Morgunblaðið - 09.09.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
87
Sagan segir að Railly hafi staðiö
aö baki tilrasöis viö Lsnin
i
Astralski isikarinn Sam Neill Isik
ur Rsilly f sjönvarpsþáttunum
kerfi andstæöinga bolsévika, sem
þekktu hann ekki undir ööru nafni
en „Konstantín, grískur kaupmað-
ur“. ÞaÖ rann fljótlega upp fyrir
Reilly að á meðan Trotsky væri f
óöa önn að reyna að koma saman
nýjum Rauða her yrðu bolsévikar
að treysta á tvo aðalheri, upp-
runalegu Rauðu varðliðana og
.lettnesku herdeildina, sem bolsév-
ikar höfðu fengið meira eða minna
til að þjóna sem lífvarðasveit.
Hugmynd Reillys var að ef tækist
að múta þessum málaliðum til að
snúast gegn yfirboðurum sinum
yrðu Lenin og Trotsky teknir
höndum og fyrrum foringjar keis-
arans tækju stjórn landsins f sin-
ar hendur og færu aftur f strið við
Þýskaland. Þetta mistókst hrap-
allega. Öryggislögreglan Cheka
fékk veður af ráðagerð Reillys, en
áður en hún gat látið til skarar
skríða hafði foringi Cheka f Petro-
grad verið skotinn f höfuðið fyrir
framan aðalstöðvar sínar og að
kvöldi sama dags, eftir fund f
verksmiðju í Moskvu, var Lenin
skotinn niður af Dora Kaplan, fé-
laga i Byltingarflokki sósíalista,
og var honum vart hugað lif.
Hve mikinn þátt Reilly átti f til-
Forsaetísráöberra Bretlands Lloyd
George sendi Reilly til Rússlands.
ræðinu við Lenin er ekki vitað til
fulls. Leyniþjónusta Breta viður-
kenndi að hann hefði átt þátt í þvi
og reyndi að hylma yfir með hon-
um i bresku stjórninni. Bolsévikar
hófu mikla herferð gegn fyrrum
herforingjum og „gagnbyltingar-
mönnum" og Rauðir varðliðar um-
kringdu breska sendiráðið f Petro-
grad. Reilly flúði á æfintýralegan
hátt til London.
Þegar hann kom þangað var
hann sæmdur herkrossinum fyrir
«törf sín í Rússlandi og hann reit
nokkur skjöl fyrir utanrikisráðu-
neytið um hvernig ætti að bregð-
ast við bolsévikahættunni. Skjöl
þessi eru enn til og í þeim stendur
m.a.: „Hverjar svo sem skoðanir
manna eru á eflingu hers og fjár-
hagslegri aðstoð til Rússlands,
getur aðeins verið til ein skoðun á
nauðsyn þess að stunda áróður um
heim allan gegn bolsévikum sem
almestu hættu sem menningar-
samfélög hafa nokkurn tíma stað-
ið andspænis."
Reilly hélt áfram að vinna gegn
bolsévikastjórninni í Rússlandi
þar til hann hvarf árið 1925. Eng-
inn veit hver urðu afdrif þessa
meistaranjósnara bresku leyni-
þjónustunnar. Vist er að hann var
ginntur aftur til Moskvu af
„Hringnum", gagnnjósnafram-
kvæmd OGPU, sem komið var á
fót i þeim tilgangi að gera óvirka
alla andspyrnu gegn bolsévika-
stjórninni, en „Hringurinn" átti
að vera hópur konungssinna í
Mið-Rússlandi og áhrifamikil
undirheimahreyfing innan Sovét-
ríkjanna. Hún var dyggilega studd
af útlagasamtökum um alla Evr-
ópu og Reilly hafði helgað
„Hringnum“ starf sitt, enda komst
hann ekki að raunverulegu hlut-
verki samtakanna fyrr en hann
hélt i síðasta sinn til Rússlands.
Ef hann hefur þá nokkru sinni
komist að þvf.
Ein sagan segir að Reilly hafi
verið fluttur í Lubyanka-fangelsið
og skotinn í bakið á Lenin-hæðum.
Önnur segir að hann hafi i raun-
inni verið útsendari Rússa og að
hann hefði verið enn á lífi og haft
það gott f Moskvu árið 1945.
Samantekt: — ai.
Nú er þaö
svart
4
En það birtir yfir öllu,
ef þú notar
Ijósu tízkulitina
LÁTIÐ HÖRPU GEFA TÓNINN
frá Hörpu