Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 25
3»ÖlU£ÍMBLADIÐj ÍHIDJUÐAÖORlflMWíif Í9fc 25 HEIMSÓKNARTÍMI. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti f*r heimsókn í Bethesda-sjúkrahúsið í fyrri viku. Forsetinn fékk að fara heim sl. laugardag og stjórnar nú sem fyrr í Hvíta húsinu. Á myndinni eru, auk Reagans, George Bush varaforseti (í miðið) og Donald Regan starfsmannastjóri í Hvíta húsinu. Reagan vmsælli eftir uppskurðinn New York, 21. ralí. AP. SKOÐANAKÖNNUN sem tímarit- ið Newsweek lét gera, sýndi að meirihluti Bandaríkjamanna óttast ekki að forseti þeirra, Ronald Reagan, muni eiga í erfiðleikum með að takast á við störf sín að nýju eftir uppskurðinn sem hann gekkst undir fyrir rúmri viku. Niðurstöður skoðanakönnun- arinnar voru birtar um helgina, en hún mun birtast í heild í næsta tölublaði Newsweek, sem kemur út í vikunni. Þar kom fram að vinsældir Reagans hafa vaxið hægt en örugglega síðan hann gekkst undir skurðaðgerð- ina, þar sem illkynjað æxli var fjarlægt úr ristli hans. Einnig kom fram traust á George Bush, varaforseta, til að gegna mikil- vægum störfum i fjarveru Reag- ans. Rúmlega 57% þeirra 735 full- orðinna sem tóku þátt i könnun- inni sögðust hafa litlar sem eng- ar áhyggjur af því að heilsu- brestur forsetans hefði áhrif á starfsgetu hans, 18% sögðust mjög áhyggjufull yfir getu for- setans til að stjórna landinu og 22% sögðust nokkuð áhyggju- full. Vinsældir Reagans jukust um 5% frá því í síðustu skoðana- könnun tímaritsins, eða úr 63% í 68%. Um 63% aðspurðra sögðust bera fullkomið traust til George Bush til að taka við af forsetan- um, en 31% sagðist ekki hafa trú á honum. Reagan er sagður bíða spennt- ur eftir að taka til starfa á ný, en hann mun fara sér hægt um sinn og safna kröftum. Reagan kom aftur tilJHvíta hússins á laug- ardag og sagðist ánægður með að vera kominn heim á ný. Á þriðjudag mun hann taka á móti Li Kiannian, forseta Kína, sem kemur til Washington í opinbera heimsókn. Heimsóknin hefur verið skipulögð þannig að forset- inn þurfi ekki að reyna mikið á sig og mun hann ekki sitja allt borðhaldið þegar Kiannian ber að garði. Aður en Reagan yfirgaf sjúkrahúsið flutti hann ræðu sem útvarpað var um öll Banua- ríkin og sagðist hann bíða óþreyjufullur eftir þvi að taka til fullra starfa aftur. Hann minnt- ist ekki á krabbameinið sem fannst í ristli hans, en hvatti alla til að fara reglulega í lækn- isrannsókn, svo hægt væri að komast fyrir þá sjúkdóma sem menn kynnu að vera haldnir. Bretar bjarga sovéskum flug- manni úr sjónum London, 21. jnlí. AP. BRESKUR tundurspillir, sem fylgd- ist með flotaæfingum Sovétmanna á hafinu milli Noregs og íslands, bjargaði sovéskum flugmanni úr sjónum eftir að orrustuflugvél hans hrapaði, að sögn breska varnarmála- ráðuneytisins. Orrustuvélinni, sem getur hafið sig lóðrétt á loft af flugmóður- skipi, hlekktist á í einni æfingunni þar sem hún fór af sovéska flug- móðurskipinu Kiev, stærsta skip- inu í sovéska flotanum, með þeim afleiðingum að vélin hrapaði í sjó- inn. Bresku sjóliðarnir sóttu manninn á litlum hraðbáti og fóru með hann um borð í tundurspill- inn. Skömmu síðar var þyrla frá Kiev send til að ná í flugmanninn af tundurspillinum. Flugmaðurinn reyndist lítið slasaður. Talsmaður breska varnarmála- ráðuneytisins sagði einnig að lítill bátur hefði verið sendur frá Kiev til að ná mestu af braki vélarinn- ar. Tundurspillirinn Newcastle er eitt 17 breskra herskipa sem fylgj- ast með flotaæfingum Sovét- manna á Atlantshafi, en þær eru sagðar einhverjar þær mestu sem um getur. Þar eru a.m.k. 38 her- skip, 25 fylgiskip og 40 kafbátar að æfingum. Sovét: Dyggur flokks- maður gerður að sendiherra í Ungverjalandi Moskva, 22. julí. AP. BORIS Stukalin, valdamikill full- trúi í áróðursdeild miðnefndar kommúnistaflokks Sovétríkjanna, hefur verið skipaður sendiherra í Ungverjalandi, að sögn TASS- fréttastofunnar. Hann tekur við af Vladimir Brazovsky sem verður settur til að gegna öðru starfi. Stukalin hefur verið yfirmaður áróðursdeildarinnar síðan í des- ember 1982 og hann hefur einnig verið varaformaður Blaðamanna- samtaka Sovétríkjanna. Slagsmál við Narita-flugvöll Tókýó, 22. idli. AP. ÓEIRÐALÖGREGLA notaði táragas gegn þúsund manna hópi við Nar- ita-flugvöll, sem var að mótmæla stækkun flugvallarins. Tuttugu og sjö voru handteknir. Lögreglan greip til þessa er hóp- urinn fór að kasta grjóti að lög- reglumönnunum og segir í óstað- festum fregnum að tólf lögreglu- menn hafi meiðst. Oftsinnis hefur komið til slagsmála og óeirða vegna stækk- unar flugvallarins og raunar frá því hann var tekinn í notkun fyrir sjö árum, en táragassprengjum hefur ekki verið beitt. Ætlunin er að gera eina flugbraut til viðbótar við völlinn sem er um 65 km norð- austur af Tókýó. Bændur sem eiga lönd sem .verða tekin undir flug- brautina hafa mótmælt harðlega og síðan hafa fleiri komið þeim til liðs. Narita-flugvöllur er meðal þeirra valla sem einna mest um- ferð er um í heiminum. Shamir vill hitta Shevardnaze í haust Tel Aviv, 22. júlí AP. YITZAK Shamir, utanríkisráðherra ísraels, sagði í dag að hann vonaðist til að eiga fund með Eduard Shevard- adze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, þegar báðir fara á allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna í september. Opinber tilkynning þessa efnis var gefin út skömmu eftir að fréttir höfðu hermt að Peres hefði sent per- sónulega orðsendingu til Gorbasj- evs, flokksleiðtoga Sovétríkjanna, um að hann vonaðist til að Israels- menn og Sovétmenn gætu náð sam- komulagi um ótal atriði. Peres kom boðunum áleiðis fyrir meðalgöngu Edgar Brofmans, forseta Alþjóða- samtaka gyðinga, en hann fer í heimsókn til Moskvu í næsta mán- uði. Shamir sagði að fundur hans og sovéska utanríkisráðherrans hefði Yitzak Shamir verið áformaður áður en fréttir láku út um viðræður milli sendiherra ísraels og Sovétríkjanna í París. Shamir sagði að þessi fréttaleki væri til baga en hann vonaðist til að það breytti engu um að þeir ráð- herrarnir gætu hitzt í New York í september. í sömu frétt um fundinn var sagt að ísraelsmenn og Sovétmenn væru að reyna að komast að samkomu- lagi um hvernig þeir gætu tekið upp stjórnmálasamband á ný og greitt fyrir að sovéskir gyðingar fengju að flytja til ísraels. Þessum fréttum hefur verið vísað á bug af viðkom- andi aðilum. Hins vegar þykjast fréttaskýrendur sjá ýmis merki þess að ísraelsmenn og Sovétmenn hafi nokkurn vilja til að ná ein- hverskonar samkomulagi, þótt óop- inbert yrði. Schewardnadse Kópavogsvöllur BreiðabBt — Njarðvfk í kvöM kl. 20.00 Útvegsbanki íslands, Kópavogi Banki Kópavogsbúa Smiðjuvegi 14d. Opið allar nætur Breiðablik í innróktingopjónuston smi(>ju\t*((i Vt J(M) K« »|». Nmii 7<iH(Ml. umbro BYKO Kópavogsnesti, Nýbýlavogi 10, sími 42510.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.