Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 Hljóp maraþonhlaup afturábak og setti nýtt heimsmet ALBERT Freese var ekki sigur- vegari í maraþonhlaupi sem (ram fór í Kaliforníu fyrir skömmu og hann var heldur ekki nálægt því aö vinna, en hann komst í heims- metabók Guinnes, er hann setti nýtt heimsmet í maraþonhlaupi, meö því aó hlaupa afturábak. Stjórn Frjálsíþróttasambands íslands hefur valiö þrjá hlaupara til þátttöku t víðavangshlaupi heimsins, sem háö veröur í Lissa- bon í Portúgal 24. mars næst- komandi. Hlaupararnir eru Siguröur Pétur Sigmundsson FH, Garöar Sigurös- son ÍR og Steinn Jóhannsson ÍR. Keppir Siguröur Pétur í karlaflokki en Garöar og Steinn í flokki ungl- inga 19 ára og yngri. Um er aö ræða heimsmeistara- mót í víðavangshlaupum. island sendi fullskipaöa sveit til keppni 1977 í Glasgow og í fyrra er hlaup- iö fór fram í New York. Freese bætti gamla heimsmetiö um 21 mínútu, hann hljóp þessa 42 kílómetra (afturábak) á þremur klukkustundum 59 mínútum og 7 sekúndum. Eldra metið var 4 klukkustundir 20 mínútur og 36 sekúndur og var sett í Honulúlú- maraþoninu 1982 af Donald Davis Viöavangshlaup njóta gífurlegra vinsælda í Evrópu og Bandaríkjun- um og allir bestu langhlauparar heimsins mæta jafnan til leiks í víöavangshlaup heimsins. í fyrra sigraöi Portúgalinn Carlos Lopes í karlaflokki og Maria Puica í kvennaflokki, en þau unnu sín gull- verölaunin hvort á Ólympíuleikun- um í Los Angeles tæpu hálfu ári síöar. Siguröur Pétur hefur náö besta árangri íslendings í maraþonhlaupi og Garðar og Steinn eru hlaupar- ar, sem sýnt hafa stórstígar fram- farir. frá Bandaríkjunum. Freese sem er 39 ára, sagöi „guð hefur skapaö okkur og gert okkur hverju og einu mögulegt aö gera ýmsa hluti, og þú veröur aö velja eitthvaö sem þú getur hugs- anlega náö árangri í, óg hef valið mér maraþonhlaup afturábak og sett mér þar ákveöiö takmark, sem ég hef nú náð.“ Freese hefur æft mjög mikiö og hleypur hann 120 kílómetra á viku afturábak, hann var aö vona þaö fyrir hlaupiö, aö hann næði betri tíma, eöa 3 klukkustundir og 30 mínútur, en þaö tókst ekki þótt hann væri nálægt því. „Þegar hlaupiö byrjaöi spuröi fólk: „Hey, Bubby af hverju hleypur þú afturábak?“ sagöi Freese. „En ég bara brosti og hélt áfram.“ Freese sagöi aö þetta maraþon- hlaup væri sennilega hans síöasta sem hlaupari afturábak, ég vill ekki gera fólkinu þaö sem býr nálægt þeim staö sem ég hef veriö aö æfa mig, aö byrja á því aö hlaupa eðli- lega. Þegar ég fer næst aö hlaupa á ströndinni meö eölilegum hætti, þá myndi fólk sem þekkir mig stoppa mig og segja: „Hey, þú hleypur ekki rétt.“ Þrír hlauparar keppa í Portúgal • Pétur Pétursson hefur verió afar óheppinn hvaö meiósli varöar á yfirstandandi keppnistímabili og lítiö sem ekkert getaö leikiö meö Feyenoord. En nú hefur hann náó sór og er staðráðinn í aö standa sig. „Ég get leikiö mitt hlutverk hjá Feyenoord segir Pétur Pétursson í viðtali við „Voetball“ • Steinþór Guöbjartsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeild- ar KR, mun dvelja í vikutíma hjá Arsenal í boöi félagsins og kynna sér meðferó á meiöslum leik- manna. Steínþór mun veröa aó- stoöarþjálfari hjá Gordon Lee í sumar. Steinþór til Arsenal FRAMKVÆMDASTJÓRA knatt- spyrnudeildar KR, Steinþóri Guð- bjartssyni, hefur veriö boöiö tii Arsenal til aö kynna sér meöferö á meióslum leikmanna. Steinþór, sem er íþróttakennari aö mennt og hefur sérhæft sig í íþróttameiöslum, mun starfa meö hinum þekkta Roy Johnsson sjúkraþjálfara Arsenal. En hann hefur um langt árabil veriö kennari enska knattspyrnusambandsins varöandi meiðsl á knattspyrnu- mönnum. Steinþór mun jafnframt fylgjast meö æfingum hjá Arsenal og kynna sér þjálfun. En ákveöiö hef- ur verið aö hann muni starfa í sumar sem aöstoöarþjálfari hjá Gordon Lee viö þjálfun meistara- flokks KR. Æfingar undir stjórn Gordons munu hefjast eftir rúma viku hjá KR. „Efasemdirnar um Pétur Pét- ursson. Útsiitinn markakóngur eöa bara hrakfallabálkur." Undir þessarí fyrirsögn birtíst þann 26. janúar grein um Pétur Pétursson í hollenska vikublaðinu „Voetball InternationaT*. í greininni er rætt viö lækni Feyenoord, stjóra Ant- werpen, þjálfara Feyenoord og Pétur sjálfan um stöðu hans í dag og framtíöina. Framan af keppnistímabilinu gekk hvorki né rak hjá Feyenoord, Johan Cruijff var farinn og þaö var rétt eins og ógurlegir timburmenn hrjáöu liöið eftir meistaratitilinn síöasta keppnistímabil. Hver leik- urinn öörum verri var leikinn og til aö kóróna allt saman var liðiö slegiö út úr Evrópukeppni meist- araliöa á mjög svo niöurlægjandi hátt af grísku smáliði. Á þessum tíma spilaði Pétur, sem er á árs leigusamningi frá Antwerpen vinstri kant, var uppá- lagt aö liggja út viö hliöarlínu. Hinumegin skartaöi Feynoord Ruud Gullit einni skærustu stjörnu landsliðsins, og var þá oft eins og aöeins ein leiö væri upp aö marki andstæöinganna, upp hægrameg- in og Gullit meö knöttinn. Liöiö fékk á sig óvægna gagnrýni og fór Pétur ekki varhluta af henni, þó leikskipulaginu væri mikið um aö kenna. Svo fór aö birta til, Pétur lék tvo leiki sem senter, skoraöi tvö mörk í öðrum og átti fjölda tækifæra í hinum, en þá komu meiðsli til sögunnar. Ben van de Bosch er íþrótta- læknir Feyenoord og sá sem skar Pétur upp við meiöslum í hné fyrir fjórum árum. Hann liggur ekkert á skoðunum sínum. „Eflir uppskurö- inn breyttist hann sem leikmaöur. Ég er sannfærður um aö þaö er orsökin fyrir því aö hann var látin spila á miöjunni hjá Antwerpen. Hann tapaði sprengjukraftinum, hraöanum og stökkkraftinum. Andinn vill þaö líkast til en líkam- inn er ekki fær um aö framkvæma þaö.“ „Þetta er einfaldlega ekki rétt,“ segir Pétur þegar samband er haft viö hann. „Snerpan og stökkkraft- urinn er ennþá fyrir hendi, sjáöu til, ég spilaöi þrjá leiki fyrir island síö- asta keppnistímabil, ég hef sjaldan fundiö mig eins vel á mínum knattspyrnuferli og þá, en hvaöa stööu spilaöi ég? Senter auövit- aö.“ í greininni er talaö viö stjóra Antwerpen sem ber Pétri vel sög- una. „Mjög viöfelldinn strákur meö sjarma sem fáir leikmenn hafa yfir aö ráöa, áhorfendur stóöu ætíö meö honum ... Viö reiknum meö því aö Pétur komi til baka til Ant- werpen eftir aö leigusamningurinn rennur út, viö höfum fengiö nýjan þjálfara, útlendingum hefur fækk- aö. Svo Pétur er hjartanlega vel- kominn.“ „Ég fer aldrei, aldrei aftur til Antwerpen," segir Pétur. „Látum þá borga mér allt þaö sem þeir skulda mér, þaö var aöalástæöa þess aö ég vildi ekki spila fyrir þá meira," og þaö er greinilegt á tali hans aö honum liggur þungt hugur til stjórnar Antwerpen. „Óheppnin viröist elta mig hjá Feyenoord, ég hef ekki átt i vandræöum vegna meiösla annars staöar. Einnig fæ ég ekki aö spila mínar stööur. Ég er fyrst og fremst „senter” sem einnig get spilaö sóknartengiliö, ekki vinstri kantur sem brýst upp aö endamörkum og gefur fyrir. Þetta var allt að koma áður en meiöslin komu til sögunnar, þá fékk ég líka aö spila eins og mér hentaöi betur.“ Ab Faié hefur enn trú á islend- ingnum. „Það var greinilega um framfarir aö ræöa hjá Pétri þar til meiðslin komu til, út frá þeim punkti geng ég ... því skyldi hann ekki geta unnið sér pláss í liöinu? Þaö er alltaf erfitt en hann hefur sjálfstraust." Um framtíöina segir stjórnar- maöur Feynoord: „Viö komum til meö aö ræöa viö Antwerpen um möguleika á nýjum leigusamningi. Aö kaupa hann kemur ekki til greina, til þess er veröiö of hátt (sa. 500.000 HLF). Líf atvinnumannsins getur veriö Morgunblaóinu hefur borist eftirfarandi fréttafilkynning: „JL-húsið kemur til meö að styrkja þennan íþróttamann veg- lega til æfinga og keppni áriö 1985. Tómas Guójónsson KR, sem eins og kunnugt er hefur veriö eínn fremsti borðtennisspil- ari íslendinga undanfarin ár, skuldbindur sig á móti aó spila meö JL-auglýsingu á keppnis- búningi sínum. Adidas-umboöiö á Islandi, erfitt og þetta er ekki einstök saga, þaö þarf ekki aö leita lengra en í næsta tölublaö á undan þessu sem hér um ræöir til aö finna viötal í þessum dúr viö austurrísku stjörn- una Felix Gasselich sem Ajax keypti fyrir 1,4 milljónir HFL 1984 og hefur ekki getaö unniö sér sæti í aðalliðinu. En Pétur Pétursson er ekki á því aö gefast upp. „Ég á sex mánuöi eftir af leigutímabilinu til þess aö sanna þaö aö ég get leikiö mitt hlutverk hjá Feyenoord, þaö ætla ég aö gera.“ Þýtt ojj undursagt úr „Voetball International af fréttamanni Mbl. í Hollandi, H.l. Haraldssyni. Björgvin Scram & Co., hefur enn einu sinni sýnt velvilja í garö íþróttamanna nú meö því aö út- vega Tómasi allan þann útbúnaö sem hann þarf til æfinga og keppni. Er gott til þess aö vita aö svo margir aöilar sjái sér fært aö hlúa aö afreksmönnum okkar þannig aö þeir geti helgaö sig betur íþrótt sinni og náö þannig sem bestum árangri.“ (Fréttatilkynning) ________________________TEKST: EMILE SCHELVIS----------- DE TWIJFELS ROND PETDR PETDRSSON Versleten topscorer of gewóón _________________Vipechvogel? • Fyrirsögnin í hollenska blaðinu. „Útslitinn markakóngur eða bara hrakfallabálkur". JL-húsið styrkir Tómas Guðjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.