Morgunblaðið - 09.09.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
93
Og eftir langa rútuferö og svefn í stólum var notalegt að setjast í hann þennan og láta sóltjaldið um að verjast
sterkustu sólargeishinum.
í gamla bæjarhluta Aþenu, Plaka-hverfinu, eru verslanir á hverju götu-
horni.
og merkja inn vinnutíma sinn á og
hóti lögreglan nú að kyrrsetja rút-
una í 12 klukkustundir. Grísku bíl-
stjórarnir voru að vonum óhressir
yfir þessu og eftir mikið japl jaml
og fuður tókst loks að heimta rútu-
garminn úr höndum lögreglunnar
og áfram var haldið, þrátt fyrir
fullyrðingar Þjóverjanna að það
væri lífshættulegt hverjum þeim
sem upp í rútuna stigi. Það er ekið
nótt sem dag, yfir Austurrfsku
landamærin í gegnum ægifagurt
landslag. Þaðan er keyrt i gegnum
Júgóslavíu og yfir til Grikklands.
Við sjáum hvernig landslagið
því sem sunnar dregur, þar til
gróðurinn er orðinn hálf kyrkings-
legur, enda talið að einungis um
þriðjungur landsvæðis á Grikk-
landi sé ræktanlegur. Rúmum
þrem sólarhringum eftir að lagt
var af stað frá London er komið til
Aþenu, og hafði þá verið ekið nótt
sem dag. „Erum við nokkuð að
breytast í stóla?“ spurði einn far-
þeginn annan, og miklar umræður
hófust um það hvort það gæti verið
vanabindandi að sofa sitjandi!
Nýi og gamli tíminn í Aþenu
í Aþenu búa um fjórar milljónir
íbúa, en um þrír fjórðu íbúanna
hafa flust til borgarinnar á undan-
förnum 30 árum. Unga fólkið í
fjallaþorpunum og eyjunum flýr
heimkynni sfn og verða þatttak-
endur f hinum amerfska draumi
eins og hann kemur fram f Dallas
og öðrum sápuóperum, flytja til
stórborgarinnar í von um betra líf.
Borgin er byggð upp af allmörgum
hverfum, sem hvert um sig hefur
nokkurskonar miðbæ eða verslun-
armiðstöð, og algengt er að fjöl-
skyldur og heilu eða hálfu þorpin
flytjist í sama hverfi. Þannig hafa
hverfin jafnvel á sér hálfgerðan
smábæjarbrag og ýmsum gömlum
venjum og siðum er viðhaldið á
nýja staðnum. Einn þeirra siða
sem kemur ferðamanni á óvart, eru
setur karlmanna á kaffihúsum, en
þeir hafa þann sið að sitja og
drekka kaffi og þjóðardrykkinn
ouzo á þartilgerðum stöðum, og
spila backgammon. Konur fá ekki
að stíga þar inn fæti, og f tímarit-
inu „The Athenian" var fyrir
skömmu sagt frá kaffihúsi sem
grfskar konur höfðu opnað f svip-
uðum tilgangi og karlarnir. Varla
hafði kaffihúsið þó slitið barns-
skónum fyrr en þeim hafði tekist
að loka þvi, á þeim forsendum að
það hefði ekki leyfi til að starfa, en
aðalástæðan virtist þó vera sú að
kaffihúsið olli miklu fjaðrafoki
meðal þeirra sem bjuggu f ná-
grenninu og lögreglan því oft köll-
uð á vettvang. Kaffihús grfsku
kvennanna hefur því verið lokað
frá þvf í mars sl., en þær ætla þó að
opna aftur innan tfðar og fá til þess
opinbera heimild stjórnvalda, þvf
eins og þær segja i áðurnefndri
grein: „Reglur lýðræðisins hljóta
að gilda jafn fyrir konur og karla,
og við hljótum að hafa leyfi til að
hittast og ræða málin þar sem við
viljum hvort sem staðurinn heitir
kaffihús eða eitthvað annað.“
„Ekki hægt að breyta heilu
landi í fornminjasafn“
Á ári hverju flykkjast ferða-
menn til Grikklands, enda munu
fáar þjóðir lifa meira f fortfðinni
en Grikkir. Ekki er laust við að
mörgum þeirra finnist fortiðin
jafnvel vera á kostnað þeirra sem
nú byggja landið, við heyrðum sög-
ur af fólki sem keypti land og gróf
fyrir húsgrunni og auðvitað komu
upp úr grunninum álitlegur hell-
ingur af fornminjum. Fólkið lét yf-
irvöld vita og fékk annað landsvæði
til byggingar, en allt fór á sömu
leið. A þriðja landinu komu þau
enn niður á fornminjar og ákváðu
að láta engan vita f það sinnið,
byggðu húsið og sögðust ekki hafa
efni á því að breyta landinu öllu i
eitt allsherjarfornminjasafn!
Umferð er mikil á götum borgar-
innar og mörgum nútfmagrikkjan-
um finnst löngu timbært að huga
að einhverjum úrbótum, svo sem
eins og að koma á laggirnar ein-
hverjum neðanjarðarlestum. En
það er auðvitað sömu vandkvæðun-
um bundið, því undir borginni er að
finna aðra borg og heilmikið af
hinum margfrægu fornminjum,
þannig að nútímagrikkir verða að
láta sér lynda að lenda í umferð-
arhnútum á mestu annatímunum
og aka á yfirfullum strætum. Við
fengum smá nasasjón af því hvern-
ig það er að keyra um götur Aþenu,
er við fengum bíl að láni til að fara
til hins sögufræga staðar Delfí sem
er í um þriggja klukkustunda fjar-
lægð frá borginni. Umferðin var
með minnsta móti er við lögðum af
stað um morguninn, því flestir
Aþenubúar fara út úr borginni f
sumarleyfunum, sækja heim eyjar
og fjallaþorp. En þrátt fyrir það
var ýmislegt að varast, umferðar-
reglur eru lítt í heiðri hafðar og
það liggur við að það sé látið duga
að flauta fyrir horn.
I stuttbuxum og rósóttum
skyrtum
Þó margir nútímagrikkir séu
þreyttir á hinnni ævagömlu menn-
ingu sem er alls staðar í kring um
þá og undir fótum þeirra verður hið
sama ekki sagt um ferðamennina
sem sækja heim landið. Hvarvetna
má sjá túrista í stuttbuxum og rós-
óttum skyrtum með myndavélarn-
ar á lofti. Flestir eru þeir í gamla
bæjarhlutanum, Plaka og i kring-
um Akrópólis. í gamla bæjarhlut-
anum eru þröngir krákustigar, og
sölubúðir fyrir ferðamenn á hverju
horni. Við fylgjum straumnum upp
hæðar Akrópólis i steikjandi sól-
inni. Uppi á hæðinni má líta nokk-
ur meistaraverk byggingarlistar-
innar, Parþenon sem á blómaskeiði
griskrar heiðni var einn helsti
helgidómur Aþenu, en breytt í
kirkju eftir tilkomu kristninnar.
Grikkir virðast reyndar hafa hald-
ið þeim sið að mestu leyti að breyta
fornum hofum i kirkjur en jöfnuðu
hofin ekki við jörðu eins og margar
aðrar þjóðir. Tyrkir gerðu Parþen-
on síðar að bænahúsi múhameðs-
trúarmanna, svo ekki er hægt að
segja annað en hofið hafi þjónað
mörgum guðum. Skammt þar frá
er annað hof Erekþeion, helgað
Aþenu verndargyðju borgarinnar,
og litið hof sem nefnist Vængjalaus
sigur. Á blómaskeiði háborgarinn-
ar Akrópólis gengu þeir um hér
Sókrates og aðrir meistarar og
nærðu unglingana á andlegu fóðri,
því líkamleg vinna var þeim langt i
frá samboðin.
Þeir sem hafa gaman af griskri
sögu geta sótt eitthvað af hinum
mörgu söfnum borgarinnar heim,
en þar er að finna ótölulegan fjölda
alls kyns forngripa. Við látum
okkur þó nægja að sækja heim
National Archaeological, og sjáum
m.a. hvernig griskar höggmyndir
hafa þróast í gegnum tiðina. Við
höfum ákveðið að sækja heim hina
heilögu borg Delfi, en frásögn þaö-
an verður að bíða betri tima. Við
ákveðum að láta fortiðina lönd og
leið og bragða einhverja hinna
gómsætu rétta sem Grikkir eru
margfrægir fyrir.
myndir og texti:
Valgerður Jónsdóttir