Morgunblaðið - 24.05.1984, Page 48
OPID ALLA DAGA FRÁ
KL 11.45-2330
AuSTuftöfMtti 22
INNSTRÆTI, SÍM111630
OPIDOLL FIMUTUOAOa-. FÖ8TUDAGS-
LAUQARDAGS-. QG SUNNUDAQSKVÖLO
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Forsætisráðherra um áform Portúgala að tolla saltfisk frá Islandi:
Tollavernd Portúgala
brot á reghim EFTA
* ___________
Soares, forsætisráðherra Portúgala, telur saltfiskinnflutning frá Islandi ekki falla undir EFTA
Visby 23. maí. Frá blaðamanni Mbl., Magnúsi!
Á fundi forsætisráðherra EFTA-
landanna hér í Visby í morgun mót-
mælti Steingrímur Hermannsson
harólega þeim áformum Portúgala
aö leggja 12% toll á íslenskan salt-
fisk. Slíkar verndarráðstafanir eru
augljóslega alvarlegt brot á megin-
reglum EFTA, sagði Steingrímur
Hermannsson í ræðu sinni. Portú-
galir hyggjast hækka þennan toll á
fiski frá þeim löndum, sem þeir hafa
ekki fengið fiskveiðiréttindi. Tollur-
Sigurðssyni.
inn veröur hins vegar aðeins 3% á
fiski frá þeim löndum, sem látið
hafa þeim í té veiðiheimildir.
„Sú spurning hlýtur að vakna
hvort yfirlýsing þessa EFTA-
fundar um frjálsa verslun í reynd
sé ekki annað en orðin tóm,“ sagði
Steingrímur Hermannsson enn-
fremur, enn í ræðu hans kom fram
að útflutningur á blautum salt-
fiski til Portúgal hefði numið um
50% af öllum útflutningi íslend-
inga til aðildarlanda EFTA að
undanförnu. Öllum mætti því vera
ljóst hversu alvarleg mismunun
gagnvart Islendingum væri fólgin
í þessum tollaáformum Portúgala.
Það kemur ekki til mála að íslend-
ingar láti öðrum löndum í té fisk-
veiðiréttindi, slíkt myndi kippa
fótunum undan tilverugrundvelli
okkar, sagði Sveingrímur Her-
mannsson.
„Innflutningur okkar á saltfiski
Breskur leigubíll í Reykjavík
Langþráður draumur Brian
Holt, ræðismanns Breta á íslandi,
og konu hans um að aka á ósviknum
brezkum leigubíl um götur Kcykja-
víkur rættist í gærmorgun. Ulfar
Eysteinsson og Sigurður Sumarlið-
ason, eigendur veitingahússins
Potturinn og pannan, hafa keypt
ellefu ára gamlan brezkan leigubfl
af gerðinni Austin Leyland hingað
til lands.
„Það er gamall draumur okkar
að eignast brezkan leigubfl. Þessi
hugmynd hefur lengi blundað með
okkur og við ákváðum því að slá
til,“ sagöi Úlfar Eysteinsson í sam-
tali við Mbl. Bfllinn kostar kominn
á götur Reykjavíkur um 160 þús-
und krónur. „Við munum merkja
bflinn nafni fyrirtækisins og hafa
hann í Nóatúni þar sem fólk getur
skoðað hann og fengið lánaðan ef
það vill í stuttan bfltúr,“ sagði Úlf-
ar.
Sigurður Sumariiðason, Brian Holt og Úlfar Eysteinsson við leigubifreiðina í Suðurgötu í gærmorgun.
Morgunblaðift/Jón Svavarsson.
Landbúnaðarráðuneytið:
Hafnar frjálsum inn-
flutningi kartaflna
Landbúnaðarráðuneytið hafnaði í
gær kröfu sex umsækjenda um inn-
flutningsleyfi á kartöflum, um frjáls-
an innflutning. í bréfi ráðuneytisins
til fyrirtækjanna segir að fara veröi
með málið innan þeirra marka sem
lög ákveði og sagt að nauðsyn beri
til, vegna sjúkdómavarna og hags-
muna innlendra framleiðenda, að
hafa yfirsýn yflr innflutt magn á
hverjum tíma og hvaðan það kemur.
Þá segir að með tilliti til kart-
öflubirgða í landinu og innflutn-
ingsbeiðna geti nýir kartöfluinn-
flytjendur búist við að fá í sinn
hlut 150 tonna innflutning fyrir
15. júní, og að heimild þurfi að
vera fengin fyrir innflutningi áður
en varan er keypt erlendis. Gísli
V. Einarsson, framkvæmdastjóri
hjá Eggert Kristjánsson hf., sagði
m.a. í samtali við blm. Morgun-
blaðsins í gær, þegar álits hans á
þessari ákvörðun ráðuneytisins
var leitað, að þær ástæður sem
ráðuneytið gæfi í bréfi sínu væri
hreinar tylliástæður. „Hugsanlega
eru hinar raunverulegu ástæður
þær að landbúnaðarráðuneytið
vilji fyrir hvern mun vernda ein-
okunarfyrirtækið Grænmetis-
verslun landbúnaðarins og allt
það apparat, sem í kringum þá
stofnun hefur skipað sér, og jafn-
framt því að þær títtnefndu og ill-
ræmdu finnsku kartöflur, sem til
eru í birgðum hjá fyrirtækinu,
skulu ofan í landsmenn með góðu
eða illu,“ sagði Gísli. Þá sagði
Gísli að sá 150 tonna innflutning-
ur sem ráðuneytið ætlar frjálsum
innflutningsaðilum sé um það bil
10% af neyslu landsmanna og
þessi ákvörðun snúi fyrst og
fremst að neytendum, það séu þeir
sem eigi vantalað við ráðherra í
þessum efnum en ekki frjálsir inn-
flytjendur og dreifingaraðilar.
Sjá nánar á miðsíðu Mbl.
frá íslandi fellur ekki undir
EFTA-samþykktina. Okkur er því
heimilt að leggja þennan toll á,“
sagði Mario Soares, forsetisráð-
herra Portúgals, á fjölmennum
fundi fréttamanna hér í Visby í
dag. Við höfum til dæmis gert
samkomulag við Kanadamenn um
fiskveiðiheimildir handa okkur
Portúgölum og veitt þeim tolla-
ívilnanir á móti, svo að hér er ekki
um nýja ráðstöfun að ræða af
okkar hálfu. Fiskinnflutningur
okkar frá íslandi hefur átt sér
stað um langt skeið og við erum
því jákvæðir gagnvart öllum
viðskiptum við Island," sagði
Soares að lokum.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, svaraði þessum
ummælum Soares strax og sagði:
„Við {slendingar erum allt ann-
arrar skoðunar, við teljum þetta
afdráttarlaust brot á EFTA-
reglunum, sem eiga ekki aðeins að
ná til iðnaðarvara eins og Portú-
galir halda fram.
Matthías Á. Matthiesen, við-
skiptaráðherra staðfesti í viðtali
við blaðamann Mbl. að hann hefði
í viðræðum sínum við Alvaro
Barreto, viðskiptaráðherra Portú-
gals, lagt áherslu á frestun á gild-
istöku þessa tolls þar til tækifæri
hefði gefist til að ræða þessi mál á
íslandi er portúgalski viðskipta-
ráðherrann kemur þangað í boði
hans í byrjun júlí.
Sjá ræðu forsætisráðherra í
Visby á miðsíöu, viðbrögð sjáv-
arútvegsráðherra og SÍF á bls.
2, ennfremur ummæli við-
skiptaráðherra Portúgala.
Freðfisk-
ur, ál og
saltsíld
- stærstu útflutnings-
vöruflokkar á fyrsta
ársfjórðungi
FYRSTA ársfjórðung þessa árs
voru fluttar héðan út vörur fyrir
tæplega 5 milljarða króna. Sjávar-
afurðir nema 71,5% útflutnings-
ins, iðnaðarvörur 26,6% og land-
búnaðarafurðir 1,9%. Stærstu
vöruflokkarnir voru freöflskur, ál
og saltsfld.
I nýútkomnum Hagtíðindum
er birt yfirlit yfir útflutninginn
á þessu tímabili. Alls nam hann
4.913 milljónum króna, þar af
voru sjávarafurðir fyrir 3.512
milljónir króna, iðnaðarvörur
fyrir 1.309 milljónir króna og
landbúnaðarafurðir fyrir 92
milljónir króna. Verðmæti
fimm helztu útflutningsvar-
anna voru sem hér segir: Fryst
fiskflök 1.548 milljónir króna, ál
og álmelmi 750 milljónir, salt-
síld 586 milljónir, saltfiskur 307
milljónir og loðnumjöl 292
milljónir króna.
Áhrif Persaflóastríðsins:
Olíuverð hækkar á
Rotterdammarkaði
ÁHRIFA þess ófriðarástands sem
ríkt hefur aö undanförnu við Persa-
flóa er þegar farið að gæta á olíu-
verði á Rotterdammarkaði, en sam-
kvæmt því sem Indriði Pálsson, for-
stjóri Skeljungs hf., upplýsti blm.
Mbl. um í gær hefur verðið sl. 10
daga stigið um 2%, sem Indriði
kveðst telja hækkun umfram eðli-
lega markaðssveiflu.
„Ég tel að þessi átök, sprengi-
árásir á skip og órói þeim fylgj-
andi, síðustu 10 daga, hafi haft
áhrif til hækkunar á markaði
fyrir unnar olíuvörur í Rotter-
dam,“ sagði Indriði er blm. Mbl.
ræddi þessi mál við hann. Indriði
sagði að þessi hækkun væri að
vísu ekki mikil, um 2%, en engu að
síður sagðist hann telja að þessi
hækkun væri umfram eðlilega
markaðssveiflu.
Indriði sagði að mjög væri um-
deilt hver áhrif þessara átaka
yrðu á olíuverð á næstunni, og
ekkert væri hægt að fullyrða um
það að sú hækkun sem orðið hefur
síðustu 10 daga yrði varanleg, þótt
átökin héldu áfram. „Það er hins
vegar engin spurning um það í
mínum huga,“ sagði Indriði, „að ef
Hormuzsund lokast, eða átök
verða það mikil að olíuflutningar
um Hormuzsund teppast, þá mun
olíuverð í Rotterdam hækka."
MR-stúdentar:
10. systkinið
útskrifast
Menntaskólinn í Reykjavík
brautskráir 198 stúdenta í dag.
Að þessu sinni útskrifast
stúlka, sem heitir Elín Einars-
dóttir og hafa níu systkini
hennar útskrifast frá Mennta-
skólanum í Reykjavík síðast-
liðin 15 ár. Tvær systur hennar
útskrifuðust vorið 1969 og síð-
an hefur hvert systkinið á fæt-
ur öðru útskrifast sem stúdent
frá skólanum. Foreldrar
systkinanna 10 eru báðir látn-
ir, en þau hétu Einar Sigurðs-
son, útgerðarmaður frá Vest-
mannaeyjum, og kona hans
Svava Ágústsdóttir.