Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985
33
Evrópumótið í bridge:
*
Israelsmenn
ósigrandi,
unnu ísland
20—10 í 17.
umferð
SaLsomaggiore, Ítalíu, 3. júlí. Frá Jahobi K.
Möller, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLAND tapaði 10—20 fyrir ísrael
í 17. umferð Evrópumótsins í
bridge og hafa ísraelsmenn tekið
afgerandi forystu, eru með 325
stig eða 70 stig yfir meðalskor. ís-
land er í 14. sæti með 240 stig, 15
undir meðalskor. íslensku kon-
urnar töpuðu í gær fyrir Þýska-
landi, 8—22, og eru nú í 14. sæti
með 132 stig.
I fyrri hálfleiknum gegn Isra-
el mættu þeir Jón Baldursson og
Sigurður Sverrisson Lev og
Shofel í opna salnum, en Jón
Ásbjörnsson og Símon Símon-
arson Hochzeit og Frydrick í
þeim lokaða. Leikurinn, sem
áhorfendur sáu í opna salnum,
var mjög vel spilaður af beggja
hálfu, en allt gekk hins vegar á
móti Jóni og Símoni í lokaða
salnum og í hálfleik leiddu Isra-
elsmenn með 35 stigum, 26—61.
Aðalsteinn Jörgensen og Valur
Sigurðsson skiptu við Jón og
Símon í síðari hálfleik og áttu
bæði íslensku pörin góðan leik,
en fsraelsmenn líka. íslenska
sveitin náði 4 stigum til baka og
tapaði því leiknum 10—20.
ísraelsmenn hafa tekið mjög
góða forystu þegar fjórar um-
ferðir eru eftir, því helstu keppi-
nautarnir, Frakkar og Austur-
ríkismenn, töpuðu sínum leikj-
um. Staða efstu sveita er þessi:
ísrael 325, Frakkland 309, Aust-
urríki 299, Holland 295, Dan-
mörk 294, Pólland 283 og Bret-
land 278.
í dag, miðvikudag, verður ein-
ungis spilaður einn kvöldleikur,
en þá spilar ísland við Spán,
sem hefur verið nálægt botnin-
um allt mótið. Mótinu lýkur á
föstudaginn.
Gítartónleikar
á Akureyri
PÁLL Eyjólfsson gítarleikari held-
ur tónleika á Laxdalshúsi á Akur-
eyri nmmtudaginn 4. júlí kl. 20.30.
Á efnisskrá verða m.a. verk eftir
JA Bach, I. Albeniz og Mist l>or-
kelsdóttur.
Páll hóf nám í Barnamúsík-
skóla Reykjavíkur en síðar í Gít-
arskólanum, þar sem kennari
hans var Eyþór Þorláksson.
Hann lauk einleikaraprófi þaðan
árið 1981 og stundaði síðan
framhaldsnám á Spáni undir
handleiðslu spánska gítarleikar-
ans Jose Luis Gonsalez. Hann
starfar nú sem gítarkennari í
Reykjavík.
(FrétUtilkynning)
HLIDARLISTAR
í úrvali. Einnig nýkomnir gúmmíbrettabogar
LÍMRENDUR
MARGIR
LITIR