Morgunblaðið - 15.06.1985, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1985
13
Matthías Bjarnason samgönguráðherra:
Kynnir samgöngumál
á fundum um land allt
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Matthías
Bjarnason, mun fara ferð um landið
dagana 20.—27. júní nk. og kynna
samgöngumál. Með í ferðinni verða
nokkrir sérfræðingar og stjórnendur
stofnana sem heyra undir samgöngu-
ráðuneytið.
Á árinu 1984 heimsótti Matthías
Bjarnason, ráðherra, ýmsa staði á
landinu ásamt stjórnendum og sér-
fræðingum á sviði heilbrigðismála
og kynnti það sem efst var á baugi í
þeim málaflokki.
Á þessum ferðum kom vel í ljós
hversu mikil þörf er á að miðla upp-
lýsingum og kynna almenningi
starfsemi hinna ýmsu ríkisstofn-
ana.
Ferð ráðherra hefst á Selfossi
fimmtudaginn 20. júní og lýkur á
Egilsstöðum fimmtudaginn 27. júní.
Selfoss
20. júní — Tryggvaskáli kl. 21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Jón Rögvaldsson yfir-
verkfræðingur Vegagerðar ríkisins.
Póst- og símamál, Guðmundur
Björnsson forstjóri fjármáladeildar
Póst- og símamálastofnunar.
Flugmál, Haukur Hauksson að-
stoðarflugmálastjóri.
Hafnarfjöröur
21. júní — Gafl-Inn kl. 21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Jón Rögnvaldsson yfir-
verkfræðingur Vegagerðar ríkisins.
Póst- og símamál, Guðmundur
Björnsson forstjóri fjármáladeildar
Póst- og símamálastofnunar.
Ferðamál, Birgir Þorgilsson
ferðamálastjóri.
Borgarnes
22. júní — Hótel Borgarnes kl.
14.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Jón Rögnvaldsson yfir-
verkfræðingur Vegagerðar ríkisins.
Póst- og símamál, Gústav Arnar
yfirverkfræðingur Póst- og síma-
málastofnunar.
Ferðamál, Birgir Þorgilsson
ferðamálastjóri.
ísafjörður
24. júní — Menntaskólanum kl.
21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Helgi Hallgrímsson for-
stjóri tæknideildar Vegagerðar
ríkisins.
Póst- og símamál, Gústav Arnar
yfirverkfræðingur Póst- og síma-
málastofnunar.
Siglingamál, Magnús Jóhannesson
siglingamálastjóri.
Sauðárkrókur
25. júní — Safnahúsið kl. 21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Helgi Hallgrímsson for-
stjóri tæknideildar Vegagerðar
ríkisins.
Flugmál, Leifur Magnússon for-
maður flugráðs.
Vita- og hafnamál, Aðalsteinn Júlí-
usson vita- og hafnamálastjóri.
Akureyri
26. júní — Sjálfstæðishúsinu kl.
21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Helgi Hallgrfmsson for-
stjóri tæknideildar Vegagerðar
ríkisins.
Póst- og símamál, Guðmundur
Björnsson forstjóri fjármáladeildar
Póst- og símamálastofnunar.
Flugmál, Leifur Magnússon for-
maður flugráðs.
Ferðamál, Kjartan Lárusson for-
stjóri Ferðaskrifstofu rfkisins.
Matthías Bjarnason
Egilsstaðir
27. júnf — Menntaskólanum kl.
21.00.
Samgöngumál, Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra.
Vegamál, Helgi Hallgrímsson for-
stjóri tæknideildar Vegagerðar
rfkisins.
Flugmál, Jóhann Jónsson fjár-
málastjóri Flugmálastjórnar.
Ferðamál, Kjartan Lárusson for-
stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins.
(Fréttatilkynning frá sam-
gönguráðuneytinu.)
Útgöngubanni
aflétt á Nýju-
Kaledóníu
Nounu, Nýju Kaledónfu. AP.
STJÓRNVÖLD á Nýju Kaledóníu
hafa tilkynnt að aflétt sé ströngu út-
göngubanni sem hefur verið í gildi
frá því í janúar. Engu aö sjður eru
neyðarlög áfram í gildi. Útgöngu-
bannið gilti frá 22 á kvöldin til 5 að
morgni.
Þessi ákvörðun er einn liður í
viðleitni hæstráðanda Nýju Kale-
dóníu, Fernand Wibaux, sem telst
vera undir yfirráðum Frakka, til
að koma lífinu í Nouma í eðlilegt
horf. Nokkrir tugir hafa látist í
pólitiskum óeirðum í Nýju Kale-
dóníu frá því í nóvember.
Wibaux tók við starfinu sem að-
alumboðsmaður Frakka af Edgard
Pisani sem lét af því um síðustu
mánaðamót.
Keisaratal
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Michael Grant: The Roman Emper-
ors. A Biographical Guide to the Rul-
ers of Imperial Rome 31 BC-AD 476.
Weidenfeld and Nicolson 1985.
Michael Grant starfaði lengst af
við háskólann í Cambridge, einnig
í Edinborg. Hann hefur skrifað
fjölda bóka um rómverska sögu og
er meðal merkustu fræðimanna í
þeirfi grein. Meðal rita hans eru:
The World of Rome, The Army of
the Caesars, History of Rome, The
Dawn of the Middle Ages ofl. ofl.
í þessari bók er birt keisaratal
Rómaveldis frá upphafi og allt til
476. Sumir þeirra voru aðeins
keisarar að nafni til, aðrir voru
það í raun, keisarar yfir fjölþjóða
ríki, því víðlendasta sem menn
vita. Róm hefur markað alla sögu
meira og minna og þar með okkar
sögu.
Höfundurinn telur að dýrkeypt
reynsla tuttugustu aldar manna af
persónudýrkun hafi fjarlægt
menn persónusögu eins og hún
birtist í sumum rómverskum
heimildum og að þessar sömu
heimildir geri of lítið úr félagsleg-
um, efnahagslegum og menning-
arlegum hvötum að gangi sögunn-
ar. Grant telur að þessi þættir
hafi vissulega ráðið miklu um alla
þróun eða framvindu. Sumir þess-
ara svonefndu keisara voru líkast-
ir soðbollum sem rak niður tímans
straum og sem höfðu engin áhrif á
það hvert miðaði. Aðrir mótuðu
svo vissa þætti samtíðar sinnar,
að fram hjá því verður ekki geng-
ið, að þeir réðu framvindunni og
mótuðu hana, og áhrifa þeirrar
mótunar gætti um aldir.
Hvað hefði gerst ef Oktavíanus,
Markús Árelíus, Diokletianus og
Konstantínus mikli hefðu ekki
mótað gang atburða eins og þeir
vissulega gerðu.
Keisaranafnið var vissulega
meira en nafnið tómt. það krafðist
mikils áræðis að taka við þeim
starfa og því telur höfundurinn að
það sé í fremsta máta eðlileg for-
vitni, að grennslast fyrir um per-
sónuleika og gerð þeirra manna,
sem hlýddu kallinu.
Höfundur fjallar um 92 keisara
raðað upp í tímaröð. 100 aðrir
báru keisaratitil, en þeir réðu að-
eins hluta ríkisins og oftast
skamma stund. Heimildir samtíð-
ar höfunda um þessa 92 eru oft af
mjög skornum skammti. Birt er
heimildaskrá í bókarlok, en auk
þeirra heimilda hefur höfundur
leitað upplýsinga í myntir sam-
tímans, áletranir og fornleifa-
rannsóknir.
Birtar eru myndir af þeim
höggmyndum sem til eru af keis-
urunum og annars myndir þeirra
af myntum.
Frá hægri: Helen Knútsdóttir, Hanna Sampsted, Bergþóra Guðnadóttir.
Eigendaskipti á Spörtu
Hárgreiðslustofan Sparta hefur breytingar hafi verið gerðar á
nýverið skipt um eigendur. stofunni.
í fréttatilkynningu frá nýju eig- Hárgreiðslustofan er staðsett
endunum segir að gagngerar við Norðurbrún 2.
jörtbur
IqarÖinn
Nú er a«t ab »a 09
Hér laerðu altt sem þu ---------------------
Garðplöntur: TrA oq runnar. Eigum Ito
5SSSS5K®***"í"i9a'
gróöurskála.
Blómum
vióavcröW
ioterBora
Carðéburöur. Þunkaöur
hæ^naekítur trá Holtabuinu.
Oaröáhöld allskonar.
líSgur.Gar^önnur.
Útiker, svalaker.
Veggp°ttar 1 utvai'
Gróðurtrús/nu v«3 SlgtUn:S/mar36770-686340