Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985 M Ei'9ib þifc -t’il jpo&vigt mc& dcmpconx ?* \ tib Mér má svo sem vera sama, en þú Jæja? Pabbi minn er með miklu getur reynt að fá þá til að trúa því haerra nafnnúmer en pabbi þinn! að þú hafir gengið á hurð! HÖGNI HREKKVÍSI z,... OG Fy/ZSTU VEfZPLAUN ERP SRÁWAI2FE fZp! " ást er... ... að fá hjartað til að slá hraðar Ttl Rm. U.S. Pat on.-al rtahta raaarvgd •1964 Loa Anpalaa Tknas syndlcata 1 Jr sólarlandaferð með Samvinnuferðum-Landsýn, en bréfritari kveðst hafa átt mjög ánægjuleg viðskipti við þá ferðaskrifstofu. Ómaklega vegið að ferðaskrifstofunni Lagfær- ing þörf Ragnar Benediktsson skrifar. 1. Alþingisgarðurinn, er ég nefni því nafni, er aldamótaverk Tryggva Gunnarssonar. Á síðari árum hefur Reykjavíkurborg ann- ast vörslu garðsins. Nokkrir bekk- ir ætlaðir sumargestum eru í garðinum. En þeir eru því miður í hörmulegu ásigkomulagi, enda ekki ætlaðir til vetrardvala. Þyrfti nauðsynlega að fjarlægja þá, ekki síst fyrir 17. júní nk. Málning er t.d. flögnuð af og fjalir fúnar. Nýj- um bekkjum þyrfti að koma fyrir í garðinum fyrir næsta sumar. 2. Við Dómkirkjuna er minnis- merki um Hallgrím Pétursson. Það er reist árið 1885 og er því 100 ára á þessu ári. Þyrfti viðgerð að fara fram á súlunni á næstunni enda afmælisárið til þess kjörið. Auk þess er skífan á minnis- merkinu orðin illlesanleg. 3. Við Menntaskólann liggja steinsúlur niðri við Amtmannsstig og hafa legið þar lengi í lamasessi. Þyrfti nauðsynlega að endurreisa þær hið fyrsta. Þeir setja leiðan svip á skólasvæðið. Nýlega var forláta hurð Stjórn- arráðshússins við Lækjargötu sýnd í einu dagblaðanna, dýrgrip- ur mesti. En járngrindurnar við laugaveginn eru ekki eins glæsi- iegar, það er ekki einu sinni húnn í hliðinu. leyfi ég mér að skora á húsameistaraembættið að gera bragarbót þar á eða nema hliðin hreinlega á brott. Þau eru jafn- framt ryðguð. Sennilega er auðvelt að benda á veilurnar, en ég þykist vita að ráðamenn taki þessar ábendingar til greina. Ég hef áhuga á að svara með nokkrum orðum, Rannveigu í Garðabæ, sem skrifaði í Morgun- blaðið þann 26. febrúar þar sem mér finnst ómaklega vegið að ferðaskrifstofunni Samvinnu- ferðir-Landsýn. Ég ásamt konu minni hef þrívegis ferðast á veg- um þessarar ferðaskrifstofu, fyrst til Portoroz i Júgóslavíu, næst til Vouliagmeni í Grikklandi og síð- ast til Dubrovnik í Júgóslavíu. Alltaf hafa þessar ferðir verið á hagstæðasta verðinu í samanburði okkar á milli ferðaskrifstofa og í öll skiptin fengum við meiri þjón- ustu heldur en okkur var lofað í upphafi ferðar. Til dæmis í Porto- roz, þar sem ein skoðunarferðin þótti nokkuð dýr þá var hún endurgreidd að hluta, óumbeðið, þegar heim var komið og nú síðast er von á endurgreiðslu vegna Du- brovnik ferðarinnar þar sem hagnaður var á rekstri ferða- skrifstofunnar. Með þessum orðum er ég ekki á neinn hátt að níða Ingólf Guð- brandsson niður. Hann er senni- lega meðal duglegustu íslendinga, einn af brautryðjendum íslenskra ferðamála, stofnandi og stjórn- andi Pólýfónkórsins og hafi hann heiður fyrir. Ég vona bara að þess- ar tvær ferðaskrifstofur haldi áfram að keppa um ferðamarkað- inn eins og áður, þá álít ég að hin- um íslenska ferðamanni sé vel borgið. Páll Zophoníasson nnr. 7034-3584 Þessir hringdu . . . Hvað vakir fyrir þeim? Kiríkur Finnsson hringdi: Hvers vegna er verið að setja myndbönd á bannlista sem sýnd hafa verið fyrir stuttu í kvik- myndahúsum borgarinnar. Sem dæmi má nefna myndina „1 nautsmerkinu* sem sýnd var hér í bíó en nú er kölluð klámmynd og hefur verið bönnuð á mynd- böndum. Hvað gengur þessum mönnum eiginlega til? Útvarpssagan bráðskemmtileg Mörður, Keflavík hringdi: Ég las í Velvakanda um dag- inn að verið var að setja út á útvarpssöguna Morgunverður meistaranna eftir Kurt Vonne- gut. Mig langar til að segja mitt álit á þessari sögu og öðrum sög- um Vonneguts. Þær eru sniðugar og skemmtilegar þó að kímnigáf- an sé ekki alveg eins og við eig- um að venjast. Því ekki að leyfa þeim höfundum að komast að sem eru víðfrægir erlendis en lítt þekktir hér. Svona til til- breytingar í staðinn fyrir að lesa hefðbundna útvarpssögu eftir einhvern vel þekktan og kynntan rithöfund. Þá vil ég þakka Birgi Svan Símonarsyni fyrir þýðingu hans á útvarpssögunni en hún er al- veg til fyrirmyndar. Loks langar mig til þess að spyrja hvernig standi á því að nú er verið að taka myndbönd úr umferð sem þegar hafa verið sýnd í hinum ýmsu kvikmynda- húsum landsins og hljóta því að hafa farið í gegnum kvikmynda- eftirlitið? Eitt verði látið yfir alla ganga Páfi hringdi: Að gefnu tilefni er ég hér með fyrispurn til Rafmagnsveitu ríkisins. Hvernig bregðast stjórnendur ríkisfyrirtækja við broti ríkisstarfsmanna sbr. starfsmenn RARIK á Austur- landi sem gerðust lögbrjótar á ríkisbifreið um smygl á Seyðis- firði? Að þessu er spurt vegna aug- lýsingaherferðar ríkisins gegn lögbrjótum um skattsvik. Eiga ríkisstarfsmenn ekki að fá sömu afgreiðslu og almenningur? Góður þáttur á rás 1 Flosi hringdi: Ég hlusta nú oftar á rás 2 en 1 en varð þó á af rælni að skrúfa frá útvarpinu á rás 1 um daginn. Og viti menn þá kom í ljós að þar var á ferðinni miklu betri þáttur með mun skemmtilegri tónlist en nokkurn tímann á rás 2. Á ég þar við þátt Gests Jónassonar, Við pollinn. Vil ég færa honum þakklæti mitt fyrir þennan þátt og hina góöu tónlist sem hann leikur. Mér finnst tónlistin sem leikin er á rás 2 hafa versnað, maður er orðinn svo leiður á þessu enda- lausa vinsældalistavali og lögun- um á honum. Þó vil ég þakka fyrir hinn stórgóða þátt rokkrás- ina, hann ber af öðrum á rás 2. „Laus í rásinni“ Baldur hringdi: Hvað er orðið um þáttinn Laus í rásinni sem áður var reglulega á dagskrá rásar 2?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.