Morgunblaðið - 09.09.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
83
Marianne Lykkebjerg
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg sýn-
ir þessa dagana og fram til 9. sept-
ember danska listakonan Marianne
Lykkebjerg nokkur málverk, sem
unnin eru í sl. tveim írum.
Miðað við upplýsingar um
menntun listakonunnar mun hún
vera ung að árum og kemur það
enda fram í myndum hennar því
að vinnubrögð hennar virðast ekki
fastskorðuð og hún er ennþá að
leita fyrir sér og á mótunarskeiði.
Lykkebjerg hefur numið hjá próf-
essorum við listaháskólann í
Kaupmannahöfn svo sem Dan
Sterup Hansen, Richard Winther
og Robert Jacobsen ásamt þvi að
njóta einkakennslu Gerdu Svanne.
Þetta eru næsta ólíkir listamenn
enda er ekki gott að segja hvaðan
Marianne Lykkebjerg hafi helst
orðið fyrir áhrifum. Þó má sjá
áhrif frá nýbylgjumálurunum í
sumum myndanna ásamt ljóð-
rænni abstraksjón. Hér eru hrif-
mestar myndir svo sem: „Hrafnin
og dúfan", sem er máluð af mikilli
tilfinningu, „Moondanse" og
„Stormy weather". Aðrar myndir
svo sem t.d. „Glimpes of light"
geta í senn minnt á litafræði og
Franz Marc.
Af myndunum að dæma er hér
um hæfileikakonu að ræða á
miðju þroskaskeiði og um margt
tvístígandi, rómantiska, tilfinn-
ingaríka og gædda myndrænu inn-
sæi. Ég yrði a.m.k. ekkert hissa
þótt að list hennar blómstraði til
átakameiri afreka á næstu árum.
FAO-ráðstefna
í Reykjavík
Rómaborg, 5. september. AP.
FJÓRTÁNDA Evrópuráðstefna Mat-
vælastofnunar Sameinuðu þjóðanna
verður haldin í Reykjavík frá
17.—20. september næstkomandi,
að þvi er talsmaður FAO greindi frá
f dag.
Landbúnaðarráðherrar aðildar-
ríkjanna munu sitja ráðstefnuna,
svo og ýmsir háttsettir embætt-
ismenn og sérfræðingar í þróun-
armálum. Fulltrúar frá öllum að-
ildarríkjum FAO munu senda
fulltrúa til ráðstefnunnar, sem „
formaður FAO Eduardo Saouma
setur þann 17. september.
i---------
I sssa I
Bréf til
íslands
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
íslendingar koma víða við í
myndlistinni, annað verður ekki
sagt. Stöðugt skýtur upp nöfnum, er
maður kannast lítið sem ekkert við
en eru þó víða þekkt í listaheimin-
um. Eitt af þessum nöfnum er
Ágústa Ágústson, sem búsett er í
Boston þar sem hún rekur vinnu-
stofu fyrir listamenn í félagi við vin-
konu sína. Á verkstæðinu er unnið
að veggspjöldum (platkötum) í hóp-
vinnu en undir stjórn einhvers
ákveðins listamanns hverju sinni, er
telst þá vitaskuld höfundurinn.
Ágústa hefur verið búsett í
Bandaríkjunum frá unga aldri (f.
1952) en er nú stödd hér heima og
heldur einkasýningu í Ásmund-
arsal. Á sýningunni eru tuttugu
stórar pastelmyndir og 14
veggspjöld unnin úr sáldþrykki.
Pasteímyndirnar eru nokkuð gróf-
gerðar í útfærslu og bera ríkri
skapgerð vitni — um leið bregður
á stundum fyrir naiviskri kennd.
Myndirnar eru mjög ólíkar því,
sem maður er vanur að sjá eftir
íslendinga hér heima sem nota
sömu tækni, sem stafar vafalftið
að nokkru af ólíkri skólun. En
listakonan vinnur umbúðalaust og
kröftugt svo sem margir starfs-
bræður hennar íslenskir en lita-
sýnin er önnur og hrárri. Hér
vöktu athygli mína myndir eins og
„Krísuvík" (12) og „Eyjafjallajök-
ull“ (13).
Það kveður svo sannarlega við
annan tón á veggspjöldum
Ágústu, sem eru hverju öðru fág-
aðra i lit og útfærslu auk þess sem
að tæknin er meiri og þróaðari en
flest af því, er við höfum séð gert
hér heima. Þau standa ótvírætt
undir þeim verðlaunum, sem þeim
hefur hlotnast, enda hér um frá-
bært listrænt handverk að ræða.
Vil ég vísa til nokkurra svo sem
„Othello" (1), „The Wild Duch“ (3),
„Barrington Land Iguana“ (5) og
„The Madwoman of Challiot".
Maður þakkar svo fyrir óvænta
sýningu og biður um meira í fram-
tíðinni.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamióill!
Gæði
þjónusta
og
þægílegt
viómót
ÞRIGGJA ÞREPA HÖGGDEYFATENGD FJÖÐRUN
Komiö og kynniö ykkur Daihatsu Rocky og geriö samanburö við aöra jeppa.
DAIHATSUUMBOÐID ÁRMÚLA 23 S. 685870 - 81733
Dieselvélin 2765 cc (92 mm x 104
mm). DL dieselvélin er þekkt fyrir aö
vera frábærlega sterk og aflmikil ásamt
sérstakri hönnun til aö minnka hávaða
og titring.
Daihatsu Rocky samein
ar augnayndi og lág-
marksmótstööu gegn
vindi.
Utkoman veröur
fallegur, hagnýtur, sterkur?
Aflmikíll en sparneytinn.
Bensínvélin 1998 cc (86
mm x 86 mm) 4 cyl. Sam-
einar snerpu I viðbragöi og
mýkt á miklum hraöa ásamt
frábærri svörun viö akstur
utan vega.
til afgreiðslu strax
ViÖ vorum aö fá nýja sendingu af þessum
glæsilegu jeppum, lengri og styttri geröir, diesel eöa bensín, í
fjölbreyttu litaúrvali. Veröflokkar viö allra hæfi.