Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.06.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985 33 Niðurstaða stjórnarandstöðunnar: „Verulegur ávinningur að ná milljarði til húsnæðismála“ „Stjórnarandstöðuflokk- arnir telja að miðað við að- gerðaleysi ríkisstjórnarinnar í þessum málum og áform hennar um erlendar lántökur hafí nokkur árangur náðst. Það má reyndar teljast veru- legur ávinningur að tekist hefur að knýja fram 1 millj- arð króna til húsnæðismála umfram það sem áður var gert ráð fyrir,“ segir m.a. í greinargerð sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar kynntu fréttamönnum á fundi í gær, þar sem tíunduð er afstaða stjórnarandstöð- unnar í húsnæðismálum. í greinargerðinni kemur fram að stjórnarandstaðan lagði m.a. til að aflað yrði 1,7 milljarðs króna á næstu 18 mánuðum til húsnæðismála, að vextir yrðu lækkaðir og yrðu aldrei hærri en 3% af húsnæðislánum, að greiðslujöfnun næði einnig til lífeyrissjóða og banka, að greiðslumark húsnæðislána yrði miðað við kaupgjaldsvísitölu og að skammtímalán verði lengd í 10 ára lán. í greinargerðinni segir jafn- framt að höfuðástæða þess að ekki náðist samkomulag á milli stjórnarflokka og stjórnarand- stöðu í þessu máli sé sú að stjórn- arflokkarnir kusu að gera sölu- skattshækkun að meginuppistöðu í tekjuöflun til húsnæðismála, en stjórnarandstæðingar hyggist greiða atkvæði gegn henni, þegar hún kemur til atkvæða á Alþingi. Það verður að öllum líkindum meirihluti fjárhags- og viðskipta- nefndar sem leggur frumvarpið um ráðstafanir til fjáröflunar fyrir húsnæðiskerfið fram á Al- þingi, en hann skipa þeir Páll Pétursson, sem er formaður nefndarinnar, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Halldór Blöndal, varaformaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, sagði í gær: „Ég er auðvitað enn mótfallinn þessum eignaskattsviðauka, en ef Alþingi samþykkir eitthvað, þá þýðir hvorki fyrir mig né aðra að neita að framkvæma það sem sam- þykkt er.“ Arangurslaus sáttafundur FUNDUR í kjaradeilu Sjómanna- félags Reykjavíkur og útgerðar- manna var haldinn i fyrradag og að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara, var árangur enginn. Búist er við að boðað verði til annars fundar í lok vikunnar. Áttræð: María Friðriks- dóttir, Hnífsdal María moðursystir mín varð áttræð í gær, 4. júní. Hún er ein af hetjum hversdagslífsins sem hafa byggt upp það þjóðfélag sem við njótum í dg. Hún fæddist 4. júní 1905 í Efri-Miðvík, Aðalvík, önnur í röðinni af 17 börnum Friðriks Finnbogasonar og Þórunnar Þor- bergsdóttur. Þegar María var 6 ára flytur fjölskyldan að Látrum og býr fyrstu 2 árin við sjóinn en síðan á Ysta-Bæ. María fór að heiman 16 ára að aldri og var í vist eins og þá tíðkaðist hér í Hnífsdal og á ísafirði í nokkur ár. Síðan liggur leið hennar á heima- slóðir aftur. Hún giftist Vernharði Jósepssyni föðurbróður mínum þann 27. nóvember 1929 og hófu þau búskap í Neðri-Miðvík og bjuggu þau þar í 2 ár. Síðan flytja þau að Atlastöðum og bjuggu þar sem bæirnir hafa staðið frá land- námsöld, á Bæjarhól ofan til við Skiphól. Árið 1935 flytja þau yfir ósinn og hefja búskap í Tungu. Fullyrða má að Tunga hafi verið erfiðasta jörð í Sléttuhreppi til búskapar, fjallvegur út að Látrum á aðra hönd en stórt vatnsfall á hina yfir að Atlastöðum. En þeim Vernharði og Maríu vegnaði þar vel fyrir dugnað sinn og harðfylgi. Ég á Maríu frænku minn mikið að þakka því hún hafi mig í fóstri í 5 mánuði þegar ég var á fyrsta ári. Það var vegna veikinda mömmu en ég dafnaði vel og hefur það ver- ið góðri aðhlynningu og fæðu að þakka. Þau hjón urðu fyrir þeirri þungu sorg að missa 3 börn sín á unga aldri, en þau hétu Margrét og Ragnar sem þau misstu fyrir norðan, og Selma, sem lést eftir að þau komu hingað í Hnifsdal. María eignaðist dóttur áður en hún giftist. Það er Helga, húsmóð- ir á Isafirði, en hin eru: Þórunn, húsmóðir í Hnífsdal, Herborg, húsmóðir á ísafirði, Bára, hús- móðir í Mosfellssveit, Sigrún, kaupmaður og húsmóðir í Hnífs- dal, og Jósep, rafvirki í Hnífsdal. Það voru ekki komin dagheimili, leikskólar og dagmömmur þegar hún María var að ala upp börnin sín og því síður fæðingarorlof. En nú eru konur orðinn háværasti þrýstihópur á íslandi, sumar eru Alþingismenn og enn fleiri rauð- sokkur og heimta fæðingarorlof í 6 mánuði, og feðurnir fá fæðingar- orlof líka, hvernig sem það getur staðist. En þó að allt þetta vantaði tókst þeim Vernharði og Maríu vel að ala upp sín börn og hafa þau komist vel áfram og reynst nýtir þjóðfélagsþegnar. Árið 1945 flytja þau hjónin aftur yfir ósinn en þá að Skjaldabreiðu og bjuggu þar í eitt ár. Þann 16. júní 1946 fluttum við öll úr Fljótavík, þar á meðal María og Vernharður með 6 börn. Þau settust að f gulu skemmunni á brekkunni í Hnífsdal en síðan kaupa þau íbúð í Heimabæ 5 og jarðarpart í tröðunum. I nokkur ár höfðu þau á leigu jörðina Heimabæ 2 ásamt útihúsum og voru 17 kýr í fjósi og um 100 ær í húsi. Búskapurinn gekk vel hjá þeim og hafa margir drengir verið í sumardvöl hjá þeim og mannast vel. Vernharður lést 9. maí 1982 og var það frænku minni mikið áfall. María hefur alla tíð verið félags- lynd og hress í viðmóti. Hún er heiðursfélagi í Kvenfélaginu Hvöt og hefur starfað þar af miklum dugnaði. Síðustu 3 árin hefur hún dvalið hjá börnum sínum á vet- urna en heima á Brekkunni á sumrin. María hefur gaman af ferðalögum og þá sérstaklega í víkurnar fögru, bæði Aðalvík og Fljótavík. Þó að hún 3é nú orðin áttræð veit ég að hún skreppur yf- ir ósinn heim í Tungu eins og hún hefur gert svo oft undanfarin sumur. Én nú hefur María ferugðið undir sig betri fætinum og farið í sína fyrstu utanför, hún dvelst á afmælisdeginum sínum á heimili Ástu dótturdóttur sinnar í Bergen í Noregi og veit ég að þessi ferð mun veita henni mikla gleði. Að lokum sendi ég Maríu hamingju- óskir yfir hafið og bið henni guðs blessunar í bráð og lengd. Guójón Finndal Finnbogason Sendinefnd frá þjóðþingi þýska alþýðulýðveldisins í heimsókn MÁNUDAGINN 3. júní kom hingað til lands í boói Alþingis sendinefnd frá þjóðþingi þýska Alþýðulýðveldis- ins. Mun hún dveljast hér á landi til 7. þ.m. Gerald Götting, formaður sendinefndarinnar, er varaforseti þjóðþings þýska Alþýðulýðveldis- ins og jafnframt varaforseti Rík- isráðsins. í fylgd með honum er eiginkona hans, Sabine Götting. Einnig eru með í förinni próf. dr. Werner Kalweit þingmaður og varaforseti vísindaakademíu þýska Alþýðulýðveldisins, Erwind Binder þingmaður, dr. Heinz Fahrenkr og þingmaður og forseti Sambands samvinnufélaga i þýska Alþýðulýðveldinu og Anton Fischbach frá skrifstofu þjóð- þingsins. Hann er ritari sendi- nefndarinnar. Þingmannasendinefndin er að endurgjalda heimsókn sendi- nefndar frá Alþingi til þýska AI- þýðulýðveldisins á árinu 1981. (l'rétutilkynning.) Heimir Steinsson Sumarferð Parkinson- samtakanna á íslandi SUMARFEKÐ Parkinsonsamtak- anna á íslandi verður farin 8. júní. Lagt er af stað frá hótel Esju kl. 10:00 f.h. og haldið verður til Þing- valla. Séra Heimir Steinsson verður leiðsögumaður í ferðinni og hádegis- verður er snæddur í Valhöll kl. 13:00 e.h. Ráðgert er að koma aftur til Reykjavíkur kl. 17:00 e.h. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í ferðinni láti vita í símum 36616 eða 27417 fyrir fimmtudagskvöldið 6. júní. (Fréttntilkynning) Miðnætur- guðsþjón- - usta í Sel- fosskirkju Friðarhópur sunnlenzkra kvenna efnir til miðnætur- guðsþjónustu í Selfosskirkju miðvikudagskvöldið 5. júní kl. 22. Kl. 21.45 hefst söng- stund í kirkjunni, þar sem farið verður yfír nýja sálma, sem sungnir veröa í guðs- þjónustunni. Áherzla verður lögð á þátt- töku kirkjufólksins í guðsþjón- ustunni, margar konur munu leiða söfnuðinn í ritningar- lestri, bænum, ljóðalestri og prédikun og leikið verður undir sálmasöng á píanó og gítar. í guðþjónustunni verður les- ið það Friðarávarp, sem Frið- arhreyfing íslenzkra kvenna og 85-nefndin safna undirskrift- um undir og sent verður á ^ kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairóbí í sumar. Undirskriftalistar liggja frammi í kirkjunni eftir guðs- þjónustu. (FrétUtilkynning) Ástin í Iðnó NÆNTKOMANDI föstudagskvöld kl. 23:30 sýnir Leikfélag Reykja- víkur gleðileikinn Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson í Iðnó. Ástin sigrar fjallar á gaman- saman hátt um samband ungra hjóna sem hafa reynt að búa saman í „opnu“ hjónabandi. Það hefur þó ekki tekist sem skyldi og eiginkonan (Dóra) flytur að heiman og tekur saman við vaxt- arræktarkappa, Hall, sem er, að hennar mati a.m.k., mun eigu- legri gripur. Eftir stendur hinn yfirgefni eiginmaður Hermann í sárum, og situr i þokkabót uppi með unga og frjálslega stúlku sem í upphafi orsakaði brott- flutning konu hans. Inn í málið blandast einnig ýmsar aðrar spaugilegar persón- ur, t.a.m. tannlæknirinn Nói og aðstoðarstúika hans, athafna- sigrar maðurinn Gummi, móðir Her- manns og mótorhjólatöffarinn Arnljótur. Allar þessar persónur og fleiri til, mynda mikla ástarflækju sém illa gengur að leysa, en allt fer þó vel að lokum því Ástin sigrar. Með helstu hlutverk fara Kjartan Bjargmundsson, Ása Svavarsdóttir, Jón Hjartarson, Valgerður Dan. Gísli Halldórs- son, Margrét Ólafsdóttir, Bríet Héðinsdóttir, Steindór Hjör- leifsson og Helgi Björnsson. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son. Sem áður sagði verður mið- nætursýning á Astinni nk. föstu- dagskvöld kl. 23:30, miðasalan er opin í Iðnó daglega kl. 14—20:30, nema þá daga sem sýning er ekki, þá er hún opin til kl. 19:00. Miðapantanir eru í sima 16620.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.