Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 49
49
sínar helgustu stundir, hlýja og
umhyggja í hennar garð var ein-
kennandi þáttur í fari hans.
Sævar var lipurmenni hið mesta
bæði í starfi og leik og til hans var
leitað þegar mikið lá við. Hann
var ljúfmenni í öllum íþrótta-
legum samskiptum, sannur íþrótt-
amaður, sem sárt er að sjá á bak,
en einn er sá sem ræður, einn er sá
sem framfylgir lögunum miklu,
við hann verður eigi deilt, hann
lætur leik ljúka, hann hefur leik
að nýju. Megi hans dýrðarljómi
umvefja þig, megi hönd hans leiða
þig, hafðu, vinur, þökk fyrir allt og
allt.
Við Sigrún sendum þér, Júlíana
Ruth og dætrunum, okkar dýpstu
samúðarkveðjur og við biðjum al-
góðan Guð að vera ykkur huggun
og skjól í ykkar mikla missi.
„Hér þótt lífið endi,
rís það upp í Drottins dýrðarhendi."
M. Joch.
Rafn Hjaltalín
í dag verður til moldar borinn
mágur minn, Sævar Sigurðsson,
bifreiðastjóri. Hann andaðist 43
ára gamall. Góður og dugandi
drengur hefur kvatt, langt um ald-
ur fram.
Sigursteinn Sævar Sigurðsson
eins og hann hét fullu nafni fædd-
ist í Reykjavík 17. maí 1941. Hann
var næstelstur 11 barna er á legg
komust, hjónanna Margrétar Sig-
urðardóttur og Sigurðar Stein-
dórssonar, Réttarholtsvegi 57.
Fundum okkar Sævars bar fyrst
saman fyrir um það bil 22 árum.
En kynnin urðu nánari þegar ég
giftist systur hans nokkrum árum
síðar. Á fyrstu starfsárum sínum
var Sævar sjómaður en seinna
lagði hann fyrir sig bifreiðaakstur
og gerði hann að ævistarfi sínu og
vann um árabil hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar. Fyrir um átta
árum keytpi hann sér sendibíl og
stundaði sendibílaakstur á eigin
vegum eftir það til dauðadags.
Sævar eignaðist marga góða
viðskiptavini, hann var lipur og
kurteis og ávann sér traust þeirra
og virðingu.
9. júní 1962 kvæntist Sævar
konu sinni, Júlíönu Ruth Sigurðs-
son, sem lifir mann sinn ásamt 4
dætrum þeirra, Arndísi, Margréti,
Erlu og Bryndísi. Þau eignuðust
fallegt heimili í eigin húsi og
bjuggu vel að börnum sínum.
Utan síns daglega starfs átti
Sævar áhugamál er var knatt-
spyrna og helgaði hann henni all-
ar frístundir sínar. Hann var virk-
ur félagsmaður í íþróttafélaginu
Fylki og starfaði mikið fyrir það
félag. Hann tók dómarapróf og
dæmdi fjölda knattspyrnuleikja í
öllum aldursflokkum. Síðustu árin
var hann dómari í fyrstu deild. Á
sl. sumri hlotnaðist honum sá
heiður að verða útnefndur milli-
ríkjadómari. Knattspyrnan var
sameiginlegt áhugamál okkar
beggja og áttum við margar
ánægjustundir saman, ýmist á
kappleikjum eða á spjalli um
knattspyrnu.
Á þessari stundu er mér efst í
huga þakklæti til Sævars fyrir
þann hlýhug og hjálpsemi sem
hann sýndi okkur hjónum og börn-
græskulaus kímni verða þeim öll-
um minnisstæð. Bræðurnir Krist-
ján og Jónas, synir Kristjönu,
ásamt þeim Magnúsi og Erling,
sonum Elísabetar, sjá á bak elsku-
legum frænda og ljúfum leiðbein-
anda.
Þungbærastur verður þó sökn-
uður þeirra systkinanna Kristjönu
og Sigfúsar, sem gengu með hon-
um lífsbrautina í gleði og sorg.
Síðustu tvö árin hafa þeir bræð-
urnir búið saman á heimili aldr-
aðra, Höfða á Akranesi. Þar hafa
þeir unað hag sinum vel eftir
ástæðum, enda er Kristjana systir
þeirra starfsmaður þar og hefur
því haft aðstöðu til að líta til með
þeim í veikindum þeirra. Víst er,
að nærgætin umönnun þeirra
Kristjönu og Elísabetar, fóstur-
dóttur þeirra systkinanna, hefur
létt Magnúsi hans erfiðu sjúk-
dómslegu.
Kynni okkar Magnúsar hófust
fyrir nær þrjátíu árum. Allan
þann tíma sem síðan er liðinn, má
segja að ég hafi verið þiggjandinn,.
< I
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
um okkar. Foreldrum sínum
reyndist hann góður sonur, ég bið
þann sem yfir okkur vakir að
styrkja þau og blessa. Eiginkonu,
dætrum, foreldrum, tengdamóður
og öllum ástvinum votta ég mína
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Sævars Sig-
urðssonar. 0 .
Ragnar Geirdal
Þegar maður sest niður til þess
að skrifa fáein minningar- og
þakkarorð til Sævars Sigurðsson-
ar, þá hikar maður ósjálfrátt.
Hvar á að byrja og hvar á að
enda?
Sævar heitinn bjó í Árbæjar-
hverfi í Reykjavík og þegar mótun
íþróttafélagsins Fylkis stóð yfir
gekk hann til liðs við félagið. Sæv-
ar var einn af traustustu stoðum
félagsins og með jafnaðargeði
vann hann ómetanleg störf í þágu
þess. Ég veit ekki tölu á öllum
þeim leikjum sem Sævar dæmdi,
en ég fullyrði að hann gat sér góð-
an orðstír á þeim vettvangi og
komst í hóp þeirra dómara sem
mest réttindi áunnu sér. Sævar
var ákaflega bóngóður maður og
trúlega hefur ekki alltaf staðið vel
á þegar hann gegndi störfum í
þágu félagsins. Sævar hlaut viður-
kenningu fyrir störf sín í Fylki og
dómarafélaginu. Með Sævari er
genginn góður drengur, duglegur
félagsmaður og sanngjarn dómari.
Skarð það sem hann lætur eftir
sig í röðum okkar Fylkismanna
verður stórt og vandfyllt, en störf
hans verða áreiðanlega yngri
mönnum hvatning til að feta f
fótspor hans.
Ruth og dætrunum sendi ég
innilegar samúðarkveðjur og vona
að minningin um góðan dreng
verði þeim huggun harmi gegn.
Theódór Óskarsson
Hann Sævar dómari er dáinn!
Þessi fregn kom eins og reiðar-
slag, okkur setti hljóða, hann, sem
var með okkur á fundi fyrr í vik-
unni hress að því best við sáum.
Knattspyrnudómarafélag
Reykjavíkur á Sævari margt að
þakka. Hann var í stjórn félagsins
og sem formaður í eitt ár og þegar
leitað var til hans með eitthvert
verkefni, sama hvort það var að
dæma leiki eða vera prófdómari
fyrir KDR eða lána krafta sína á
annan hátt, var hann boðinn og
búinn til þess, því hjálpsemin var
eitt af hans bestu einkennum.
Sævar Sigurðsson tók knatt-
spyrnudómarapróf árið 1970 og á
síðastliðnu sumri var hann út-
nefndur milliríkjadómari.
Lengra er ekki hægt að komast
á knattspyrnuferlinum sem dóm-
ari og segir það allt um það hvern-
ig dómari Sævar var.
Hann var ákveðinn við leik-
menn en það var alltaf stutt í
brosið, enda var borin virðing
fyrir honum bæði innan valla sem
utan.
Við hið skyndilega fráfall Sæv-
ars er höggvið stórt skarð í raðir
okkar dómara, við misstum góðan
vin og hjálpsaman félaga, og verð-
ur það skarð vandfyllt.
Éiginkonu og börnum sendir
Knattspyrnudómarafélag Reykja-
víkur sínar dýpstu samúðarkveðju
en Magnús gefandinn. Fyrir
nokkrum árum stóð ég í húsbygg-
ingu, eins og hendir. Fyrr en varði
stóð hann þar með hamarinn sinn,
hæglátur og ljúfur eins og honum
var lagið, en ráðagóður og útsjón-
arsamur, þótt kraftarnir væru
farnir að linast og sjónin á undan-
haldi. Hjálpin var, eins og venju-
lega, veitt af heilum hug og hlýju
hjarta. Þannig munu og flestir
hans gömlu samstarfsmenn og
sveitungar minnast hans í dag.
Dauðinn birtist okkur jarðar-
innar börnum í ýmsum myndum.
Stundum kemur hann til okkar
sem þungbært högg, lamandi og
meiðandi, en í annan stað kemur
hann líka sem hin líknandi hönd,
berandi með sér kærkomna hvíld,
þreyttum og lasburða. Slíkur mun
dauðinn hafa birst Magnúsi vini
mínum, og er það vel.
Góður samferðamaður er geng-
inn. Hafi hann einlæga þökk fyrir
samfylgdina.
Hafsteinn Snæland
og um leið er Sævari þökkuð sam-
veran í starfi og leik.
Stjórn KDR
Fimmtudaginn 1. nóvember sl.
bárust okkur félögum Sævars Sig-
urðssonar í knattspyrnudómara-
stétt þau hörmulegu tíðindi að
hann væri látinn.
Það er erfitt fyrir okkur að trúa
þessu, ekki síst okkur, sem um-
gengumst hann næstum daglega.
Fjórum dögum áður var hann í
okkar hópi, er hans besti vinur
hélt okkur og fleirum veislu. Hann
var einnig á árlegri hátíð knatt-
spyrnudómara næsta dag, þar sem
við ræddum um undirbúning
næsta keppnistímabils og lagði
hann þar ýmislegt til málanna.
Áhugi Sævars á málefnum
okkar dómara var mjög einlægur
enda var hann kominn í fremstu
röð íslenskra knattspyrnudómara
og hafði verið þar um margra ára
skeið.
Sævar Sigurðsson tók knatt-
spyrnudómararéttindi árið 1968
og tók þá þegar mjög virkan þátt í
starfinu, sem dómari og þá ekki
síður í félagsmálum okkar, hann
átti um tíma sæti í stjórn
Knattspyrnudómarafélags
Reykjavíkur og var m.a. formaður
þess um skeið.
1973 hlaut Sævar landsdómara-
réttindi og var skipaður dómari í
1. deild 1976 þar sem hann starf-
aði óslitið síðan.
Að loknu keppnistímabilinu
1983 var Sævar valinn annar besti
dómari 1. deildar af leikmönnum, í
greinargerðum leikmanna frá ein-
stökum félögum var þess sérstak-
lega getið, hvað hann væri róleg-
ur, yfirvegaður og þægilegur í við-
móti. Það kom einnig fram í
blaðagreinum, þegar gerð var
grein fyrir störfum hans sem
dómara.
Keppnistímabilið 1984 hóf hann
með glæsibrag þegar Dómara-
nefnd KSÍ fól honurn að dæma
fyrsta stórleik ársins, Meistara-
keppni KSÍ 1984.
Nokkru síðar var hann svo til-
nefndur Alþjóðadómari (FIFA-
dómari), þetta varð honum mikil
lyftistöng og hann undirbjó sig vel
fyrir verkefni sumarsins.
Stjórn KDSÍ valdi Sævar ásamt
Guðmundi Haraldssyni til að sitja
Evrópuráðstefnu alþjóðadómara,
sem fram fór í Austur-Þýskalandi
í ágúst sl.
Ég leyfi mér að fullyrða, að
traustari mann geta vart nokkur
félagasamtök átt innan sinna vé-
banda.
Sævar var alltaf, frá því hann
gekk til liðs við okkur dómara, í
hópi þeirra félaga okkar, sem
aldrei hafnaði beiðni um að taka
að sér dómara- eða línuvarðar-
starf, það skipti ekki máli hvort
það var í 1. deild eða í 6. aldurs-
flokki, hann virtist alltaf hafa
tíma fyrir þetta hugðarefni sitt.
Fyrir hönd okkar, íslenskra
knattspyrnudómara, færi ég Sæv-
ari bestu þakkir fyrir samveruna í
blíðu og stríðu og kveð kæran vin.
Við sendum þér, Rut, og dætr-
unum, hugheilar samúðarkveðjur
og biðjum Guð að gefa ykkur
styrk.
f.h. Knattspyrnudómara-
sambands Íslands, Grétar
Norðfjörd.
Fyrir þá sem ekki voru vaknaðir þegar Úlfar
Eysteinsson á POTTINUM OG PÖNNUNNI
kom i morgunútvarþið og sagði frá kynnum
sinum af Pekingöndum birtum við hér
uppskrift hans, þvi það er ekki sama
hvaða tökum Pekingönd er tekin.
Pekinganda krydd: (fyrir ca. 4 — 5 endur).
1 bolli sykur
1 bollisalt
(Sama kornastærð afsykri og salti, annars minna salt.)
1 /2 bolli kjúklingakrydd. (Eurospice, Lederhausen)
1 matsk. paprikuduft
Matreiðsla:
Kryddið öndina og setjið inn í 190° heitan ofn. Steikið í 15 mín. með
bringuna upp, snúið öndinni við og steikið í 15 mín. Hellið fitunni af og
geymið fyrir sósuna, kryddið öndina aftur og steikið í 30 mín. (miðast við
1900gr. önd).
Sósa:
Brúnið innmatinn og vængendana ásamt niðurskornum lauk og gulrót
hellið vatni yfir og sjóðið. Rífið appelsínubörk og kreistið appelsínu út
soðið eftir að hafa sigtað það. Búið til smjörbollu úr andafitunni
(hveiti + andafita) bætið sósulit og kjötkrafti útí.
Ef ekki er nóg appelsínubragð af sósunni má bæta hana með sykur
lausu Egils appelsíni.
ísfugl
Fuglasláturhúsið að Varmá
Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Sími: 91-666103