Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.06.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNl 1984 13 15—20 þúsund hafa séð „Ómar í aldarfjórðung“: „Komið út yfir öll velsæmismörk" — segir Ómar Ragnarsson „ÉG ÆTLAÐIST aldrei til að þetta gengi srona lengi — það má segja að við séum löngu komnir út yfir öll velsæmismörk,“ sagði Ómar Ragn- arsson fyrir helgina þegar hann lof- aði því hátíðlega að skemmtanir hans í Broadway um helgina — „Ómar í aldarfjórðung" — yrðu hinar síðustu af því tagi. Á sunnudagskvöldið verð- ur sú tuttugasta og jafnframt hin síð- asta. „Ég reiknaði með að þetta yrði 3—5 sinnum í upphafi," sagði Ómar. „Nú finnst mér að þetta megi ekki ganga lengur enda ætla ég að verða í skemmtibransanum í nokkur ár enn. Það er því úr lausu lofti gripið að ég muni á sunnu- dagskvöldið segja skilið við þann bransa í eitt skipti fyrir öll — ég yrði þá að hætta í sjónvarpinu um leið og fara að gera eitthvað allt annað. Ég meina... ekki lifi ég á tekjum mínum sem ríkisstarfs- maður! Eftir fimm eða sex ár, þeg- ar fjölskyldan er komin betur á legg, hef ég kannski efni á að hætta. Eins og er langar mig það ekki.“ Á milli 15 og 20 þúsund manns hafa notið kvöldstundar með Ómari Ragnarssyni í vor — heyrt hann og séð fara með brot af því, sem hann hefur samið og flutt á undanförnum aldarfjórðung. „Víst hefur verið gaman að þessum kvöldum þegar á hefur liðið og hlutirnir hafa rifjast betur upp. Ég hef byrjað á efni, sem mig hefur svo rámað rangt í en það hefur komið smám saman. Sumu hef ég breytt og annað bætt — talsvert er alltaf spilað eftir eyranu." — Ætlarðu að gera einhverjar sérstakar rósir um helgina þegar þú klykkir út í Broadway? „Nei, ætli það. I rauninni átti þetta að verða búið með átjánda kvöldinu enda fóru aðalundirleik- arar mínir í gegnum árin, Magnús Ingimarsson og Haukur Heiðar Ingólfsson, þar með í sumarfrí. Nú verður með mér Ingimar Eydal, sem hefur spilað með mér í tuttugu ár — en þó aðeins á Norðurlandi. Ég sagði veitingamanninum að eini maðurinn, sem gæti spilað með mér heilt kvöld væri Ingimar og hann hefði svo mikið að gera á Akureyri, að þetta væri búið. Óli Laufdal hringdi í mig síðar það sama kvöld og sagði að Ingimar hefði að vísu mikið að gera en ekki svo mikið að hann gæti ekki komið með hljómsveitina suður þessi tvö kvöld. Og þá sló ég til.“ Svo tekur Sumargleðin við með 40—50 skemmtanir um allt land. Þá eru menn sex tíma á sviöinu 1 einu — skemmtunin hefst kl. 21 að kvöldi og út fara þeir félagar ekki aftur fyrr en klukkan þrjú um nóttina. Hlýtur að vera þræla- vinna — eins og sést kannski best á því, að í fyrrasumar léttist ómar um sjö kíló meðan á þeirri vertíð stóð og hann ætlar að ná einhverj- um kílóum af sér I sumar. „Sumar- gleðin er fínasta megrunaraðferð," sagði ómar, „fyrir okkur alla að Magnúsi Ólafssyni undanskildum. Það er heldur ekki ætlast til þess að hann megrist — í Sumargleð- inni er það nefnilega breiddin, sem skiptir öllu máli, og Magnús sér fyrir henni, ha ha!“ — Ein samviskuspurning að lokum: Finnst þér alltaf jafn gam- an að skemmta? „Hver sagði að það væri gaman? Ég er fyrir löngu orðinn hundleið- ur á þessum bransa, líklega eru ein fimmtán ár síðan ég varð það. En það er ekki það, sem skiptir máli — það er betra að ég sé leiður en fólkið, sem kemur til að hlusta á mig. Og svo lifi ég fremur á þvf að skemmta en að vinna hjá sjónvarp- inu.“ Ágæt byrjun í Laxá „Það er ágæt veiði eins og er að minnsta kosti og komnir um 70—80 laxar — allir vænir, eng- inn undir 9 pundum en flestir 11 eða 12 pund, sagði Sigurður Sig- urðsson í Stóra-Lambhaga, þeg- ar hann var inntur eftir því á fimmtudaginn var hvernig veiði gengi í Laxá í Skilmannahreppi. Veiði hófst 13. júní og hefur mest verið veitt á maðk, en lítil- lega á flugu. Að sögn Sigurðar er laxinn genginn upp um alla ána og er hann mun vænni en á sama tíma í fyrra. Sjö laxar veiddust sl. fimmtu- dagsmorgun en á miðvikudaginn komu 13 á land. Veitt er á fimm stangir en verða sjö þann 25. júní næstkomandi. Heldur dauft hljóð Að sögn Ólöfu Guðnadóttur, ráðskonu í veiðiskálanum við Grímsá, var heldur dauft hljóð í veiðimönnum sl. fimmtudag og höfðu þeir lítið veitt enda mikið vatn í ánni. Ólöf hafði engar töl- ur um veiði síðustu tvo daga. Veiði í Grímsá hófst 18. júní og er veitt í tveim hópum og eru stangirnar átta talsins. Fyrstu tvo dagana var veiði góð — 44 laxar veiddust bæði á maðk og flugu. Laxarnir eru vænir, 9—15 punda og hafa þeir veiðst vítt og breitt um ána. Góð veiði í Laugardalsá Þegar Morgunblaðið hafði samband við Sigurjón Samúels- son á Hrafnabjörgum í gær- morgun höfðu veiðst 19 laxar. Tvær stangir eru í ánni og er aðallega veitt á maðk. Þyngsti laxinn vó 14 pund en flestir eru á milli 8—14 pund. Veiði hófst 15. júní og er hún mun betri en í fyrra. Að sögn Sigurjóns er laxinn genginn upp um alla á, en nokkuð mikið vatn er í henni og er vatnshitinn um 10 gráður.__________________ / FOSSVOGI FÆRDU FLEIRA EN BENSÍN OG OLÍU Nú er búiö að stór- bæta aðkeyrsluna að bensínafgreiðslu okkar i Fossvogi þannig að nú geturðu hæglega rennt við á leið úr Reykjavik í suðurátt. Þar færðu auk bensíns og oliu alls konar smávörur í bíl- inn s.s. kerti, platinur, viftureimar, o.fl., o.fl. Einnig hreinsivörur og ferðavörur / miklu úrvali. - Svo geturðu þvegið bilinn á þvotta- planinu. Við hliðina er Nesti með allt i ferðanestið. - Komdu við hjá ESSO i Fossvogi næst þegar þú átt leið suður úr. ^sso ER í LEIÐINNI- ÞÚ MANST ÞAÐ NÆST AUK hf. Auglýsmgastofa Kristinar 15.108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.