Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985 Trausti Tborberg Óskarsson og Trausti Kristjánsson. Fjórir vortónleikar Tón- listarskóla Hafnarfjarðar TÓNLISTARSKÓLI Hafnarfjarðar efnir til fjögurra vortónleika á næst- unni. Þeir verða dagana 21. aprfl, 5. maí, 11. maí og 25. maí. Fyrstu tónleikarnir verða á sunnudaginn kemur kl. 14 í sal skólans, Strandgötu 32, Hafnar- firði. Það eru sameiginlegir burt- farartónleikar þeirra Trausta Thorberg Óskarssonar og Trausta Kristjánssonar, sem báðir ljúka fullnaðarprófi frá skólanum í gít- arleik undir handleiðslu kennara síns, Eyþórs Þorlákssonar gítar- leikara. Aðrir tónleikar skólans verða í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði kl. 17 á evrópudeginum 5. maí, sem í ár er helgaður evrópska tónlistarár- inu, 1985. Þriðju tónleikarnir verða laug- ardaginn 11. maí á sama stað kl. 14. Fjórðu tónleikarnir verða einnig í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þann 15. maí kl. 14. Verður þar flutt, meðal annars, íslenskt verk, Tríó fyrir fiðlu, píanó og celló eftir dr. Hallgrím Helgason. Höfundurinn mun leika þar ásamt öðrum á hinn nýja og ágæta flygil sem kirkjan hefur eignast til hljómleika. Kirkjan er þar með orðin einnig ákjósanlegt hljómleikahús með af- bragðs hljómburði, sem svo eftir- sóknarverð eru fyrir fagran hljómburð. Þar verða einnig af- hent prófskírteini að afloknu 34. starfsári Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar. (FrélUtilkrnning) Yfirlýsing frá starfsfólki Útsýnar Vegna greinar Ingibjargar Guð- mundsdóttur í Morgunblaðinu í dag, 19. apríl 1985, teljum við und- irritað starfsfólk Útsýnar nauð- synlegt að endurtaka fyrri yfirlýs- ingu okkar, sem birtist í blaði yðar 27. mars sl. og um leið mótmæla því, að sú yfirlýsing hafi aðeins verið frá 3—4 starfsmönnum. Við undirrituð teljum ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál í fjölmiðlum. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík 19. apríl 1985. Örn Steinsen, Kögnvaldur Olafsson, Guðbjörg Sandholt, Haultur Hannesson, Steina Kinarsdóttir, Unnur M. Briem, Lisbeth Thompson, Ása Ásgrímsdóttir, Kristín M. Westlund, Kyjólfur Sigurósson, Kristín Karlsdóttir, Pétur Björnsson, l*óra H. Ólafsdóttir, Guðbjörg Haraldsdóttir, Valdís Jónsdóttir, Gyða Sveinsdóttir, Hrefna Hannesdóttir, Dísa Dóra Hallgrímsdóttir, Marta Helgadóttir, Kristín Aóalsteinsdóttir. Umrædd yfirlýsing frá 27. mars fer hér á eftir: „Vegna viðtals við Ingibjörgu Guðmundsdóttur í síðasta tbl. Helgarpóstsins óskar starfsfólk á Ferðaskrifstofu Útsýnar að koma eftirfarandi athugasemd á fram- færi: Okkur þykir það leitt, að Ingi- björg Guðmundsdóttir skuli hafa fundið hjá sér þörf til að opinbera vandamál sín í fjölmiðlum, er til urðu af litlu tilefni, í nokkurra mánaða starfi hennar hjá Ferða- skrifstofunni Útsýn. I umræddu viðtali koma fram skoðanir, sem við getum með engu móti tekið undir. Það viðhorf til vinnuveitanda og skortur á sjálfsvirðingu, sem Ingibjörg læt- ur í skína, teljum við, að ekki sé ríkjandi á Ferðaskrifstofunni Út- sýn. Það er umfram allt álit okkar, að feröaþjónusta sé vandasamt og ábyrgðarmikið starf, sem vinna verði með alúð og eljusemi. Áskoranir og yfirlýsingar henn- ar, bæði í garð okkar og vinnuveit- anda, eru því bæði ódrengilegar og ómaklegar." Athugasemd ritstjóra: — Það er rangt að Morgunblaðið hafi neitað að birta athugasemd um þetta mál eins og Ingibjörg Guðmundsdóttir segir í grein sinni í blaðinu í gær. Blaðinu barst á sínum tíma nafn- laus yfirlýsing án ábyrgðarmanna og birti hana að sjálfsögðu ekki, enda kom síðar í ljós að starfs- mennirnir tveir eða þrír, sem báðu um birtingu yfirlýsingarinnar, vildu ekki við hana standa með nöfnum sínum og sóttu hana aftur til blaðsins. Athugasemd ATHUGASEMD yegna greinarinnar Ferðaskrifstofan Útsýn og orgelsjóð- ur Hallgrímskirkju: Að gefnu tilefni vegna skrifa Ingibjargar Guðmundsdóttur í Helgarpóstinum og Morgunblað- inu 19. apríl, viljum við undirrit- aðir, forgangsmenn að söfnun í orgelsjóð Hallgrímskirkju, lýsa vanþóknun okkar á umræddum skrifum, sem við teljum með öllu ástæðulaus, þótt vinnuveitandi hennar hafi farið þess á leit við hana í des. síðastliðnum að hún ynni nokkra daga að málefnum sjóðsins meðan leitað væri starfsmanns til lengri tíma. Að- eins var um hálfsdagsstarf að ræða hjá Ingibjörgu og á tímabil- inu frá 28. nóv. ’84 til 20. des. ’84. Teljum við ómaklegt að menn- ingarmál þetta og góður stuðn- ingsmaður þess hafi orðið fyrir aðkasti af jafn litlu tilefni. Keykjavík 19. aprfl 1985, Knut 0degárd formaður, Dr. Sigurbjörn Einarsson, Guðrún Helgadóttir, Salome Þorkelsdóttir. Fjölbreytt dagskrá Borgfirðingavöku suniolti, 19. aprfl.'—* '—y BORGFIRÐINGAVAKA verður haldin að þessu sinni dagana 20. til 30. aprfl nk. Sömu félagasamtök standa að vökunni og áður en þau eru Búnaðarsamband Borgarfjarðar, Kirkjukórasamband Borgarfjarðar, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Samband borgfirskra kvenna og Tónlistarfélag Borgarfjarðar. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Hún er á þessa leið: Laug- ardaginn 20. apríl verður Karla- kórinn Fóstbræður með söng- skemmtun í Hótel Borgarnesi og hefst hún kl. 15. Sunnudaginn 21. apríl kl. 15 verður opnuð sýning á borgfirskri nytjalist í samkomusal mjólkursamlagsins í Borgarnesi. Sýningin verður opin til 28. apríl. Þriðjudaginn 23. kl. 21 syngja finnskur kvennakór og kór Bændaskólans á Hvanneyri í Lyngbrekku. Miðvikudaginn 24. kl. 21 verður kvöldvaka með blönduðu efni í tali og tónum í umsjá presta í Borgarfjarðarprófastsdæmi á Hlöðum. Fimmtudaginn 25. verð- ur sýning á leikritinu Blómarósir að Loagaíandi og hefst hún kl. 21. Föstudaginn 26. apríl verða Ragnhildur Gísladóttir, Jakob Magnússon og fleiri með tónleika í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi kl. 21. Laugardaginn 27. apríl verður harmonikkudansleikur að Loagalandi sem hefst kl. 21.30. Síðasta atriðið verður þriðjudag- inn 30. apríl. Þá verður kirkju- kóramót i Borgarneskirkju kl. 21. — Fréttaritari Kökusala Hvítabandsins HVÍTABANDSKONUR verða með kökusölu í Blómavali í dag, laugar- dag, og hefst salan kl. 11. Verður ágóðanum af sölunni varið til styrkt- ar æskufólki er á í erfiðleikum vegna neyslu vímuefna, að því er segir í fréttatilkynningu Hvítabands- kvenna. Hvitabandið var stofnað hér á landi snemma á árinu 1895 og hef- ur því starfað í 90 ár um þessar mundir. Stærsta verkefni þess var bygging sjúkrahússins „Hvíta- bandið" og rekstur þess um árabil. Á seinni árum hafa taugaveikluð börn, geðsjúkir og heyrnarskertir m.a. notð stuðnings félagsins. Kristín Þorkelsdóttir Gallerí Langbrók: Vatnslitamyndirc í DAG opnar Kristín Þorkelsdóttir sýningu á vatnslitamyndum í Gallerí Langbrók. Sýningin ber nafnið „Stillur" og á henni eru 29 myndir, flestar málaðar á sl. sumri. Kristín stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands í frjálsri myndlist 1951—’54 og var aðstoðarkennari Sverris Haraldssonar á kvöldnámskeiðum MHÍ á síðasta námsári sinu. Kristín hefur mikið unnið á sviði hagnýtrar myndlistar en heldur nú sína fyrstu einkasýningu á sviði frjálsrar myndlistar. Sýningunni lýkur 5. maí. Lágt vöruverd? GREEN GIANT gr. baunir kr. 59.50 HEINZ súpur í dósum, aöeins HEINZ bakaöar baunir 225 gr. kr. 21.00 kr. 24.15 DEL MONTE cocktail avextir Vidós 1/2 dós DEL MONTE perur og ferskjur Vidós V2 dós kr. 75.50 kr. 47.10 kr. 62.90 kr. 35.90 CARLSBERG Öl, aöeins RÖDE ORM, aöeins kr. 29.50 kr. 26.50 FELICA sjampoo 500 ml., aöeins DIXAN þvottaefni 600 gr., aöeins FESTA handsápa Rósas, aðeins kr. 39.80 kr. 62.50 kr. 8.50 CHINERS hunana 340 ar., aöeins kr. 68.60 GARDIA hunana 425 gr., aöeins kr. 66.50 GYLE’S GOLDEN syrup 500 gr., aöeins kr. 48.50 & Ou ',7/; j Ull J ■■■■ Barmahlíð 8, s. 17709
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.