Morgunblaðið - 25.07.1984, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ1984
Halli á fjárlögum E6E
ógnar framtíð
Briissei. 24. júlí. AP.
Evrópubandalagið stendur nú
frammi fyrir miklum vanda, eftir að
ekki náðist samkomulag í dag milli
utanríkisráðherra aðildarrfkja þess
um, hvernig afla skuli fjár til þess að
brúa þann halla, sem er á fjárlögum
bandalagsins.
Ef samkomulag hefur ekki
náðst í október næstkomandi, þá
verður bandalagið orðið fjárvana
og getur ekki framar greitt upp-
bætur á landbúnaðarafurðir, en
þessar uppbætur hafa farið ört
vaxandi að undanförnu. Það
myndi svo hafa í för með sér, að
stjórnir einstakra aðildarríkja
bandalagsins yrðu að útvega fé til
þess að greiða skuldir þess og
myndi það vafalítið verða endir
þeirrar sameiginlegu stefnu í
landbúnaðarmálum, sem verið
hefur grundvöllur Evrópubanda-
lagsins allt frá stofnun þess fyrir
27 árum.
Framkvæmdanefnd bandalags-
ins hefur skorað á stjórnir aðild-
arríkja þess að leggja fram 1,6
milljarða dollara aukalega til þess
að mæta væntanlegum halla
bandalagsins á þessu ári. Þetta fé
þess
myndi bætast við þau 20 milljarða
dollara framlög, sem gert er ráð
fyrir á fjárlögum bandalagsins.
Bretar hafa hins vegar stöðugt
neitað að leggja fram meira fé til
bandalagsins. Telja þeir, að vax-
andi halla eigi að mæta með aukn-
um sparnaði. Þannig hélt Geoffr-
ey Howe, utanríkisráðherra Bret-
lands, því fram á mánudag, að
halla bandalagsins á þessu ári
mætti strax minnka niður í 800
millj. dollara með því að draga úr
framlögum bandalagsins.
Gasvinnsla
á Svalbarda
Veður
víða um heim
Akureyri 12 alskýjaó
Ameterdam 24 skýjaö
Aþena 34 heiöskírt
Berlin 20 skýjað
Brilasel 28 heiöskirt
Chicago 32 heiðskírt
Dublin 22 heiöskirt
Feneyjar 27 [jokumóöa
Frankfurt 24 heiöskfrt
Genf 35 heiðskírt
Helsinki 17 rigning
Hong Kong 32 heiðskirt
Jerúsalem 28 heiöskírt
Kaupmannahöfn 19 skýjaö
Las Palmas 27 skýjaö
Lissabon 28 heiðakfrt
London 23 skýjað
Los Angeles 29 skýjaö
Luxemborg 23 léttskýjaö
Míami 30 skýjaö
Montreal 24 skýjaö
Moskva 24 heiöskfrt
New York 30 skýjaö
Osló 22 heiðskfrt
París 29 heióskirt
Peking 33 skýjaö
Reykjavik 10 súld
Rio de Janeiro 13 skýjaö
Róm 32 haíðakirt
Stokkhólmur 17 skýjaö
Sydney 17 heiöskfrt
Tókýó 31 skýjaö
Vínarborg 25 heióskírt
Þórshöfn 14 skýjaó
Harðir
bardagarí
Afganistan
IsUmabad, 24. júlf. AP.
SOVÉZKA hernámsliðið í Afganist-
an hefur byrjað nýja sókn fyrir sunn-
an böfuðborgina Kabúl og drepið
marga óbreytta borgara með mikilli
fallbyssuskothríð. Skýrði vestrænn
sendistarfsmaður frá þessu í dag.
Sovétmenn beittu einnig þyrlum I
þessum sóknaraðgerðum og gerðu
þær loftárásir á mörg þorp, þar sem
mikill fjöldi óbreyttra borgara missti
lífíð.
Á Shomali-svæðinu fyrir norð-
an höfuðborgina héldu Sovétmenn
uppi þungri stórskotahríð fyrir
einni viku. Jafnframt gerðu flug-
vélar þeirra miklar loftárásir á
þetta svæði.
Sendistarfsmaðurinn, sem vildi
ekki láta nafns síns getið, sagði
ennfremur, að fréttir hefðu borizt
af hörðum bardögum í sjálfri höf-
uðborginni, Kabúl og hefðu tveir
Sovétmenn verið drepnir þar.
Norska olíuvinnslufyrirtækið Norsk
Polar Navigasjon og sænska sam-
steypan Svensk Polarenergi hyggja á
gasvinnslu á Svalbarða, en þau áætla
að þar sé að fínna gaslindir að verð-
mæti um 100 milljarða norskra
króna.
Mörg vandamál eru gasvinnslu á
Svalbarða fylgjandi, en fyrirtækin
ræða nú sín á milli hvernig hægt er
að yfirstíga hugsanlega örðugleika
og hrinda hugmyndinni í fram-
kvæmd. Hugmyndin er m.a. að
flytja gasið niðurkælt í tankskip-
um frá Svalbarða.
Svensk polarenergi hefur þegar
ákveðið að verja 15 milljónum
London, 24. júlí. AP.
DÍANA prinsessa heimsótti rannsókn-
ardeild fæðingardeildar King’s Coll-
ege-sjúkrahússins í London, og er það
síðasta opinbera skylduverk hennar
áður en hún fer i bamsburðarfri.
í heimsókninni sló prinsessan á
létta strengi og sagði m.a. starfs-
fólki, að ef það væri hlutskipti
karlmanna að ala börn, myndu þeir
aðeins gera slfkt einu sinni á
ævinni.
króna til tilraunaborana, en pær
boranir, sem þegar hafa átt sér
stað, lofa góðu. Reiknað er með að
nýjar boranir færi heim sannin um
að það sé þess virði að ráðast í
gasvinnslu á Svalbarða.
Rannsóknir á vinnslu auðæfa úr
jörðu hófust á Svalbarða á sjötta
áratugnum. Norsk polarnavigasj-
on, sem hefur haft einkarétt til
námavinnslu á Svalbarða vill ekki
gefa upp hversu miklum fjármun-
um hefur verið varið til tilrauna-
borana eða annarra rannsókna þar.
{ upphafi beindist athyglin að olíu-
leit, en komið hefur í ljós að gas-
vinnsla sé öllu arðvænlegri.
Prinsessan sagði einnig að Vil-
hjálmur prins væri enginn venju-
legur piltur. „Hann væri búinn að
velta þessu keri við,“ sagði hún er
hún virti fyrir sér skjaldbðkur í
keri á sjúkrahúsinu. „Hann væri
búinn að slíta þessi blóm og rífa,
hann hefur enga virðingu fyrir
blómum," sagði Díana er hún sýndi
ungri stúlku blómvönd sinn.
AP/sfmamynd.
Lafði Dfana við komuna til King’s College-sjúkrahússins, þar sem hún opnaði
nýja rannsóknardeild fæðingardeildar sjúkrahússins. Var þetta síðasta skyldu-
verk lafðinnar áður en hún elur annað barn, sem von er á í september.
Síðasta skylduverk
lafði Díönu um sinn
Með hjálp vasatölvu geta læknar metið hvort hjartaáfall sé yfírvofandi.
Tölva fækkar ónauð-
synlegum afnotum
hjartagæslutækja
NÚ GETUR vasatölva hjálpað
læknum, sem sinna neyðarhjálp,
að reikna út hættu á hjartaáfalli
hjá sjúklingum. Þannig er hægt að
draga úr ónauðsynlegri notkun á
hjartagæslutækjum um þriðjung.
Niðurstaða þessi fékkst í
rannsókn sem vísindamenn á
Borgarspítalanum i Boston
gerðu grein fyrir nýlega í ritinu
New England Journal of Medic-
ine.
Það tekur tölvu, sem kostar
rúmar tvö þúsund kfonur, 20
sekúndur að finna svör við sjö
lykilspurningum, sem varða at-
riði eins og verk fyrir brjósti,
sjúkraskýrslu og hjartalínurit.
í rannsókn, sem tók til 2.320
sjúklinga á New England-
sjúkrahúsinu og stóð í rúma 11
mánuði, tókst að minnka
ónauðsynleg not hjartagæslu-
tækja um allt að þriðjung með
þvi að nota tölvuna.
Aðstandendur rannsóknarinn-
ar benda á, að af um 1 % milljón
sjúklinga sem árlega hafi verið
settir í hjartagæslutæki í
Bandaríkjunum, hafi afnot tækj-
anna reynt óþörf að því er varð-
ar upp undir helming tilfellanna.
Almenn notkun tölvunnar gæti
því fækkað ónauðsynlegum af-
notum hjartagæslutækjanna um
250.000 skipti, að sögn
rannsóknamannanna.
Rússar samþykkja
fjölgun í gæzluiiði
Beirút, 24. júlf. AP.
SOVÉZKA STJÓRNIN hefur lagt blessun sína yfír þá beiðni
stjórnar Líbanons að fjölgað verði í gæsluliði Sameinuðu
þjóðanna í Suður-Líbanon og sömuleiðis verði gæslusveitun-
um veitt víðtækara umboð til athafna.
Þetta kemur fram í frétt AP-
fréttastofunnar i morgun og var
tekið fram að Sovétmenn hefðu
komið þessum boðum áleiðis til
Nabih Berri, ráðherra Suður-
Líbanons og dómsmálaráðherra,
þegar hann var nýlega í heimsókn
í Sovétríkjunum. Berri tyllti niður
tá í Damaskus á heimleiðinni.
Nú eru fulltrúar tíu þjóða í sex
þúsund manna liði Sameinuðu
þjóðanna. Líbanir hafa hvað eftir
annað krafist þess að fjölgað yrði
í liðinu ef fsraelar drægju sig
fyrirvaralítið úr þessum lands-
hluta.
í sömu frétt segir að Rashid
Karami forsætisráðherra fari til
Sýrlands síðar í þessari viku, en
hann hefur verið dyggilega studd-
ur af Sýrlendingum, síðan hann
tók við starfi. Karami mun síðan
fara til Saudi-Arabíu og leita eftir
fjárhagsaðstoð við uppbygg-
ingarstarfið í Líbanon.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa stríðandi fylkingar í
Líbanon úr röðum kristinna og
múhameðstrúarmanna látið
vopnabúnað sinn af hendi undan-
farna daga og tiltölulega kyrrt
hefur verið á flestum stöðum í
landinu upp á síðkastið.
ERLENT,