Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUQ4RPAQUR, 15. JÚNl 198?
Aðalfundur SIS:
Sambandið hafi
forgöngu um nýtt
fjölmiðlafyrirtæki
Bifröst í Borgarfírði, 14. júní. Frá Agnesi Bragadóttur, bladamanni Morgunblaósins.
Á AÐALFUNDI Sambandsins, sem
lauk í kvöld hér í Bifröst, voru sam-
þykktar ályktanir sem gera ráð fyrir
því að stjórn Sambandsins leiti leiða
til að styrkja stöðu samvinnuhreyf-
ingarinnar í fjölmiðlun. Gert er ráð
fyrir að sérstök hliðsjón verði höfð
Fyrsti sig-
ur Þórs
gegn Val í
1. deild
ÞÓR VANN sinn fyrsta sigur á Val f
1. deildinni í knattspyrnu er liðin
mættust í gærkvöldi á Akureyri. Þór
sigraði 2—1 og var sigur liðsins
mjög sanngjarn. í hálfleik var stað-
an 1—0 fyrir Val. Það var Hilmar
Sighvatsson sem skoraði mark Vals
á 13. mínútu. Fyrri hálfleikur var
frekar slakur.
Síðari hálfleikur var mun betri
og líflegri og átti Þór mun meira í
leiknum. Á 53. mínútu jafnaði
Jónas Róbertsson leikinn úr víta-
spyrnu og fjórum mínútum síðar
skoraði Bjarni Sveinbjörnsson sig-
urmark Þórs.
Þegar Þór skoraði síðara mark
sitt var flösku kastað inn á leik-
vanginn og brutust út nokkrar
stympingar í stúkunni. Einn mað-
ur var handtekinn og færður í
fangageymslu lögreglunnar. Nán-
ar verður skýrt frá leiknum síðar
þar sem blaðið fór svo snemma í
prentun.
Hef fengið
stórkostlegar
móttökur
— sagdi Reynir
Pétur Ingvarsson
„Móttökurnar hér á Akur-
eyri voru stórkostlegar, mér
var fagnað eins og þjóðhöfð-
ingja með híðrablæstri og öllu
tilheyrandi," sagði göngugarp-
urinn Reynir Pétur Ingvarsson
frá Sólheimum í Grímsnesi,
þegar blm. sló á þráðinn til
hans norður til Akureyrar í
gærkveldi, en þangað kom
hann um fimmleytið í gær.
Félagar í íþróttafélögum
fatlaðra og þroskaheftra
gengu á móti Reyni og fylgdu
honum að Ráðhústorginu.
Mikill mannfjöldi var sam-
ankominn í miðbænum og
var Reyni fagnað ákaft, að
sögn Halldórs Kr. Júliusson-
ar, forstöðumanns Sólheima.
Sigríður Stefánsdóttir, fyrsti
varaforseti bæjarstjórnar
Akureyrar, flutti ávarp
ásamt fleirum og bauð Reyni
velkominn til höfuðstaðar
Norðurlands. Þá var Reyni
færður fjöldi gjafa frá fyrir-
tækjum, félagasamtökum og
einstaklingum.
Reynir kvaðst ekki finna til
þreytu þó hann væri búinn að
ganga 945 km á þremur vik-
um. „Ég hef fengið svo stór-
kostlegar móttökur hvar sem
ég hef komið að ég veit bara
ekki hvernig ég get fullþakk-
að öllu þessu fólki,“ sagði
Reynir.
Sjá frásögn af Sólheim-
um á bls. 14.
af þeim möguleikum sem felast í
hinum nýju útvarpslögum.
Viðbótartillaga við ofangreinda
ályktun sem stjórnarformaður
Sambandsins, Valur Arnþórsson,
bar fram frá Þresti Ólafssyni var
jafnframt samþykkt. Hún gerir
ráð fyrir því, að stjórn Sambands-
ins hafi forgöngu um viðræður
milli fulltrúa samvinnuhreyf-
ingarinnar, verkalýðshreyfingar-
innar og samtaka bænda og ann-
arra almennra samtaka um stofn-
un alhliða fjölmiðlafyrirtækis
þessara aðila.
Hér á fundinum hefur ekkert
komið fram sem bendir til þess að
þessar samþykktir hafi nokkur
áhrif á aðild Sambandsins að ís-
film, að minnsta kosti ekki um
stundarsakir.
Hæstiréttur:
Sjóli til Hafnarfjarðar
Morgunbladið/Júlíus
Varöskipið Ægir kom með togarann Sjóla HF 18 í togi frá Patreksfirði og var hann dregiun að bryggju í
Hafnarfírði síðdegis í gær. Töluverður mannsöfnuður var á bryggjunni þegar Sjóli lagðist að, þ. á m. nokkrir
skipverjar af togaranum, sem brann utan við Patreksfjörð sl. miðvikudag.
Kauptilboð sem rift var
eftir undirritun standi
HÆSTIRETTUR hefur
dæmt, að kauptilboð í íbúð,
sem eigendur samþykktu og
undirrituðu í maí 1982 en
fóru síðar fram á ógildingu,
skuli standa. Eigendurnir
tóku öðru og betra tilboði að
þeirra mati. Sá kaupsamning-
ur er því ógildur og ganga
kaupin til baka og verður
maðurinn, sem gerði betra
tilboðið að áliti eigenda, að
rýma íbúðina.
Tildrög málsins eru þau, að í
maímánuði 1982 var fasteigna-
sölunni Gimli í Reykjavík falið
að selja 5 herbergja íbúð við
Nóatún í Reykjavík. Hjón gerðu
skriflegt tilboð í eignina að fjár-
hæð 1.250.000 þúsund krónur og
skyldi útborgun vera 900 þúsund
krónur og eftirstöðvar greiðast á
fjórum árum. Eigendur íbúðar-
innar tóku þessu tilboði og und-
irrituðu, en síðar sama dag sýndi
annar áhuga á kaupum og var
boðið að skoða íbúðina af hálfu
fasteignasölunnar.
Maðurinn bauð 1.100.000 þús-
und krónur, sem greiðast skyldu
að fullu á rúmu ári. Haft var
samband við hjónin, sem gerðu
tilboðið fyrr um daginn og þau
beðin að falla frá tilboði sínu.
Þau höfnuðu, enda ráðstafað eig-
in íbúð með sölu. Eigendurnir
riftu kauptilboðinu og seldu
manninum, sem bauð stað-
greiðslu. Hjónin mótmæltu rift-
un tilboðsins og fóru þess á leit,
að þeim yrði með beinni fógeta-
gerð fengin umráð íbúðarinnar.
Þeirri kröfu var hrundið í
fógetarétti í ágúst 1982. Hjónin
greiddu í banka inn á íbúðina
samkvæmt kauptilboði sínu og
útveguðu bankaábyrgðir. Þau
hófu málssókn og kröfðust þess,
að staðið yrði við undirritað
kauptilboð. Töldu að kominn
væri bindandi kaupsamningur
með undirritun tilboðs. Jafn-
framt töldu þau sig hafa beðið
tjón og kröfðust skaðabóta.
í Borgardómi voru ekki talin
næg efni að taka kröfu hjónanna
til greina en eigendum gert að
greiða bætur, 35 þúsund krónur
með vöxtum og greiðslu máls-
kostnaðar.
Hæstiréttur dæmdi, að innan
4 vikna frá birtingu dómsins
skuli hjónunum látið í té afsal
fyrir íbúðinni samkvæmt kaup-
tilboðinu, sem undirritað var í
maí 1982, ásamt vöxtum. Bóta-
krafa þeirra var tekin til greina
og eigendum gert að greiða 100
þúsund krónur í málskostnað.
Hæstaréttardómararnir voru
Magnús Þ. Torf ason, Guðmund-
ur Jónsson, Guðmundur Skafta-
son, Halldór Þorbjörnsson og
Sigurgeir Jónsson. Guðmundur
Jónsson skilaði sératkvæði, svo
og Magnús Þ. Torfason.
Almálið kostaði 34 millj.
króna árin 1981
Þrír þeir hæstlaunuðu fengu samtals um 3,7 milljónir
Á ÁRUNUM 1981 til 1983 fékk Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur greitt frá
iðnaðarráðuneytinu rúmar 2 milljónir króna á verðlagi júnímánaðar 1985
fyrir sérfræðiþjónustu vegna álmálsins. Ingi R. Helgason forstjóri fékk á
sama tíma 932 þúsund krónur og Ragnar Árnason lektor 647 þúsund krónur
á sama verðlagi. Aðrir nefndarmenn fengu lægra. Inn í þessum tölum sem
forsætisráðherra kynnti blaðamönnum á Alþingi í gær í tilefni fyrirspurnar
frá Hjörleifí Guttormssyni, sem ekki kom til umræðu, er ekki reiknaður
ferðakostnaður og dagpeningar.
Kostnaður vegna álmálsins
sömu ár nemur alls 34 milljónum
króna á verðlagi nú, og er þar tek-
inn með kostnaður vegna mengun-
arrannsókna Iðntæknistofnunar,
en hún fékk rúmlega 3 milljónir
króna greiddar.
Þá var Rafteikningu greitt
vegna starfa Tryggva Sigurbjarn-
arsonar rafmagnstæknifræðings
að ýmsum verkefnum á sviði
orkumála 1,3 milljónir króna 1981
og um 600 þúsund krónur 1982.
Störf Tryggva voru reiknuð sam-
kvæmt gjaldskrá Félags ráðgjaf-
arverkfræðinga að frádregnum
10% afslætti.
f bréfi iðnaðarráðuneytisins
dags. 17. maí 1983 til Ragnars Að-
alsteinssonar, er hann skipaður
lögfræðingur ríkisstjórnarinnar i
gerðardómsmáli er Swiss Alum-
inium Ltd. höfðaði á hendur ís-
lenskra stjórnvalda. Bréfið er
undirritað af Hjörleifi Guttorms-
syni þáverandi iðnaðarráðherra
og Páli Flygenring ráðuneytis-
stjóra hálfum mánuði áður en
ráðherrann lét af embætti. Þar
kemur fram að með hliðsjón af
umfangi og eðli málarekstursins
verði þóknun Ragnars fyrir hvern
unninn dag utan fslands sú sama
og greitt er samkvæmt reglum Al-
þjóðastofnunarinnar til lausnar
fjárfestingardeilum. Fyrir unninn
dag í Reykjavík % af því sem
greitt er utanlands. Þá er allur út-
lagður kostnaður greiddur eftir
framlögðum reikningum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins hefur sömu reglum verið fylgt
síðan.
Árið 1981 var greiðsla vegna
innlendrar sérfræðiþjónustu 1,9
milljónir króna eða 655 þúsund
krónur á verðlagi þess árs. Við
framreikning er stuðst við meðal-
lánskjaravisitölu 1981 og láns-
kjaravísitölu sem gildir fyrir yfir-
standandi mánuð (249/1144).
Greiðslurnar skiptust þannig, en
innan sviga er miðað við verðlag
1981: Ingi R. Helgason, kr. 718.432
(156.372) - Ragnar Aðalsteinsson,
kr. 367.550 (80.000) - Ragnar
Árnason, kr. 272.488 (59.309) - Vil-
hjálmur Lúðvíksson, kr. 173.010
(37.657), en aðrir fengu minna.
Erlend sérfræðiþjónusta kostaði
rúmar 9 milljónir króna og í
ferðakostnað og fleira var greitt
um 320 þúsund krónur.
1982 skiptist þessi kostnaður
þannig: Ragnar Aðalsteinsson, kr.
1.300.378 (423.987) - Gísli Gunn-
arsson, kr. 294.434 (96.000) - Þor-
geir Örlygsson, kr. 283.540 (92.448)
- Vilhjálmur Lúðvíksson, kr.
259.004 (84.448) - Ragnar Árnason,
kr.244.254 (79.639) - Ingi R. Helga-
son, kr. 213.710 (69.680), en aðrir
fengu minna. Kostnaður við er-
lenda aðila var 6,9 milljónir króna.
Ferðakostnaður og fleira var 422
þúsund krónur.
Árið 1983 fram til 31. maí, eða
þegar núverandi ríkisstjórn tók
við, var kostnaðarskiptingin svo:
Ragnar Aðalsteinsson, kr. 219.523
(128.375) - Ragnar Árnason, kr
130.775 (76.476) - Gísli Gunnars-
son, kr. 88.920 (52.000) og aðrir
minna. Erlendir ráðgjafar fengu
greitt 6,5 milljónir króna. Ferða-
kostnaður var um 169 þúsund
krónur.
Það sem eftir lifði af árinu var
skiptingin þessi: Ragnar Aðal-
steinsson, kr. 192.414 (112.522) -
Hjörtur Torfason, kr. 188.101
(110.000) - Garðar Ingvarsson kr
154.465 (90.707), en aðrir fengu
minna greitt. Ferðakostnaður var
rúmlega átta hundruð þúsund
krónur.