Morgunblaðið - 09.09.1984, Page 40
120
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
Vamarmál Norðmanna:
ÓGNUN FRÁ
SOVÉTRÍKJUNUM
Njósna- og sprengiþotur Sovétmanna af Bear-gerö eru tíðir gestir í nágrenni fslands. Hér sést ein slík ásamt með
bandarískri orrustuþotu af F-4-gerð frá Keflavíkurflugvelli.
landið á norðurslóðum, sem þeim
þykir virkilegur akkur í, bæði sem
flota-, flug- og kjarnorkueld-
flaugastöð á einu bretti og einnig
vegna þeirra óhemjumiklu
náttúruauðæva í olíu, gasi og fiski,
sem væri til afnota fyrir það stór-
veldi, sem næði Noregi á sitt vald
og hefði þar töglin og hagldirnar.
Það sem freistaði Sovétríkjanna
að gera árás á hlutlausa smáríkið
Finnland fyrir fjörutíu árum,
verður að teljast hreinustu smá-
munir samanborið við þann svim-
andi háa vinning, sem ynnist við
að læsa klónum í Noreg. Að því er
Noreg varðar ber þess að gæta, að
þar yrði naumast um einhverja
örfáa landskika við landamærin
að ræða. Þar sem landið í heild
sinni er einkar vel fallið til að gera
þar herstöðvar fyrir jafnt landher,
flugher sem flota, myndi Noregur
allur öðlast mjög mikla hernaðar-
þýðingu með rússneskum her-
flotastöðvum við strendurnar og
flug- og eldflaugaherstöðvar innar
í landinu.
Greiðfærast þar sem
garðurinn er lægstur
Það er einkar eðlilegt, að spurt
sé: Nú, úr því að Noregur hefur
svona mikið hernaðarlegt gildi í
augum Sovétmanna, hvers vegna
hafa þeir þá ekki fyrir löngu látið
til skarar skríða og fengið sér í
gogginn eins og þeir gerðu í Finn-
landi og nú nýlega í Afganistan?
Svarið er, að bæði þessi lönd
fylgdu þeirri meginstefnu í utan-
ríkismálum að halda sig utan allra
hernaðarbandalaga og gátu þvi
ekki treyst á nein bindandi loforð
annarra og öflugri ríkja um hjálp,
ef á þau yrði ráðist. Að sjálfsögðu
þótti Sovétmönnum það allneyð-
arlegt, að þessi tvö fórnarlömb
þeirra, Finnland í Vetrarstríðinu
og Afganistan núna á síðustu ár-
um, skyldu leggja allt kapp á að
veita hinu sovézka innrásarliði
harðvítuga mótspyrnu. En
Moskvu hefur þó lærzt að taka
slíkum timabundnum leiðindum
með jafnaðargeði, því að meðan
þau hlutlausu lönd, sem fyrir sov-
ézkri innrás verða, fá ekki aðra
hjálp erlendis frá en ullarteppi og
handvopn, geta sovétleiðtogarnir
verið öruggir um lokaniðurstöðu
hernaðaraðgerða sinna á fram-
andi grund. Og það er þetta eitt,
sem skiptir þá máli.
Við Norðmenn höfum það
skjalfest, að löngun Sovétmanna
til landvinninga á norskri grund
hefur verið lengi fyrir hendi. Það
er staðreynd, að þegar árið 1944,
þegar þörf Sovétríkjanna á hern-
aðarlega mikilvægri aðstöðu er-
lendis var langtum minni en núna,
lögðu Rússar samt fram kröfu um
að Noregur léti af hendi við sig
norsk landsvæði (þ.e.a.s. Sval-
barða — Bjarnarey). Það eru því
öll líkindi á, að Sovétríkin myndu
hafa komið fram með nýjar kröfur
og með vaxandi þunga á bak við
þær kröfur — hefðu Norðmenn
haldið áfram að byggja sjálfstæði
sitt eingöngu á sínum eigin varn-
armætti í hlutleysi og staðið utan
við varnarbandalög annarra
v-evrópskra þjóða.
Það má teljast allt að því öruggt
mál, að það var aðild Noregs að
varnarbandalagi vestrænna ríkja
og sú trygging, sem Noregur varð
þar með aðnjótandi, að landið
fengi alla þá aðstoð, sem það
þyrfti á að halda frá Bandaríkjun-
um og frá Atlantshafsbandalag-
inu, ef á það yrði ráðist, sem hald-
ið hefur aftur af Sovétmönnum að
gera kröfur til norskra landsvæða,
studdar hótunum um vald-
beitingu, ef þessum kröfum yrði
ekki fullnægt, eins og Sovétríkin
gerðu gagnvart Finnlandi á sínum
tíma.
Á þeirri stundu, þegar mönnum
þykir almennt tekinn að leika
nokkur vafi á því, hvort norsk
stjórnvöld vilji í raun og veru gera
allt sem í þeirra valdi stendur til
þess að hernaðarhjálp af hálfu
bandamanna okkar nýtist Noregi
að fullu — eða ef til þess skyldi
koma, að það yrðu greinir eða al-
varlegt missætti milli Norðmanna
og Bandaríkjamanna — má alveg
eins búast við því, að tilraunum
Sovétmanna til að öðlast vald yfir
norskum landsvæðum og ná þar
endanlegri fótfestu yrði fram
haldið á nýjan leik.
Samstaða um varnar-
málin er
þjóðarnauðsyn
Sé litið á þessar raunverulegu
og sannanlegu staðreyndir um
framferði og háttalag Sovét-
manna gagnvart litlum og lítils-
megandi nágrannaríkjum, sem
skortir þann bakhjarl er felst í
samningsbundnum loforðum ann-
arra ríkja um hjálp til smáríkj-
anna, ef á þau er ráðist, ætti það
að vera öllum Norðmönnum, jafnt
háum sem lágum, auðsætt mál og
sjálfsagt, að það eru hin talandi
verk en ekki stóru orðin, sem ein
eru þess megnug að varðveita
trúverðugleika og veruleikagildi
fyrirheitanna um hernaðaraðstoð
erlendis frá. Þar sem Bandaríkja-
menn eru sem stendur einustu
bandamenn Norðmanna, sem hafa
raunhæfa möguleika á að veita
Noregi skjóta og virka hjálp, má
það teljast eðlilegt og raunar
lífsnauðsyn fyrir okkur sem þjóð,
að þess sé jafnan gætt af hálfu
okkar Norðmanna að uppfylla til
hins ýtrasta og standa við allar
okkar samþykktir varðandi varnir
NATO-ríkjanna til þess að við-
halda nánu og traustu sambandi
okkar við Washington.
Þess ber og að gæta, að Banda-
ríkin eru ekki það sama yfirburða
risaveldi á sviði hernaðar og þau
voru fyrir þrjátíu árum, þegar
varnarbandalag vestrænna ríkja
komst á laggirnar. Hernaðarlega
séð er staða Bandaríkjanna í sam-
anburði við Sovétríkin þegar orðin
mun veikari. Niðurröðunin á því,
hvaða þarfir á sviði varnarmála
aðildarríkjanna skulu hafa for-
gang, er orðin mun strangari að
undanförnu. Það ætti því að skoð-
ast sem eitt helzta verkefni allra
þeirra, sem finna sig bera ábyrgð
á varðveizlu þeirra þjóðarverð-
mæta, sem óskorað sjálfstæði
tryggir okkur Norðmönnum, að
sjá til þess, að Norðmenn standi
að fullu og öllu við þær skuldbind-
ingar, sem Noregur hefur undir-
gengizt í varnarsamvinnu sinni
við vestræn ríki. Þetta á alveg sér-
staklega við um þær skuldbind-
ingar okkar, er varða þátttöku
Bandaríkjanna og eru háðar þeim.
Markmið okkar verður að vera það
að koma í veg fyrir að Noregur
færist neðar í röð þeirra landa,
sem hlotið hafa loforð um hernað-
araðstoð. Þeim Norðmönnum, sem
ekki hefur enn skilizt nauðsynin á
þessu, skal bent á að lesa aftur
yfir Nixon-kenninguna frá 1969,
þar sem segir skýrt og skorinort,
að enda þótt Bandaríkin muni
ekki bregðast þeim samnings-
bundnu skyldum, sem þau hafi
gengist undir gagnvart öðrum að-
ildarríkjum Atlantshafsbanda-
lagsins, muni þau þó fyrst og
fremst hjálpa þeim löndum, sem
eru reiðubúin til þess að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til þess
að hjálpa sér sjálf.
Nils Örrik rar prófessor í stjórn-
málafræóum rið Háskólann í Osló
en er nú forstöðumaður rann-
sóknastofnunar í alþjóðamálum rið
Queen's-háskóla í Kingston í
Ontario-fylki í Kanada.
ÞAKIÐ ER
FIMMTA HLIÐ
HÚSSINS
Pök húsa þurfa að vera í samræmi við lögun þeirra
og umhverfi. Shingel þakskífurnar frá Isola eru
fáanlegar í mismunandi formum og litum. Pess vegna
er auðvell aö velja þá tegund sem hentar hverju húsi.
Norrænt veðurfar gerir kröfur til þess að þök húsa
séu þolin. Reynslan hérlendis sýnir að Shingel
þakskífurnar þola vel íslenska veðráttu. Tvöföld
líming skífanna tryggir endingu og sterka límingu við
samskeyti. Skífurnar hleypa frá sér raka, þola þunga
og snjó. Hægt er að leggja þær á mismunandi undirlag.
Ásetning er einföld. Nákvæmar leiðbeiningar fylgja
svo flestir ættu að geta lagt þakskífurnar sjálfir á þök sín.
Shingel þakskífurnar fullnægja ströngustu kröfum um
brunavarnir á Norðurlöndum.
BYggmgavöraverslun
Tryggva Hannessonar
BYGGINGAVÖRUR] Síðumúla 37,
símar 83290 og 83360
Kork-o-Plast
Gólf-Gljái
Fyrir PVC-filmur, linoleum,
gúmmí, parket og steinflísar.
CC-Floor Polish 2000 gefur end-
ingargóða gljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Berið CC-Floor Polish 2000
óþynnt á gólfið með svampi eða
rakri tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt.
Látið þorna í 30 mín.
Á illa farin gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
Til að viðhalda gljáanum er nóg
að setja í tappafylli af CC-Floor
Polish 2000 í venjulega vatnsfötu
af volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er best
að nota R-1000 þvottaefni frá
sama framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða önnur
sterk sápuefni á Kork-o-Plast.
Kinkaumboð á íslandi:
Þ. Þorgrímsson & Co.,
^rmúla 16, Reykjavík, s. 38640.
[NÝ ÞJÖNUSTÁ
plOstum vinnuteikningar. ^
verklvsingar, vottorð, s&S.
MATSEÐLA. VERÐLISTA,
KE
Tll
VM
FR
s
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR.
VERKLVSINGAR, VOTTORÐ.
MATSEDLA, VERÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR. ~
TILBOÐ. BLAÐAURKLIPPUR.
VIEHIRKENNINGARSKJÖL. UÚSRITUNAR.
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRE); BREJDD ALLT AD 63 CM
LENGD OTAKMORKUÐ.
OPIO KL 9-12 OG 13-18.
□ISKORT
HJARÐARHAGA 27 S22680^