Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1985
11
Seljasókn á sunnudag:
Guðsþjónusta undir berum himni
GuAsþjónusta verður undir berum
himni í Seljasókn, Breiöholti á
sunnudaginn kemur, þann 1 G.júní
Kirkjubekkir smíðaðir fyrir messuna.
k!.14:00, og mun sóknarprestur, sr.
Valgeir Ástráðsson, messa.
„Já það stendur mikið til hjá
Morgunblaðið/Bjarni
okkur," sagði sr. Valgeir í samtali
við blaðamann. „Byggingar-
framkvæmdir hafa gengið hratt
og á rúmum einum mánuði verið
steyptir upp allir veggir kirkjunn-
ar. Er meiningin að hafa guðs-
þjónustu í kirkjubyggingunni á
sunnudag, undir berum himni. Að
lokinni guðsþjónustu verða veittar
útskýringar á byggingunni og
kvenfélag sóknarinnar mun bjóða
upp á molasopa.
Má reikna með að þetta verði
stór dagur í Seljahverfinu. Við
höfum kosið að kalla bygginguna
kirkjumiðstöð til að leggja áherslu
á að hún eigi að hýsa margháttaða
starfsemi safnaðarins. Hér búa
átta þúsund manns en aðstaða til
almennrar félagsstarfsemi í
hverfinu er sáralítil og safnað-
arstarfið, sem er mikið að vöxtum,
fer fram hér og hvar um hverfið
og bæinn. Seljasóknin var stofnuð
fyrir tæplega fimm árum og er sú
yngsta í borginni."
Veggir kirkjubyggingarinnar í Seljasókn og er ætlunin að messa innan þeirra
á sunnudag. Frá vinstri: Sverrir Norðfjörð arkitekt hússins, Valgeir Ástráðs-
son sóknarprestur og Jón Zalewski meistari.
Komið og reynsluakiö Rocky og ræð-
iö við sölumenn um útborgun og láns-
tíma eftirstööva skv.
Daihatsu-kjörum.
Daihatsu-gæði-
þjónusta-endursala.
Bílasýning
í allan
Þegar hönnuöir
Daihatsu-verksmiöjanna
skiluðu vinnuteikningum sínum
til framleiðsludeildar verksmiójanna
höfðu þeir leyst af hendi 4 meginverkefni
1. Komið öllum bestu eiginleikum 4-hjóladrifsbílsins ásamt nokkr-
um nýjungum fyrir í ramma, sem samtals vegur aðeins 1330 kg.
ahatsu
ROCKY
Glæsileg eign
á réttu verði og kjörum
2. Gert hann ótrúlegasparneytinn úr garöi án þess aö fórna
nokkru í afli og snerpu.
3. Gefið honum sérlega glæsilegt og traustvekjandi útlit ásamt
rúmgóðu, fallegu farþega- og farangursrými og glæsilega út-
færöu mælaborði.
4. Ótrúlega hagstætt verð. Staðreyndin er nefnilega sú, að Rocky
Wagon lúxusútgáfa meö bensínvél kostar aöeins frá kr.
823.000 með ryðvörn kominn á götuna og stenst með glæsi-
brag verösamanburð við keppinautana.
Þótt við segjum aðeins 823 þúsund krónur fyrir
Rocky Wagon eru þaö auövitað heilmiklir fjár-
munir, enda Rocky mikil eign. Við bjóðum sér-
stök kjör fyrir þá sem þess óska, er þeir ákveða
kaup á Rocky.
Við bjóðum svo 5. atriðið
— Daihatsu-kjör
Daihatsu-umboðið
Ármúla 23, 8. 685870-81733.