean Stanton.
Myndin, sem tekin er í Texas í
Bandaríkjunum, fjallar um mann,
sem snýr til síns heima eftir að
hafa verið talinn af. Hann finnur
son sinn og saman hefja þeir leit
að móður drengsins.
Myndin hefur hlotið mjög góðar
undirtektir gagnrýnenda og
kvikmyndahúsagesta.
„Engin afskipti nema
ríkin fari fram á þau“
- sagði Reagan um ástandið á Persaflóa
Washington, 23. maí. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hélt í gær blaðamanna-
fund í Hvíta húsinu og var sjón-
varpaó og útvarpað frá honum
um öll Bandaríkin. Fjallaði
Reagan þar um heimsmálin,
þau, sem efst eru á baugi og
sagði m.a. að Bandaríkjastjórn
mundi ekki hafa afskipti af
gangi mála á Persaflóa nema
ríki við hann færu þess á leit.
í máli Reagans kom fram, að
hann telur litlar líkur á að banda-
rískir hermenn þurfi að berjast á
Persaflóa og sagði, að ríkin við
flóann vildu sjálf verja skip sín og
siglingaleiðir. Sagði hann, að skil-
yrði fyrir afskiptum Bandaríkja-
manna væri, að um þau væri beðið
en legði hins vegar áherslu á, að
vestræn ríki gætu ekki látið það
viðgangast að Hormuz-sundi væri
lokað.
Reagan endurtók fyrri áskoran-
ir sínar á Bandaríkjaþing og bað
það um að auka stuðninginn við
uppreisnarmenn í Nicaragua.
Hann gerði lítið úr þeim yfirlýs-
ingum Sovétmanna, að þeir hefðu
fjölgað kafbátum búnum kjarna-
vopnum úti fyrir Bandaríkja-
ströndum og tók fram, að Banda-
ríkjastjórn hefði ekki í hyggju
neinar sérstakar aðgerðir til að fá
Sovétmenn aftur til samninga um
afvopnum.
Reagan gerði einnig efnahags-
málin að umtalsefni og kvaðst
ekki trúa því, að aftur stefndi í
samdrátt. Sagði hann fjárlaga-
hallann að vísu alvarlegan en ekki
eins alvarlegan og menn vildu
vera láta.