Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985 LESTUR Á ÞORRA KARI BÖGE: brganger, smásögur Útg. Aschehoug 1984 Kari Böge telst til yngri kyn- slóðar norskra höfunda, er fædd 1950. Hún sendi frá sér fyrstu bók- ina árift 1971, Asmorelda. Síðar hefur hún skrifað skáldsögurnar Viviann, Lyset er saa hvidt om sommeren og Viviann og Linn. Hún hefur einnig gefið út tvær bækur i samvinnu við Arild Stub- haug. Hún mun einnig fást við listmálun og auglýsingagerð. Irrganger eru átta smásögur. Þær eru íhugular og næsta inn- hverfar. Kari Böge er hugleikið að fjalla um venjulega manneskju og dregur fram það sem hún sér í persónum, sem virðast á ytra borði geta fallið undir skilgrein- ingu, en í raun eru allir flóknari en ætla má við fyrstu sýn. Samspil milli fólks — eða kannski öllu heldur vöntunin á samspili og sambandi, karls, konu, barns er dregið fíngerðum drátt- um og er þungamiðja hverrar sögu. Kari Böge hefur glöggt auga fyrir eiginleikunum sem ekki liggja í augum uppi, og er lagið að draga þá fram. Ég hef lesið skáldsöguna Vivi- ann og Linn og þótti hún fýsileg nokkuð. Knappt frásagnarform smásögunnar virðist eiga ivið bet- ur vift höfundinn en á stundum er ef til vill talað einum of hljótt. TED ALLBEURY: The Gái from Ackfis Útg. Panther Books 1984 Johnny Grant hafði verið í Bþíópíu á stríðsárunum sem starfsmaður brezku leyniþjónust- unnar. Hann kom þangað eftir að Bretar frelsuðu landið og keisar- inn var á ný traustur í sessi. Hann var sfðan rekinn úr landi og hefur ekki áhuga á að fara þangað, enda öruggt, að hann hlyti að verða handtekinn af hann vogaði sér inn á eþíópískt land. En nú er hann kvaddur á ný til starfa, hann er ljósmyndari í sakleysislegum er- indagerðum og á að hjálpa Eþíóp- íumönnum að vekja áhuga ferða- manna á að fara til landsins. Auð- vitað er erindið allt annað og mik- ilvægara, umsvif og athafnir Rússa i landinu eru leyniþjónustu Breta þyrnir í augum og Johnny Grant er kjörinn til að afla upp- lýsinga um málið, þótt allar líkur bendi til að það kosti hann lífið. Bkki sízt þegar hann fer að renna girndarauga til stúlkunnar Aliki, sem hefur verið hjákona ýmissa háttsettra sovézkra sendiráðs- starfsmanna. Þau Aliki og Johnny lenda í býsna flóknum ævintýrum og bjargast að lokum, þrátt fyrir að brezka leyniþjónustan stendur ekki við sína samninga og sleppir verndarhendi af Johnny. Þessari bók hefur verið líkt við sögur John le Carré hvað snertir andrúmsloft og spennu. Ekki er ég alveg á sama máli en ágæt spennusaga engu að síður. MARCIA ROSE: Admtsstons Útg. Ballantine books 1984 Hér er á ferðinni löng og mikil skáldsaga og mikill fjöldi persóna kemur við sögu. Aðalvettvangur sögunnar er Cadman Memorial, sjúkrahúsið og starfsliðið þar er náttúrulega sögupersónur bókar- innar. Dr. Ellie Winter yfirlæknir hefur verið gift öðrum yfirlækni, dr. Adrian Winter. Þau eru bæði mikið sómafólk og alveg frábærir læknar og v'' njóta virðingar í hví- \ vetna. Að vísu hefur \ skipulagi á sjúkrahúsinu \ verið breytt og fram- \ kvæmdastjóri þess, Harry \ Bel Geddes, er ekki \ aðdáandi dr. Winters, líklega\ er hann þó einkum öfund- \ -' sjúkur og hann gerir allt 'Sf' til að vekja sárindi og y, vanmáttarkennd hjá dr. Adrian. 1 Dr. Bobby Truman er fyrsti ' svarti yfirlæknirinn á þessu sjúkrahúsi og konan hans Corinne hefur gengið f lið með sértrúarsöfnuði og trúarruglið er að eyðileggja hjónabandið. Ekki má gleyma David Powell, sem er því miður bara hjúkrunar- maður og státar ekki af neinni doktorsgráðu, en hann er vís og vænn og mikið kvennagull. Við sögu kemur einnig Sandy, blaðafulltrúi, sem vill allt til vinna að auka orðstír sjúkrahúss- ins með því að koma í blöðin sjúkratilfellum sem eru til þess fallin að vekja athygli. Og beitir ekki alltaf fallegum aðferðum til að ná markmiðum stúlkan sú. Sagan hefur í reynd engan hefð- bundinn söguþráð, nema að segja frá þessum samskiptum og hvað ailir eru duglegir að sofa hjá öll- um og hvað vondu læknarnir eru hugsunarlausir og góðu læknarnir öldungis ágætir. A endanum er allt látið ganga upp. Hefði ekki þurft til þess allar þessar blaðsíð- SKAMMDEGIÐ er góður tími til að taka sér bók í hönd. Þessar bækur eru ágætis afþreyingarbækur og vel þess virði að lesa ur. En merkilegt nokk; þrátt fyrir augljósa annmarka er hægt að komast í gegnum bókina, sérstak- lega ef maður hefur nógu mikinn áhuga á intrígum sjúkrahússins Cadman Memorial. Discovering Macau Útg. af ferðamálaráði Macau Macau er skrítið fyrirbæri í nú- tímanum. Maður er ekki alveg viss OPA DReAM DIA14A ANTHONY SbeftJölc«w/«n<j tr rr vv»«V) um hvort þetta er tímaskekkja á tuttugustu öldinni, stórkostlegt samfélag á undan samtíð sinni eða kfnverskt hálflepprfki, vel er það dulið að vísu. Macau kúrir á strönd Kína, sextán ferkílómetrar að stærð, og þar og á nokkrum smáeyjum undan ströndinni býr upp undir hálf milljón manns. Að- alaðdráttaraflið á þessari portú- gölsku „nýlendu" er spilavitin og svo er raunar afar auðvelt að bregða sér inn f Kfna frá Macau, mér skilst að það sé ekki meira vandamál að fá vegabréfsáritun þar en á bryggjunni f Macau þegar maður kemur með bátnum frá Hong Kong. Macau ber að mörgu leyti portúgalskt svipmót og allar merkingar á opinberum bygging- um eru enn á portúgölsku. Mat- sölustaðir eru stoltir af þvf að geta boðið upp á ósvikinn portúgalskan mat, eins og til dæmis fslenzkan saltfisk. Og þrátt fyrir smæðina er ótal margt að skoða f Macau, og forvitnileg saga þessarar litlu spildu, þar sem fbúarnir eru að miklum meirihluta Kínverjar, hlýtur að vekja undrun og aðdáun. Margar fornar minjar um gengna dýrð eru vel varðveittar og það tekur ekki ýkja langan tima að skoða sig um og það segir sig raunar sjálft þegar stærðin eða smæðin er höfð í huga. Bókin Discovering Macau er til þess fallin að koma manni á bragðið. Og þar sem margir ís- lendingar leggja nú leið sina til Hong Kong og Kfna er vert að benda á að það er vel þess virði að tylla tá niður á Macau dagstund og kannski lengur. DIANA ANTHONY: Outof aDream Útg. Fontana 1984 Afþreyingarbók af betra taginu. Stúlkan Emma hefur misst minn- ið og hún virðist ekki eiga sér neina framtíð og einhverra hluta vegna er enginn sem saknar henn- ar. Blaðamaðurinn Josh Free, sem er hörkutöffari en vænn inn við beinið eins og slíkar manngerðir þurfa að vera, a.m.k. í sögum, fær áhuga á máli hennar og reynir að hjálpa henni að grafast fyrir um fortíð sfna. Saman leggja þau upp í langa ferð og erfiða og það kem- ur margt skuggalegt og skrautlegt f ljós. Emma hefur líklega verið allt að þvf heimsfrægur tónlistar- maður áður og fyrrum, átt vonda tengamóður og kyndugan eigin- mann. Og þó er þar með sagan ekki öll sögð og verður höfundur að flækja þetta enn um hríð, svo að hægt sé að leysa vandamálin á sannfærandi máta. Það tekst henni og Emmu og Josh tekst líka að komast að niðurstöðu. Það var mál til komið. Samantekfc Jóhanna Krístjónadóttir Atli Heimir Sveinsson Tvö skosk dagblöð, The Scots- man og The (llasgow Herald, birtu nýverið lofsamlegar umsagnir um kammertónleika, sem haldnir voru á íslandsvikunni í Edinborg í nóv- ember. Þar fluttu þeir David Nich- olson, Pétur Jónasson og Hafliði Hallgrímsson tónverk eftir Haf- liða, Eyþór Þorláksson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörns- son. í umsögn The Scotsman, sem birtist 30. nóvember, segir gagn- rýnandi blaðsins, Conrad Wil- son, að tónverkin sem flutt voru í Queens Hall séu af því tagi, sem yfirleitt höfði aðeins tií fámenns hóps unnenda sígildrar Eyþór Þorláksson Hafliði Hallgrímsson Skotland: Islensk kammer- tónlist fær lofsamlega dóma tónlistar, en að þessu sinni hafi út af brugðið og fjölmenni sótt tónleikana. í sama streng tekur gagnrýnandi The Glasgow Her- ald, David Johnson, sem birtir umsögn sína 1. desember. Kveðst hann leyfa sér að vona að tón- leikarnir muni ekki aðeins auka Þorkell Sigurbjörnsson áhuga á íslenskri tónlist, heldur einnig nútímatónlist almennt. Báðir gagnrýnendurnir ljúka lofsorði á flutning Péturs Jón- assonar, sem lék á gítar, Davids Nicholson, sem lék á flautu, og Hafliða Hallgrímssonar, sem lék á knéfiðlu. Þeir eru einnig hrifn- ir af tónverkunum, sem Wilson segir að hafi verið áhrifarík og afar myndræn. Honum finnst verk Þorkels Sigurbjörnssonar Mild und Leise forvitnilegast, en David Johnson telur verk Haf- liða Hallgrímssonar skara fram úr, í þeim hafi engu verið ofauk- ið og hann hafi augljóslega sinn eigin hátt á framsetningu, þar sem hann sé á heimavelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.