Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 ekki erfiðleik- heldur hvernig brugðist Vandinn er arnir sjálfir við þeim er Nýársprédikun herra Péturs Sigurgeirssonar biskups íslands Vandinn er ekki erfiðleikarnir sjálfir, heldur hvernig við þeim er brugðist. Nýárspredikun í Dóm- kirkjunni. Texti: Matth. 7:7. Áramótin á miðnætti í nótt voru stór og hrifnæm augnablik. Minningar, þakkir og heillaóskir hrannast saman, þegar gamla árið hverfur út í dimmbláan himin- geim og nýja árið kemur að- streymandi, úr almáttugri hendi Guðs, sem ríkir ofar tímans straumi og gefur dag í senn, — eitt augnablik i einu. Tíminn þýtur áfram og hefur ekkert viðnám. Mannsævin er ekki löng í rás aldanna. Um það kvað Matthías: Lífið er fljótt lflct er það elding, sem glampar um nótt ljósi, sem tindrar á tárum titrar á bárum. — Gamla árið er kvatt í minningu þess, er það gaf og tók. Við hugs- um í samúð og bæn til þeirra, sem um sárt eiga að binda vegna slysa, sorga og sjúkdóma. Guð huggi þá, sem hryggðin slær. Hugur okkar er einnig hjá þeim, er giftusam- lega tókst að bjarga úr lífsháska. Gamla árið skilur eftir bæði sárar og sæluríkar tilfinningar, þannig er lífið. Úr þeim þáttum spinna árin, sem koma og fara, æviþráð okkar, — uns silfurþráðurinn slitnar og „maðurinn fer burt til síns eilífðarhúss", eins og Predik- arinn orðar það. (Pred. 12:5). Vegna stórra tímamóta í sögu íslensku Biblíunnar var gamla ár- ið kallað Biblíuár, og vegna þjóð- arátaks í líknarmálum, var það líka hjálparár. Hvorttveggja mun auðkenna nýja árið. Biblíulestur og kirkjuhjálp á samleið frá einu ári til annars. - O - Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið nýja árinu verðugt verkefni með þvf að helga það æsku heimsins: Það hlutverk ársins minnir á, hvað Páll postuli sagði: „Lát eng- an líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra í orði, í hegðun, í kærleika, i trú, f hreinleika." (1. Tim 4:12). Sameinuðu þjóðirnar ákváðu 1975, að tímabil næstu tíu ára yrði helgað stöðu konunnar í heimin- um og jafnréttisbaráttu. Þeim áratug lýkur á þessu nýja ári, og þá verður litið yfir farinn veg og gerðar áætlanir um framtíðina. Við munum hve öflug þessi hreyf- ing var í upphafi árið 1975, svo að varla eru dæmi til um slíka sam- Hr. Pétur Sigurgeirsson stöðu. Kvenréttindahreyfingin felst reyndar í kenningu kristinn- ar trúar. Jesús Kristur sýndi fram á það jafnrétti, sem á að rfkja hjá mönnum, jafnt konum sem körlum. Því vakti hann athygli á eyri ekkj- unnar, og mælti hin máttugu orð við ákveðið tækifæri: Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrsta steinin- um. Jafnrétti karla og kvenna er eitt af því, sem fagnaðarerindið boðar. A ári æskunnar er rétt að ljá því athygli, sem máltækið seg- ir „Höndin, sem hreyfir vöggu barnsins, stjórnar heiminum." - O - Áramótin hafa kveðið sinn sí- gilda óð: „Nú er allt á fljúgandi ferð liðið hjá.“ Hverfleiki tímans opinberar sig, og þá finnum við hve satt það er, sem einn skóla- meistarinn sagði: „Aldrei er meiri þörf á því en nú að eitthvað hald- ist óbreytt." Eitt er það, sem er í gær og i dag hið sama og um aldir, Jesús Kristur. Þar á Guð lokaorðið, er hann læsir gamla árinu, og lykilorðið er hann opnar nýja árið. Oft var ný- ársdagur nefndur átti-dagur, — því að áttundi dagurinn er kominn frá því að við fögnum fæðingar- degi Frelsarans. Lausnarorðið er Jesús. Og hvar sem við nemum staðar á þessum nýársdegi, vill Jesús benda okkur á leið bænar- innar og gefa okkur bæn f ný- ársgjöf. Það var fyrir rúmum tveimur árum, sumarið 1982, að efnt var til hópferðar út f Drangey á Skaga- firði að lokinni prestastefnu á Hólum f Hjaltadal. Eins og kunn- ugt er, er Drangey mjög erfið upp- göngu, enda snarbrött í sjó fram. Þátttakendur gengu upp f einni röð. Á leiðinni varð að ganga yfir einstigi, þar sem ekkert var annað á aðra hönd en þverhníft bjargið. Sagnir herma, að Guðmundur góði Hólabiskup hafi vigt eynna og blessað vegna þeirra mannskaða, sem áttu sér stað, þegar verið var að nytja eyjuna fyrr á öldum. Fyrir ofan einstigið er staður, sem kallast Gvendaraltari, og þar er sá siður frá fornu fari, að menn bæni sig, — áður en lengra er haldið. Næstur á undan mér upp eyjuna var yngsti þátttakandi ferðarinn- ar, drengur úr Skagafirði, að nafni Kristinn. Honum var mikið í mun, að helgisiðurinn við Gvendaraltari færi ekki framhjá neinum. Þegar að altarinu var komið, sneri Krist- inn sér að mér og sagði góðlátlega: „Hér áttu að biðja Faðir vorið þitt.“ Þessu atviki gleymi ég ekki. Og það er einmitt þetta sem krist- in kirkja vill segja við okkur öll á nýársdegi: Hér átt þú að biðja Faðir vorið þitt, gera bæn þína, fela Guði líf þitt, framtíð þína. Hætturnar, sem við þurfum að lifa við á ævinnar braut — eru ekki síður hið innra f hugarheimi okkar, en hið ytra eins og við upp- gönguna í Drangey. Þær ógnir og hættur átti Bólu-Hjálmar við, þegar hann kvað á jólum 1871: Leitt hefir mig þin liknarhönd lífs á fallhættu stræti greitt mín vandræða gjörvöll bönd glatt lif og önd gefið mér oft meðlæti. - 0 - Þetta stræti er nýársdagsins sem annarra daga þegar við skoð- um líf okkar í grunninn og þekkj- um aðstæður, er kunna að vera fyrir hendi. Það er því gott að hafa altari, er minnir mann á að gera bæn sina f voða, vanda og þraut: „Yfir mér virstu vaka og vara á mér taka.“ Þrátt fyrir allt, sem heimurinn hefir uppá að bjóða, er maðurinn ekki hamingjusamur fyrr en hann Tískusýning í kvöld kl. 21.30 i Éá Módel- samtökin sýna HÓTEL ESJU KAUPÞING HF O 68 69 88 í d« / • a sc Gleðilegt nýtt ár! ■sember seldum við flestar 2ja og 3ja herb. íbúðir iluskrá okkar. Nú vantar okkur allar gerðir eigna á skrá — reynið viðskiptin. 'ekking og örgggi ífgrirríimi. . rMI i|l 1 i HKAUPÞING HF " iwaardaga og aunnud»9» Húsi Verzlunarinnar. simi 68 69 88 Sölumenn: Siguröur Dagbjartsson hs. 62 13 21, Hallur Páll Jónsson hs. 4 50 93, Elvar Guöjónsson viöskfr. hs. 5 48 72. finnur Guð og lifir í samfélagi við hann og hamingjuna á enginn einn. „f veröld eru margir stfgir hálir.“ — Enginn blettur á jarð- ríki er laus við miklu ófriðarhætt- una, hið sama er hægt að segja um áfengis- og fíkniefnabölið og eng- inn losnar sjálfkrafa frá sektar- kennd. Einmanaleiki þrúgar mannssálina. Lífsbyrðin verður á stundum svo þung að hún vekur löngun til sjálfstortfmingar. Er til nokkurt ráð við þessu? Já og aftur já. Ráðið er bænin. Kannski viltu segja: Ég hefi reynt það, en stend þó í sömu sporum. Hefur þú þá gert þér fyllilega grein fyrir, hvað bæn er? Verk- færi nýtist ekki nema vitað sé, hvernig á að nota það. - O - f bæninni ert þú að koma til Guðs, sem tekur á móti þér i faðm sinn — og þar finnur þú, að hann þjáist með þér. Það er merkið um elsku hans, sem er hið eina, sem getur fjarlægt ótta og kvíða í sál þinni — og hann mun finna fótum þínum forráð. Forsjónina sér mað- ur ekki fyrirfram, en henni verð- um við að treysta. Vandinn er ekki erfiðleikarnir sjálfir heldur hvernig við þeim er brugðist. Minnstu mótbárur geta orðið risavaxnar í augum okkar ef við notum ekki ráðið til þess að lægja þær. Sama er að segja um stóru áföllin — almáttug hönd hefir ráð við þeim, ef þeirrar hjálpar er leitað, einsog að trúin flytur fjöll erfiðleikanna. Hugsum okkur skip, sem er að koma að landi. Hvað gerist þegar kastað er út landfesti? Ekki drög- um við landið að skipinu, heldur skipið að landinu. Þetta er leynd- ardómur bænarinnar sem við höf- um kannski ekki athugað nógu vel. En Kristur kenndi það þegar hann bað: „Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.“ (Matth. 26:39.) í þeim anda var það, sem Frans frá Assisi bað: Drottinn lát mig vera verkfæri friðar þíns hjálpa mér til þess að leiða inn kærleika þar sem hatur ríkir, trú, þar sem efinn ræður, von, þar sem örvænting drottnar. Það leysast mörg vandamál á fyrsta degi ársins með slíkri bæn af hjarta. Frelsun frá hinu illa byggist á staðfastri bæn: Ég vil, ó ég vil verða þér líkur ó Frelsari minn. Þegar seinni heimsstyrjöldin var nýskollin á 1938 skrifaði Ei- vind Berggrav Oslóarbiskup hingað til lands og sagði: „Spennum alla jörðina megin- gjörðum bænarinnar. Bænin er máttugast afla í heimi hér, mátt- ugra en nokkurt afl, sem vísindin hafa leitt í ljós. Þetta afl hefir Guð gefið kirkju sinni.“ Eins og kirkjur heimsins eru nú í fylkingarbrjósti við hjálparstörf- in í Eþíópíu, er þess að vænta, að öll kristnin hverrar kirkjudeildar sem er nái saman — spennum greipum um allan heim í bæn um frið á jörð. Látum ekki vera skarð í þeim bænahring á fslandi. Grikkir kölluðu manninn „an- þropos" sem þýðir sá sem horfir upp. Mannkynið hefir á vissum sviðum haft hæfileika til þess að hefja sig upp yfir aðrar verur á jörðinni. En það skortir á, að mennirnir hafi leitað alla leið upp — upp til Guðs, til þess að geta bundist friðarvilja hans og komið honum niður á jörðina. Til Guðs til Guðs er kallið knýr hvað kemur dufti við að mögla, þegar Drottinn dýr sín dýrðar opnar hlið. Þegar Jesú-bænin leiðir okkur alla leið til Guðs, þá fer það eftir, sem i bæninni stendur: „Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.“ Sá vilji er allt sem þarf til þess að nýja árið verði okkur og heimsbyggðinni friðsælt og gleði- ríkt. Hlið hins nýja árs er opið. Göngum inn um það í Guðs friði. „f Jesú nafni áfram enn.“ Amen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.