Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
23
Litli pilturinn, sem hér er verið aö vigta, er eitt af fórnarlömbum hungurs-
neyöarinnar í Afríku.
Hungursneyðin í Eþíópíu:
Deyja 900 þúsund
fyrir lok
Addis Ahaha, Mekelle, 8. nóvember. AP.
HAFT er eftir vestrænum stjórnar-
erindreka, sem hefur fylgst náiö
meö hjáiparstarfinu f Eþíópíu, aö um
900.000 manns kunni aö láta lífið á
þessu ári vegna hungursneyðarinnar
í landinu.
Fréttaritari AP, sem kom til
bæjarins Mekelle, þar sem stjórn-
völd og Rauði krossinn hafa komið
upp nokkrum sjúkrastöðvum, seg-
ir að 36 þúsund manns hafi leitað
þar hjálpar, en sl. hálft ár hafi um
50 manns dáið í bænum á degi
hverjum. Það þýðir um 9.000
manns hafa látist í þessum bæ
einum og er hann þó aðeins einn
margra á þurrkasvæðinu. Er talið
að um sex milljónir manna séu
ársins?
fórnarlömb þurrkanna.
„Hingað koma 400—500 manns
á hverjum degi," segir Dagne
Gurmu, sem stjórnar hjálpar-
starfi stjórnvalda á staðnum.
„Flestir koma allslausir, án klæða,
án matar, án dýra.“
Greint var frá því í Addis Ab-
aba, höfuðborg Eþíópíu, að
Austur-Þjóðverjar hefðu bæst í
hóp þeirra þjóða, sem liðsinni
veita í hjálparstarfinu. Munu þeir
senda fjórar flugvélar með mat-
væli til borgarinnar Assab, þar
sem er miðstöð erlenda hjálpar-
starfsins, og enn fremur til bæj-
anna Mekelle og Axum í norður-
héraðinu Tigre.
Eldislax drepst í Noregi
Osli, 8. nóvember. Frá Jan Krik Lnure frétUriUra Mbl.
Á síöustu sex vikum hafa um 17.000
eldislaxar í fiskeldisstööinni í Löd-
ingen viö Nordland drepist, og er
tjóniö metið á um 800 þúsund krón-
ur norskar, eða 3,2 milljónir ís-
lenzkra króna.
Talið er að hér sé á ferðinni
svokölluð „Hitra-sýki“, sem sting-
ur sér niður við og við í Noregi.
Selja átti eldislaxinn á næsta
ári og 1986. Tjónið er tilfinnanlegt
fyrir eiganda eldisstöðvarinnar,
en líklega kemst hann þó hjá
gjaldþroti.
Fjaðrafok út af loð-
kápu fegurðardísarinnar
Lundúnuni, 8. nóvember. AP.
MIKIÐ fjaörafok er nú í Lundún-
um í kjölfarið á því aö fulltrúi Bóli-
víu í keppninni „Ungfrú Alheim-
ur“, Erika Weise, mætti til fagnaö-
ar þar í borg íklædd dýrindis kápu
úr hlébarðaskinni. Etýraverndun-
arsamtök hafa fordæmt stúlkuna
harðlega og mikil blaöaskrif hafa
verið.
Hin 160 ára gömlu Konung-
legu dýraverndunarsamtök hafa
látið mest til sin taka og tals-
maður þeirra, Liz Coats, sagði i
dag: „Við erum mjög mótfallin
því að feldir dýra séu teknir til
að gera úr munaðarflíkur handa
mannfólki. Auk þess er hlébarð-
inn i bráðri útrýmingarhættu og
því enn frekar óverjandi að
deyða þá til þess að skrýða káp-
ur með feldi þeirra.“
Hin 21 árs gamla ungfrú
Weise var afar móðguð vegna
alls umstangsins og sagði: „Bóli-
víumenn eru miklir dýravinir, en
engir harðlínumenn í dýravernd.
Breskar konur spranga um allt i
svona kápum, hví skyldi ég þá
ekki mega það líka?“
Julia Morley, framkvæmda-
stjóri fegurðarsamkeppninnar
reyndi aftur á móti að lægja öld-
urnar með því að gera opinbera
sögu hlébarðans og kápunnar.
Þannig er nefnilega mál vexti að
sögn ungfrú Morley, að faðir Er-
iku Weise er læknir að atvinnu.
Einu sinni kom hann f þorp eitt
lítið og þar var fjöldi barna að
dauða kominn vegna alvarlegs
sjúkdóms. Eigi að siður tókst
lækninum að bjarga Iffi barn-
anna og í þakklætisskyni færðu
þorpsbúar honum hlébarða-
skinnið sem hann síðan gaf dótt-
ur sinni. Svo mörg voru þau orð.
Virkni hinna virku náttúruefna beta-carotene-canthaxanthin
er þaulreynd vísindalega af húösérfraBÖingum í mörgum
iöndum, m.a. í Danmörku, þar sem mjög athyglisveröar
niöurstööur hafa fengist eftir itarlegar rannsóknir. Tilraun-
imar syndu allar aö jafnvei fófk meö mjög Ijosfælna húö gátu
eftir 3j-4ra vikna kúr stundaö útilff og sólböö þar sem litarefn-
in sem verja húöina jukust og styrktust og húöin varö
eölilega brún og varöi sjálfa sig gegn skaölegum geislum
sólarínnar og sólbruna.
MARGT HEFUR VERIÐ REYNT
— LOKSINS ER ÞAÐ KOMIÐ!
SUN-LIFE
TIL ÍSLANDS
SUN-LIFE er nýtt náttúruefni sem örvar
litarefni húðfrumunnar og myndar nátt-
úrulegan brúnan lit, jafnvel þegar sólar
ekki nýtur. í Ijósabekkjum færðu fallegan
brúnan lit á helmingi skemmri tíma en
ella. í sterkri sól náttúrunnar geturöu
baðað þig eins lengi og þú vilt án þess aö
brenna og þú sparar þér fituga sólar-
áburði. SUN-LIFE hentar öllum húðteg-
undum. Taktu SUN-LIFE hylki fyrir sól-
baöiö og vertu auöveldar brún(n). Brúni
liturinn helst lengur meö SUN-LIFE.
SUN-LIFE fæst í lyfjaverslunum, snyrti-
vörubúðum, sólbaösstofum og hár-
greiðslu- og snyrtistofum.
Einkaumboð á íslandi:
M.Guömundsson og co ■ 21850 — 19112.
Pillsbury's Best HVEITI
5 Ibs lcr. 53.90
RÆKJUR
1 kg. kr. 195,-
STRÁSYKUR
2 kg, kr. 24,50
PAPPCO
WC pappír 12 rúllur kr. 112,00
ERAMSMAM kartöflur
1500 gr. kr. 97,90
700 gr. kr. 46,50
AKRA sm|örlíki
kr. 31,90
IUXUS kuHi
1/2 kg. kr. 54,90
JARBABER
1/1 dós kr. 68,90
ORA
Græn baunir 1/1 dós kr. 28,90
Græn baunir 1/2 dós kr. 17,95
Græn baunir 1 /4 dós kr. 13,90
Bak baunir 1/1 dós kr. 51,30
Bak baunir 1/2 dós kr. 36,20
Bak baunir 1/4 dós kr. 25,90
PIXAM þvotfuefai
900 gr, kr. 68,90
FRÓM kex
Súkkulaði María kr. 31,90
Hnetu kremkex kr. 29,90
Niðursoðnir ávextir frá
PEL MAMTE
Perur 1/1 dós kr. 71,70
Perur 1 /2 dós kr. 40,90
Bland ávextir 1/1 dós kr. 81,90
Bland ávextir 1 /2 dós kr. 53,60
Ferskjur 1/1 dós kr. 71,70
Ferskjur 1 /2 dós kr. 40,90
(^ tferskm er kjarabót
HAMRABORG 10 0 41640 og 43888