Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.01.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ útskrifar fyrstu stúdentana Vinningsnúmer í happdrætti Styrktarfélags vangefinna FYRIR nokkru var dregið í happ- drætti Styrktarlélags vangelínna og komu vinningar á eftirtalin númer: 1. vinningur Citroen-bifreið nr. 59704, 2. vinningur Daihatsu Char- ade-bifreið nr. 92667, 3. vinningur bifreið að eigin vali að upphæð kr. 260 þús. nr. 66273, 4.—10. vinningur húsbúnaður að eigin vali hver að upphæð kr. 80 þús. nr. 3321, 9089, 10524, 25332, 76452, 90929, 98357. (Fréttatilkynning) íbúðir afhent- ar á Þingeyri Þingeyri, 2. janúar. SVEITARSTJÓRINN á Þingeyri, Jónas Ólafsson, afhenti miðviku- daginn 19. desember kaupendum verkamannaíbúða lyklana að þeim. Viðstaddir þá athöfn var, auk kaup- enda, byggingarnefnd verkamanna- bústaða. Jónas rakti byggingarsögu þessa parhúss, en framkvæmdir hófust í september 1982. Verktaki var Hefill hf. á Flateyri. Bygg- ingarkostnaður nemur um 7 millj- ónum króna eða um 1750 þúsundum á íbúð — að viðbættum vaxta- kostnaði á byggingartímanum. Um er að ræða fjórar fullfrágengnar íbúðir, hver þeirra 87,5 fermetrar að stærð. Alls hafa þá verið byggðar hér á Þingeyri 15 íbúðir á félagsleg- um grunni. — HuMa RÉTT fyrir jólin lauk fyrsti hóp- urinn stúdentsprófi í hinum ný- stofnaða Fjölbrautaskóla í Garða- bæ. Fjórir luku prófi á eðlisfræði- braut, þrír á náttúrufræðibraut, tveir á heilsugæslubraut, einn á uppeldisbraut, einn á tónlistar- íslendingafélagið í Kaupmanna- höfn hefur sent Alþingi áskorun, sem varðar kosningarétt til handa íslensk- um ríkisborgurum erlendis. Á hinum árlega aðalfundi félagsins, sem hald- inn var í október sl., var samþykkt einróma, að senda Alþingi íslendinga eftirfarandi áskorun: „Aðlfundur íslendingafélagsins í Jónshúsi, haldinn þann 15. október sl., skorrar á Alþingi íslendinga að gera þegar þær breytingar á kosn- ingalögunum sem þarf til að at- kvæðisbærir íslenskir ríkisborgar- ar búsettir erlendis njóti þeirra grundvallarmannréttinda, sem fel- ast í réttinum að kjósa til Alþing- is.“ braut, einn á félagsfræðibraut og einn á viðskiptabraut. Bestum námsárangri á stúdentsprófi náði Elísabet Jóhannesdóttir á nátt- úrufræðibraut með 156 einingar. Hátíðleg athöfn var haldin í skólanum í tilefni þessa atburðar Hin nýkjörna stjórn tslendinga- félagsins í Kaupmannahöfn telur það með öllu óviðunandi að íslend- ingar búsettir erlendis haldi áfram að vera hornreka íslenska lýðveld- isins. Stjórnin ætlar að tala íslenskra rikisborgara á Norðurlöndum ein- um skipti þúsundum. Fjöldi þess- ara íslendinga dvelur erlendis í þeim tilgangi að afla sér reynslu og þekkingar á sviði atvinnu- og menntamála, sem í fjölda tilfella er í þágu og hag íslenska ríkisins. Þess vegna er það bæði óréttlátt og vanhugsað að gera íslenska ríkis- borgara „þegnlausa" og án réttar til að móta það þjóðfélag, sem þeir og fluttu ávörp m.a. Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari, sem afhenti prófskírteini, Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri Garðabæjar og sr. Bragi Friðriksson, sókn- arprestur. telja sig tilheyra. Samkvæmt íslenskum lögum i dag eru það eingöngu læknar og námsmenn (í skemmri tíma), sem halda kosningarétti við búsetu er- lendis. Stjórnin telur það sjálfsagt að læknar haldi kosningarétti sín- um, en á annars bágt með að skilja að réttur til alþingiskosninga geti verið stéttbundinn. Á aðalfundi félagsins var í fyrsta skipti í langri sögu félagsins kosin hrein kvennastjórn. í stjórninni eru: Bergþóra S. Kristjánsdóttir, Guðrún Valdemarsdóttir, Kristín Oddsdóttir Bonde, Sigrún J. Brun- hede, Kristjana L. Rasmussen, Ás- laug Svane og Guðrún Eiríksdóttir. Með stúdentahópnum á mynd- inni eru Gísli Ragnarsson, aðstoð- arskólameistari, t.v. og Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari, t.h. Nemendur skólans voru tæplega 300 á haustönn 1984. Sú síðastnefnda, Guðrún Eiríks- dóttir, er mörgum kunnug bæði hér og heima. Hún er nú að hefja sitt 31. starfsár sem stjórnarmeðlimur í íslendingafélaginu. Fyrir 5 árum fékk Guðrún Eiríksdóttir fálkaorð- una fyrir störf sín í þágu íslend- inga hér í borg. Fyrsta verkefni hinnar nýju stjórnar er þegar leyst af hendi. Á aðalfundi félagsins var stjórninni faiið að leita eftir enduraðild að SÍDS — félagi Islendinga á Norð- urlöndum. Meðal annarra verkefna SfDS er að semia um verð á flugferðum til og frá Islandi í þágu félagsmanna. (ílr rrétUlilkynningu) íslendingafélagið í K.höfn: „íslendingar búsettir erlendis hornrekur“ Haraldur Gíslason, Húsavík - Minning Fæddur 28. apríl 1915 Dáinn 27. desember 1984 Þann 27. desember sl. andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri Haraldur Gíslason mjólkur- bústjóri á Húsavík. Með honum er genginn einhver 1 itríkasti og um leið ágætasti maður sem ég hef kynnst. Haraldur Gíslason fæddist að Haugi í Gaulverjabæ 15. apríl 1915 og var því á sjötugasta ald- ursári er hann lést svo skyndilega. Hann fór snemma að vinna fyrir sér, enda fjölskyldan stór og fjárráð heimilisins ekki mikil. Fjórtán ára að aldri fór hann í fyrsta sinn til sjós og stundaði vorvertíð hjá frændum sínum er réru á sexæringi frá hinni fornu verstöð Loftstaðasandi, sem var útræði til forna og allt fram eftir þessari öld. Haustið eftir, árið 1931, fór hann svo til Reykjavíkur og gerð- ist sjómaður á togaranum Tryggva gamla, sem ólafur Ófeigsson stýrði. Allt til vorsins 1934 stundaði Haraldur sjó- mennsku frá Reykjavík. Vertíðina 1933—34 var hann á línubát og ætlaði siðan að komast í Stýrimannaskólann fyrir vertíð- arpeningana sem í vændum voru, var búinn að fá pláss í skólanum. En vertíðin gekk illa og línu- veiðarnar brugðust gersamlega. Ctgerðin fór á hausinn og bank- arnir hirtu bátinn. Eftir stóð hann, 19 ára unglingurinn, með örfáar krónur í launaumslaginu sínu og öll áform um að komast í Stýrimannaskólann voru að engu orðin. Nokkru áður en þetta gerðist var Haraldi boðin vinna Mjólkur- búi Flóamanna. Hann afþakkaði það boð þá, en þegar hann sá að hinar fáu krónur sem hann átti, eftir misheppnaða vertíð, dygðu engan veginn fyrir skólavist í Stýrimannaskólanum, tók hann fegins hendi við þessu atvinnutil- boði og hóf störf í mjólkurbúinu. Haraldur hefur sagt mér frá því sjálfur að Mjólkurbú Flóamanna þótti ekki eftirsóknarverður vinnustaður í þá daga. Hinn danski Jörgensen er þar réð ríkj- um var harður húsbóndi og vinnu- harkan í búinu var með ólíkindum. Byrjað var kl. 4 á morgnana og vinnutíminn stóð oft yfir til kl. 22—23 á kvöldin. En vinnuharkan og þrautseigj- an hefur verið aðal Haraldar Gíslasonar í gegnum árin og kannski hefur þessi langi vinnu- tími átt betur við hann en marga aðra. Eg held líka að Haraldur hafi alltaf verið sáttur við það hlutskipti að fara í mjólkuriðnað- inn og strax og hann hóf störf hjá MBF komst hann að sem lærling- ur í þeirri iðngrein. Eftir tveggja ára verklegt nám í mjólkurbúinu hélt hann til Dan- merkur. Þar hélt hann áfram verklegu námi í tvö ár á tveimur mjólkurbúum. Innritaðist síðan í mjólkuriðnaðarskólann á Lade- lund á Jótlandi og útskrifaðist þaðan sem mjólkurfræðingur vor- ið 1939. Launakjör mjólkurfræðinga voru smánarleg á þessum árum og ekkert stéttarfélag var til að berj- ast fyrir hagsmunum þeirra þá. Harald langaði því ekkert til að fara strax heim. Hinsvegar var at- vinnuástandið í Danmörku afleitt og lítið var að gera fyrir nýút- skrifaða mjólkurfræðinga. Mikill uppgangur var á hinn bóginn í Þýskalandi og fengu þeir skólafélagarnir á Ladelund tilboð um góða vinnu og góð laun þar í landi. í maí 1939 fer Haraldur svo til Þýskalands og byrjar að vinna á mjólkurbúi þar. En innrás Þjóðverja í Pólland og það ástand sem skapaðist í Þýskalandi í byrjun stríðs olli því að Haraldur hafði ekki áhuga á að verða um kyrrt og heim til Islands kom hann með síðustu ferð Gull- foss fyrir jól 1939. Þá tók aftur við vinna í MBF og var Haraldur verkstjóri í búinu allt til stríðsloka. Til Svíþjóðar og Danmerkur fór hann svo í ágúst 1945 og kynnti sér ýmsar nýjung- ar í mjólkuriðnaðinum. Heim kom hann í apríl árið eftir og tók við rannsóknastofu MBF. Um þessar mundir var verið að byggja mjólkurbú á Húsavik. Ýmsir urðu til þess að hvetja Har- ald til að taka að sér stöðu mjólk- urbústjóra og varð þaö til þess að hann sótti um starfið og fékk það. Upphaflega gerði hann ráð fyrir því að vera aðeins eitt ár á Húsa- vík. En forlögin höguðu því svo að hér kynntist hann konuefni sínu, Valgerði Sigfúsdóttur frá Vogum í Mývatnssveit. í ágúst 1948 gengu þau svo í hjónaband og slík ákvörðun hlýtur að leiða til þess að lífið og tilveran öðlast nýtt gildi. Haraldur sneri ekki aftur frá Húsavík, hér starfaði hann sem mjólkursamlagsstjóri til hinstu stundar. Það tók mörg ár að byggja upp Mjólkursamlag KÞ og gera það að því trausta fyrirtæki sem það er í dag. Enginn maður hefur átt eins mikinn þátt í því og Haraldur Gíslason. Það var þingeyskum bændum mikið happ að fá til starfa slíkan mann. Samstarf hans við bændur hefur verið einkar farsælt. Þeir gera sér líka fulla grein fyrir því að ýmis mál sem heyra til sjálf- sagðra mannréttinda bændastétt- arinnar væru trúlega ekki í þeim farvegi nú, ef áræði og framsýni mikils forustumanns þeirra hefði ekki notið við. Starfsmenn hans í mjólkursam- laginu dáðu hann og virtu og skrifstofa hans stóð þeim ávallt opin. Þangað var líka gott að koma og margt var þar spjallað. Margar heimsóknir á skrifstofuna verða mér minnisstæðar og oft varð viðdvölin þar lengri en erind- ið beinlínis útheimti. Frásagnargáfa Haraldar var með þeim hætti að erfitt var að finna jafnoka hans í þeirri list. Það eitt að heyra hann segja frá einhverju skemmtilegu sem fyrir hann hafði komið á viðburðaríkri ævi var líka nægjanlegt tilefni til þess að staldrað var lengur við á skrifstofunni en ella. Haraldi þótti vænt um starfs- fólk sitt og hann var stoltur af því. Fá fyrirtæki þekki ég þar sem mannaskipti eru eins fátíð og í Mjólkursamlagi KÞ og vissulega segir það sína sögu um þann mann sem fyrirtækinu stjórnar. Haraldur Gíslason var óvenju- legur maður. Ef til vill dálítið hrjúfur á yfirborði og þeir sem þekktu hann lítt hafa trúlega stundum fengið rangar hugmynd- ir um hans innri mann. Við sem þekktum hann betur vissum hins vegar betur, vissum að hann var drengskaparmaður með hlýtt hjarta, ávallt tilbúinn að berjast fyrir þá sem minna máttu sín. í dag kveðjum við góðan vin sem við sjáum á bak alltof snemma. Tilveran er vissulega fátæklegri fyrir vikið. En minningin um góð- an vin og samstarfsmann til margra ára situr eftir ljúf og hlý. Að leiðarlokum þakka ég honum ótalmargar ánægjustundir og vinsemd um margra ára skeið. Ég og fjölskylda mín sendum Valgerði, sonum og þeirra fjöl- skyldum innilegar samúðar- kveðjur. Það er bjart yfir minningunni um Harald Gíslason. Hvíli hann í friði. Þorkell Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.