Morgunblaðið - 04.07.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1985
5
Útboð hjá Vegagerðinni:
Hæsta tilboð
meira en fjór-
falt hærra en
það lægsta
í ÞESSARI viku voru opnuð tilboð
hjá Vegagerð ríkisins í tvö verk.
Lægstu tilboð voru 43 og 65% af
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Strandverk bauð 1.695 þúsund
kr. í styrkingu 7,5 km kafla þjóð-
vegarins á Barðaströnd og er það
aðeins 43% af kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar. Kostnaðaráætl-
unin er 3.898 þúsund kr. og voru 4
af 6 tilboðum í verkið undir áætl-
uninni. Athygli vekur að eitt
fyrirtæki bauð 7.643 þúsund kr. í
verkið, en það er tæplega tvöföld
kostnaðaráætlun og rúmlega fjór-
falt hærra en lægsta tilboðið.
Óskar Hjaltason úr Hafnarfirði
átti lægsta tilboðið í Krísuvík-
urveg-Bláfjallaveg (klæðningar-
endi á Krísuvíkurvegi-Rauðu-
hnjúkar). Tilboð hans var 5.851
þúsund en kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar 9.006 þúsund og var
tilboð Óskars því 65% af áætlun.
Ellefu tilboð komu í verkið og 6
þeirra undir áætlun. Hæsta til-
boðið var 13.650 þúsund, sem er
50% yfir kostnaðaráætlun og
rúmlega tvöfalt hærra en lægsta
tilboðið.
Verðlagsráð:
Erindi og gögn
einstakra
fyrirtækja
trúnaðarmál
ÞAÐ ER rangt að Verðlagsstofnun
hafi neitað FIB um upplýsingar um
forsendur fyrir hækkun bensínverðs,
eins og fram kemur í samtali við Jón-
as Bjarnason, framkvæmdastjóra Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda, í
Morgunblaðinu. Hið rétta, að
sögn varaverðlagsstjóra, Gunnars
Þorsteinssonar, er, að upplýsingar
um forsendur fyrir ákvörðun Verð-
lagsráðs um hækkun bensínverðs er
sjálfsagt að veita og hefur svo ávallt
verið. Hins vegar eru erindi og gögn
einstakra fyrirtækja sem berast
Verðlagsráði trúnaðarmál.
„Jónas Bjarnason hafði sam-
band við mig á mánudag og óskaði
eftir að fá afhent erindi olíufélag-
anna, ásamt þeim gögnum sem
olíufélögin byggðu kröfur sínar á
um hækkun bensínverðs. Þau er-
indi og gögn sem berast stofnun-
inni eru skoðuð sem trúnaðarmál
og tjáði ég Jónasi þvi að afhending
á þeim gæti ekki átt sér stað,“
sagði Gunnar í samtali við Morg-
unblaðið.
„Ég benti Jónasi að senda stofn-
uninni, sem hingað til, bréf, þar
sem hann óskaði eftir upplýsing-
um um uppbyggingu bensínverðs,
ásamt öðrum þeim upplýsingum,
sem hann teldi sig þurfa, varðandi
síðustu ákvörðun Verðlagsráðs,"
sagði Gunnar ennfremur.
„Ég tel rétt að það komi fram að
sambandið milli Verðlagsstofnun-
ar og FÍB á undanförnum árum
hefur verið með ágætum og ég er
hissa á þessum misskilningi Jónas-
ar,“ sagði Gunnar Þorsteinsson að
lokum.
Forsetinn til
Spánar og Belgíu
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, fer í opinbera heimsókn til
Spánar 16. til 18. september nk. í
boði spænsku konungshjónanna.
í fréttatilkynningu frá skrif-
stofu forseta Islands segir, að for-
seti íslands hafi einnig þegið boð
Hollandsdrottningar um að koma
í opinbera heimsókn til Hollands
19. til 20. september nk.
AUSTURSTRÆT117- STARMÝRI 2
STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI
Hamb°rgarar
m/brauði a m
i <ts\ h- ws» AÐEINS 'j ■
at Ws'
iuoo'\rt_rverö
V-ýs'
HO'lnnand^9'
se^dagana-
Glæsilegt úrval af
'JIAMH svínakjöti
VÖRUR Á GÓÐU VERÐI NÝSLÁTRUÐU
Ódýrustu
gnllkolin
í bænum!!
Bakaðar baunir * a ™
_________V4 dós
Bakaðar baunir o q 90
V2 dós -í O ’
3 kg.
Instant kaffi
50 gr
59’°°
- GOÐ KAUP -
Beikon
AÐEINS2505?
AÐEINS
169
‘"“SÍ598*’
.00
ISr' 24”
Bláber
Nýkomin í flugi
AÐEINS kr.
.00
f Lagfreyöandi „ ,n
^ þvottaefni840gr jy*
Ný fersk Uppþvottalögur 0 00
750ml ^O’
Juvel hveiti
2kg29
Strásykur
2 kg 27%
,9«
pr. kg.
Spennandi grillpinnar
Pk- ft
ÓDÝRT
GOO
fleiri gerðir
Niðursoðnir ávextir á
ÓTRÚLEGA góðu verði
EL’VITAL sjampó kr. 7 Q ,80 .■.
frá loréal 1 Sælkeraf lokki
78,80 kjöt sem fengið hefur að hanga og meyrna
namænng Kr. / O þannig aö bragögæóin eru komin í hámark.
ÚU mnvr T AY Ath. Lokað á
vjicuiiji laugardögum í sumar.
Opið til kl. 2 0 í Mjóddinni-« “
AUSTURSTRÆT117 — STARMÝRI 2
STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI