Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985 B 11 Samkvæmt upplýsingum frá útlagastjórn Dalais Lama kostaöi innrás Kínverja og menningarbylting Maos sjötta hvern Tíbetbúa lífiö. SJÁ: Vesöld oft að sætta sig við að ræða bara við starfsbróður sinn, Gromyko. Eða eins og einn Rússinn lét flakka: „Eina ástæðan fyrir því hér áður, að þeir fengu að sjá leið- togann, var að sýna að öldungur- inn tórði ennþá." Fjölmiðlarnir hafa beðið lengi eftir leiðtoga á borð við Gorbach- ev. Á kvöldfréttirnar horfir rúm- lega helmingur þjóðarinnar og stjórnmálamaður, sem kann á kvikmyndavélina og lætur sér ekki nægja að flytja bara einhverja ræðu fyrir framan hana, er líkleg- ur til að öðlast óvanalega mikil áhrif. Gorbachev virðist viss um að standast prófraunir sjónvarps- myndavélanna og sem dæmi um það má nefna, að þegar hann var í Leningrad var hann ekkert að fela sterkan, suður-rússneskan hreim- inn, sem hann reynir að bæla niður þegar hann flytur opinberar ræður. Gorbachev virðist ekkert hafa á móti því að tala um ætt sína og uppruna (hann er kominn af bændum eins og flestir Rússar) og af ýmsu má ráða, að þrátt fyrir allmikil völd í 15 ár sé hann ekki búinn að gleyma því hvernig venjulegt fólk lifir. Gorbachev heldur alltaf upp á afmælið sitt í Stavropol, þar sem flestir ættingjar hans búa enn, og hann lætur sig aldrei vanta á ár- legan fund bekkjarfélaganna í lagadeild háskólans. 1 Leningrad var Raisa, kona Gorbachevs, ávallt við hlið hans, flestum Sov- étmönnum til mikillar furðu, og bendir það til, að hér eftir verði hjónabönd frammámanna í Sovét- ríkjunum ekki sama leyndarmálið og þau hafa lengi verið. Það eitt út af fyrir sig væri dálítil bylting. Tilgangurinn með þessum breytingum er að sjálfsögðu póli- tískur. Samkvæmt bæði rússn- eskri og kommúnískri hefð er það leiðtoginn, sem á að gefa tóninn og boðskapur Gorbachevs er í raun og veru sá, að nú verði Sovétmenn, hvort sem þeim líkar það betur eða verr, að fara að tileinka sér nútímalegri siðu. — MARK FRANKLAND SKALD JOFURINN | HUGO: samviska þjóðarinnar m þessu ári minnast Frakkar Aþess með margvíslegum hætti að 100 ár eru liðin frá andláti Victors Hugo. Þessi ástsæli andans maður er frægur fyrir skáldsögur sínar, leikrit, ljóð og ádeilugreinar og í tilefni ártíðar hans er nú efnt til sýningar, verk hans leikin, lesið úr bókum hans og fluttir fyrirlestr- ar um líf hans og list út og suður um Frakkland. Þá kemur á mark- aðinn ný heildarútgáfa af verkum skáldsins og póstþjónustan heiðrar minningu hans með útgáfu sér- staks frímerkis. Menntamálaráðu- neytið hefur jafnvel látið gera sér- stakan bol með mynd af unglingi sem krýpur á hnjánum og hrópar: „Hugo, þú ert óviðjafnanlegur." Óvíða í heiminum væri unnt að gera slíkt veður út af 100 ára ártíð rithöfundar. En Frakkar bera afar mikla virðingu fyrir helztu rithöf- undum sínum og þó sér í lagi fyrir Victor Hugo. Hann var ekki ein- ungis vinsælasti höfundur þeirra á síðustu öid heldur varð hann eins konar tákn um samvizku þjóðar sinnar. Reiðilestrar hans gegn ranglæti, sem meðal annars birtust í skáldsögunni „Vesalingarnir" og fjölmörgum öðrum ritverkum, snerta enn viðkvæma strengi í brjóstum manna. En þótt franska þjóðin sé nánast einhuga í aðdáun sinni og virðingu fyrir skáldjöfrinum, þykir mörgum Allir vilja flokkarnir eiga hann hægri mönnum sem ríkisstjórn sósíalista ætli að nota ártíð hans til að veita vatni á sína eigin myllu. Þeir telja að sósíalistar vilji hressa upp á ímynd sína með því að ljá henni yfirbragð Victors Hugo. íhaldskona á áttræðisaldri segir m.a.: „Hugo var mikilmenni sem barðist gegn keisaraveldinu árum saman. Nú hafa vinstri mennirnir reynt að eigna sér hann. En ef hann kæmi aftur og sæi hvað sósí- alistar og ríkisstjórn þeirra hefur afrekað, yrði hann ævareiður." Hin opinberu hátíðahöld virðast einnig hafa farið fyrir brjóstið hjá ýmsum á vinstri vængnum. Jean- Pierre Thibaudat, gagnrýnandi hjá dagblaðinu Liberation, sem er vinstrisinnað skrifar meðal annars: „Hvers erum við að minnast, þegar öld er liðin frá andláti Hugos? Hvorki mannsins né verka hans heldur helgimyndar. Við lofsyngj- um goðsögn." Eigi að sður er erfitt fyrir Frakka að fetta fingur út í hátíða- höld í heiðursskyni við minningu Victors Hugo. í upphafi skólagöngu sinnar eru öll frönsk börn látin kynnast myndinni af hinum hær- ugráa öldungi sem styður fingri við höfuð sér, hugsi á svip. Hann er forfaðir Frakklands, samvizka Frakklands, bókmenntasnillingur Frakklands — allt í senn. Ríkisstjórnin hefur látið dreifa í þúsundatali 70 síðna bæklingi sem greinir frá öllum þeim viðburðum sem eiga sér stað víðs vegar um Frakkland á þessu ári til heiðurs skáldinu. Það er raunar ekki að undra þótt stjórnin reyni að minn- ast afmælisins með glæsibrag. Sósíalistar þykjast semsagt sjálfkjörnir arftakar Victors Hugo. -NTANLEY MEISLER Herraþjóðin heldur Tíbetum í heljargreipum Kínverjar hafa goldið innlim- un Tíbets dýru verði. Til dæmis hafa þeir neyðst til að veita þangað feikn miklu fjármagni síðustu þrjá áratug- ina og þeir hafa orðið fyrir álits- hnekki á alþjóðavettvangi vegna framkomu sinnar gagnvart heimamönnum. Eigi að síður eru útgjöld Kínverja smáræði í samanburði við það gjald sem Tíbetbúar hafa orðið að greiða. Yishi Chunpei er 53ja ára gamall, en var aðeins 11 ára að aldri er hann gerðist munkur og hefur verið það alla tíð síðan. Hann stundaði nám við Drepung-klaustrið í útjaðri Lhasa, þegar það var stærsta klaustur í heimi. Hann er óvenju þrekinn og vöðvastæltur af munki að vera, en skýringin er sú að hann var um tuttugu ára skeið í fangelsi í Kína og vann þar við steinhögg. Yi munkur var 27 ára gamall árið 1959 og fór hann þá að dæmi margra annarra munka sem rufu friðareiða sína og gripu til vopna gegn Kínverjum til að verja trúarleiðtoga sinn, Dalai Lama. Kínverjar brutu þessa uppreisn á bak aftur eftir 11 daga, og létu taka af lífi fjölda munka, embættismanna, bænda og annarra þeirra sem höfðu tekið þátt í henni. Sjálf- um hafði Dalai Lama tekizt að flýja til Indlands skömmu eftir að til átaka kom. Yi hélt lífi, en var handtekinn og fangelsaður sem fyrr segir. Yi segist svo frá: „Þeir sögðu að ég hefði verið einn af vörðum Dalai Lama, svo að ég var settur í að brjóta grjót og látinn gista lítinn klefa um nætur. Ég var oft veikur, en mest óttaðist ég að fá ekki að sjá Dalai Lama áður en ég dæi.“ Samkvæmt upplýsingum frá útlagastjórn Dalai Lama varð blóðbaðið 1959 og menningar- bylting Maos einum sjötta hluta Tíbetbúa að aldurtila eða um það bil einni milljón manna. Arið 1980 var áætlaö að um 10% þeirra sem eftir lifðu hefðu gist fangelsi einhvern hluta ævi sinnar. Hernámsliðið hefur stjórnað landsmönnum harðri hendi, en ekki aö sama skapi viturlega. Tíbetbúar hafa þó orðið að láta sér valdbeitinguna lynda, en hins vegar hafa þeir verið dræmir til allrar samvinnu við innrásarliðið. Ástæðan er ekki sízt sú, að Kínverjum hefur mis- tekizt með öllu að færa þeim það efnahagsundur sem þeir boðuðu. Þegar Kínverjar lögðu Tíbet undir sig lögðu þeir atvinnulíf þjóðarinnar í rúst og fyrir bragðið varð þar fyrsta hung- ursneyðin í sögu landsins. Kín- verskir hermenn og kínverskir verkamenn voru látnir ganga fyrir og hirtu bróðurpartinn af þeim matvælum sem voru í boði. Landsmenn eru enn þjakaðir af þeirri fátækt sem hernámið olli. Árið 1980 viðurkenndu kínverskir embættismenn að þriðjungur Tíbetbúa væri verr staddur efnahagslega en fyrir hernámið. Eigi að síður þykjast margir þessara embættismanna hafa aðrar skýringar á taktein- um á slæmum hag Tíbetbúa. Þeir fullyrða blygðunarlaust að landsmönnum sé sjálfum um að kenna, því að „þessi þjóðernis- minnihluti er á svo frumstæðu stigi". — MARY LOIIISE O’CALLAGHAN DQMAR Knattspyrnu- fólið fékk fimm ár í steininum Þeir, sem gerast sekir um að blanda knattspyrnuáhuganum saman við ofbeldisverk, eiga það skilið að vera sviptir frelsinu," sagði Christopher Hilliard, dómari við Old Baily, þegar hann dæmdi nú á dögunum einn áhangenda Cambridge-liðsins, Leslie Muranyi, sem kallaður er „Hershöfðinginn", í fimm ára fangelsi. Tuttugu og fjórir úr 80 manna „her“ Muranyis voru einnig dæmdir í fangelsi, allt frá fimm mánuðum upp í fjögur ár. Þegar Hilliard kvað upp dóminn yfir mönnunum 24 sagði hann m.a.: „Þið hafið allir unnið til að vera sviptir frelsinu. Það er verðið, sem þið hljótið að greiða fyrir að blanda saman áhuganum á knattspyrnu og ofbeldisverkum. Ég get ekki tekið tillit til þess, að þið eruð ungir að árum og þið verðið sjálfir að bera ábyrgð á afleiðingum fangavistar- innar." Muranyi og „herinn" hans vildu ná sér niðri á aðdáendum Chelsea- liðsins, sem efnt höfðu til óláta í Cambridge keppnistímabilið áður, og í tvo mánuði voru þeir að undir- búa ódæðisverkin. Áður en til leiks liðanna kom voru nokkrir aðdáend- ur Chelsea-liðsins tældir inn á bjórkrá með miklum vinalátum og þar réðst 30 manna hópur á þá. MURANYl: íorsprakkinn skipulagði árásirnar vandlega „Það var um að ræða skipulagt ofbeldi, sem hafði næstum því kostað mannslíf," sagði Hilliard dómari, en einn Chelsea-aðdáend- anna var hætt kominn og missti lítra af blóði þegar hann var skor- inn á hálsi með brotinni flösku. Alls tóku 150 Cambridge-aðdá- endur þátt í götuóeirðum fyrir leik- inn þar sem bílar voru skemmdir og venjulegir vegfarendur áttu fót- um sínum fjör að launa. Lögregl- unni tókst þó loks að króa ofbeldis- seggina af með hundum en í átök- unum hlaut einn lögreglumann- anna varanleg meiðsl. Alls þurftu 40 manns á læknishjálp að halda. HiIIiard dómari sagði þegar hann dæmdi Muranyi, að hann væri upphafsmaður að alls kyns ofbeldisverkum i skjóli áhugans á knattspyrnunni en þess má geta að Muranyi var árið 1983 bannað fyrir lífstíð að koma inn á leikvanginn í Cambridge. „Með framferði þinu hefur þú lagt í rúst líf nokkurra félaga þinna," sagði Hilliard. — ANNE MCHARDY ATVÓGL____________________ Gráðugir gestir Hundruð fyrirmanna í við- skiptalífi Kínverja sem sóttu vörusýningu í Shanghai, þyrptust inn í veitingasalinn áður en mót- takan átti að hefjast, tróðu í sig nær öllum krásunum sem þar voru á boðstólum og settu afganginn annað hvort í plastpoka eða vasa sína. Frá þessu hefur verið skýrt í kínverskum blöðum. „Þeir gátu ekki haldið aftur af græðgi sinni og þyrptust að mat- borðinu,“ segir í bréfi sem birtist á forsíðu Dagblaðs frelsunarinnar. Bréfið er ritað af veitingafólki í sýningahöllinni. Þar segir m.a.: „Sumir töldu að það tefði aðeins fyrir að nota hnífapör svo þeir hentu þeim frá sér og notuðu guðsgaflana til að hrifsa til sín matinn." Og enn- fremur: „Sumir tróðu heilum kjúklingum ofan i plastpoka og fylltu alla vasa af ávöxtum. Aðrir hrifsuðu heil föt með skinku og tóku með sér heim í kvöldmatinn. Á einu augnabliki voru allar kræs- ingarnar horfnar, en gestgjafarnir sátu eftir með sárt ennið og urr- uðu eins og tígrisdýr eða ýlfruðu eins og úlfar til að láta í ljósi óánægju sína.“ I bréfinu sagði að lokum að þetta framferði hefði verið til hinnar mestu háðungar fyrir kommúnistaflokkinn, en i þeim herbúðum sé einmitt stöðugt klif- að á því að efla þurfi góða siði í anda sósíalismans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.