Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 Aukið gæðaeftirlit hjá Long John Silvers: Fylgst náið með framleiðslu ein- stakra frystihúsa AUKIÐ gKftaeftirlit hji veitingahúsa- keújunni Long John Silvers í Banda- ríkjunum, stærsta viðskiptavini Coldwater þar, hefur valdið nokkrum erfiðleikum og hœgt á veltu flaka- birgða. Gæðakröfur hafa samkvæmt því ekki verið fyllilega uppfylltar við framleiðslu flaka hér heima. Hefur Long John Silvers meðal annars ákveðið að fylgjast með framleiðslu einstakra frystihúsa bér heima vegna þess. Magnús Gústalsson, forstjóri Coldwater, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins, að sérstakar ástæður lægju að baki þessu herta gæöaeftirliti hjá Long John Silv- ers. Það stafaði meðal annars vegna síaukinnar samkeppni um viðskiptin við þenna stærsta kaup- anda þorskflaka í Bandaríkjunum. Þær kröfur, sem Long John Silv- ers setti um gæði miðuðust meðal annars við fjölda fiskstykkja í vafningum í fimm punda pakkn- ingunum, nákvæmni f vigtun og pökkun. Hins vegar væri það ljóst, að gæðakröfur væru ekki nægilega vel uppfylltar við framleiðsluna á íslandi og því hefði dregið út veltu- hraða birgða hjá fyrirtækinu. Það væri aldrei nægilega brýnt fyrir framleiðendum að vanda fram- leiðslu sína, hvort sem hún væri ætluð stærri eða smærri viðskipta- vinum. Gæðin væru lykillinn að árangri í markaðsmálum og honum mætti ekki glata. Það virtist sem gæðum fyrir Long John Silvers væri af þessum sökum ábótavant * Alyeríð: Hærri samningar SAMNINGAR um kaup og kjör í álverinu í Straumsvík tókust snemma í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum Mbl. munu kauphækk- anirnar, sem samió var um, vera talsvert hærri en almennt hefur náðst samkomulag um á vinnumark- aðnum að undanförnu. Ekki tókst í gærkvöldi að fá nákvæmar upplýsingar um efnis- atriði samningsins. Þeir verða bornir undir atkvæði í viðkomandi stéttarfélögum fljótlega eftir helgi. hér heima, en fyrirtækið hefði f sumar sett upp sérstaka skoðun- arstöð og væri nú að fylgjast með framleiðslu einstakra frystihúsa hér heima. íssöluhús í Bankastræti BORGARRÁÐ befur fyrir sitt leyti fallist á staösetningu íssöluhúss við Bankastræti, samkvæmt umsókn frá íshöllinni sf., sem er umboðsaðili fyrir „Kings Ice“. íshöllin óskaði eftir leyfi til að staðsetja „Kings Ice“ fssöluhús f miðborginni með bréfi frá 14. sept- ember sl. Heilbrigðiseftirlit hafði fyrir sitt leyti heimilað rekstur, þ.e. sölu á ís og skyldum varningi f um- ræddu issöluhúsi, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Simamynd/AP Á Hippodrome í gærkvöldi. Frá vinstri: Unnur Steinsson, David Jensen, Berglind Johansen, Anna Margrét, David Stringfellow og Guðrún Möller. Aftari röð, frá vinstri: Haraldur Sigurðsson, Þórhallur Sigurðsson og Björgvin Halldórsson. íslandskynning í Lundúnum bófst í gær á hinu þekkta diskóteki Hippodrome með blaðamannafundi þar sem fjölmargir blaðamenn frá mörgum helstu blöðum Bretlands voru mættir. Kynnir á fundinum með blaðamönnum var Peter Stringfellow og kynnti hann nýa fs- landsmynd, sem tekin var í fyrri viku. Hinn kunni útvarpsmaður, íslandskynning í Bretlandi David Jensen, kom fram, svo og „Ungfrú ísland“ þrjú síðastliðin ár, þær Guðrún Möller, Unnur Steins- son og Berglind Johansen. Þá kom Anna Margrét, fulltrúi ungu kyn- slóðarinnar 1984 fram og sýndu þær íslenzkan fatnað. Björgvin Halldórsson söng, svo og HLH-flokkurinn. Reiknað var með um 2.000 manns á íslands- kynninguna í Hippodrome f gær- kvöldi. íslandskynningar voru f Edinborg og Birmingham f vik- unni. Að sögn Jóhanns Sigurðs- sonar sölustjóra Flugleiða á Englandi þá tókust kynningarnar ákaflega vel og hafa vakið athygli á landi og þjóð. Fjölmiðlar hafa gert kynningunni góð skil og hafa fjölmargar fyrirspurnir borist. Fyrstu níu mánuðir ársins: Fluttar út sjávarafurðir fyrir tólf milljarða króna — mest aukning í mjöli og lýsi en samdráttur í skreið HEILDARÚTFLUTNINGUR sjávarafurða í september nam 23.745 tonnum að verðmæti 1.153 milljónir kr. en fýrstu nfu mánuði ársins voru flutt út 369.594 tonn af sjávarafurðum að verftmæti 11.905 milljónir kr. ÞetU límabil var hlutfall sjávarafurfta tæp 71,9% landinu. Fyrstu níu mánuði ársins 1983 voru flutt út 252.120 tonn af sjáv- arafurðum að verðmæti 9.482 milljónir kr. Við samanburð verð- ur að hafa það í huga að meðal- gengi erlends gjaldeyris í janúar til september er talið vera 19,7% hærra en það var á sama timabili 1983. Verðmæti frystra afurða var 6.699 milljónir kr., saltaðra afurða 2.459 milljónir kr. en svipað var flutt út af þessum vörum í tonnum talið og á sama tíma f fyrra. Flutt voru út 146 þúsund tonn af mjöli og lýsi að verðmæti 1.701 milljón kr. en á sama tíma í fyrra voru af heildarverðmæti útfluttra vara frá aðeins flutt út 39 þúsund tonn af mjöli og lýsi fyrir um 313 milljón- ir kr. Hinsvegar voru á þessu tímabili aðeins flutt út 122 tonn af hertum afurðum að verðmæti tæplega 21 milljón kr. en á sama tímabili í fyrra voru flutt út 3.199 tonn af hertum afurðum að verð- mæti 360 milljónir kr. Fyrstu níu mánuði ársins voru sjávarafurðir mest fluttar út til Bandaríkjanna. Var verðmæti út- flutnings þangað 4.276 milljónir kr. Bretland var næst mikilvæg- asta viðskiptalandið sem fyrr en þangað voru fluttar sjávaraafurð- ir að verðmæti 1.488 milljónir kr. Þá komu Sovétríkin, en þangaö var flutt út fyrir 1.163 milljónir kr. Athygli vekur að mikil aukn- ing hefur verið f útflutningi til Japans, Danmerkur og Finnlands og eru þessi lönd nú komin f hóp tíu mikilvægustu viðskiptalanda okkar miðað við verðmæti sjávar- afurða og skiptir aukinn útflutn- ingur á lýsi og mjöli til þessara landa mestu máli. Aftur á móti er Nígería ekki lengur f þessum hópi. Fyrstu níu mánuði ársins var verðmæti útflutnings þangað að- eins tæplega 40 milljónir kr. sem er aðeins um einn tíundi hluti út- flutnings þangað á öllu síðastliðnu ári. Fiskifélag Islands áætlar að heildarverðmæti birgða sjávar- vöru hafi verið 4.737,1 milljón kr. þann 30. september síðastliðinn. Jóhann Svarf- dœlingur látinn Dmfrík, 28. nóvember. ÞRIÐJUDAGINN 27. nóvember síðastliftinn andaðist á fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri Svarfdælingurinn Jóhann Kristinn Pétursson, 71 árs aft aldri. Jóhann fæddist á Akureyri 9. febrúar 1913, sonur hjónanna Sigurjónu S. Jóhannsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar sjómanns og síftar bónda í Brekkukoti. Sama ár og Jóhann fæddist fluttist hann ásamt foreldrum sínum til Dalvíkur og síðar í Brekkukot í Svarfaðardal. For- cldrum Jóhanns varð níu barna auðift og var hann þriftji í röftinni. Sökum fjölskyldustærftar var Jóhann fóstraftur upp að nokkru leyti fyrstu árin á Syðra-Hvarfi í Skíðadal hjá hjónunum Oddnýju Þorkelsdóttur og Jóhann- esi Jónssyni bónda. Minntist hann þeirra hjóna æ síftan meft virðingu og þakklæti. Þegar Jóhann var 13 ára mis- sti hann föður sinn og varð þá að hluta til fyrirvinna móður sinn- ar. Gekk hann að ýmiss konar erfiðisvinnu og stundaði meðal annars sjómennsku frá Dalvfk um árabil. Jóhann Svarfdæling- ur, en svo var hann ætfð nefnd- ur, var kunnastur fyrir hæð sfna. Var hann hæsti Islendingur sem sögur fara af og um tíma talinn hæsti maður f heimi og mældist hann 234 sentimetrar. Þar sem Jóhanni gekk erfið- lega að fá atvinnu við sitt hæfi hér heima varð hann að leita fyrir sér á erlendri grund. Árið 1935, þá 22 ára, fór hann til Dan- merkur og starfaði á Norður- löndum og hafði atvinnu af að sýna sig í fjölleikahúsum. Ferð- aðist hann vfða um heim og kom meðal annars fram á heimssýn- ingunni í París 1937. Þegar strfð- ið skall á 1939 lokaðist Jóhann inni f Kaupmannahöfn og var þar öll stríðsárin. 1945 kom hann heim til íslands og ferðaðist vítt og breitt um landið og sýndi kvikmyndir. Aftur hvarf Jóhann að sínu fyrra lfferni og nú vestur um haf til Bandarfkjanna árið 1948 og var þar svo til óslitið til ársins 1982 er hann flutti til ís- lands þrotinn að kröftum. Þrátt fyrir að Jóhann hafi gert víðreist um heiminn hafði hann ávallt sterkar taugar til æskustöðv- anna og hélt góðu sambandi við systkini sín og ættmenni. Má meðal annars geta þess aö þegar Jóhann frétti af byggingu elli- heimilis á Dalvík gaf hann veru- lega fjárupphæð til byggingar- innar. Heimkominn til Dalvíkur varð hann íbúi Dalbæjar, dval- arheimilis aldraðra og hafði þar heimilisfesti til dauðadags. Jóhann Kr. Pétursson mun verða lagður til hinstu hvílu í svarfdælskri mold. Fréttaritarar Miðstjórnarkjör á ASÍ-þingi: Boðið fram gegn lista kjörnefndar ÁRDEGIS í dag verða tilkynnt úrslit f miðstjórnarkjöri 35. þings Alþýftu- sambands íslands, sem fram fór sfft- degis í gær. Talning atkvæða dróst langt fram eftir kvöldi; virtist sem eitthvaft heffti farift úrskeiðis vift hana, þvf upphaflega haffti verift reiknað meft aft úrslit allsherjarat- kvæftagreiðslunnar yrftu Ijós fyrir kvöldmat. Seint í gærkvöld var til- kynnt aft úrslitin yrðu ekki birt fyrr en í upphafi þingfundar f dag. Kjörnefnd þingsins gerði ein- róma tillögu um að fráfarandi mið- stjórn yrði endurkjörin með þeirri undantekningu, að í stað Þórunnar Valdimarsdóttur, sem baðst undan endurkjöri, yrði Ragna Bermann kjörin í hennar stað. Nefndin gerði að tillögu sinni að til viðbótar (í nýja og stærri miðstjóm) yrðu kos- in þau Magnús Geirsson, form. Rafiðnaðarsambandsins, Guðrún Thorarensen, frá Bárunni á Eyr- arbakka, Hansína Stefánsdóttir frá Verslunarmannafélagi Árnessýslu, Kristín Hjálmarsdóttir frá Iðju á Akureyri og Þóra Hjaltadóttir, form. Alþýðusambands Norður- lands. Sjálfkjörin f miðstjórn eru forsetar ASÍ, þau Ásmundur Stef- ánsson, Björn Þórhallsson og Guð- rfður Elíasdóttir. Cr salnum voru gerðar tillögur um fjóra til viðbótar, þar af þrjár konur. Þau fjögur eru Valdfs Krist- insdóttir, form. Verkalýðs- og sjó- mannafélags Stöðvarfjarðar, J6- hanna Friðriksdóttir, form. Snótar f Vestmannaeyjum, Kolbeinn Frið- bjarnarson, form. Vöku á Siglufirði og Málfríður Ólafsdóttir frá Félagi starfsfólks f veitingahúsum. Varamenn í miðstjórn verða kosnir sfðdegis f dag. Sjá nánar um ASÍ-þing á bls. 5. Leiðrétting: Heildargjald fyrir læknis- vitjun 140 kr. 1 LEIÐARA Morgunblaðsins f fyrrdag, sem fjallar um hækk- un tryggingarbóta, kemur fram, að greiðslur samlags- manna í sjúkrasamlögum til samlagslækna skuli vera óbreytt næsta ár, 1985, þ.e. kr. 75.- fyrir viðtal á stofu og kr. 110 fyrir vitjun til sjúklings. Til þess að fyrirbyggja mis- skilning skal fram tekið að auk fastagjalds fyrir vitjun hefur verið greitt jöfnunargjald vegna ferðakostnaðar læknis kr. 30.-, svo heildargjald fyrir vitjun er kr. 140.-.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.